Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.1999, Page 12
12
FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 1999
óháð dagblað
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON
Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ÓLI BJÖRN KÁRASON
Aðstoðarritstjóri: JÓNAS HARALDSSON
Auglýsingastjóri: PÁLL ÞORSTEINSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI11, 105 RVÍK,
SÍMI: 550 5000
FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999
GRÆN númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777
Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/
Vísir, netútgáfa Fijálsrar fiölmiðlunar: http://www.visir.is
Ritstjórn: dvritst@ff.is - Auglýsingar: auglysingar@ff.is. - Dreifing: dvdreif@ff.is
AKUREYRI: Strandgata 25, sfmi: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 4611605
Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Filmu- og plötugerö: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF.
Áskriftarverð á mánuði 1900 kr. m. vsk. Lausasöluverð 170 kr. m. vsk., Helgarblað 230 kr. m. vsk.
DV áskilur sér rétt til að birta aösent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgialds.
Eyða þarf óvissunni
Um áramót tóku gildi ný lög um lífeyrirssparnað um-
fram lögboðinn 10 prósenta lífeyrisspamað af heildar-
launum. Leggi launþegi til hliðar viðbótar 2 prósent af
launum kemur að auki 0,2 prósenta framlag vinnuveit-
anda. Launþegar hafa verið hvattir til þátttöku og líf-
eyrissjóðir og íjármálafyrirtæki hafa kynnt hve reglu-
legt framlag gefur mönnum mikinn lífeyri til viðbótar
við starfslok.
Málið er hið þarfasta. Með slíkum viðbótarsparnaði
tryggja menn bætta afkomu á ellilífeyrisárum um leið
og þjóðhagslegur sparnaður eykst. Það er því full
ástæða fyrir fólk að huga að þessum málum og fá ráð-
gjöf um sparnaðinn. Þar verður meðal annars að taka
tilltit til aldurs og tekna.
Fleira verður þó að hafa í huga. Það kom fram í DV
í gær að ekki er tryggt að Ábyrgðasjóður launa ábyrgist
þennan 2,2 prósenta viðbótarsparnað verði launagreið-
andi gjaldþrota og hafi áður tekið af launum en ekki
gert skil við vörsluhafa sjóðsins, lífeyrissjóð eða fjár-
málafyrirtæki. Sjóðurinn ábyrgist hins vegar ógreidd
laun og lögbundið 10 prósenta lífeyrisframlag komi til
gjaldþrots launagreiðanda.
í svari Fjármálaeftirlitsins við fyrirspurn lífeyris-
sjóðs um ábyrgð á viðbótarlífeyristryggingunni, sagði
meðal annars að eðli séreignarsparnaðar, samkvæmt
lögum, væri slíkt að telja yrði að réttur byggðist ein-
ungis á þeim framlögum sem sannarlega væri skilað til
viðkomandi séreignarsjóðs, samkvæmt samningi um
séreignarsparnað. Verði misbrestur á skilum framlaga
til sjóðsins af hálfu launagreiðanda er það rétthafa,
samkvæmt samningi, að krefjast úrbóta með þeim leið-
um sem tiltækar eru og rétthafi ber kostnað sem af því
kann að hljótast.
Aðrir eru þeirrar skoðunar að Ábyrgðasjóður launa
ábyrgist viðbótarlífeyrisspamaðinn og styðja það þeim
rökum að á meðan launagreiðandi hafi ekki staðið skil
á framlaginu til vörsluaðila, megi líta á að það sé enn
hluti af launum. Hrafn Magnússon, framkvæmdastjóri
Landssambands lífeyrissjóða, segir að rætt hafi verið
um Ábyrgðasjóð launa og viðbótarlífeyrissparnaðinn,
en staðan sé enn óljós. Þá segir Sesselja Ámadóttir,
stjórnarformaður Ábyrgðasjóðs launa, að lögin um
sjóðinn taki ekki á þessu atriði með beinum hætti.
Hér verður að eyða óvissu. Nauðsynlegt var talið að
tryggja laun og 10 prósent lífeyrisrétt launþega, kæmi
til gjaldþrots fyrirtækja. Hið sama ætti að gilda um
viðbótina. Sparnaðurinn er í þágu einstaklinga jafnt
sem hins opinbera og því er óviðunandi að vafatriði
um ábyrgð fæli fólk frá því að leggja meira til hliðar til
elliáranna.
Taka ber undir orð framkvæmdastjóra Landssam-
bands lífeyrissjóða, sem segir: „Ef eitthvað er óskýrt í
lögunum er ekki um annað að ræða en breyta þeim.“
Hann telur enda að fullur vilji sé til slíks.
Fá þarf samræmda niðurstöðu þeirra sem að málinu
koma. Það þarf að gerast sem fyrst. Kynning á þessum
nýja sparnaði hefur staðið í rúman mánuð og hver og
einn þarf að gera upp við sig hvort og með hvaða hætti
hann hagar lífeyrisspamaði umfram 10 prósent sparn-
aðinn. Lögbundni sparnaðurin er í mörgum tilfellum
fráleitt nægur til framfærslu fólks á lífeyrisaldri. Við-
bótarsparnaður hvers og eins á að tryggja afkomuna og
koma í veg fyrir að fólk neyðist til að leita ásjár ann-
arra til að sjá sér farborða eftir að starfsdegi lýkur.
Jónas Haraldsson
Hillary Clinton. - Koma hennar mun ýta enn frekar undir umræðuna um mikilvægi þess að konur til jafns við
karla taki þátt í stjórnun og mótun samfélags okkar, segir Siv m.a.
Hillary kemur
þingi sem þingmenn
allra flokka stóðu að og
samþykktu var skipuð
nefnd sem á að standa
fyrir þverpólitískum að-
gerðum, fræðslu og
áróðri til að auka hlut
kvenna í stjómmálum.
Nefndin hefur staðið
fyrir auglýsingum sem
vakið hafa mikla at-
hygli og umræðu. Nú
þegar hafa konur og
karlar sem tekið hafa
þátt í prófkjörum að
undanfomu opinberlega
lýst því að starf nefnd-
arinnar, auglýsingarnar
og umræðan í kringum
þær hafi aukið fram-
gang kvenna almennt
við uppröðun á lista.
„Eftirtektarvert er hve hlutur
landsbyggðarkvenna er rýr á Al•
þingi. Þær eru einungis 5 af 32
þingmönnum sex kjördæma.
Skýringarnar eru margslungnar.
Kosningalöggjöfin felur það í
sér að fáir af lista komast inn í
hverju kjördæmi, sérstaklega á
landsbyggðinni.u
Kjallarinn
Siv Friðleifsdóttir
alþingismaður,
formaður nefndar um
aukinn hlut kvenna
í stjórnmálum
Það er sannkall-
að gleðiefni fyrir
okkur, sem vinn-
um að auknum
hlut kvenna í
stjórnmálum, að
Hillary Clinton,
forsetafrú Banda-
ríkjanna, skuli
koma til íslands í
haust á ráðstefnu
um konur og lýð-
ræði. Koma hennar
mun ýta enn frekar
undir umræðuna
um mikilvægi þess
að konur til jafns
við karla taki þátt í
stjórnun og mótun
samfélags okkar.
Hlutur kvenna í
stjómmálum er
enn of rýr á ís-
landi. Þróunin er
þó hægfara í rétta
átt.
Fyrir rúmum 80
árum fengu konur
á íslandi kosninga-
rétt. Árið 1983 vom
konur 5% alþingis-
manna en í dag eru
þær tæpur þriðj-
ungur. Við erum
eftirbátar Norður-
landanna í þessum
efnum en þar er
hlutur kvenna um
og yfir 40% á þjóð-
þingum. Hlutfall kvenna á þjóð-
þingum Norðurlandanna endur-
speglast í ríkisstjómum Norður-
landanna. Ef færa ætti hliðstæða
stöðu yfir á ríkisstjóm okkar ís-
lendinga þá ættu konur í ríkis-
stjóminni að vera 3.
Aðgerðir til að fjölga konum
í kjölfar þingsályktunar á Al-
Nefndin hefur einnig haldið opna
kynningarfundi um konur og
stjómmál í kjördæmunum sem
hafa verið líflegir og vel sóttir.
Sérstaða landsbyggðarkvenna
Eftirtektarvert er hve hlutur
landsbyggðarkvenna er rýr á Al-
þingi. Þær era einungis 5 af 32
þingmönnum sex kjördæma. Skýr-
ingcimar eru margslungnar. Kosn-
ingalöggjöfin felur það í sér að fáir
af lista komast inn í hverju kjör-
dæmi, sérstaklega á landsbyggð-
inni. Slík löggjöf tefur framgang
kvenna þar sem karlar skipa yfir-
leitt efstu sætin.
Launamunur kynja hefur einnig
þau áhrif að konur em síður fyrir-
vinna heimilis en karlar en taka
þess i stað meiri ábyrgð á heimil-
ishaldi og bamauppeldi. Þær era
síður tilbúnar að færa fjölskyld-
una til, halda úti tveimur heimil-
um, öðru í kjördæminu en hinu í
Reykjavík, þar sem þingið er að
störfúm á vetuma. Breytingar á
kosningalöggjöf, launajafnrétti
kynja og betra fæðingarorlof bæði
kvenna og ekki síður karla em því
lykilatriði varðandi framgang
kvenna í stjómmálum.
Vígi falla
Mikilvægum áfanga var náð í
stjórnmálasögunni á dögunum.
Ambjörg Sveinsdóttir alþingis-
maður náði í prófkjöri 1. sæti
sjálfstæðismanna á Austurlandi
og er því fyrsta konan sem leiðir
lista fyrir Sjáifstæðisflokkinn í al-
þingiskosningum. Nokkur vígi eru
enn ófallin. Nefna má að í Norður-
landi vestra hefur aldrei kona náð
kosningu til Alþingis en vera má
að það vígi falli í kosningunum í
vor. Nefndin sem vinnur nú að því
að auka hlut kvenna í stjómmál-
um mun starfa í 5 ár og nær því
tvennum alþingiskosningum og
einum sveitarstjómarkosningum.
Það er von min að allir þeir sem
áhuga hafa á þvi að auka hlut
kvenna í stjórnmálum leggi sitt á
vogarskálarnar þannig að lokatak-
markið náist, konur og karlar
komi jafnt að stjómun íslensk
samfélags.
Siv Friðleifsdóttir
Skoðanir annarra
Samkeppnin um loðnuna
„Ég tel að mjöl- og lýsismarkaðimir muni reynast
erfiðir næstu 2-3 mánuðina, meðan verið er að vinna
til baka þá kaupendur sem skipt hafa yfir í aðra hrá-
vöru ... Kaupendur loðnu í Japan komu illa út úr síð-
ustu vertíð. Meginhluti loðnu frá íslandi var smá
loðna sem er dýr í vinnslu hjá kaupendum og seld á
lágu verði út úr búð. Afkoma þeirra var þvi slæm.
Efnahagsástand í Japan er ekki gott. Samkeppni við
okkur íslendinga hefur aukist með loðnu frá Kanada
og nú bætist Noregur í hópinn ... Markaður í Japan
er fyrir um 30.000 tonn á ári. íslensk loðna er þar í
miklum metum og taka kaupendur hana fram yfir þá
kanadisku ... Fyrstu kaupendur em komnir til lands-
ins og er nú aðeins beðið eftir að vertíðin byrji.“
Kristján Hjaltason í Viðskiptablaðinu 3. febr.
Nefndin fari frá
„Við val manna í Alþjóða ólympíunefndina er ekki
farið að lýðræöislegum reglum. Menn eru tilnefndir
en ekki kjörnir. Slíkt val á nefndarmönnum býður
hættunni heim og því er ljóst að stokka veröur upp í
vali nefndarinnar ... Ljóst er að nefndin er þess ekki
umkomin að rannsaka eitt né neitt í þessu sambandi
og því tekur Morgimblaðið undir það með hinum fjöl-
mörgu gagnrýnendum nefndarinnar, að eina lausnin
sé að nefndin fari öll ffá og kosin verði ný nefnd lýð-
ræðislegri kosningu, sem aftur kjósi sér forystu. Að-
eins með því verður unnt að endurreisa virðingu og
heiðarleik Alþjóða ólympíunefhdarinnar."
Úr forystugrein Mbl. 3. febr.
Tíná týnist og almenningur
sperrir eyrun
„Almenningur lætur sér fátt um finnast þótt eitt og
eitt gamalmenni sé barið til óbóta, einni eða tveimur
konum nauðgað eða stráklingur stunginn með hnífi.
Fjölmiðlum stendur einnig á sama. Auðvitað segja þeir
frá því ef einhver er tekinn af lífi í Austurstræti en yf-
irleitt er nú ekki gert meira með það en fréttatilkynn-
ingu um pijónakeppni í Dölum. Ef um væri að ræða
hund þá gegnir öðru máli. Þá setja fjölmiðlar ekki upp
neinn hundshaus og almenningur sperrir eyrun líkt og
síðhærður fjárhundur af Terrier-kyni. Þetta er vissu-
lega hundleiðinlegt en svona er það nú samt.“
Gísli Einarsson í Skessuhorni 28. janúar.