Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.1999, Qupperneq 12
4-
Ein versta aðstaða sem nútímamaðurinn getur komið sér í
er að búa við hliðina á einhverjum sem er með öllu óþolandi,
enda eru til ófáar bíómyndir sem fjalla einmitt um þessa
plágu sem stundum endar með ósköpum. Það eru alla vega
til nokkur stereotýpumál hér á landi, allt sannar sögur sem
margar hverjar eru ótrúlegar. Fókus gerði heiðarlega og
hreinskilna úttekt á því sem allir óttast.
Gæludýramorðinginn
Ó, ó, ó, hvar ertu Lady Queen? Já, íslenska þjóðin hefur
gengið í gegnum margvísleg áföll í gegnum tíðina og eitt af
þeim eru gæludýramorðin svokölluðu. Allir muna eftir henni
Lady Queen. Rithöfundar sömdu smásögur og þjóðin stóö á
öndinni yfir þeirri grimmd sem þjó í lúnum kroppi gamla karls-
ins sem fór yfir um vegna hunds I stigaganginum. Það mál er
alls ekkert einsdæmi og hver kannast ekki við aö hafa látið
dýr nágrannans fara í taugarnar á sér eða öfugt? Þá standa
margir frammi fyrir þeirri freistingu að láta einn skitinn katt-
arhaus flúka. Og einhverjir láta það bara eftir sér án þess að
nokkur komist að hinu sanna.
Barnaníðingur
Steingrímur Njálsson hefur ver-
ið í fréttum undanfarna daga.
Það vill enginn búa i nálægð við
hann og núverandi nágrannar
hafa hátt þessa dagana. Þeir
vilja þó halda nafni sínu leyndu,
svo slæmt er ástandiö, og ein-
hverjir hafa hreinlega flutt í
burtu. Það er kannski eina
lausnin þegar búið er í nágrenni
við landskunnan barnaníðing.
Rokkarapakkið
„Þetta væri nú allt í lagi ef þessar hljómsveitir væru ekki svona léleg-
ar,“ sagði íbúi í Grjótaþorpinu. Hann býr í næsta húsi við æfingahús-
næði nokkurra landsþekktra hljómsveita en vildi þó ekki nefna nein
nöfn. „Þeir æfa á kristilegum tímum og ganga vel um en það er einmitt
vandamálið. Ég get ekkert kvartað í lögreglu nema þeir æfi á nóttunni
eða eldsnemma á morgnana. Það er þvi engin leið til að losna við þetta
helvíti. Ég get hvorki horft á fréttirnar né sofið fram yfir hádegi."
Dópgrenið
Milljarður fer í að berjast gegn sölumönnum dauðans
þetta kjörtímabilið, fullyrðir Framsóknarflokkurinn. Þeir
sem búa í nálægð við dópgreni búast við að það hafi
áhrif en i raun skiptir það litlu máli. Hvert greni fyrir sig
er ekki langlift og þó það poppi upp í næstu íbúð einn
daginn er nokkuð víst að það hverfur áður en hálft ár
er liðið. Það þýðir lítið að hringja á lögguna, búirðu í ná-
lægð við fíkniefnagreni, því hún fylgist hvort eð er með
greninu og veit miklu meira en þú um málið. „Það
versta við grenið er þegar dópistarnir verða blankir og
brjótast inn til þín,“ sagði nágranni dópistagrenis á
Laugaveginum. Það greni hefur verið að blómstra síö-
an í febrúar og er nú aö leysast upp. Nágrannarnir
þakka lögreglunni ekki fyrir það heldur þeirri staðreynd
að fbúar grenisins eru nú komnir með fleiri, fleiri dóma
á sig og eru flestir á leiðinni í fangelsi.
Dagmamman
Hún er bara eins ogfyrirtæki. Kúnnarnir mæta á morgnana og
lega'a í stæði nágrannanna þegar þeir kasta illa uppöldum
gríslingum inn til konu sem þeir hafa leigt til aö vera gervi-
mamma á daginn. Krakkarnir eru Ifka alltaf með læti og ef dag-
mamman er kærulaus er börnunum leyft að leika sér um alla
ganga. Annars eru börn yndisleg og Ijósiö f lífi foreldranna,
þrátt fyrir að þeir nenni ekki að ala þau upp. „Maður kann ekk-
ert við að kvarta," sagði nágranni dagmömmu í samtali við
Fókus og fullyrti að það væri ekkert mál að hringja upp f Dag-
vist barna og láta afturkalla starfsleyfið. „Þessi börn hafa
þannig séð ekkert gert manni en skrfllinn á það til að vera
óþolandi plága og trafffkin er mikil á morgnana."
Kynlífsógnin
Við könnumst öll við háværa ríðingamálið úr Kópa-
voginum. Það var í gangi fyrir nokkrum árum og
staðreyndir málsins voru þær að kona f fjölbýlis-
húsi gat ekki sofið hjá manninum sfnum öðruvísi
en að öskra f stað þess aö stynja, svo mikill karl-
maður var hann. Fáeinir af þeim sem haft var sam-
band við höfðu svipaða sögu að segja og nágrann-
ar konunnar. Einn þeirra sagði: „Ég bjó einu sinni
fyrir neðan skrímer á Hverfisgötunni. Það var alveg
ótrúlegt. Hún öskraði aðallega um helgar og þá eft-
ir að skemmtistöðum var lokað. Maður vaknaði
ósjaldan við þvflfk pyntingaöskur klukkan fjögur á
nóttunni og maður var orðinn nokkuð viss um að
þau væru að gera eitthvað meira en að stunda
hefðbundið kynlff." Sá sami fullyrti að það væri
ekkert hægt að gera. Þessi hringdi einu sinni á
lögguna og hún kom hálftfma seinna, þegar stun-
urnar höfðu hjaðnað og gerði þvf ekkert nema
skapa almenna pirru innan hússins. Eina lausnin
er þvf að fá konu til að öskra á virkum dögum, f
hefndarskyni, eða flytja bara I burtu.
Heimilisofbeldi
„Ef nágranni þinn lemur konuna sína ferð þú ekki og lemur krakk-
ana hans og kveikir svo f húsinu. Það myndi ekk hjálpa konunni
neitt," sagði Haraldur Ólafsson veðurfræöingur í FókuSi f sfðustu
viku. Hann var að vfsu að leika sér með myndlíkingu varðandi
strfðið f Kosovo. En það hafa samt margir lent f þvf að búa í ná-
grenni við konuníðing. „Þegar ég bjó f vesturbænum voru alltaf
einhver læti frá íbúðinni við hliðina á mér. Ég er nokkuð viss að
karlinn var að berja konuna sína. Maður vissi það samt aldrei fyr-
ir víst en stundum voru öskrin úr næstu íbúð þannig að maður var
nærri þvf búinn að banka en gerði samt aldrei neitt f neinu." Þetta
er frekar algengt viðmót. Þú heyrir kannski öskur úr næstu íbúð
en þeir eru örfáir sem gera eitthvað f því.
Þjófurinn
DV og Mogginn eru helstu fórnarlömbin. Sérstak-
lega ef póstkassarnir eru lélegir eða engir yfir höf-
uð. Þetta er að vfsu smáþjófnaður en getur undið
upp á sig og endað I mjög alvarlegum nágranna-
erjum. Slíkar erjur geta endað með gælu-
dýramorðum, úldnum fiski í póstkössum, handa-
lögmálum eöa hjá Mannréttindadómstóli Evrópu.
Eina lausnin er að vera með harðlæstan og vel
merktan póstkassa.
Kaffihúsabarinn
Svo ekki sé minnst á strippklúbb eða einhvern af þessum
börum sem biskupinn vill ekki vita af. En það eru Ifka til
samtök gegn þessum börum og þau vilja fyllibytturnar úr
miðbænum. Skemmst er að minnast látanna f Grjótaþorp-
inu. Þarvar hérfyrir nokkrum árum dansstaðurinn Duus-hús
og eigendur staðarins skemmtu sér konunglega við að æsa
nágranna sfna upp með þvf að fjárfesta I betri og háværari
græjum. Nágrannarnir mótmæltu hóflega f fjölmiðlum en
bættu sér hógværðina uþp með þvf að ná einhverju hreðja-
taki á annars punglausum borgarstjóra. Það tak skilaði sér
í þvf aö staðurinn missti vínveitingaleyfiö en eigendurnir
reyndu að snúa á það með þvf aö opna bara strippklúbb
(nágrannarnir tæplega ánægðir með það) og selja brennivín
bara til miðnættis. Það er sem sagt engin leið að losna við
skemmtistaö ef hann fer í taugarnar á manni. Eina vitið er
að flytja f burtu eða bara að setjast að á barnum og horfa
á stelpurnar séu þær til staðar.
Framkvæmdamanía
„Það er ekkert eins slæmt og duglegur ná-
granni," sagði karlmaöur á þrítugsaldri. „í
fyrsta lagi eru læti f honum þegar hann er að
bora eða leggja parket eða hvað þetta er allt
saman sem hann gerir. Svo er hann auðvitað
alltaf að reyna aö virkja alla með sér í ein-
hverjar framkvæmdir. Það á að girða garöinn
eða hreinsa til f beðunum. Konan veröur líka
öfundsjúk við að horfa upp á þessa ofvirkni.
Um næstu helgi veröur til dæmis einhver grill-
veisla í garðinum svo fbúarnir geti kynnst. Það
er náttúrlega alveg óþolandi. Maður á aldrei
neitt sameiginlegt með nágrönnum sínum."
5,11(16« i>*
10UB”98
©totil
fyrlrmynd I
raunverulolkanum
<c
18. júní 1999 f Ó k U S
f Ó k U S 18. júní 1999