Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1999, Blaðsíða 19
FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ 1999
19
Fréttir
Smíði íslenskra skipa að færast frá Evrópu:
Fjögur fiskiskip í
smíðum í Kína
DV, Akureyri:
Svo virðist sem smíði íslenskra
fiskiskipa sé að færast að ein-
hverju leyti a.m.k. frá Evrópu til
Kína, en þar eru nú fjögur íslensk
fiskiskip í smíðum í skipasmíða-
stöðinni í Guangzhou sem er
skammt frá Hong Kong. Um er að
ræða nótaskip, togara með útbún-
að til túnfiskveiða, línuveiðiskip
með túnfiskveiðiútbúnað og skel-
fiskveiðiskip. Skipin verða afhent
skömmu fyrir áramót og fyrri
hluta næsta árs.
Það skip sem lengst er komið er
Örn KE, nýtt nótaveiðiskip fyrir
Örn Erlingsson í Keflavík sem
leysa á aflaskip með sama nafni af
hólmi. Nýja skipið er 71 metra
langt og verður afhent í desember
á þessu ári.
Hin þrjú skipin eru kúfiskveiði-
skip fyrir Hraðfrystistöð Þórshafnar
sem verður 38 metra langt, togari
fyrir Stíganda í Vestmannaeyjum
sem verður 42 metra langur og línu-
veiðiskip fyrir ístún í Vestmanna-
eyjum sem verður 52 metra langt.
„Þessi skipasmíðastöð er mjög vel
í stakk búin til að fullnægja þeim
kröfum sem við gerum varðandi
fiskiskip okkar og þær eru miklar,"
segir Reynir Arngrímsson hjá
Icemac, en það fyrirtæki er umboðs-
aðili hér á landi fyrir skipasmíða-
stöðina í Guangzhou. Reynir segir
að stöðin hafi lengi vel annast alla
smíði herskipa fyrir kínverska rík-
ið og þvi sé hefð fyrir því þar að
smíða flókin skip, eins og okkar
skip séu.
„Það er alveg borðleggjandi að
stöðin er fyllilega fær um að upp-
fylla allar okkar kröfur og skilar
góðum skipum sem eru flókin í
smíði. Verðið er einnig mjög hag-
stætt miðað við það sem við þekkj-
um frá Evrópu og það er m.a. ástæð-
an fyrir því að við erum að færa
skipasmíðar okkar þangað frá Evr-
ópu. Launakostnaður er t.d. miklu
lægri þarna. Ég sé mikla framtið í
því að láta smíða skip fyrir okkur
þarna, og stöðin er t.d. núna að
smíða þessi fjögur skip fyrir íslend-
inga sem eru mjög ólík hvert öðru
og til mismunandi veiða og sam-
skipti við Kínverjana ganga öll
mjög vel,“ segir Reynir. -gk
, wT
||J||pr w [|l[ ^ m nf A
^ m viipi 4 .*.e
J-Í ' - HL /
Þau tóku á móti gjafabréfum útibúsins.Tryggvi Karelsson útibússtjóri fyrir miðju.
DV-mynd Ægir
Fáskrúðsfj örður:
Afmælisgjafir bankans
DV, Fáskrúðsfirði:
Starfsfólk útibús Landsbanka ís-
lands hf. á Fáskrúðsfirði hélt nýverið
upp á 25 ára afmæli útibúsins. Það tók
til starfa 29. maí 1974 við sameiningu
Sparisjóðs Fáskrúðsfjarðar og Lands-
bankans.
Landsbankinn starfaði fyrstu árin í
leiguhúsnæði í félagsheimilinu Skrúð
en flutti i nýtt, eigið húsnæði 4. desem-
ber 1981. í útibúinu hefur verið seðla-
geymsla frá Seðlabanka sem þjónar
Suðurfjörðum frá því að það flutti í
Þuríður Backman.
eigið húsnæði. Útibúið hefur verið að-
alviðskiptabanki stærstu fyrirtækja og
ibúa á staðnum frá upphafi.
Afmælisins var minnst með því að
útibúið bauð öllum bæjarbúum til
veislu sem var vel sótt, m.a. væntan-
legir viðskiptavinir bankans sem enn
eru í leikskólanum Kærabæ. í tilefni
afmælisins afhenti útibússtjórinn
skólastjóra Grunnskólans þrjár tölvur
að gjöf í tölvuver skólans, auk bóka-
gjafar. Þá voru undirritaðir samstarfs-
samningar við Björgunarsveitina
Geisla og Ungmennafélagið Leikni. Nú
Eyþór Arnalds.
Leiðrétting
Þau leiðu mistök áttu sér stað við
vinnslu blaðsins í gær að mynda-
víxl urðu í dálkinum Með og á móti,
undir yfirskriftinni Landssíminn
seldur. Mynd af Eyþóri Arnalds
birtist með texta Þuríðar Backman
og öfugt. Beðist er velvirðingar á
þessum mistökum.
eru fjögur stöðugildi við útibúið. Úti-
bússtjóri er Tryggvi Karelsson og
skrifstofustjóri Ingigerður Jónsdóttir.
Básafell er
ekki að skipta
yfir í rækju
- segir Arnar Kristinsson
Arnar Krist-
insson, fram-
kvæmdastjóri
Básafells hf.,
segir það rangt
sem fram kem-
ur í frétt DV í
gær að Básafell
sé á fullu að
skipta yfir í rækjuvinnslu á með-
an það er opinber stefna sjávarút-
vegsráðuneytisins að leggja
áherslu á bolfiskvinnslu. „Bása-
fell hf. hefur ekki skipt einu ein-
asta kílói af þorski yfir í rækju.
Það sem kemur fram í fréttinni i
gær er því rangt,“ segir Arnar
Kristinsson, framkvæmdastjóri
Básafells hf. Arnar segir að 30%
af veltu fyrirtækisins séu í rækju
og hafi minnkað samfellt undan-
farin ár. Þegar hún var mest voru
75% af veltunni bundin í rækju.
í fréttinni í gær var fjallað um
kaup Lifeyrissjóðs Vestfjarða í
Básafelli hf. og leiddar að því lík-
ur að slíkar fjárfestingar væru
vafasamar. Beðist er velvirðingar
á því þar sem með rangt mál var
farið. -BMG
Hann gefur ekki upp vonina heldur vinnur verk sitt af trúmennsku í trausti
þess að brátt muni skipið sigla á hvalamið. DV-mynd S
Akranes:
Fjórir sækja um
starf íþróttafulltrúa
DV, Akranesi:
Kristinn Reimarsson, sem gegnt
hefur starfi íþróttafulltrúa Akranes-
kaupstaðar, hefur sagt upp störfum
og mun hann taka við nýju staríi
hjá íþrótta- og ólympíusambandi Is-
lands í sumar.
Á fundi bæjarráðs Akraness voru
lagðar fram umsóknir um starf
íþróttafulltrúa Akraneskaupstaðar.
Starfið var auglýst laust til umsókn-
ar með umsóknarfresti til 24. maí sl.
Eftirtaldir aðilar sóttu um starfið:
Guðbrandur Jóhann Stefánsson,
Keflavik, Jakob Þór Haraldsson,
Seltjamamesi, Karl Ómar Karlsson,
Akranesi, og Stefán Már Guð-
mundsson, Laugarvatni. Bæjar-
stjóri og íþróttafulltrúi ræða við
umsækjendur og skila umsögn fyr-
ir næsta fund bæjarráðs 3. júní.
-DVÓ
Fyrir alla!
Heilsa, megrun, fitun, útlit,
fjárhagslegt öryggi.
Ifeiti ráðgjöf ng stuðning.
Anna Toher,
s. 897 7575 eða e-mail:
588 7575 annatoher@fardi.com