Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.1999, Side 9
FÖSTUDAGUR 16. APRÍL 1999
9
X>v_____________________________________Útlönd
Pakistan:
Bhutto dæmd
fyrir spillingu
Benazir Bhutto, fyrrverandi for-
sætisráðherra Pakistans og leiðtogi
Þjóðaflokksins, var í gær dæmd í
fimm ára fangelsi fyrir spillingu.
Bhutto er ásamt eiginmanni sínum,
sem situr í fangelsi, gefið að sök að
hafa þegið mútur og dregið sér sjö
milljarða króna á meðan hún var
forsætisráðherra.
Dómarinn í málinu, Malik Quay-
yum, sagði réttarhöldin hafa verið
heiðarleg og sú staðreynd skipti
engu að faðir hans hefði dæmt Ali
Bhutto, fyrrum forsætisráðherra og
fóður Benazir, til dauða árið 1977.
„Það er rétt að faðir minn dæmdi
Ali Bhutto en það var fyrir tuttugu
árum,“ sagði Quayyum dómari í
gær.
Bhutto er stödd í London og hún
sagði fréttamönnum í gær að dóm-
urinn væri áfall. Hún kvað réttar-
höldin runnin undan rifjum Nawaz
Sharifs forsætisráðherra og tilgang-
ur þeirra væri að koma sér endan-
lega frá völdum. Quayyum dómari
brást harkalega við þessum orðum
og sagði tengsl sín við stjórnarflokk
Sharifs engin.
Lögmenn Bhutto áfrýjuðu dómn-
Benazir Bhutto er fyrsta konan tii að
gegna embætti forsætisráðherra í
Pakistan. Henni hefur tvisvar verið
vikið frá völdum vegna spillingar.
um til hæstarréttar í gær og heldur
Bhutto heim á leið í næstu viku.
Þangað til ætlar flokkur hennar,
Þjóðaflokkurinn, að efna til verkfalls-
aðgerða í Karachi í mótmælaskyni.
Vilhjálmur prins, sonur Díönu heitinnar og Karls, er borubrattur með
handlegginn í fatla vegna skurðaðgerðar á fingri. Hér kemur hann til að vera
við skírn sonar gríska krónprinsins, enda guðfaðir barnsins.
Voðaverk í ættfræðimiðstöð:
Sjötugur öldungur
skaut tvo til bana
Sjötugur andlega
vanheill maður hóf
skothríð í hinni
frægu ættfræðimið-
stöð mormónakirkj-
unnar í Saltvatns-
borg í Utah í gær og
varð tveimur að bana
áður en lögreglan
skaut hann sjálfan.
Ekki er vitað hvað
manninum gekk til.
Deedee Corradini,
borgarstjóri Salt-
vatnsborgar, sagði
fréttamönnum að
maðurinn, Sergei Babarin, hefði
þjáðst af geðklofa.
„Eiginkona hins grunaða sagði að
hann hefði ekki tekið lyf sín,“ sagði
lögreglustjóri borg-
arinnar við frétta-
menn.
Þeir sem féllu fyr-
ir byssu Babarins
voru öryggisvörður í
ættfræðimiðstöðinni
og kona sem var þar
í heimsókn.
Babarin var inn-
flytjandi af rússnesk-
um ættum. Hann bjó
í Saltvatnsborg og
fór oft í gönguferðir
í nágrenni ættfræði-
miðstöðvarinnar, að
sögn útvarpsstöðvar í borginni. Lög-
reglan sagði að maðurinn hefði ver-
ið handtekinn árið 1995 án þess að
skýra það nánar.
Lík byssumanns sett í
sjúkrabíl.
Gylfaflöt 9 - Dekkjaverkstæði s: 5401300 - Hópferðir s: 5401313 - Fax 5401310
I ' I
í tilefni af 10 ára af mæli
Allrahanda og flutningi
heirra í nýtt biónustuver
opnar nýtt dekkjaverkstæði.
Umfelgun
fólksbfla
kr. 2.880.
E2EE
ClCl
Verð
frá:
155 SR13
175/70 SR13
185/70 SR13
185/70 SR14
205/70 SR14
185/05 SR14
185/05 SR15
Kr. 2.720.
Kr. 2.880-
Kr. 3.540-
Kr. 3.550.
Kr. 4.250.-
Kr. 3.580-
Kr. 4.250-
Landbúnaður
mun aukablað um
Kynntar verða nýjustu rannsóknir í landbúnaði,
nýjungar í vélum og tækjum, lífið í sveitinni o.fl.
Þeim sem vilja koma á framfæri efni í blaðið er bent á að hafa samband
við Hallgrím Indriðason í síma 697 4378, netfang: hallgri@vortex.is
Þeir sem hafa áhuga á að auglýsa í blaðinu vinsamlega hafi samband
við Sigurð Hannesson, auglýsingadeild DV, hið fyrsta, í síma 550 5728.
Athugiö að síðasti
pöntunar- og skiladagur
vinnsluauglýsinga er
föstudagurinn 23. apríi.