Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1999, Síða 22
•*30
MÁNUDAGUR 8. MARS 1999
Gríðarlegur mannfjöldi á Linux-ráðstefnu:
Heimsyfirráð í næstu viku
- segir Linus Torvalds, skapari umtalaðasta fyrirbærisins í tölvuheiminum í dag
Nýjasta stjarnan í tölvuheiminum, hinn 29 ára gamli Finni, Linus Torvalds, heldur aðalræðu Linux-ráðstefnunnar í Kaliforn-
íu á þriðjudag. „Okkur er sama þó við náum ekki heimsyfirráðum fyrr en í næstu viku,“ sagði hann meðal annars.
f-
Froskar og aftur
froskar
Gríðarlegt magn fróðleiks
um hið stórundarlega dýr,
froskinn, er að finna á slóðinni
http://www.exploratori-
um.edu/frogs/
Narðamerking
Að sjálfsögðu úir og grúir af
tölvunörðum á Netinu. Hann
Robert A. Hayden hefur búið til
sérstakan narðakóða sem hægt
er að nota til að merkja
hverslags nörður hver og einn
: er. Slóð hans er ;
http://www.geekcode.com/
írland á einum stað
Yfirvöld í írlandi hafa komið
á fót heimasíðu sem inniheldur
allt sem þig hefur langað til að I
vita um írland og margt, margt
fleira sem þú vissir ekki að þú
vildir vita. Slóðin er
http://www.askireland.com
Hann er búinn að
sker'ann!
Um næstu helgi munu þeir
Evander Holyfield og Lennox;
Lewis mætast í hringnum og
ekki ólíklegt að öskrin verði I
talsverð í myndveri Sýnar. Op-
inbera heimasíðu Holyfields er
að finna á slóðinni
http://www.evanderholyfi-
eld.com/
Þvflíkt upphögg!
Heimasíða
sem hönnuð
er af aðdá-
* anda Lennox
Lewis er hins
vegar á slóð-
inni http://-
www.fly.-
to/lewis
Saga tölvuleikja
Saga tölvuleikja nær orðið
rúm 25 ár aftur í tímann. Yfir-
lit yfir þessa sögu er á heima-
síöunni http://www.video-
games.org/
Enski boltinn
íþróttafréttamenn á íslandi
t eru haldnir þeirri stórfurðu-
legu áráttu að kalla heimasíður
sem fjalla um enska boltann
„spjallsíður", þó þær innihaldi
ekkert
spjall,
heldur
bara
bein-
harðar
fréttir
eða
slúður
um
bolt-
ann.
Nafn
heima-
síð-
unnar
http://www.teamtalk.com/
gæti verið orsökin fyrir þessum
misskilningi.
í síðustu viku var haldin í San
Jose í Kalifomíu fyrsta stóra Linux-
ráðstefnan. Þar var greinilegt hve
vöxtur og vinsældir þessa stýrikerf-
is hafa aukist gríðarlega á síðustu
misserum. Þúsundir Linux-aðdá-
enda voru mættar á svæðið, margir
til þess eins að sjá með eigin augum
höfund stýrikerfisins, hinn 29 ára
gamla Finna Linus Torvalds.
Einnig vom á svæðinu útsendarar
allra stærstu tölvuframleiðenda í
heimi með loforð um stóraukið
framboð á tölvum sem keyra á Lin-
ux.
Torvalds var fagnað eins og rokk-
stjörnu þegar hann hélt aðalræðu
ráðstefhunnar á þriðjudag og aðdá-
endur flykktust að til að reyna að
taka í höndina á honum eða fá eig-
inhandaráritun.
Storu strákarnir hræddir
„Margir virðast halda að Linux
sé eitthvert nýtt fyrirbæri," sagði
Torvalds í ræðunni. „Fyrir mér er
það hins vegar ekki svo því ég hef
veriö að vinna að þessu stýrikerfi í
átta ár.“ Þegar Torvalds var við
nám við háskólann í Helsinki skrif-
aði hann fyrsta hluta Linux-kóðans
og dreifði honum ókeypis á Netinu.
Á þriðjudag sýndi hann áhorfend-
um graf sem sýndi hvemig notend-
um Linux hefur fjölgað úr 10 not-
enduin árið 1991 í um 10 milljónir
nú.
„Linux er ekki lengur lítið Unix-
stýrikerfi heldur er það komið á
stall með stóra strákunum. Og
stóra strákamir era hræddir,"
sagði hann við mikinn fognuö sex
til átta þúsund áhorfenda. Þarna
var Torvalds að tala um ummæli
sem hafa fallið hjá nokkram starfs-
manna Microsoft-tölvurisans á und-
anfomum mánuðum. Þeir hafa látið
hafa eftir sér að hugbúnaður á horð
við Linux sé orðinn talsverð ógnun
við ofurvald Microsoft á þessum
markaði.
Margir vilja meina að Linux sé
stöðugra stýrikerfi en Windows NT
þegar unnið er í mjög nettengdu
umhverfi, eins og t.d. við að keyra
netþjóna.
Stuðningur úr öllum
áttum
Linux-stýrikerfið keyrir á tölvum
af ýmsu tagi, aUt frá venjulegum
PC-töivum með Intel-örgjörvum til
Digital Alpha-vinnustöðva og net-
þjóna frá Compaq auk margra ann-
arra tölvukerfa. Að undanfornu
hafa yfirlýsingar streymt frá öllum
í síðustu viku bjuggu lögmenn
bandarísku ríkisstjórnarinnar og
lögmenn vélbúnaðarframleiðandans
Intel sig imdir vitnaleiðslur í máli
þar sem komast á til hotns í því
hvort Intel sé einokunarfyrirtæki.
Sækjendumir sökuðu Intel um að
beita keppinauta sína valdi í skjóli
einokunaraðstöðu. Þessum mála-
ferlum, sem hefjast formlega á
morgun og munu standa yfir í 6 til
10 vikur, svipar nokkuð til réttar-
haldanna yfir hugbúnaðarrisanum
Microsoft sem nú standa yfir. Nið-
urstöður þessara tvennra réttar-
halda munu skipta gríðarlega miklu
máli fyrir tölvuheiminn allan.
Intel er sakað um að hafa á ólög-
helstu tölvuframleiðendum heims
um að þeir hyggist bjóða hin ýmsu
tölvukerfi sín með Linux-stýrikerfi.
IBM tilkynnti til dæmis á þriðju-
dag að fyrirtækið myndi þróa
RS/6000 vinnustöðvar sínar og net-
þjóna þannig að þær gætu keyrt á
Linux. Þessi tilkynning kemur í
kjölfar fyrri yfirlýsinga IBM á árinu
um að nýta sér möguleika Linux í
hinum ýmsu tölvutegundum fyrir-
tækisins. Einnig tilkynntu fyrirtæk-
in VA Research, Hewlett-Packard
og Silicon Graphics að þau myndu
leggja til sérfræðiþekkingu sína á
stýrikerfum við að gera Linux auð-
veldara að keyra á næstu kynslóð
örgjörva frá Intel sem koma mun út
um mitt næsta ár.
Heimsyfirráð
„Við höfum verið að fylgjast með
þessu fyrirbæri síðastliðna 18 mán-
uði,“ sagði Steve Mills, háttsettur
yfirmaður hugbúnaðardeildar IBM
á ráðstefnunni. „Linux náði í raun
fyrst almannahylli á seinni helm-
ingi síðasta árs og það fékk okkur
tO að ráðfæra okkur við viðskipta-
vini um málið. Niðurstaðan varð að
greinilega væri að myndast mark-
aður fyrir Linux i heiminum,"
sagði Mills.
Meginstyrkur Linux er hve vel
stýrikerfið keyrir netþjóna og sér-
staklega þegar það keyrir netþjóna
legan hátt haldið upplýsingum um
væntanlega örgjörvategund Intel
leyndum fyrir þremur ákveðnum
fyrirtækjum, á meðan önnur sam-
starfsfyrirtæki Intel fengu mun
meiri upplýsingar um örgjörvateg-
undina. Ætlunin með þessu á, að
mati sækjenda, að hafa verið að
neyða fyrirtækin til að láta af hendi
upplýsingar um helstu iðnaðar-
leyndarmál sin. Fyrirtækin þrjú
vora Digital Equipment Corp.,
Intergraph Corp. og Compaq
Computer Corp.
Fylgst verður náið með fram-
gangi réttarhaldanna á Tölvuvef
Vísis á slóðinni http://www.vis-
ir.is/
sem sinna aðeins einu verkefni,
eins og t.d. að hýsa heimasíður.
Helsti akkillesarhæll Linux, eins og
reyndar Unix-stýrikerfisins, á al-
mennum heimilistölvumarkaði er
að einn mest notaði hugbúnaður í
heimi, Office-pakkinn frá Microsoft,
keyrir ekki á Linux. Þetta gæti þó
breyst í framtíðinni því fjölmörg
fyrirtæki era að vinna að lausn
þessa vanda, t.d. með því að hanna
„hermivél" sem gerir Linux kleift
að herma eftir Windows og keyra
með þeirri aöferð allan þann hug-
búnað sem Windows getur keyrt.
„Við viljum ná heimsyfirráðum
en viljum svo sem ekkert ná þeim á
morgun. Það er allt í lagi þó það
verði ekki fyrr en í næstu viku,“
sagði Torvalds i gríni á þriðjudag-
inn. En öllu gríni fylgir nokkur al-
vara.
-KJA
2000-vandi
fjármálaheimsins
Sérfræöingur frá
Alþjóðabankanum
lýsti því yfiri síöustu
viku aö 2000-
tölvuvandinn gæti
sett strik í
reikninginn í
fjármálaheiminum.
Aö hans mati getur
léleg frammistaöa
ákveöinna Asíuríkja
i að koma í veg fyrir
skaöa af völdum
vandans smitaö út
frá sér og skemmt
fyrir öörum ríkjum
álfunnar. Það gæti
síðan orsakaö
kreppu í Asíu sem áfram myndi
smitast um alla heimsbyggöina
svipaö því sem gerst hefur undanfariö
í kjölfar flármálakreppu Asíulandanna
sem hófst fyrir tveimur árum.
Neteitrun
ítali nokkur var lagöur inn á sjúkrahús
fýrir skömmu vegna þess aö hann
haföi veriö of lengi á Internetinu. Aö
sögn lækna var hann meö ofskynjanir
eftir aö hafa eytt þremur sólarhringum
samfleytt í netflakk. Blaöiö La
Republica sem skýröi frá þessu,
kallaöi sjúkdóminn „Alvarlega
Neteitrun" og haföi eftir ítölskum
sálfræöingi aö nokkur hundruö tilfelli
af svipuðum toga heföu komiö upp
í Róm einni. Sá sagöi aö allir hefðu
sjúklingarnir eytt meira en 10
klukkutímum á dag fyrir framan
tölvuskjáinn og vildi meina aö
tölvunotkun í meira en 5-6 tíma á
sólarhring væri hættuleg.
Netið í símana
Fyrirtækin AT&T,
L u c e n t
Technologies og
Motorola hafa
sameinast um
þróun hugbúnaöar
s e m g e r i r
almenningi kleift
aö fá aögang að
ákveönum hlutum
Netsins í gegnum
síma, án þess aö
^ tölvu þurfi til. Öll
hafa þessi
fyrirtæki aö
3M'.Íe undanf°rnu veriö
•— aö þróa hvert í
|f ■ s í n u I a g i
1 forritunarmál sem
gerir þetta
mögulegt, en nú hafa þau ákveðiö
aö vinna saman aö því aö þróa einn
staöal. Notandinn mun geta stýrt
netnotkuninni meö röddinni og því á
ekki aö þurfa nýjustu símatækni til
aö geta nýtt sér þessa nýjung þegar
hún veröur aö veruleika.
Hewlett-Packard endurskipuleggur
Hewlett-Packard, eitt stærsta og
umfangsmesta fyrirtækiö í
tölvuheiminum, tilkynnti í síöustu
viku mikla uppstokkun fyrirtækisins.
Tvær deildir þess veröa tvö sjálfstæö
fyrirtæki, skráö á opnum
hlutabréfamörkuöum. Þaö eru
rannsókna- og mælingadeild
fyrirtækisins og tölvudeildin sem
veröa aðskildar á þennan hátt frá
aðalfyrirtækinu. Samanlagt hafa
þessar deildir aö undanförnu séö
Hewlett-Pacard fyrir um 16% af
tekjum fyrirtækisins. Fyrirtækiö hefur
átt í nokkrum erfiöleikum undanfarin
misseri og hefur vöxtur þess þótt allt
of lítili.
Esa
Enn ráttarhöld í tölvuheiminum:
Intel sakað um frekju
og einokun