Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1999, Page 2
2
FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ 1999
Fréttir
Drengir á Eyrarbakka brenndust illa:
Hlupu logandi
- í næsta hús - eru á batavegi en meö slæm brunasár
Eins og kom fram í DV i gær
gerðist sá átakanlegi atburður á
Eyrarbakka á miðvikudaginn að
tveir ungir drengir hlutu mjög
slæm brunasár þegar eldur sem
þeir voru að leika sér með fór al-
gerlega úr böndunum. Drengirnir
tveir, Magnús Þórir Sveinsson, 11
ára, og Emil Freyr Júlíusson, 10
ára, voru að leik inni í gömlum
kapalkeflum í útjaðri bæjarins þar
sem þeir voru búnir að gera sér
felustað, eins konar klúbbhús sem
þeir skriðu inn í. Þeim hcifði tekist
að komast yfir lítinn bensínbrúsa
og notuðu þeir bensínið til þess að
kynda bál sem þeir kveiktu inni í
keflunum. Þá gerðist það að þeir
misstu brúsann og bensínið sullað-
ist út um allt, þar á meðal í föt
drengjanna. Bálið blossaði skyndi-
lega upp og eldurinn fór í fotin.
Þeir skriðu út úr keflinu og
reyndu að slökkva í sér með hönd-
unum og með því að rúlla sér á
jörðinni. Þar sem bensín var í föt-
unum gekk það ekki, brenndi ein-
ungis hendurnar, þannig að þeir
hlupu logandi í nálægt hús þar
sem menn voru við vinnu og náðu
að slökkva í þeim og kæla þá nið-
ur með vatni. Þeir hringdu strax á
sjúkrabíl sem færði drengina til
Reykjavíkur á sjúkrahús hið bráð-
asta.
Víti til varnaðar
Báðir hlutu drengimir mikil
brunasár en þó eru sár Emils meiri
en Magnúsar Þóris. Þeir skaðbrennd-
ust báðir á höndum eftir tilraunirnar
til að slökkva í sér og einnig í andliti,
en eldtungurnar loguðu upp að and-
litum þeirra. Brunasárin voru djúp
annars stigs, sum þriðja stigs. Þegar
DV leit inn í heimsókn til Magnúsar
Þóris í gær var hann á batavegi og
leið betur. „Honum líður þokkalega
eftir atvikum og er mjög rólegur.
Hann þarf þó aö liggja á sjúkrahúsinu
í einhvern tíma meðan verstu sárin
jafna sig,“ sagði Rannveig Sverris-
dóttir, móðir Magnúsar Þóris.
Emil fer af gjörgæslu í dag niður á
legudeild i sömu stofu og Magnús
Þórir. Búist er við því að þeir þurfi að
liggja á sjúkrahúsinu í rúmar tvær
vikur. „Þetta er hræðilegt og því mið-
ur gerist svona öðru hvoru. Foreldrar
þurfa að vera mjög vel á varðbergi
því að börn ganga í gegnum þetta
ákveðna skeið, þá drengir sérstak-
lega, þar sem mikið er fiktað og farið
óvarlega með eld. Ef bensín er svo
með i spilinu er þetta orðið gifurlega
hættulegt," sagði Herdís Storgaard,
hjá Slysavömum barna og unglinga, í
gær. „Það þarf ekki að líta lengra aft-
ur en á hann Sindra Snæ sem brennd-
ist fyrir tæplega ári. Það er vonandi
að þetta verði öðrum víti til vamað-
ar.“ -hvs
Vélstjórar hóta stríði:
Beint í málaferli
- ef útgeröir skeröa launahækkanir
„Ef útgerðarfélögin fara ekki að
þessum úrskuröi forum við beint í
málaferli til intiheimtu," sagði
Helgi Laxdal, formaður Vélstjóra-
félags íslands, um túlkun Lands-
sambands íslenskra útvegsmanna
á úrskurði svonefndrar úrskurða-
nefndar um launahækkanir til vél-
stjóra. Hlutaskiptin hækka, auk
þess sem þeir fá einnig fasta upp-
hæð. Yfirvélstjórar á frystitogur-
um hækka mest eða vel á annað
hundrað þúsund krónur á mánuði.
Aðrir hækka minna. Allflestir vél-
stjórar eru með yfirborganir og
hefur LÍÚ hvatt útgerðir til að
lækka þær sem nemur launa-
hækkununum samkvæmt úr-
skurði úrskurðanefndar, að sögn
Helga.
„LÍU hefur rangtúlkað þessar
niðurstöður," sagði Helgi. „Þeir
segja t.d. að það sé skilyrði að yfir-
vélstjórarnir á frystiskipunum
eigi að sjá um allt viðhald á milli-
dekkinu hvaða nöfnum sem það
nefnist. I úrskurðinum er ekki
stafur um það, heldur aðeins að
þeir beri ábyrgð á því. í úrskurð-
inum eru yfirhöfuð ekki neinar
viðbótarkröfur um vinnuframlag.
Það er mergurinn málsins."
Helgi sagði að þessar greiðslur
kæmu til framkvæmda á næstu
dögum og þá kæmi í ljós hvort út-
gerðirnar greiddu vélstjórunum
eins og þeim bæri, skv. úrskurðin-
um.
Um tilmæli LÍÚ til útgerða um
að skerða yfirborganir, svo sem
nemur úrskurðuðum launahækk-
unum sagðist Helgi vilja benda á
að í gildi væru kjarasamningar.
„Þarna eru heildarsamtökin að
hafa áhrif á einstaka félagsmenn.
Við teljum að það sé ekki heimilt
meðan kjarasamningurinn er í
gildi. Fari einhver aö þessum til-
mælum förum við með það til túlk-
unar hjá félagsdómi eða beint í
dómskerfið. Ég hef þá trú að út-
gerðarmenn muni greiða bæði
launahækkanirnar og álögurnar."
-JSS
Það er ekki á hverjum degi sem maður rekst á kálf sem á hryssu fyrir mömmu.
Sú sýn er hins vegar til staðar á Eskifirði þessa dagana. Þórólfur Sverrisson
á hryssuna Sunnu sem kastaði folaldi sem dó eftir 12 tíma baráttu. Þá fékk
Þórólfur kálfinn Hjálmar til þess að taka við hlutverki folaldsins. Hér sýgur
Hjalli litli spenann á „mömmu“ sinni Sunnu. DV-mynd Emil
Ríkharður Jósafatsson, doktor í austrænum lækningum:
Kærði landlæknisembættið
til samkeppnisráðs
„Mér finnst landlæknisembættið
vera að misnota aðstöðu sína til að
vernda sérhagsmuni,“ segir Rík-
harður Jósafatsson, doktor í aust-
rænum lækningum, sem um eins og
hálfs árs skeið hefur árangurslaust
reynt að fá leyfi til að starfa hér á
landi.
Ríkharður á að baki áralangt
nám í sínum fræðum og hefur starf-
að í Santa Fe í Bandaríkjunum við
lækningar, nálastungumeðferð og
kennslu í nálastungum. „Ég byrjaði
á því að sækja um leyfi til að starfa
sem doktor í austrænum lækning-
um og nálastungum en þar sem það
starfsheiti var ekki til og engar regl-
ur til um nálastungulækningar á
þeim tima var umsókninni hafnað
og mér bent á að sækja um starfs-
réttindi sem sjúkranuddari. Þeirri
umsókn var líka hafnað þar sem
nám mitt var ekki talið fullnægja
þeim skilyrðum sem landlæknis-
embættið setur. í millitíðinni skrif-
aði landlæknir reglur um nála-
stungumeðferð þar sem hann viður-
kennir tilurð nálastungumeðferðar,
þannig að ég sótti aftur um leyfi til
að starfa við nálastungumeðferð. Ég
hef ekki fengið skriflegt svar við
þeirri umsókn en aðstoðarland-
læknir táði mér munnlega í lok apr-
íl að ég fengi ekki leyfí til að starfa
við mitt fag hér á landi.“
Aðspurður segist Ríkharður ekki
hafa hugmynd um hvers vegna um-
sókn hans um starfsleyfi er hafnað
og hann hafi enga skýringu fengið.
„Eina skýringin sem ég sé er að hér
sé á ferðinni geðþóttaákvörðun
embættisins til að koma i veg fyrir
eðlilega og heilbrigöa samkeppni
við vestræna læknisfræði sem hér
er kölluð hefðbundin læknisfræði
þótt sú austræna sé fimm þúsund
ára gömul fræöigrein og því mun
hefðbundnari. Það er verið að koma
í veg fyrir að fólkið hér eigi eitt-
hvert val.“
Ríkharður segist ekki vera að
halda því fram að austrænar lækn-
ingar eigi að taka fram yfir þær
vestrænu. „Þetta eru tvær ólíkar
greinar sem þó eiga erindi hvor við
aöra. í Bandarikjunum, þar sem ég
hef starfað í átta ár, getur fólk valið
hvort það leitar til lækna sem eru
menntaðir í austrænum eða vest-
rænum lækningum og tryggingafé-
lögin viðurkenna báðar greinar.
Það er því einkennilegt að land-
læknisembættið í okkar litla landi
sem sækir mikið til Bandaríkjanna,
ekki síst í læknisfræðum, skuli
beita sér fyrir því að þessar tvær
greinar fái ekki þrifist samhliða og
í samstarfi."
ítarlegt viðal verður við Ríkharð
í Helgarblaði DV á morgun.
Stuttar fréttir :dv
Þakklátur Rússum
Halldór Ás-
grímsson utan-
rikisráðherra
segir við Morg-
unblaðið að
ástæða sé til þess
að þakka Rúss-
um sérstaklega
fyrir framlag
þeirra til friðarviðræðna við
Júgóslavíu sem nú virðast hafa bor-
ið árangur.
Vérður dýrara
Nefnd á vegum sveitarfélaga skoð-
ar hugsanlegan aukakostnað sem
fylgir nýrri aðalnámskrá grunn-
skóla. Jón Hjartarson, fræðslustjóri
Suðurlands, segist í Degi vera sann-
færður um að henni muni fylgja
kostnaðarauki.
Sögubær
Bæjarjflrvöld og íbúar Mosfells-
bæjar vilja að bærinn verði þekktur
sem sögubær auk þess sem þar verði
miðstöð heilsuræktar og -bótar auk
smáiðnaðar.
Fara offari
Halldór Ásgrímsson utanríkisráð-
herra sagði við Ríkisútvarpið að
tryggingafélögin ætli að gerast stór-
tæk með hækkunum bOatrygginga-
iðgjalda.* Til greina komi að breyta
nýju skaðabótalögunum í kjölfarið.
Fyrirhugaðar hækkanir ógni þó
ekki efnahagslegum stöðugleika.
Sekt fyrir veiðar
Garðar Björgvinsson smábátaút-
gerðarmaður hefur af Hæstarétti
verið dæmdur í 400 þúsund króna
sekt fyrir brot gegn fiskveiðistjóm-
arlögum. Hann veiddi eitt tonn af
flski í fmun sjóróðrum án þess að
hafa leyfi til jjess.
Rannveig formaður
Rannveig Guð-
mundsdóttir al-
þingismaður var
i gær kosin þing-
flokksformaður
Samfylkingai'-
innar. Jóhann
Ársælsson er
varaformaður og
Guðrún Ögmundsdóttir ritari.
Krefja SH svara
Bæjarráð Akureyrar ætlar að
krefja SH um svör við því á hvem
hátt stjómin ætli að efna loforð sín
sem gefin vom bæjarstjóm með
bréfi dags. 23. janúar 1995 þar sem
stjóm SH hefnr nú lokað skrifstof-
umfyrirtækisins á Akureyri.
Netskyndikynni
Lögreglan í Reykjavík hefur haft
til rannsóknar nokkur kærumál
sem varða kynferðisbrot og nauðg-
anir gegn 14-18 ára stúlkum sem
rekja má beinlinis til samskipta
þeirra við eldri karlmenn sem hafa
byijað á spjallrásum á Netinu og
leitt síðan til frekari kynna með áð-
umefndum afleiðingum. Morgun-
blaðið sagði frá.
Smyglaði hormónum
Hæstiréttm' hefur staðfest úr-
skurð Héraðsdóms yflr vaxtarrækt-
armanni um 45 daga skilorðsbundið
fangelsi. Maðurinn reyndi aö
smygla inn hormónalyflum og ók bíl
of hratt, réttindalaus að auki. Dagur
sagði frá.
Rukkarar fá þriðjung
Bflastæðasjóður Reykjavikur-
borgar átti útistandandi rúmlega 150
milljóna kröfúr í lok síðasta árs
vegna aukastöðu- og stöðubrota-
gjalda. Talið er að Lögmannsstof-
unni sf. takist að innheimta 24,1
milljón á árinu. Þar af fær Lög-
mannsstofan 8 milljónir króna í inn-
heimtulaun.Þetta kemur fram í árs-
reikningi Reykjavíkurborgar.
Skilur ekki kæruna
Einar Sveins-
son, fram-
kvæmdastjóri
Sjóvá-Almennra,
kveðst í Morgun-
blaðinu ekki
skilja ásakanir
FÍB um ólöglegar
niðurgreiðslur.
Félagið hafi aldrei aðhafst neitt ólög-
mætt varðandi iðgjaldsákvarðanir
fyrr eða síðar.
-SÁ