Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1999, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1999, Blaðsíða 11
FÖSTUDAGUR 12. MARS 1999 n *,m 11 I>V Fréttir Jósef sveitarstjóri, annar ritstjór- anna, með fyrsta eintakið. DV-mynd Garðar Bæjarslúðr- ið á Stöðv- arfirði DV, Stöövarfirði: Fyrir skömmu leit dagsins ljós nýtt frétta- og slúðurblað hér á staðnum og nefnist Bæjarslúðrið á Stöðvarfirði. Það eru tveir bjart- sýnismenn, þeir Jósef A. Friðriks- son sveitarstjóri og Björgvin Valur Guðmundsson oddviti, sem rit- stýra blaðinu og eru ábyrgðar- menn þess. Segjast þeir reyndar vera tilbúnir að víkja sæti ef ein- hveijir aðrir -gefi sig fram til verksins. í blaðinu er ýmislegt efni en það er upp á tólf blaðsíður og segja rit- stjórarnir að því sé ætlað að verða málgagn Stöðfirðinga heima og heiman. Muni það reyna að flytja óhlutdrægar fréttir og hvað eina er fréttnæmt kunni að verða. Blað- ið verður opið öOum Stöðfirðing- um tO skoðanaskipta og verður því dreift á öO heimili á Stöðvar- firði endurgjaldslaust. Þeir sem vOja fá blaðið í áskrift greiða eitt hundrað krónur fyrir eintakið og er það tO þess að mæta póstkostn- aði. Blaðið mun fyrst um sinn koma út hálfsmánaðarlega. -GH Keflavík: Hagnaður DV, Suöurnesjum; Sparisjóðurinn í Keflavík skOaði 111,2 miOjóna króna hagnaði árið 1998 og hreinn hagnaður eftir að tekið hef- ur verið tillit tO skatta er 80,3 miOjón- ir króna. Hér er um mikil umskipti að ræða frá árinu 1997 en það ár var 55 miOjón króna tap á rekstrinum. Arðsemi eigin fjár á síðastliönu ári nam 16% og eigið fé í árslok var 603,9 miOjónir króna. Þennan afkomubata má fyrst og fremst rekja til hagræð- ingar í rekstri, auk minna framlags á afskriftareikning útlána. -A.G. Athugasemd: MH ekki á teppið Sigurður G. Valgeirsson, deildar- stjóri Innlendrar dagskrárdeildar Sjónvarpsins, vill í kjölfar fréttar í DV á þriðjudag um keppnina Gettu betur itreka að KetiO Gunnarsson, formað- ur Nemendafélags MH, hafi ekki mætt á „neitt teppi“ í Sjónvarpinu. „KetiO átti frumkvæði að fundi okkar hér á skrifstofu minni. Með á fundinum voru Andrés Indriðason, sem stjórnað hefur útsendingu þátt- anna, Fjalar Hauksson, einn kepp- enda í liði MH, og Stefán Þór Stein- dórsson, einn fuOtrúa framhaldsskóla- nema í stýrihópi um framkvæmd keppninnar. Málin voru rædd á jafnréttisgrund- veOi og markmið okkar var eitt: Að kveða niður frétt um óánægju með framkvæmd á drætti í undanúrslit keppninnar Gettu betur," segir í yfir- lýsingu Sigurðar. Vandi strandveiöiflotans fór aftur i sjávarútvegsnefnd: Lítilvæg leiðrétting - segir Sighvatur Björgvinsson „Er það virkilega svo að ríkis- stjómin og stjórnarmeirihlutinn ætli sér ekkert að gera í málefnum strandveiðiflotans og þess fjölda fiskverkafólks sem er að missa at- vinnu sína um þessar mundir," sagði Sighvatur Björgvinsson, al- þingismaður jafnaðarmanna, á þingi í gær í umræðu um þingsköp. Sighvatur óskaði svara við beiðni um stutta utandagskrárumræðu Sighvatur Björgvinsson. um þetta mál á þingi. Starfandi sjáv- arútvegsráð- herra, Björn Bjarnason, brá við skjótt og óskaði eftir 15 mínútna hléi á þingfundi til að komast að niður- stöðu um beiðni Sighvats. Að þessu hléi loknu greindi Björn Bjamason frá því að mál hefðu skipast þannig að sjávarútvegsnefnd kæmi saman tfi að fjalla um málefni strandveiði- flotans og leggja fram tiOögu tO þingsins. Sighvatur Björgvinsson sagðist í samtali við DV eftir fund sjávarút- vegsnefndar vera lítt hrifinn af þeim árangri sem nefndin hefði skilað í málinu. „Því miður er ár- angurinn mjög rýr. Nefndin gerir nokkrar minni háttar leiðréttingar fyrir smábátamenn í dagakerfinu. Hún gerir ekkert fyrir vertíðarflot- ann og ekkert fyrir smábátamenn á aflamarkskerfinu. Þetta er því mjög lítOvæg leiðrétting sem engu breyt- ir um vanda landvinnslunnar eða strandveiðiflotans, því miður.“ -SÁ TILNEFNINGAR TIL OSKARSVERÐLAUNA PA k A MF.DA BESTA MYNDIN BESTl LEIKSTJORINN - BESTI LEIKARINN ■ Netleikur á Vísi.is Gestum Visis.is gefst kostur a að vinna sér inn glæsileg verðlaun í netleik á Vísi.is dagana 12.-19. mars. LIFE (L A VITA E BELLA) Frumsýnd 12. mars. MIRAMAX www.visir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.