Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1999, Síða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1999, Síða 32
FRÉTTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö I hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 MIÐVIKUDAGUR 17. FEBRÚAR 1999 Vitni í e-töflumálinu: Spánarmað- urinn yfirheyrð- ur fram á nótt r Fíkniefnalögreglan tók á móti ungum manni í Leifsstöð í gær sem hefur verið vitni í sakamálinu þar sem Bretinn Kio Alexanders Briggs er ákærður fyrir innflutning á rúm- um 2 þúsund e-töflum. Þetta er mað- urinn sem hefur búið á Spáni og haldið því fram fyrir dómi og síðan í DV að hann „hafi samið við fikni- efnalögregluna" áður en Bretinn kom til landsins frá Alicante í sept- ember. Maðurinn hafði réttarstöðu grunaðs manns í haust en hefur síð- an verið vitni. Engin fíkniefni fund- ust á honum í gær. Talsmaður fíkniefnalögreglunnar vildi ekkert segja um framburð _ mannsins við yfirheyrslur sem stóðu fram á nótt. Því liggur ekki fyrir hvort maðurinn staðfesti nú hjá lögreglu það sem hann hafði upplýst fyrir dómi um samninga við lögregluna - né heldur hvort hann hélt við það sem hann sagði í blað- inu að Bretinn hefði átt hluta af e- töflunum og að hann sjálfur hefði samið við fíkniefnalögregluna um að fá að flytja inn efni á öðrum vett- vangi. -Ótt ^ Oz fær liðsstyrk Tölvufyrirtækið Oz tilkynnti í gær að Ed Tuck tæki sæti í stjóm fyrirtækisins. Hann situr um þessar mundir í stjóm nokkurra fyrir- tækja, auk þess að hafa einkaleyfi á tækni af ýmsu tagi. Þar á meðal er tækni fyrir örbylgju, gervitungl og þráðlaus fjarskipti. Tuck hefur sérhæft sig í að fjár- magna og stýra fyrirtækjum á upp- hafsámm þeirra. Meðal hátæknifyr- irtækja sem hann hefur haft hönd í bagga með að koma á fót era Ma- gellan og Teledesic. Skúli Mogen- sen, framkvæmdastjóri Oz, sagði við erlenda fjölmiðla í gær að besta leiðin fyrir fyrirtækið til að halda velli í alþjóðasamkeppni væri að fá — til liðs við sig hæfileikaríka og reynda menn eins og Ed Tuck. -KJA Ölvunarakstur í sýningarsal Brotist var inn í sýningarsal bíla- umboðsins Ingvars Helgasonar hf. á fjórða timanum í nótt. Þar hafði drengur á sautjánda aldursári tekið bíl ófrjálsri hendi og ekið honum á þrjá aðra sem skemmdust mismikið. Öryggisvörður fyrirtækisins kallaði til lögreglu sem handtók piltinn og færði hann á lögreglustöðina í Reykja- vík þar sem hann var i nótt. Drengur- rjt.inn er granaður um að hafa verið undir áhrifum áfengis og er ökurétt- indalaus. -hb Kjötkveðjuhátíð var haldin í gærkvöldi í safnaðarheimili Landakotskirkju þar sem þessi mynd var tekin. Hátíðin var fjölbreytt fjölskylduhátíð þar sem börn og fullorðnir gerðu sér dagamun og keppt var m.a. í skyráti. Samkvæmt kaþólskum sið er sprengidagurinn síðasti dagurinn fyrir lönguföstu og í dag er síð- an öskudagurinn sem er dagur sorgar samkvæmt kaþólskri hefð og fyrsti dagurinn í sjö vikna föstunni sem nær hápunktinum á föstudaginn langa. DV-mynd Pjetur Útgerö og tryggingafélag Æsu hafna bótakröfum: Lýsa ábyrgð á skip- stjórann sem fórst - málið þingfest fyrir Héraösdómi Vestfjarða í morgun Mál á hendur útgerð og tryggingafé- lagi kúfiskbátins Æsu var tekið fyrir hjá Héraðsdómi Vestíjarða í morgun. Lögmaður Kolbrúnar Sverrisdóttur, ekkju skipstjórans á Æsu, lagði fram stefnu á hendur útgerð og tryggingafé- lagi Æsu. Þar er krafist bóta fyrir hönd hennar og barna hennar og Harðar heitins Bjarnasonar skipstjóra sem fórst með skipinu þann 25. júlí 1996. Alls er krafist um 8,5 milljóna króna auk vaxta. Bæði Vestfirskur skelfiskur hf. og tryggingafélagið, Samábyrgð á íslands á fiskiskipum hafa hafnað öllum bótakröfum og vísa m.a. til ábyrgðar skipstjórans sem var við stjóm skipsins í umræddri veiði- ferð. Vilhjálmur H. Vilhjálmsson hæsta- réttarlögmaður sækir málið, sem fékk gjafsókn úr hendi dómsmálaráðherra, fyrir hönd Kolbrúnar og þriggja bama hennar. Æsa frá Flateyri. í stefnunni er tíundað að bátnum hafi verið breytt án tilskilinna leyfa þar með talið stýri, gálga, plóg og tleiru. Þá hafi olíuleysi bagað skipið sem fyrir hafi verið afar óstöðugt og hafi ekki verið stöðugleiksprófað eftir breytingar sem gerðar vora á þvi frá því það var athent nýtt. I stefnunni segir að vélstjóri skipsins hafi verið ungur og óreyndur og þess virðist ekki hafa verið gætt að nægilegt vatn og olía hafi verið í tönkum skipsins til að tryggja stöðugleika þess. Aftari ol- íutankar hafi verið tómir og þeir fremri hálftómir auk þess sem vél- stjórinn hafi ekki hirt um að dæla sjó í stafnhylki skipsins til að tryggja stöðugleikann. Loks hafi neysluvatns- geymir verið hálftómur. I þessu sam- hengi er vitnað til þess að vegna fjár- hagserfiðleika útgerðarinnar hafi olía verið skömmtuð á skipið og ekki fyllt á tankana. Stefnandi lítur svo á að að sönnun- arbyrði sé útgerðarinnar vegna þeirra atriða sem voru í ólagi. Bent er á að stefndi hafi ekki hirt um að láta taka skipið upp eftir slysið en með því hefði mátt útiloka ákveðna möguleika sem orsök skipskaðans. Stefnda beri því að sýna fram á að skipið hefði sokkið þrátt fyrir að upptalin atriði hefðu verið í lagi. Búist er við að dómur gangi í mál- inu í sumar. y atney rarmálið: Áhöfn og út- gerðarmaður I yfirheyrslu Ríkislögreglustjóri hefur sent Svav- ari R. Guðnasyni, útgerðarmanni á Patreksfirði, og áhöfn Vatneyrarinnar boð um að mæta í yfirheyrslu hjá efnahagsbrotadeild embættisins í dag. Áður hafði verið gert ráð fyrir því að fulltrúar ríkislögreglu færu vestur. Áhöfn Vatneyrarinnar ásamt Svav- ari R. Guðnasyni útgerðarmanni var væntanleg til Reykjavíkur í morgun. Sjá nánar á bls. 2. -EIR/-aþ ísland verði vetn- issamfélag í morgun var undirritaöur sam- starfssamnigur milli nýstofnaðs ís- lensks fyrirtækis, Vistorku hf., og þriggja erlendra stórfyrirtækja, Daim- ler Chrysler AG, Shell Intemational B.V. og Norsk Hydro ASA. Aðilamir fjórir hafa stofnað með sér hlutafélag tO að kanna möguleika á að auka notkun vetnis og eldsneytis, sem unnið er úr vetni, á kostnað inn- flutts fljótandi jarðefnaeldsneytis. Með samstarflnu er stefnt að því að á íslandi verði til fyrsta „vetnissamfé- lag“ heims. -SJ Veðrið á morgun: Úrkoma um allt land Á morgun verður suðaustan- og austankaldi eða stinningskaldi með slyddu eða rigningu, en á Vestfjörðum og síðar einnig á Norðurlandi gengur í hvassa norðaustanátt og jafnvel storm með kólnandi veðri. Snjókoma verður um mestallt norðan- og norðvestanvert landið þegar líður á daginn. Veðrið í dag er á bls. 61. Njr, stærri og kraftmeíri MaruLep]41 Ingvar Helgason hf. i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.