Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.1999, Blaðsíða 14
14
FÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR 1999
Fiiálst, óháð dagblað
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og út^áfustjóri: EVJÓLFUR SVEINSSON
Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ÓLI BJÖRN KÁRASON
Aðstoðarritstjóri: JÓNAS HARALDSSON
Auglýsingastjóri: PÁLL ÞORSTEINSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaöaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI11,105 RVÍK,
SÍMI: 550 5000
FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999
GRÆN númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777
Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/
Vfsir, netútgáfa Frjálsrar fjölmiðlunar: http://www.visir.is
Ritstjórn: dvritst@ff.is - Auglýsingar: auglysingar@ff.is. - Dreiflng: dvdreif@ff.is
AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 4611605
Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Filmu- og plötugerð: [SAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF.
Áskriftarverð á mánuði 1900 kr. m. vsk. Lausasöluverð 170 kr. m. vsk., Helgarblað 230 kr. m. vsk.
DV,áskilur sér rétt til að birta aösent efni blaösins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Óþolandi slysatíðni
Rannsóknamefnd sjóslysa rannsakaði 107 mál vegna
slysa á árinu 1995 og eitt eldra mál, að því er fram kem-
ur í nýrri skýrslu nefndarinnar. Á árinu 1995 voru til-
kynnt til Tryggingastofnunar ríkisins 459 slys á sjó-
mönnum. Árið áður voru slysin 486. „Þótt færri slys
hafi orðið en árið á undan, er slysatíðni meða sjó-
manna of há“, segir í formála skýrslunnar. Það er var-
færið orðalag um ástand sem er alls ekki þolandi. Und-
anfarin tíu ár hafa um 500 sjómenn slasast árlega eða
um 8 prósent stéttarinnar. Innan hvaða starfsgreinar
annarrar yrði svo hrikaleg slysatíðni umborin?
Vinnuslys eru allt of tíð hér á landi og skipta þúsund-
um á hverju ári. Verst virðist ástandið þó vera meðal
sjómannastéttarinnar. Kostnaður einstaklinga og sam-
félags vegna þessa er mikill svo ekki sé minnst á þján-
ingar og röskun á lífi þeirra sem í lenda og aðstand-
enda þeirra. Viðmiðanir Alþjóðavinnumálaskrifstof-
unnar gera ráð fyrir að kostnaður vegna vinnuslysa
eða atvinnusjúkdóma sé ltil 3 prósent vergrar þjóðar-
framleiðslu. Kostnaður hér á landi vegna þessa nemur
því miíljörðum króna árlega. Forvarnarstarf, kennsla
og leiðir til að bæta öryggi eru því afar arðbærar.
Rannsóknamefhd sjóslysa er mikilvæg í greiningu
þeirra slysa sem verða um borð í skipum eða við skip-
stapa auk þeirra leiða sem nefhdin bendir á til úrbóta.
Slysavamafélagið gegnir einnig lykilhlutverki í þess-
um efnum enda beinlínis hlutverk félagsins. Þar er
unnið ötult starf víða um land og innan vébanda björg-
unarsveita og með tilkynningaskyldu íslenskra skipa.
Nýir björgunarbátar hafa sannað gildi sitt. Ónefndur er
Slysavarnaskóli sjómanna. Fræðsla þar er nauðsynleg
hverjum sjómanni.
Slysatölm- á hverju ári sýna samt að þetta er ekki
nóg. Það er ekki hægt að búa við það sem náttúrulög-
mál að 500 sjómenn slasist árlega. Störf um borð í fiski-
skipum hér við land eru að sönnu hættuleg og aðstæð-
ur verða allar verri í vondum veðrum. Hvað sem líður
aðgerðum stofnana og opinberra aðila verður ekki bót
á þessu nema útgerðarmenn og sjómennirnir sjálfir
taki ástandið til alvarlegrar skoðunar.
Innan Slysavarnafélagsins á að reyna nýjar leiðir til
úrbóta. Ingimundur Valgeirsson greinir frá þeim leið-
um í nýju fréttablaði félagsins. Lokaverkefni hans við
verkfræðideild Háskóla íslands fjallar um slysavamir í
fiskiskipum. Ingimundur bendir réttilega á að tíðni
vinnuslysa á sjó hér yrði hvergi liðin á neinum vinnu-
stað í landi. Því hafa verið lagðar línur að „Öryggis-
kerfi fyrir sæfarendur“ þar sem stuðst verður við al-
þjóðlega staðla. Greindir verða áhættuþættir sem vald-
ið geta slysum um borð og síðan skal vinna markvisst
að því að eyða þeim eða minnka eins og hægt er. Þá
verði mynduð öryggisnefhd um borð i hverju skipi sem
ræði slysahættuna, gangi frá handbók og sjái um þjálf-
un nýliða.
Öryggiskerfi þetta verður prófað í sumar í fjórum
skipum sem stunda mismunandi veiðar. Kerfið byggist
á samstarfi allra sem að koma, sjómanna, útgerðar-
manna og stofnana sem annast öryggismál. Ingimund-
ur Valgeirsson segir að komi þetta kerfi í veg fyrir þó
ekki nema eitt alvarlegt vinnuslys hafi það borgað sig
upp strax. Hann vonast til þess, í grein sinni, að Slysa-
vamafélagið hafi fundið leið til að fækka slysum um
borð í skipum. Það er undir málsaðilum komið hvort
það tekst.
Jónas Haraldsson
„Viðræðurnar við Norsk Hydro eru stærsta atvinnuþróunarverkefni á Austurlandi." - Frá Reyðarfirði. Þar hefur
verið boðinn fram staður fyrir stóriðju á Austurlandi.
Pólitíkin og
Norsk Hydro
þingræðu undir rós um
að hagræða sannleikan-
um fyrir yfirmann sinn.
Stefna flokkanna.
Stefna Framsóknar-
flokksins í þessu máli
hefur ávallt veriö skýr.
Forusta flokksins beitti
sér fyrir því að ríkis-
stjórnin ákvað að bjóða
fram Reyðaríjörð sem
stóriðjukost og hafa
ekki aðra staði undir í
þeim viðræðum. Við-
ræður voru teknar upp
í kjölfarið við Norsk
Hydro og unnið hefur
verið að málinu síðan.
Þeirri vinnu er ekki
—
„Stefna Framsóknarflokksins í
þessu máli hefur ávallt verið
skýr. Forusta flokksins beitti sér
fyrir því að ríkisstjórnin ákvað
að bjóða fram Reyðarfjörð sem
stóriðjukost og hafa ekki aðra
staði undir i þeim viðræðum.“
Kjallarinn
Jón Kristjánsson
alþingismaður
„Það er enn unn-
ið að undirbúningi
þessa máls á sama
hátt og gert hefur
verið nú um hríð.
Það hefur ekkert
breyst, engin
ákvörðun enn ver-
ið tekin og bara
unnið að málinu
eins og áður.“ -
Þessi ummæli hef-
ur DV síðastliðinn
mánudag orðrétt
eftir Jostein Flo,
upplýsingafulltrúa
Norsk Hydro. Jafn-
framt segir upplýs-
ingafulltrúinn að
hann sé farinn að
fá á tilfinninguna
aö þetta mál snúist
aðallega um þing-
kosningar á ís-
landi, og það gerir
DV að aðalfyrir-
sögn fréttarinnar.
Það er ekkert
undarlegt þótt
Norðmennimir
hafi þessa tilfinn-
ingu. Upplýsinga-
fulltrúar stórfyrir-
tækja á borð við Norsk Hydro hafa
greinargóðar upplýsingar um um-
ræðuna um þessi mál hér á ís-
landi. Sú umræða er aðgengileg á
veraldarvefnum og hvar sem vera
skal.
Það hefur verið lagt ofurkapp á
það í umræðum af pólitískum
ástæðum að forusta Framsóknar-
flokksins sé óheil í þessu máli, og
þegar sé ákveöið að blása þetta
mál af, en beðið sé fram yfir kosn-
ingar af tillitssemi við hana. Hjör-
leifur Guttormsson hefur haldið
þessu fram í blaðaskrifum, og
gengið svo langt að saka ráðuneyt-
isstjóra iðnaðarráðuneytisins í
lokið, en eins og forustumenn
Framsóknarflokksins hafa ávallt
tekið fram í umræðum um þetta
mál, þá er ekki hægt aö slá neinu
fostu um niðurstöðuna fyrr en við
undirskrift viljayfirlýsingar, eða
samninga af einhverju tagi sem
eru skuldbindandi.
Stefna annarra flokka í málinu
er að skýrast. Grænt framboð vill
blása þetta mál af strax. Hin nýja
samfylking hefur lagst cdgjörlega á
sveif með þeim sem berjast af al-
efli gegn þessu máli.
Eggin í körfunni.
Því hefúr verið haldið fram að
þær athuganir sem hafa verið
uppi um stóriðju á Austurlandi
séu öðrum atvinnugreinum skað-
legar og komi í veg fyrir framþró-
un á öðrum sviðum. Morgunblaðið
orðar það svo í Reykjavíkurbréfl
að ekki sé skynsamlegt að leggja
öfl eggin i sömu körfuna og skyn-
samlegra væri að huga að því
hvemig hægt er að efla sjávarút-
veginn og tengdar atvinnugreinar
á Austurlandi.
Þessi röksemdafærsla gengur í
hring. Viðræður um orkufrekan
iðnað koma ekki í veg fyrir fram-
þróun sjávarútvegsins.
Gífurlegar fjárfestingar hafa
verið í sjávarútvegi í mörgum
byggðarlögum á Austurlandi og
voru þær stflaðar á vinnslu upp-
sjávarfiska. Þessar fjárfestingar
hafa styrkt stöðu landshlutans i
baráttunni um hráefni til vinnslu
og munu gera það tfl lengri tíma
•litið og eru afar mikilvægar. Gall-
inn er hins vegar sá að öll eggin
eru í sömu körfunni. Það kemur i
ljós nú, í lækkandi verðlagi og
slakari vertíö. Sá uggur sem er í
fólki er ekki sfst af því.
Geipihörð barátta
Vegna þessa verður að huga að
fleiri stoðum í atvinnuliftnu, og
það er þess vegna sem framsókn-
armenn berjast gegn því aö orku-
öflunarmöguleikar í stórum stíl á
Austurlandi verði strikaðir út þeg-
ar rætt er um nýtingu auðlinda.
Sú barátta er geipihörð og þarf
ekki að hafa mörg orð þar um.
Viðræðumar við Norsk Hydro
em stærsta atvinnuþróunarverk-
efni á Austurlandi. Hins vegar era
fjölmörg önnur verkefni í gangi.
Mest um vert er að halda sjó í því
áróðursmoldviðri sem um þetta
mál er og leiða málið til enda, og
fá niðurstöðu af eða á.
Jón Kristjánsson
Skoðanir annarra
Jarlinn af Selvogsbanka
„Á miðöldum var í Evrópu svokallað lénskerfi.
Lénsherrar sem þágu lén sitt og völd frá konungi
stjómuðu hémðum. Þeir fengu úthlutað landi, skóg-
um, veiðflendum, ökrum og öðram gæðum landsins.
Aðrir íbúar vora oftast eignalausir leiguliðar þeirra.
íslendingar lifa af fiskveiðum...Við höfum komið
okkur upp nokkus konar lénskerfi hér. Við höfum
úthlutað veiðiréttindum við ísland til nokkurra að-
ila sem höfðu veiðireynslu fáein ár eftir 1980...Jarl-
inn af Selvogsbanka þiggur réttindi sín frá Alþingi
og ríkisstjóm. Heflu byggðarlögin eru í hlutverki
eignalausa leiguliðans...Við sem höfum hælt okkur
af meiri jöfnuði en gerist í flestum nágrannalöndum
erum búin að búa til ójöfnuð af mannavöldum."
Guðmundur G. Þórarinsson í Mbl. 25. febr.
Koyoto-bókunin
„Það er skynsamlegt að auka stóriðju sem nýtir
rafmagn frá vatnsafli á kostnað stóriðju sem notar
orku frá kolum, olíu eða gasi. Slík orkuframleiðsla
mengar andrúmsloft marfalt meira en verksmiðjan.
Ef markmiðið með Kyoto-bókuninni er að ná árangri
í baráttu fyrir hreinna andrúmslofti er rétt að berj-
ast fyrir ákvæði sem gerir litlum hagkerfum kleift
aö nýta umhverfisvænar auðlindir. Ég tel aö íslend-
ingar eigi að láta á það reyna hvort slíkt ákvæði
næst inn áður en þeir staðfesta bókunina."
Þorsteinn Hilmarsson í Degi 25. febr.
Norsk Hydro úr myndinni
„Ljóst er að atvinnuástand á Austurlandi er bág-
borið og fólksflótti frá svæðinu hefur verið mikill af
þeim sökum...Þrátt fyrir að íslensk stjómvöld og
talsmenn Norsk Hydro haldi enn fast við fyrri yfir-
lýsingar sínar um að engra stefnubreytinga sé að
vænta í tengslum við byggingu álvers á Austurlandi
og að ákvörðun um það hvort raunhæfúr grundvöfl-
ur til áframhaldandi vinnslu málsins liggi fyrir um
mitt þetta ár, þá virðast allar staðreyndir benda tfl
þess að norska félagið muni ekki ráðast í byggingu
álvers á íslandi."
EG í Viðskipti/atvinnulíf Mbl. 25. febr.