Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1999, Blaðsíða 32
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Goðafossmenn:
Játa ekki
Játningar liggja enn ekki fyrir hjá
ellefumenningunum af Goðafossi,
samkvæmt upplýsingum DV í gær-
kvöldi. Lögreglan mun í dag leggja
fram greinargerðir til hæstaréttar til
^að dómurinn geti tekið afstöðu til
kæra sjómannanna um gæsluvarð-
haldið sem héraðsdómari úrskurðaði
(til 5. mars) í vikunni. Ekki liggur fyr-
ir hvort hæstiréttur nær að taka af-
stöðu til kæranna - staðfesta þær eða
hafna - fyrir helgina.
Ný áhöfn hefur verið ráðin á Goða-
foss sem samkvæmt áætlun á að láta
úr höfn til Kanada og Bandaríkjanna
í kvöld. M.a. þurfti að fá yfirstýri-
mann af öðru skipi Eimskipafélags-
ins, sem statt var í Evrópu, til að
fljúga heim til að verða skipstjóri á
Goðafossi. Tollverðir hafa haldið
áfram að leita hátt sem lágt í skipinu
í vikunni. Um 100 lítrar af sterku
áfengi fundust í gær til viðbótar við
þá tæpu 600 lítra af áfengi sem fund-
G’Xust um borð í skipinu skömmu eftir
komu þess. Samtals hafa einnig hátt í
600 karton af sigarettum fundist.
Miðað við þau viðurlög sem dóm-
stólar hafa ákvarðað við smygli má
gera ráð fyrir að sektir vegna þess
magns sem hefur fundist um borð í
Goðafossi muni nema rúmum 4 millj-
ónum króna.
-Ótt
* Helgarblað DV:
Baráttujaxlinn
í Helgarblaði DV er rætt við Róbert
Guðfmnsson sem fyrr í vikunni var
kjörinn stjómarformaður SH á mikl-
um átakafundi. Farið er yfir sögu
hans og fyrirtækisins Þormóðs
ramma.
Rætt er við Kristínu Margrétardótt-
ur, unga fyrirsætu, sem er á sviðinu
með Whitney Houston í nýjasta mynd-
bandi hennar. Fjallað er um ungan ís-
lenskættaðan dreng sem varð fyrir
hroðalegu voðaskoti í Bandaríkjun-
um. íslensku tónlistarverðlaunin voru
veitt í gærkvöldi og verða birtar
t myndir frá glæsilegu kvöldi.-sm/-þhs
M
Tollverðir leituðu að „meintu" áfengi úr Goðafossi úti á sjó í gær - 2,1 sjómílu norðaustur af svokallaðri 6 bauju (rúma þrjá kílómetra norðvestur af Seltjarn-
arnesi). Þar er sá staður sem tollverðir töldu sig hafa séð Goðafossmenn varpa brúsum í sjóinn þegar skipinu var siglt til Reykjavfkur. Eftir því sem DV kemst
næst hefur sú leit ekki borið árangur enda er talið líklegt að það sem leitað er að muni eða hafi rekið annað. Á myndinni eru tollverðir á bátnum Vini að leita
smygls. DV-mynd Sveinn
Ummæli forsætisráðherra um fiskveiðimálin á landsfundi:
Davíð er að boða
óbreytt ástand
- segja Ágúst Einarsson og Kristján Ragnarsson. Krafa um arð, segir Guðmundur G.
Þau orð Davíðs Oddssonar í setn-
ingarræðu hans á landsfundi Sjálf-
stæöisflokksins í gær, um að Sjálf-
stæðisflokkurinn hafni þvi ekki að
sjávarútvegurinn verði í framtíð-
inni að greiða þjónustugjöld í ríkari
mæli en hann hefur gert, ber ekki
að skilja á þann veg að forsætisráð-
herra sé með þeim að opna á þann
möguleika að taka upp veiðileyfa-
gjald. Þetta er mat bæði Ágústs Ein-
arssonar, alþingismanns og ötuls
talsmanns veiðileyfagjalds og and-
stæðings gjafakvóta, og Kristjáns
Ragnarssonar, formanns LÍÚ.
„Davíð er ekki að ljá máls á veiði-
leyfagjaldi heldur einungis að reyna
eftir megni að aftengja sjávarútvegs-
umræðuna fyrir kosningar,“ sagði
Ágúst Einarsson alþingismaður í sam-
tali við DV í morgun. Ágúst kvaðst
ekki geta lesið annað út úr þeim kafla
ræðu Davíðs Oddssonar á landsfundi
Sjálfstæðisflokksins í gær, en að meg-
inlínan í sjávarútvegsmálum sé ennþá
alveg ljós; kerfið skuli vera óbreytt og
það skuli áfram úthlutað veiðiheim-
ildum án gjalds. Gjafakvótakerfið
skuli vera áfram við lýði.
„Mér fannst forsætisráðherra gera
sjávarútvegsmálunum góð skil. Hann
í dag er annar dagur opinberrar heimsóknar forseta íslands, Ólafs Ragnars
Grímssonar, til Póllands. Á myndinni er utanríkisráðherra og frú að heilsa
forseta Póllands, forseta íslands, dóttur hans Döllu og forsetafrú Póllands.
DV-mynd GTK
Ágúst Einars- Kristján Ragn-
son. arsson.
gerði grein fyrir því að fiskveiði-
stjómunarkerfið eins og það er í dag
er grundvöllur allra okkar efnahags-
legu framfara," sagði Kristján Ragn-
arsson, formaður LÍÚ, við DV í morg-
un. Kristján sagði að útgerðin hefði
alla tíð gert sér grein fyrir því að það
geti komið til að hún greiddi hærri
þjónustugjöld en hún gerir nú. Krist-
ján sagði að forsætisráðherra hefði
haft ríkan fyrirvara um það að var-
lega yrði að fara í því efni og staða
greinarinnar í dag væri ekki þannig
að hún bæri það. „Mér fannst hann
undirstrika það að við munum búa
við þetta kerfi næstu framtíð, lítt eða
ekki breytt," sagði Kristján Ragnars-
son.
Vekja vonir
„Ég var mjög
ánægður að heyra
það sem forsætis-
ráðherra sagði.
Tilgangurinn með
okkar tillögum var
að hafa áhrif á
stjórnmálaflokk-
ana og að þeir
Guömundur G. tœkjU þessi mál al-
Þorarinsson. varlega til skoðun-
ar. Nú bíðum við bara eftir niður-
stöðu landsfundarins,1' sagði Guð-
mundur G. Þórarinsson, einn tals-
manna Áhugahóps um nýtingu auð-
linda í almannaþágu.
Aðspurður hvort þarna væri um
hreina stefnubreytingu af hálfu Sjálf-
stæðisflokksins að ræða svaraði Guð-
mundur: „Mér virðist að forsætisráð-
herra segi að ekki sé sátt um þetta
kerfi. Hann gerir ákveðnar kröfur um
aö það skili arði til þjóðarinnar og um
það verði sátt. Ég er honum algjörlega
sammála um þau meginatriði. Þessi
viðbrögð forsætisráðherra vekja
óneitanlega vonir.“
Sjá nánar á bls. 2.
-SÁ/-JSS
Veðrið á morgun:
Hvasst norð-
vestan til
Á morgun verður allhvöss eða
hvöss norðaustlæg átt og slydda
eða snjókoma norðvestan til en
hægari og skýjað með köflum
suðvestanlands. Hæg breytileg átt
og skúrir verða austan til. Vægt
frost verður norðvestan til en hiti
annars 0 til 4 stig.
Veöriö í dag er á bls. 29.
OROBLLÍ
SOKKABUXUR
MERKILEGA MERKIVELIN
brother PT-550 ný vél
tengjanleg við tölvu
8 leturgeröir,
8 stærðir, 15 leturútlit
úrval strlkamerkja
6 til 36 mm borðar
prentar í 7 línur
Nýbýlavegi 28 Slmi 554 4443
Veffanq: www.if.is/rafport