Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.1999, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.1999, Blaðsíða 16
16 FÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR 1999 FÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR 1999 17 íþróttir *9- ENGUND Enskir fjölmiölar hafa undanfama daga verið að velta því fyrir sér hvort Lazio á Ítalíu hafi raunverulegan áhuga á að kaupa Michael Owen frá Liverpool. Þessu hafa forráðamenn Liverpool alfarið neitað og segja að Owen hafi fullvissað þá um að ekkert slíkt væri í farvatninu. í itölskum fjölmiölum hefur verið greint frá samkomulagi Owens og Lazio þess efnis að Lazio hafl fýrst rétt á því aö ræöa við Owen ákveði hann að yfirgefa Liver- pool. Owen hefur harð- neitað því að slikt sam- komulag sé til staðar. Silvio Maric, Króatinn sem New- castle keypti á dögunum, hefur Ioks- ins fengið atvinnuleyfi eftir nokkurt þóf. Það sem helst stóð I veginum var hve fáa landsleiki Maric hefur leikið fyrir landslið Króatiu. Maric þessi hefur vakið mikla at- hygli í enskum fjölmiðlum og þá einkum og sér í lagi fyrir ákveðnar lýsingar hans á ensku kvenfólki sem hann telur sérlega ófrítt. Maric er orðinn löglegur með Newcastle og reiknað er með aö hann leiki sinn fyrsta leik á sunnudag er Newcastle leikur gegn Englands- og bikarmeist- urum Arsenal. Jóhann B. Guömundsson skoraði fyrir varalið Watford i 2-0 sigri á Ful- ham i fyrrakvöld. Lárus O. Sigurösson var settur í varalið Stoke ásamt 8 öðrum fastamönnum þegar það gerði 0-0 jafhtefli viö Liverpool í fyrrakvöld. Brian Little, stjóri Stoke, er orðinn þreyttur á slöku gengi aö undaniomu og greip því til þessa ráðs. Stóm liðin á Spáni og á Ítalíu eru byijuð að bera viumar í Nicolas Anelka, framherjann frábæra hjá Arsenal. Vitað er að Börsungar hafa haft augastað á Anelka og nú er Juventus komið í slaginn og fregnir herma að liðið sé reiðubúið aö borga 2,2 milljarða fyrir kapann. Jaap Stam verður ekki með Man.Utd þegar liöiö mætir Southampton á morgun. Stam meiddist í leiknum gegn Coventry en góðar líkur em á að Hollendingurinn sterki verði klár í slaginn á miðvikudag þegar United mætir Inter. -SK/VS/GH í kvöld 1. deild karla i körfuknattleik: Breiöablik-ÍS................20.00 Þór Þorl.-Fylkir.............20.00 2. deild karla i handknattleik: Ögri-Hörður..................20.00 Þór Ak.-Fjölnir .............20.00 NBA-DEILDIN Úrslitin í nótt: Washington-Sacramento . 105-115 Howard 17, Jackson 17 - Divac 22, Webber 17, Williams 17, Williamson 16. Cleveland-Indiana ........74-81 Kemp 16, Potapenko 13, Newman 12 - Smits 20, Jackson 15, Miiler 12. NY Knicks-Minnesota . . . 115-113 Houston 26, Johnson 22, Ewing 20 - Gamett 25, Smith 22. Dallas-Denver ............90-81 Trent 18. Houston-Atlanta............87-93 Olajuwon 16, Pippen 15, Dickerson 14, Mobley 13 - Long 20, Corbin 17, Blaylock 16. Chicago-76ers..............80-98 Kukoc 16, Barry 13, Bryant 12 - Iverson 33, Ratliff 12, Snow 12. Vancouver-Phoenix ........86-94 Rahim 22 - McCloud 16, Chapman 16. LA Clippers-LA Lakers . . 100-115 Taylor 20, Murray 12, Olowokandi 12, Rogers 12 - O’Neal 19, Jones 17, Fox 16. -SK Kvennaliðunum fjölgar um eitt Fjórtán lið taka þátt í 1. deildar keppni kvenna í knattspyrnu í sum- ar, einu fleiri en á síðasta ári. Sameiginlegt lið Reynis, Keflavík- ur og Víðis, sem nefnist RKV, bæt- ist við og þá kemur Sindri frá Homafírði inn í deildina á ný eftir árs hlé. Leiknir á Fáskrúðsfirði sendir hins vegar ekki lið að þessu sinni. Þá sendir Dalvík sjálfstætt lið í ár en í fyrra vora Leiftur og Dalvík með sameiginlegt lið. Lið Akureyr- inga leikur undir nafninu Þór/KA í stað ÍBA áður, og fyrir austan er Höttur kominn með Hugin í sam- starf með sér. Liöin leika í þremur riðlum sem era þannig skipaðir: A-riðill: Fylkir (Reykjavík), RKV (Suðumes), FH (Hafnarfjörður), Grótta (Selfoss), Fjölnir (Reykjavík), Selfoss. B-riðill: Tindastóll (Sauðárkrók- ur), Hvöt (Blönduós), Dalvík, Þór/KA (Akureyri). C-riðill: KVA (Eskifjörður/Reyð- arfjörður), Huginn/Höttur (Seyðis- fjörður/Egilsstaðir), Sindri (Horna- fjörður), Einherji (Vopnafjörður). Leikin er þreföld umferð í A-riðli en fjórföld í hinum tveimur. Tvö lið fara í úrslit úr A-riðli en eitt úr hvoram hinna. Sigurliðið í úrslita- keppninni fer upp í úrvalsdeild og lið númer tvö mætir næstneðsta liði úrvalsdeildar í aukaleikjum um sæti þar. -VS Varnarleikur Brynju gerði útslagið - þegar Minden vann SV Berlín í bikarnum Minden, lið Brynju Steinsen, komst í fyrra- kvöld í 8 liða úrslit þýsku bikarkeppninnar í handknattleik með góðum sigri á SV Berlin, 32-28. „Ég byrjaði ekki inni á, enda hef ég ekki æft með liðinu í heila viku vegna leikjanna gegn Króatíu um siðustu helgi. En við erum famennar, höfðum t.d. aðeins tvo varamenn svo ég lék í vöminni nær allan tímann. Miðjumaðurinn okkar, sem er tékknesk landsliðskona með um 150 landsleiki, hefur verið meiddur og ég hef spilað á miðjunni í vöminni. Ég hef ekki viljað spila inni á miðj- unni í sóknarleiknum því Þjóöverjarnir vilja ekki spila frjálsan bolta, vilja bara keyra kerfin strax, en ég vil láta boltann fljóta," sagði Brynja Steinsen, í samtali við DV í gær. „Það er búið að draga í 8 liða úrslitin sem verða leikin í lok apríl. Við spilum á móti liði úr B-deildinni, svo við ættum að komast áfram. Úr- slitakeppni bikarsins er mjög skrýtin, undanúrslitin era leikin á laugar- degi og úrslitaleikurinn fer síðan fram daginn eftir, á sunnudeginum," sagði Brynja, sem skoraði eitt mark í leiknum. í þýska blaðinu Mindener Tageblatt er sagt að vendipunktur leiksins hafi verið sterkur vamarleikur Brynju þegar hún var sett gegn kín- verska markahrellinum Chao Zhai, í stöðunni 15-17. Við það riðlaðist leikur Berínarliðsins en Minden gekk á lagið, skoraði 6 mörk í röð og lagði granninn að góðum sigri. -ih Knattspyrnuhús í undirbúningi: Sex félög í samvinnu Sex félög á höfuðborgarsvæðinu stofna á morgun með sér félag um byggingu knattspymuhúss í fullri stærð. Þetta eru Kópavogsfélögin HK og Breiðablik, Stjaman úr Garðabæ, UMF Bessastaðahrepps og Hafnarfjarðarfélögin FH og Haukar. Félagið mun, samkvæmt heimild- um DV, heita Knatthús ehf. og fyrst í stað verður aðeins um að ræða könnun á því hvort raunhæft sé að þessi félög og þeirra sveitarfélög geti staðið saman að byggingu slíks Kvennakarfa: Spennandi í Grindavík Þrjár efstu stúlkurnar í stigakeppninni. Frá vinstri: Zsuzsa Szabo, Ungverjalandi, sem fékk 1,4 milljónir, heimsmethafinn Nicole Humbert frá Þýskalandi sem fékk 700 þúsund og Vala Flosadóttir sem f ekk 350 þúsund krónur. Pressbild 1. DEILD KVENNA 12 12 0 0 894-529 24 ÍS 12 9 0 3 717-582 18 Keílavík 12 7 0 5 654-661 14 Grindavík 12 3 0 9 605-706 6 Njarövik 11 3 0 8 537-770 6 ÍR 11 1 0 10 558-717 2 Toppslagur er á dagskrá á mánu- dagskvöldið en þá sækja deildameist- arar KR-inga Stúdínur heim i Kenn- araháskólann og hefst leikurinn klukkan 20. húss. Fyrsta knattspymuhúsið á ís- landi verður reist í Reykjanesbæ á þessu ári og á að vera tilbúið til notkunar í ársbyrjun 2000. -VS DV, Grindavík: Grindavík sigraði ÍR, 79-70, í 1. deild kvenna í körfuknattleik í Grindavík í gærkvöld eftir að staðan í háifleik var 33-37 fyrir ÍR. Leikurinn var fjöragur, nokkuð kaflaskiptur og baráttan allsráðandi aflan tímann. ÍR-stúlkur skoruðu síðustu 14 stigin i fyrri hálfleik og fyrstu tvær körfumar í siðari hálf- leik. Þá tóku stúlkumar í Grindavík kipp og komust yflr, 45-43. Eftir það var leikurinn í jámum, heimaliðið leiddi þó ávallt og vann að lokum góðan sigur. Bandaríski leikmaðurinn E. C. Hill í liði Grindavikur lék sinn fyrsta leik og átti mjög góðan leik. Hún skoraði 23 stig , Rósa Ragnarsdóttir skoraði 17 stig og Sandra Guðlaugsdóttir 15. Hjá ÍR skoraði Gréta Grét- arsdóttir 26 stig, Hfldur Sigurðaradóttir 20 stig og Þórunn Bjamadóttir 13 stig. Stórsigur Keflvíkinga í Keflavík sigraðu heimastúlkur nágranna sína í Njarðvík, 95-50, eftir að staðan í hálfleik var, 49-19, fyrir Keflavík. Hjá Keflvíkingum vora þær Marin Karlsdótt- ir og Kristín Blöndal stigahæstar með 16 stig. Hjá Njarðvikingum var Pálína Gunnarsdóttir stigahæst með 14 stig og Amdís Sigurðardóttir skoraði 10 stig. -bb/JKS Þórey Edda Elísdóttir heldur áfram að gera góða hluti f stangar- stökkinu. I gær stökk hún 4,31 metra og varð í 3. sæti á mótinu í Globen í Stokkhólmi. Fram hefur rætt við Þorberg - um aö taka viö þjálfun liðsins af Guömundi Guðmundssyni Þó nokkrar þreifingar eiga sér stað á þjálf- aramarkaðnum í 1. deild karla í handknattleik fyrir næsta tímabfl. Vitað er að þrjú félög, Fram, FH, og ÍR, eru að leita fyrir sér að þjálfara en núver- andi þjálfarar þessara félaga munu hætta eftir tímabflið. Þá þykir víst að Jón Kristjánsson verði ekki þjálf- ari Vals á næstu leiktíð. Samkvæmt heimfldum DV er Þorbergur Aðalsteinsson, þjálfari ÍBV, efstur á óskalista Framara um að taka við starfi Guðmundar Guð- mundssonar og hafa forráðamenn Safamýrarliðsins þegar rætt við Þorberg og gerðu það reyndar áður en Guðmundur Guðmundsson gekk frá sínum málum við þýska liðið Dormagen. Samningur Þorbergs við ÍBV rennur út eftir tímabilið í vor. FH með Viggó og Júlíus í sigtinu FH-ingar hcifa rætt við tvo menn vegna þjálfarastöðunnar hjá félag- inu en Kristján Arason hefur ákveð- ið að taka sér hvíld frá þjálfun. Það era þeir Viggó Sigurðsson og Júlíus Jónasson. Viggó var nýlega sagt upp störfum hjá Wuppertal og í samtali við DV taldi hann 50% líkur á að hann kæmi heim í vor. Fleiri félög á íslandi hafa rætt við Viggó. Júlíus Jónasson er á heimleið í vor frá Sviss. Hann segir að vel komi til greina að taka að sér þjálfun og DV hefur heimildir fyrir því að nokkur félög fyrir utan FH hafi einnig rætt við hann. Forráðamaður ÍR-inga sagði í samtali við DV í gær að þeir væra að skoða sín mál og að Kristján Halldórsson, þjálfari lR, sem tekur við norska kvennaliðinu Stabæk í sumar, yrði þeim innan handar við að útvega góðan þjálfara. -GH Stigamót innanhúss í Stokkhólmi í gærkvöld: Þórey Edda á palii - nýtt heimsmet í stönginni og Vala 350 þúsund krónum ríkari Tvö heimsmet vora sett á alþjóð- legu frjálsíþróttamóti innanhúss í Globen-höflinni í Stokkhólmi i gær- kvöld. Þýska stúlkan Nicole Hum- bert sigraði í stangarstökkinu, fór yfir 4,56 og setti nýtt heimsmet. Ástralska stúlkan Emma George átti fyrra metið, 4,55 metra sem hún setti í Adelaide í Astralíu í mars í fyrra. Besti árangur Humbert fyrir mótið i gærkvöld var 4,46 metrar svo að bæting hennar var umtalsverð. Þórey Edda stöðugt að bæta árangur sinn Vala Flosadóttir og Þórey Edda Elísdóttir vora meðal keppenda og hafnaði Þórey í þriðja sæti með stökk upp á 4,31 metra sem er henn- ar besti árangur og Vala lenti í fjórða sæti með stökk 4,26 metra stökk. Ungverska stúlkan Zsuzsa Szabo lenti í öðru sæti, fór yfir 4,46 metra. Þórey Edda sigraði á móti í Aþ- enu í fyrrakvöld með því fara yfir 4,30 metra. Hún hélt síðan frá Aþenu klukkan hálffimm í gær- morgun áleiðis til Stokkhólms. Hún lét ekki ferðaþreytuna aftra sér, bætti sinn persónulegan árangur um einn sentímetra og varð i þriðja sæti eins og áður sagði. Balakhonova verður eitt- hvað frá keppni Mótið i gærkvöld var lokamót fjögurra stigamóta innahúss á síð- ustu vikum. Vala keppti á öllum mótunum en Þórey Edda fékk óvænt boð í fyrradag í forföflum Anzelu Balakhonovu en hún meidd- ist illa í vikunni þegar hún lenti utan í dýnu og skaddaðist á baki á móti í Frakklandi. Þegar samanlagður árangur stangcirstökkvarana var reiknaður eftir mótin fjögur kom í ljós að Zsuzsa Szabo hafði sigrað með 26,5 stig. Hún hlaut að launum 1,4 millj- ónir króna. í öðru sæti varð Nicole Humbert með 17 stig og vann sér inn 700 þúsund krónur. Vala Flosa- dóttir varð þriðja í stigakeppninni með 12 stig samtals og varð fyrir vikið 350 þúsund krónum ríkari. Vala mun ekki keppa á fleiri mót- um fyrir heimsmeistaramótiö inn- anhúss sem hefst í Japan í næstu viku. Þórey Edda mun hins vegar keppa á móti í Sindelfmgen í Þýska- landi á sunnudaginn kemur áður hún heldur á HM í Japan. Mutola bætti eigið heimsmet Síöara heimsmetið í Globen-höll- inni í gærkvöld setti Mari Mutola frá Mósambík í 1000 metra hlaupi, hljóp vegalengdina á 2:30,96 mínút- ur en hún átti einnig fyrra metið sem var 2:31,23 mínútur. -JKS Heimsbikarkeppnin í handknattleik: Svíar tefla fram gömlu refunum Óraunhæfar yfirlýsingar íslendingar voru teknir í bakaríið í landsleik sínum gegn Bosníu í Evr- ópukeppninni í körfuknattleik eins og vænta mátti. Engum heilvita manni datt í hug fyrirfram að íslendingar ættu minnstu möguleika gegn hinu ósigr- aða liði Bosníu nema örfáum að- standendum liðsins sem virðast ekki þora að viöurkenna stöðu landsliðs okkar um þessar mundir. Fram á síðustu stundu komu menn fram í viðtölum og töluðu um að á mjög góðum degi ætti íslenska liðið möguleika á sigri. Hverjum er greiði gerður með slíku tcdi. Gera menn sér ekki grein fyrir því aö til þess að ná árangri i Evrópukeppni landsliða í körfu- knattleik þarf landslið að geta teflt fram hávöxnu liði, líkamlega sterku og sérlega hávöxnum miðherjum? Engu skilar að ætla sér að tefla fram tveggja metra mönnum í miðherja- stöðuna. Þeir era hreinlega afgreidd- ir, eins og kom svo berlega í ljós í Laugardalshöllinni. Og það skilar heldur engum ár- angri að ætla sér að vinna hvern landsleikinn á fætur öðram á þriggja stiga körfum. Það hefur aldrei dugað til sigurs eitt og sér og mun aldrei duga. íslenska liðið skoraði sex þriggja stiga körfur í fyrri hálfleik gegn Bosníu. Hverju skilaði það? Liðið skoraði 25 stig í hálfleiknum og var tuttugu stigum undir í leikhléi. Körfuknattleikur á íslandi hefur að mínu mati verið í afturför undan- farin ár. Áhuginn hefur um leið farið minnkandi á úrvalsdeildinni hér heima. Það dugar ekki i dag að gefa að- göngumiða á lands- leik gegn einu besta landsliði Evrópu. Áhuginn er svo lítifl að fólk situr heima og telur tíma sínum betur varið viö aðra hluti. Landsliðið í körfuknattleik er án sigurs i sinum riðli í Evrópu- keppninni. Það eitt og sér er eðlilegt. Við eigum ekki landslið í dag sem nær að standast þeim bestu snúning. Heimaleikur- inn gegn Króatíu var þó spor í rétta átt en Króatar höfðu þó öll tök i þeim leik þrátt fýrir að leika á hálfri ferð. íslenskur körfu- knattleikur var skotinn niður á jörð- ina með úrslitunum gegn Bosníu. Sóknarleik- ur okkar manna var hreint ömurlegur og menn verða að við- urkenna það. Yfirlýsingar aðstand- enda og leikmanna landsliðsins marga daga fyrir leikinn vora ekki til fyrirmyndar. íþróttamenn, hvaða íþrótt sem þeir stunda, verða að vanda orð sín og skynja sína stöðu á hverjum tíma. Blekkingar í von um að fólk fjöl- menni á leiki koma í bakið á mönn- um síðar meir. Hver mun til dæmis taka mark yfirlýsingum og viðtölum við þessa sömu menn fyrir næsta landsleik? Vonandi verða menn var- kárari í yfirlýsingum sínum í fram- tíðinni. Stærð og styrkleiki liðs Bosníu var til fyrirmyndar. Liöið spilaði frá- bæran vel skipulagðan körfuknatt- leik. Vamarleikur okkar manna var þolanlegur en besta sóknarmann Bosníu vantaði í lið þeirra. Okkur vantaði Teit. Við voram hins vegar teknir í bakaríið af alvöralandsliði. Með öllum ráðum þarf að auka hæðina í íslenskum körfuknattleik ef menn vilja á annað borð eignast alvöra landslið. Ekki gengur að tefla fram miðherjum og framherjum í bakvarðastærð annara þjóða. Þá kom það berlega í ljós í leiknum gegn Bosníu að líkamlegur styrkur íslensku leikmannanna var lítill miðað við styrk andstæðinganna. Sú staðreynd hlýtur að vera þjálfuram hér heima mikiö umhugsunarefni. -SK Svíar tefla fram mörgum gömlum hetjum í heimsbikarkeppninni í handknattleiks sem fram fer í Sví- þjóð 15.-20. mars. Á mótinu taka þátt þær þjóðir sem urðu í átta efstu sætunum á HM í Kumamoto svo ís- lendingar eru meðal þátttökuþjóða og fyrsti leikur þeirra er einmitt gegn Svíum. Bengt Johansson, landsliðsþjálfari Svía, valdi landsliðshóp sinn í gær og þar er að finna mörg kunnugleg nöfh. Þar má nefna Staffan Olsson, Thomas Svensson, Ola Lindgren, Magnus Wislander, Pierre Thors- son, Thomas Sivertson og Magnus Anderson. Með þessum kempum eru innan um nýir og óreyndir leik- menn sem fá eldskírn sina á mót- inu. -GH , Námskeið verður haldið á Grunnstigi ISI dagana 5.-7. mars nk. í Iþróttamiðstöðinni í Laugardal. Námskeiðið er ætlað leiðbeinendum barna og unglinga í íþróttum. Það tjallar um þroskaferli barna og unglinga, undirstöðuatriði kennslufræði og næringarfræði, íþróttameiðsli og fleira. Einnig verður skipulag og framkvæmd íþróttaskóla fyrir yngstu börnin kynnt. Námskeiðið hefst kl. 16.15 föstudaginn 5. mars og lýkur kl. 15.30 sunnudaginn 7. mars. Námskeiðsgjald er kr. 8.000 og greiðist á staðnum; innifalið er allt námsefni og veitingar í hádegi laugardag og sunnudag. Nánari upplýsingar og skráning á skrifstofu S , sími 581 3377, fax 588 8848, netfang isi@toto.is íþrótta- og Ólympíusamband íslands íþróttir Meistaramót íslands í fjölþrautum innanhúss fer fram um næstu helgi í umsjá frjálsíþróttadeildar Breiða- , bliks. Mótið hefst í Baldurshaga í Laugardag kl. 13, bæði laugardag og sunnudag. Á laugardag heldur það áfram í Smáranum kl. 16 og á sunnu- dag kl. 14.30. Sextán keppa i sjöþraut karla og 14 í sexþraut kvenna. Jón Arnar Magnásson verður á meðal þátttakenda, ásamt félögum sínum í tugþrautarlandsliði Islands, en þetta er lokaæfing hans fyrir HM innan- húss í Japan. Allt besta borðtennisfólk landsins tekur þátt í stigamóti í borðtennis í TBR-húsinu á sunnudaginn. Keppt er i öllum aldursflokkum karla og kvenna og hefjast úrslit kl. 14. i Siöbúiö Þorramót í fim- leikum verður haldið í Laugardalshöil sunnu- daginn 28. febrúar og hefst kl. 13.00. Keppt er í frjálsum æfmgurn en að þessu sinni taka aðeins stúlkur þátt í mótinu. Keppendur verða frá Ár- manni, Björk, Gerplu, Gróttu, KR og Ketlavík. Á þessu móti geta keppendur náð lágmörkum til þátttöku á íslandsmóti. Unglingamót KR í sundi fer fram um helgina í Sundhöll Reykjavikur. Mótið er eitt hið fjölmennasta frá upphafi með þátttöku 450 sundmanna úr 19 sundfélögum af öllu landinu, á aldrinum 9 til 16 ára. Keppni hefst i fyrramáliö kl. 9.30 í yngstu ald- ursstlokkum fram til kl. 13.30. í fram- “ haldi af mótssetningu kl. 15.15. hefst kepnni eldri sundmanna og lýkur kl. 17.30. Á sunnudag er keppt á sama tima og lýkur mótinu kl. 17.40. Sveinn Brynjólfsson frá Dalvík bætti sig verulega á al- þjóðlegu FlS-móti í stór- svigi sem fram fór i Soll- efteá í Sviþjóð á þriðju- daginn. Sveinn hafnaði i 11 sæti, einni og hálfri sekúndu á eftir sigurveg- aranum, Lars Lewen frá Svíþjóð. Sveinn fékk fyr- ir þennan árangur 32,18 FlS-punkta en á best 48,20 svo þama er um umtalsverða bætingu aö ræða. Jóhann F. Haraldsson úr KR og Kristinn Magnússon frá Akureyri kepptu i risasvigi í Vangsla í Noregi um síðustu helgi og bættu sig báðir umtalsvert. Jóhann er með 94,26 FIS- punkta á heimslistanum i risasvigi en um helgina gerði hann 45 og 39 punkta sem færir hann niður í um 48 punkta sem er bæting um 46 punkta. Kristinn á 105,73 FlS-punkta á heims- listanum í risasvigi en um helgina gerði hann 60 og 45 punkta sem færir hann niöur i um 59 punkta sem er bæting um 46 punkta. Finnar tryggðu sér i gær sigur i nor- rænni tvíkeppni liða á heimsmeist- aramótinu i norrænum greinum í Austurríki. Norðmenn urðu í öðra sæti og Rússar i þriöja. Sigursveit Finna skipuðu Jari Mantila, Tapio Nurmela, Samppa Lajunen og Hannu Manninen. í tvíkeppni er keppt í skíöastökki og skíðagöngu. Rússar sigruðu í gær í 4x5 km skiða- göngu kvenna á sama móti. ítölsku konuraar urðu i öðru sæti og þær þýsku þriöju. Sigursveit Rússa skipuðu Olga Danilova, Larissa Lazutina, Anfisa Reztsova og Nina Gavriljuk. Emma George, heimsmethafi í stang- arstökki kvenna frá Ástralíu, meidd- ist á öxl og hætti keppni á móti i Mel- boume í dag. Hún sagðist ekki hafa . tekið áhættu á að halda áfram því hún væri lengi búin aö stefna á HM í Japan sem fram fer í næsta mánuði. Fabien Barthez, markvörður Món- akó og heimsmeistara Frakklands, gæti veriö á leiðinni til AC Milan á Italiu. Ef af þessu verður er talið lík- legt að Mónakó muni reyna að fá Pet- er Schmeichel, markvörö Manchest- er United, til liðs viö sig. Aöaifundur knattspyrnudeildar Fram verður haldinn í félagsheimil- inu í Safamýrinni klukkan 20.30 í kvöld. Fjórir leikir voru i frönsku A-deild- í inni í knattspymu í gær. Úrslitin: Montpellier-Monaco 2-3, Nantes-Bor- deaux 0-0, Marseille-Strasbourg, 1-0, Paris SG-Lyon, 1-1. ÍS sigraöi Víking, 3-1, í 1. deild kvenna í blaki í gærkvöld. -VS/GH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.