Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1999, Blaðsíða 18
18
FÖSTUDAGUR 12. MARS 1999
ting victim
ltlcasting b'
Teen
\ radio _ _
-- L»m»t Binwí. U* tvw'^P'ThSn*’ *bn^er. j w
iiMSsa'S&ssi^
I \35&gjs 3
I IsSsffes
la&SSBES —“t:
lahKsBHíSftWSaSf^
i u»d“i .u.IflK*
1: SSs-T-a ítffe^a
iáSsa* ^fggg
, iSggirSv* ÆifepS
I i3S,a5s=* ^s=Sc«fi
fsgífS =£S?-“-
ur verkalyðsstétt
- Hooert Guðfinnsson, nýr
tjórnarformaður SH, í helgarviðtal
Skemmtunarmaður
þjóðarinnar
Voðaskot
Fréttir
Landmælingar og NIMA:
Danirnir
fylgjast með
DV, Akranesi:
Um leið og haldnir eru samn-
ingafundir með NIMA - banda-
rísku herkortastofnuninni - hér á
landi eru í heimsókn gestir ffá
dönsku kortastofnuninni KMS.
Tilgangur þeirra er að funda með
starfsmönnum Landmælinga ís-
lands og einnig að ræða við
NIMA-menn.
Eins og kunnugt er unnu Dan-
ir að gerð korta af íslandi á árun-
um 1901-1944 og luku gerð glæsi-
legra korta sem enn í dag eru á
markaði. Þessi kortagerð var að-
dragandi að stofnun Landmælinga
íslands. Nú vill svo til að danska
kortastofnunin hefur tekið að sér
að vinna kort á stafrænu formi af
íslandi í mælikvarða 1:250.000.
Ástæða þessa er sú að nú stendur
yfir verkefni sem miðar að því að
kortleggja öll lönd heimsins í þess-
um mælikvarða samkvæmt sam-
ræmdum stöðlum og vinnuregl-
um.
Verkefhið sem kallast V-MAP
er unnið að frumvæði NATO þar
sem talin var þörf á að samræma
ólík kortagögn sem í notkun eru.
Landmælingar íslands eru aðilar
með þeim hætti að stofhunin legg-
ur til gögn og upplýsingar. Verk-
efninu er stýrt af NIMA og því
tækifæri fyrir Dani að hitta bæði
fulltrúa þess og Landmælinga ís-
lands hér á Akranesi í sömu vik-
unni.
Þess má geta að lokum að fjall-
að hefur verið sérstaklega um
samningaviðræður við NIMA í
ríkisstjóm og hafa bæði umhverf-
isráðherra og utanríkisráðherra
stuðlað að lausn þess. Mjög mikil-
vægt er að íslensk stjórnvöld
styðji málið vegna fiármögnunar á
þeim verkþáttum sem snúa að
Landmælingum íslands í korta-
gerðinni. -DVÓ
Nýja verslunarhúsið, „Nían“, aðalinngangur. DV-myndir Sigrún
Egilsstaðir:
Ný verslunar-
miðstöð opnuð
DV, Egilsstöðum:
Nýtt og glæsilegt versl-
unar- og þjónustuhús á
Egilsstöðum var opnað
laugardaginn 6. mars.
Ekkert var til sparað og
fengnir voru skemmti-
kraftar úr höfuðborginni.
Þarna komu og lásu upp
úr verkum sínum Einar
Kárason rithöfundur og
Sjón. Bubbi Morthens
söng og Tolli sýndi nokkr-
ar stórar og litsterkar
myndir. Þá var og Signý
Ormarsdóttir hönnuður á
Egilsstöðum með sérlega
glæsilega tískusýningu.
í þessu nýja húsi er
Hraðkaup með verslun á
jarðhæð. Á efri hæðum
eru Sjóvá-Almennar og
Ferðaskrifstofa Austur-
lands með skrifstofur.
Landssíminn er þar til
húsa og síðast en ekki síst
er þarna gullsmiður, en
eftir er að flytja í eitt pláss
uppi. Þá er einnig eftir að
innrétta kjallarann. Fjöldi
manns sótti opnunarhátíð-
ina.
Húsið er 1540 fermetrar
á þremur hæðum, auk
kjallara. Vökvavélar, fyr-
irtæki Guðjóns Sveinsson-
ar, byggði. Arkitekt var
Oddur Finnbjamarson á
teiknistofu Halldórs Guð-
mundssonar. -SB
Á tískusýningunni var sýndur fatnaður úr hrein-
dýraskinni og einnig sólföt fyrir sumarið. Hér
sýnir Karólína Einarsdóttir sumartískuna.