Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1999, Qupperneq 34

Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1999, Qupperneq 34
34 FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ 1999 Messur Árbæjarklrkja: Guðsþjónusta kl. 11 með þátttöku AA-félaga. Sr. Þór Hauks- son prédikar. AA-kórinn syngur. Org- anleikari Valgeir Skagfjörð. Kökubasar og blómasala Kirkjukórs Árbæjarkirkju að lokinni guðsþjónustu. Prestarnir. Áskirkja: Guðsþjónusta kl. 11. Árni Bergur Sigurbjörnsson. Breiðholtskirkja: Messa kl. 11. Altar- isganga. Organisti Daníel Jónasson. Gísli Jónasson. Bústaðakirkja: Sjómannamessa kl. 11. Ræðumaður verður Árni M. Mathiesen sjávarútvegsráöherra. Sjómenn og að- standendur sjómanna annast bæna- og ritningarlestra. Flutt verður tónverk Sigfúsar Halldórssonar, Þakkargjörð sem organisti kirkjunnar, Guðni Þ. Guðmundsson, hefur útsett fyrir orgel og kór. Fyrir messu munu organisti og kór flytja nokkur laga Sigfúss. Pálmi Matthíasson. Digraneskirkja: Kl. 20.30 kvöldsöngur með altarisgöngu. Prestur sr. Gunnar Sigurjónsson. Organisti Kjartan Sigur- jónsson. Dómkirkjan: Sjómannadagurinn. Sjó- mannaguðsþjónusta kl. 11 í Fríkirkj- unni í Reykjavík. Biskup íslands, herra Karl Sigurbjörnsson, prédikar og minn- ist látinna sjómanna. Sr. Hjalti Guð- mundsson þjónar fyrir altari. Organ- leikari Marteinn H. Friðriksson sem stjómar söng Dómkórsins. Einsöngur Jóhanna Linnet. Elliheimilið Grund: Guðsþjónusta kl. 10.15. Prestur sr. Halldór S. Gröndal. Organisti Stefán Helgi. Fella- og Hólakirkja: Kvöldguðsþjón- usta kl. 20.30. Ath. breyttan tima. Prest- ur sr. Sigutjón Árni Eyjólfsson. Org- anisti Peter Maté. Prestarnir. Fríkirkjan i Reykjavík: Guðsþjónusta á sjómannasunnudag kl. 11. Biskup ís- lands, hr. Karl Sigurbjömsson, prédik- ar. S r. Hjalti Guömundsson þjónar fyrir altaii. Grafarvogskirkja: Guðsþjónusta kl. 11. Sjómannadagur í Grafarvogskirkju. Prestur sr. Anna Sigríður Pálsdóttir. f fjarveru kirkjukórs Grafarvogskirkju syngja eldri félagar Karlakórs Reykja- víkur. Organisti og kórstjómandi Kjart- an Sigutjónsson, undirleikari Bjami Þór Jónatansson. Einar Pálmi Matthí- asson flytur hugvekju. Prestamir. Grensáskirkja: Messa kl. 11. Altaris- ganga. Fermdur verður Einar Barkar- son, Háaleitisbraut 95. _ Kirkjukór Grensáskirkju. Organisti Ámi Arin- bjamarson. Sr. Ólafur Jóhannsson. Grindavíkurkirkja: Sjómannamessa kl. 13, með þátttöku sjómanna. Skrúð- ganga að minnisvarðanum Von eftir messuna. Prestur við athöfnina sr. Hjörtur Hjartarson. Organisti Örn Falkner. Kór Grindavíkurkirkju syng- ur. Sóknamefnd. Hafnarfjarðarkirkja: Hátíðarguðs- þjónusta sjómannadagsins kl. 11. Full- trúar sjómanna og fjölskyldna þeirra lesa ritningarlestra. Félagar úr kór Hafnarfjarðarkirkju leiða söng. Org- anisti Peter Mate. Prestur sr. Þórhallur Heimisson. Hallgrímskirkja: Safnaðar- og f]öl- skylduhátíð kl. 11. Útiguðsþjónusta á Hallgrímstorgi. Klukknaspil mUn hljóma frá turni kirkjunnar. Blásara- kvartett leikur, Barna- og unglingakór Hallgrímskirkju og Mótettukór Hall- grímskirkju syngja. Prestar kirkjunnar þjóna. Eftir guðsþjónustu verður grill- að, farið í leiki, kaffi 1 safnaðarheimili og tónlistarflutningur í kirkjunni undir stjórn Harðar Askelssonar. Upphaf Kirkjulistahátíðar Hallgrímskirkju kl. 20 með klukknaspili og lúðraþyt. Setn- ing hátíðarinnar kl. 20.30. Opnun mál- verkasýningar Georgs Guðna. „Dýrð Krists, 7 hugleiðingar um texta úr guð- spjöllunum", eftir Jónas Tómasson. Flytjendur Lára Stefánsdóttir ballett- dansari, Sverrir Guðjónsson kontraten- or og Hörður Áskelsson orgelleikari. Haukadalskirkja: Messa kl. 14. Prest- ur sr. Guðmundur Óli Ólafsson. Háteigskirkja: Messa kl. 11. Organisti Jakob Hallgrímsson. Sr. Tómas Sveins- son. HjaUakirkja: Kvöldguðsþjónusta kl. 20.30. Sr. Hjörtur Hjartarson þjónar. Fé- lagar úr kór Kópavogskirkju leiða safn- aðarsöng. Organisti Kári Þormar. Við minnum á bæna- og kyrrðarstund á þriðjudag kl. 18. Prestamir. Hrafnista: Guðsþjónusta kl. 13.30. Ámi Bergur Sigurbjörnsson. Kópavogskirkja: Sjómannaguðsþjón- usta kl. 11. Kór Kópavogskirkju syngur. Organisti Kári Þormar. Ægir Fr. Sigur- geirsson. Landspitalinn: Messa kl. 10. Sr. Guð- laug Helga Ásgeirsdóttir. Langholtskirkja, Kirkja Guðbrands biskups: Guðsþjónusta kl. 11 í safnaðar- heimúinu. Prestur sr. Tómas Guð- mundsson. Organisti Jón Stefánsson. Einsöngur Jónas Guðmundsson. KafFi- sopi eftir guösþjónustu. Laugameskirkja: Vegna sumarleyfa starfsfólks Laugarneskirkju er bent á guðsþjónustu i Askirkju. Lágafellskirkja: Messa kl. 11. Ferm- ing: Ath. breyttan messutlma. Kirkjukór Lágafellssóknar. Organisti Guðmundur Ómar Óskarsson. Jón Þor- steinsson. Neskirkja: Messa kl. 11 i safnaðar- heimilinu. Sr. Halldór Reynisson. Selfosskirkja: Messa kl. 11. Sr. Svanur Stefínsson messar. Byrjendur í bama- kórastarfi taka þátt í messunni. Morg- unbænir kl. 10 þriðjud.-fóstud. Sóknar- nefnd. Seljakirkja: Kl. 20 guðsþjónusta. Ath. breyttan tíma. Sr. Valgeir Ástráðsson prédikar. Altarisganga. Bjöm Davíð Kristjánsson leikur á þverflautu. Org- anisti er Gróa Hreinsdóttir. Prestarnir. Seltjarnameskirkja: Kvöldmessa ki. 20. Athugið breyttan messutíma. Prest- ur sr. Guðný Hallgrímsdóttir. Skálholtskirkja: Messa kl. 11. Prestur sr. Guðmundur Óli Ólafsson. Viðeyjarkirkja: Messa kl. 14. Prestur sr. Hjalti Guðmundsson. Organleikari Marteinn H. Friðriksson, sem stjómar söng Dómkórsins. Bátsferð úr Sunda- höfh kl. 13.30. Afmæli DV Sigurður Einarsson Sigurður Einarsson, bóndi að Skúfslæk í ViIIingaholtshreppi í Ár- nessýslu, er sextugur í dag. Starfsferill Sigurður fæddist á Selfossi en ólst upp í foreldrahúsum að Austurkoti í Hraungerðishreppi. Hann tók á unglingsárunum þátt í almennum bústörfum en starfaði jafnframt lengi hjá Sláturfélagi Suðurlands á Selfossi á haustin og á vorin, auk þess sem hann stundaði róðra og fiskvinnu hjá Meitlinum í Þorláks- höfn yfir fjórtán vertíðir. Sigurður bjó félagsbúi, ásamt Ólafi, bróður sínum, og móður sinni í Austurkoti til 1986 en þá kvæntist hann og flutti að Skúfslæk þar sem hann hefur búið síðan. Sigurður hefur frá sautján ára aldri farið fjallferðir til smölunar á haustin en hann hefur verið fjall- kóngur í vesturleit á Flóamannaaf- rétti í allnokkur ár. Fjölskylda Eiginkona Sigurðar er Ásta Ólafs- dóttir húsmóðir, f. 8.1. 1939. Hún er dóttir Ólafs Ólafssonar, bónda á Syðstu-Mörk undir Vestur-Eyjafjöll- um, og Höllu Guðjónsdóttir hús- freyju. Sigurður á fjögur stjúpbörn. Þau eru Magnús Eiríksson, f. 3:9. 1964, vélvirki, búsettur í Svíþjóð; Árni Ei- ríksson, f. 8.9. 1966, viðgerðarmaður á Selfossi; Ólafur Eiríks- son, f. 3.9. 1968, nemi í vélaverkfræði við HÍ, bú- settur í Reykjavík; Halla Eiríksdóttir, f. 10.8.1977, í framhaldsnámi í hrossa- rækt. Albróðir Sigurðar er Ólafur, f. 27.12. 1941, bóndi í Austurkoti í Hraungerðishreppi. Uppeldissystir Sigurð- ar er Lára Kristjánsdóttir, f. 27.10. 1945, húsfreyja á Áshóli, gift Grétari Geirssyni og eiga þau fjögur börn, Önnu, Brynju, Elínu og Erling sem er fóstursonur þeirra hjóna. Foreldrar Sigurðar: Einar Sig- urðsson, f. 2.6. 1897, d. 1980, bóndi í Austurkoti, og k.h., Anna Ólafsdótt- ir, f. 21.5. 1909, húsfreyja, búsett í Austurkoti. Ætt Einar var sonur Sigurðar, b. í Sölvholti, Sigurðssonar, frá Hólum á Stokkseyri, Einarssonar, b. á Baugsstöðum, Jónssonar, hrepp- stjóra á Baugsstöðum, Einarssonar, Jónssonar, Pálssonar frá Eyrar- bakka. Móðir Einars í Austurkoti var Anna Einarsdóttir, b. í Sölvholti í Flóa, Sæmundssonar, hreppstjóra í Auðsholti, Steindórssonar, b. í Auðsholti, Sæmundssonar, ættfóður Auðsholtsættarinnar. Móðir Sæmundar hrepp- stjóra var Arnþrúður Nikulásdóttir, silfur- smiðs í Nýjabæ, Jónsson- ar. Móðir Einars í Sölv- holti var Guðlaug Magn- úsdóttir, b. á Núpi, Þórð- arsonar, Magnússonar á Selfossi. Móðir Guðlaug- ar var Steinunn Eiríks- dóttir, b. á Þúfu, Brynj- ólfssonar, lrm. á Ölfus- vatni, Jónssonar, b. á Reykjum, Ásmundssonar, b. á Minni-Völlum á Landi, Brynjólfs- sonar, b. á Skarði á Landi, Jónsson- ar, b. á Skarði, Eiríkssonar, sýslu- manns í Klofa, Torfasonar rika í Klofa, Jónssonar, sýslumanns í Klofa, Ólafssonar, sýslumanns í Reykjahlíð, Loftssonar rika, riddara og hirðstjóra á Möðruvöllum, Gutt- ormssonar. Anna, móðir Sigurðar, var ættuð úr Mýrdalnum, dóttir Ólafs, b. í Keldudal í Mýrdal, Bjamasonar, b. í Engigarði, Jónssonar, b. að Svarta- núpi, Þorlákssonar, b. í Flögu, Jóns-. sonar. Móðir Bjarna var Þorgerður Bjarnadóttir. Móðir Ólafs var Þór- dís Eiríksdóttir. Móðir Önnu var Guðrún, dóttir Dagbjarts, b. að Ket- ilsstöðum, Hafliðasonar, b. á Haug- um, Ólafssonar. Móðir Dagbjarts var Þrúður Eggertsdóttir. Móðir Guðrúnar var Jórunn Ólafsdóttir. Sigurður Einarsson. Sigríður G. Þorsteinsdóttir Sigriður Gréta Þor- steinsdóttir móttökurit- ari, Heiðarbrún 53, Hveragerði, er sextug í dag. Starfsferill Sigríður fæddist á Ak- ureyri og ólst þar upp. Á sínum yngri árum stund- aði hún verslunar- og þjónustustörf hjá KEA. Hún flutti til Hveragerðis 1967 og hefur átt þar heima síðan. í Hveragerði starfaði Sigríður fyrst hjá Hótel Hveragerði en nú er hún móttökuritari á Heilsugæslu- stöð Hveragerðis. Fjölskylda Eiginmaður Sigríðar er Agnar Urban, f. 14.1. 1940, garðyrkjumað- ur. Hann er sonur Eugen Urban og Önnu Sigríðar Sigurðardóttur sem eru látin. Böm Sigríðar eru Frið- rika J. Sigurgeirsdóttir, f. 21.6. 1959, d. 15.8. 1959; Friðrika J. Sigurgeirs- dóttir, f. 4.12. 1960, bóndi og húsfreyja að Laugar- bökkum í Ölfusi, gift Þor- valdi Guðmundssyni, bónda þar, en börn henn- ar eru ívar Áki Hauksson og Rakel Lind Hauksdótt- ir; Hrönn Þorsteins, f. 15.11. 1963, húsmóðir í Bandaríkjunum, en mað- ur hennar er Magnús Haukur Hann- esson forstjóri; Guðlaugur Stefáns- son, f. 14.10. 11965, húsasmíðameist- ari á Selfossi, en kona hans er Auð- ur Ólafsdóttir, skifstofustjóri KÁ, og em böm þeirra Anita Guðlaugsdótt- ir og Stefán Ragnar Guðlaugsson; Agnar Þór Agnarsson, f. 21.6. 1976, starfsmaður Ferðaskrifstofu Suður- lands, búsettur í Hveragerði en kona hans er Heiðrún Ólafsdóttir er starfrækir sólbaðsstofu í Hvera- gerði og er dóttir hennar Thelma Dögg Guðmundsdóttir. Systir Sigríðar er Guðlaug Jó- hannsdóttir, f. 6.12. 1941, verslunar- maður hjá Hagkaupi, búsett á Akur- eyri en maður hennar er Sigþór Ár- mann Ingólfsson, f. 25.6.1942, starfs- maður hjá Vinnueftirliti ríkisins og eiga þau fimm böm. Foreldrar Sigriðar vora Þor- steinn Karlsson, f. 26.9. 1917, d. 10.3. 1941, sjómaður á Akureyri, og k.h., Friðrika Halldóra Einarsdóttir, f. 18.3. 1918, d. 8.4. 1982, húsmóðir. Seinni maður Friðriku Halldóru, og stjúpfaðir Sigríðar var Jóhann Böðvarsson, f. 15.1. 1911, d. 31.1. 1983. Sigríður og Agnar taka á móti gestum að Kambahrauni 45, Hvera- gerði, laugard. 5.6. frá kl. 15.00. Sigríður Gréta Þorsteinsdóttir. Fréttir Frá vígslunni í nýja húsinu um helgina. DV-mynd Jóhann Nýtt íþróttahús á Seyöisfiröi: íþrótta- og gleðihátíð við vígsluna DV, Seyöisfirði: Það var samfelld íþrótta- og gleðihá- tíð helgina 21.-23. maí á Seyðisfirði þeg- ar nýja íþróttahúsið var vígt enda var stórvirki að baki. Tímaáætlun hafði ekki farið mjög mikið úr böndunum. Bygging hússins hófst fyrir tæpum 2 árum, 14. júní 1997, en þá tók seyðfirsk iþróttahetja fyrstu skóflustunguna, að viðstöddu fjölmenni. í aðfararorðum þáverandi bæjarstjóra var því lofað húsið skyldi rísa á mjög skömmum tíma. Líklega mun nú flestum finnast að það loforð hafi nokkum veginn ver- ið efnt, þar sem þetta mikla hús stend- ur nú Mlbúið og býður ungum og öldn- um að nýta sér það sem í boði er. Aöalverktaki er Byggingarfélagið Töggur, seyðfirskir menn, en undir- verktakar nokkrir. Arkitektar sf. í Reykjavík teiknuðu húsið. Tómt mál er að fara setja nú á blað einhverjar mælitölur um stærð hússins, en aðal- salurinn er þeirrar stærðar að þar geta allir kappleikir sem iðkaðir eru innan- húss í dag farið fram, en sá salur er á fyrstu hæð. í kjallara hússins er einkar vel búin íþrótta- og heilsugæslustöð, sem mun freista margra og fylla þá auknum þrótti sem sinna kalli hennar. Á efstu hæð er rúm fyrir margs konar félags- lega starfsemi sem tengist íþróttunum. Fullbúið eins og það telst í dag kostar húsið 170 milljónir. Sennilega finnst æðimörgum sú tala há í bæjarfélagi þar sem íbúatalan hefur hrunið jafní- skyggilega og hér síðustu árin. Flestir munu þó hallast að þeirri skoðun að svona úrvalsaðstaða muni stöðva flótt- ann mörgu öðru fremur. -JJ > Til hamingju með afmælið 4« / / • Jtrni 90 ára Gurid Sveinbjörnsson, Hjarðarhaga 62, Reykjavík. Eiginmaður hennar var Guðmundur Sveinbjörnsson, verslunarmaður hjá Ellingsen, en hann lést 1998. Gurid verð- ur í Noregi á afmælisdaginn. 85 ára Jóna Sigurðardóttir, Hrafnistu, Reykjavík. 80 ára Lilja Halldórsdóttir, Hlíf 1, Torfnesi, Isafirði. 75 ára Árni G. Pétursson, Vatnsenda, Öxarfjarðarhr. Óli Jósefsson, Kleppsvegi 16, Reykjavík. 70 ára Jóhannes Gíslason, Byggðarenda 20, Reykjavík. Valgerður Jakobsdóttir, Austurbrún 6, Reykjavík. 60 ára Hrefna Óskarsdóttir, Tjarnarlundi 12G, Akureyri. Hörður Óskarsson, Suðurgötu 40, Akranesi. Jón Sæmundsson, Fosshóli, Sauðárkróki. Unnur Knudsen, Háaleitisbraut 119, Reykjavík. 50 ára Ásbjörn Hjálmarsson, Hlaðbrekku 14, Kópavogi. Guðmundur Ólafsson, Bogabraut 20, Skagaströnd. Kristján Georgsson, Nesbala 48, Seltjamamesi. Lissa Mary Blandon, Hverahlíð 23B, Hveragerði. Nína Björnsdóttir, Marbakkabraut 28, Kópavogi. Sesselja Þóroddsdóttir, Syðri-Brekkum I, Þórshöfn. Sigmundur Stefánsson, Breiðvangi 22, Hafnarfirði. Sigurður Halldórsson, Gullberastöðum, Borgamesi. Steinunn Guðnadóttir, Suðurgötu 35, Keflavík. 40 ára Anna H. Gunnþórsdóttir, Klapparstíg 1, Reykjavík. Bjami Gunnarsson, Háarifi 41, Rifi. Einar Guðnason, Helgalandi 4, Mosfellsbæ. Elvar Hallgrímsson, Vesturbergi 78, Reykjavík. Guðmundur Sveinsson, Háteigsvegi 2, Reykjavík. Gunnlaug Kristjánsdóttir, Túngötu 17, Ólafsfirði. Oddgeir Tveiten, Brekkubæ 1, Reykjavík. Ólöf Einarsdóttir, Hlíðarhjalla 71, Kópavogi. Rut Ingólfsdóttir, Dvergabakka 32, Reykjavik. Sigurbjörg Þorsteinsdóttir, Húsabrekku, Svalbarðsströnd. Soffía B. Sverrisdóttir, Alfhóli 4, Húsavík. Stefán Hinrik Stefánsson, Sólvöllum 1, Innri-Akraneshr. Stefán Sturla Sigurjónsson, Bogahlíð 15, Reykjavík. Þorbjörg Erla Jónsdóttir, Álfaskeiði 92, Hafnarfirði. Þorbjörg Theódórsdóttir, Heiðarbrún 21, Hveragerði. Þórhallur Eyþórsson, Lokastíg 5, Reykjavík.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.