Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.1999, Blaðsíða 18
18
FÖSTUDAGUR 9. JÚLÍ 1999
Sport
NOTA BENE • SÚÐARVOGUR 6 • 104 REYKJAVlK • Sfmi 533 2444 • www.notabene.is • Netfang:notabeneðnotabene.is
Opna nota bene mótið
verður á Hlíðarvelli Mosfellsbæ
þann 10. júlí kl. 9.00
Glæsileg verðlaun
1.-2.-3. verölaun án forgjafar • 1.-2.-3. verðlaun meðforgjöf • Næst holu á 9/18 • Næst holu á 5/14
Allirfá glaðning á teig!
Rástímapantanir í síma: 566 7415
Skagamenn hafa verið drjúgir við að skora mörkin að undanförnu og hér
fagna þeir einu þeirra gegn Víkingi í bikarkeppninni í fyrrakvöld.
DV-E.ól.
ENGIAND
Verulegar likur eru nú taldar á því
aö hollenski landsliðsmaðurinn Edg-
ar Davids gangi í raðir Manchester
United frá ítalska liðinu Juventus. Ef
af sölunni verður mun Edgar styrkja
miðju meistaranna til muna.
Nýliðarnir i Sunderland eru
stöðugt að styrkja sig fyrir átökin. í
gær gekk Þjóöveijinn Thomas Hel-
mer í raðir liðsins en
hann fékk frjálsa sölu
frá Bayern Múnchen.
Helmer, sem er 34 ára,
á að baki 68 landsleiki.
Helmer mun gangast
undir lækniskoðun hjá
Sunderland áður en
formlega verður gengið
frá samningnum.
Salan á ísraelska landsliðsmannin-
um Eyal Berkovic frá West Ham til
Celtic gekk loksins I gegn í gær. Celt-
ic greiðir West Ham yflr hátt í 700
milljónir króna og kemur Berkovic
örugglega til með að styrkja Glasgow-
liðið mikið.
Með tilkomu Berkovics eru dagar
Norðmannsins Haralds Brattbakks
taldir hjá Celtic. Hann kom í fyrra frá
Rosenborg er jafnvel talið að hann
snúi aftur til sins gamla félags. Að
vísu hafa Derby og gríska liðiö
Olympiakos sýnt honum áhuga.
Hann er metinn á um 100 milljónir
króna.
Everton hefur selt Marco Materazzi
til ítalska liðsins Perugia og fékk fyr-
ir hann um 310 milljónir islenskar
krónur.
Vinstri bakvöróur Chelsea, Andy
Myers, er genginn í raðir nýliðanna
frá Bradford sem greiddi Lundúnalið-
inu um 90 milljónir króna fyrir leik-
manninn.
Það œtlar að reynast þrautinni
þyngri fyrir Aston Villa að kaupa
Hollendinginn George Boatens frá
Coventry. Villa bauð öðru sinni í
leikmanninn i gær og var 500 millj-
óna króna tilboði hafnað. John
Gregory, knattspyrnustjóri Villa,
ætlar ekki að gefast upp og íhugar
þriðja tilboðið.
Gerald Houllier, knattspymustjóri
Liverpool, hefur til-
kynnt Paul Ince að
ekki sé óskað eftir
kröftum hans lengur
á Anfield Road. Ekki
er talið útilokað að
Ince fari til sins
gamla félags, West
Ham, þar sem ferill
hans hófst. West
Ham er talið getað fengið hann á 1,2
milljónir punda.
-JKS
Akurnesingar mæta Lokeren í Intertoto-keppninni á sunnudag:
Höfum byr
- og hann ætlum við að nýta okkur, segir Logi Olafsson
Skagamenn mæta belgíska liðinu
Lokeren í síðari leik liðanna í Inter-
toto-keppninni á Akranesi á sunnu-
dag klukkan 16. Lokeren vann fyrri
leikinn ytra um síðustu helgi, 3-1,
og verða því Skagamenn að skora
tvö mörk í leiknum á Skaganum og
fá ekkert á sig til að komast áfram í
keppninni.
Hvernig skyldi Loga Ólafssyni lít-
ast á leikinn og hvemig verður
hann lagður upp?
„Það er ljóst að meiri áhersla
verður lög i sóknarleikinn. Við
verðum að skora tvö mörk og halda
jafnframt hreinu. Þetta verður erfitt
en á góðum degi era allar möguleik-
ar fyrir hendi. Lokeren-liðið er gott
og vel spilandi. Við vorum með góða
stöðu í fyrri leiknum allt þar til tíu
mínútur voru til leiksloka en þá
fengum við á okkur tvö ódýr mörk.
Markmiðið hjá okkur verður að
leggja Lokeren, 2-0,“ sagði Logi
Arnar Þór Viðarsson, sem er á mála hjá belgíska liðinu Lokeren, sækir hér
að Gunnlaugi Jónssyni í fyrri leik liðanna í Belgíu um síðustu helgi. Það
verður örugglega háð hörð rimma á Akranesi á sunnudag.
DV-mynd Marc
Ólafsson, þjálfari Skagamanna, í
samtali við DV í gær.
Kenneth verður með
Kenneth Matjane fékk sitt annað
gula spjald í keppninni í fyrri leikn-
um gegn Lokeren og stóðu Skaga-
menn í þeirri meiningu að Kenneth
væri þá kominn í leikbann. Svo er
hins vegar ekki því þrjú gul spjöld
þarf til að fara í bann.
„Það er mjög gott að Kenneth get-
ur leikið með okkur og Stefán Þórð-
arson styrkir framlínuna hjá okkur
til muna. Liðið hefur haft meðbyr
undanfarið og hann ætlum við að
nýta í leiknum gegn Lokeren á
sunnudag," sagði Logi.
Það er ástæða til að hvetja fólk á
leikinn og hvetja þannig Skagaliðið
í baráttunni um að komast áfram í
Intertoto-keppninni. Það lið sem
kemst áfram mætir franska liðinu
Metz í næstu umferð.
-JKS
BlancS i poka
Heióar Helguson er hrósað í hástert i
norska blaðinu Aftenposten fyrir
frammistöðuna í leik Lilieström gegn
Kongsvinger í fyrrakvöld. Heiðar skor-
aði tvö mörk í leiknum en þau eru orð-
in alis 9 á tímabilinu sem er hálfnað.
ítölsk dagblöð skýrðu frá því í gær að
Juventus væri á eftir Nicolas Anelka
og væri reiðubúið að greiða yflr tvo
milljarða fyrir leikmanninn.
Stefan Effenberg verður fyrirliði
Bayem Múnchen á næsta tímabili og
leysir því Thomas Helmer af hólmi.
Mario Basler er óánægður meö sinn
hlut hjá Bæjurum og getur vel hugsað
sér að leika á Englandi, Spáni eða jafh-
vel öðra félagi i Þýskalandi.
Svo gœtifarið að Barcelona bryti blað
í 100 ára sögu félagsins á næsta tima-
bili. Félagið hefúr i hyggju að leika með
auglýsingu á búningi liðsins.
Þaó rœðst á nœstu dögum hvort
Marokkó-búinn Mustapha Hadji leiki
með Coventry á næsta tímabili. Hann
er á mála hjá spænska liðinu Deportivo
La Coruna og var kjörinn knattspymu-
maður ársins í Afríku 1998.
Forsala aðgöngumiða á leik KR og
Watford stendur yfir á Shell-stöðvun-
um við Birkimel og Suðurströnd,
Spörtu á Laugavegi og KR-heimilinu.
Miðaverð er 1000 kr. fyrir fullorðna, 300
kr fyrir 12-16 ára og frítt fyrir böm
yngri en 12 ára.
-JKS
13 Skagamörk í síðustu 4 leikjum;
- mínútur frá því skorað var hjá IA
Það má segja að Skagamenn hafa
mátt þola misjafnt gengi í sumar en
nú virðist sem glitti aftur á ný í
meistaratakta hjá liðinu.
Sóknarmennirnir eru
fundnir, vömin orðin firna-
sterk og skipulögð og
Ólafúr þór Gunnarsson,
efnilegasti leikmaður úr-
valsdeildarinnar í fyrra,
er búinn að festa rætur
og tengjast liðinu.
Liðið vann ekki fyrstu
fimm úrvalsdeildarleiki
sína og mörgum stuðnings-
manninum stóð ekki lengur á sama
enda hctfði liðið aðeins skorað í
þeim eitt mark.
En þá var sem Logi Ólafsson
þjálfari fyndi lausnina, hann nýtti
vel hléið vegna landsleikja og síðan
þá hefur liðið unnið 4 leiki í röð og
skorað í þeim 13 mörk á móti tveim-
ur mörkum í fyrstu 6 leikjum sum-
arsins.
Rúmir sjö leikir
En það sem er örugglega athyglis-
verðast með gott gengi Skagamanna
að undanfórnu er að þeir eru ekki
búnir að fá á sig mark í 7
leikjum eða síðan í maí-
mánuði. Þetta gera
samtals 646 mínútur
og reyndar hafa
mótheijarnir aðeins
skorað 4 mörk í sum-
ar í 10 leikjum, öll í
fyrstu þremur leikjun-
um.
Tólf-núll
ÍA tryggði sér sætið í undanúr-
slitum bikarsins í fyrrakvöld og þar
hefur liðið markatöluna 12-0 í
þremur sigurleikjum.
Næsta verkefni liðsins er gegn
Lokeren í Intertoto-keppninni en
seinni leikurinn fer fram á Akra-
nesi um helgina.
-ÓÓJ