Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1999, Qupperneq 13
MÁNUDAGUR 12. JÚLÍ 1999
13
Fréttir
Siglufjörður:
Nýtt síldarsafn í byggingu
DV, Siglufirði:
Nú stendur yfir bygging Bræðslu-
minjahúss á lóð Síldarminjasafns-
ins í Siglufirði. Húsið verður að
mestu leyti byggt úr gömlum
húsviðum og verður þannig að það
hafi útlit og yfirbragð gamals verk-
smiðjuhúss. í því verður safn um
sögu síldarverksmiðja á íslandi.
Bygging hússins, sem er 14x18 m að
gólfíleti, hófst í rauninni sumarið
1998, þá voru steyptir sökklar og
gólf en áætlað er að framkvæmd-
inni ljúki veturinn 1999-2000.
Að sögn Örlygs Kristfinnssonar
safnstjóra verður í Bræðsluhúsinu
komið upp tækjum og búnaði úr
gömlum síldarverksmiðjum. Einnig
verða þar gamlar ljósmyndir með
skýringartextum. Þannig verða
safngestir fræddir um framleiðslu-
ferlið og hvemig hráefninu síld var
breytt í verðmætan söluvarning,
lýsi og mjöl. Þannig verður á neðri
hæð litið sýnishorn af verksmiðju
en á efri hæð verður sýning um
sögu bræðsluiðnaðarins sem Norð-
menn komu af stað upp úr aldamót-
unum 1900.
Smiðirnir Agúst Stefánsson og Hjálmar Jóhannsson ásamt Orlygi safnstjóra á miðri mynd.
Konurnar í góðu yfirlæti á Tálknafirði. DV-mynd Kristjana
Námsmeyjar frá 1955:
Grikkland næsti áfangi
sem hér búa. Fóra þær meðal ann-
ars út á Látrabjarg, skoðuðu
TálknaQörð af sjó og brugðu sér í
„Pollinn", en Pollurinn er náttúr-
lega heit laug, opin allan sólarhring-
inn. Þessar kátu og hressu konur
eru ekki af baki dottnar og ætla að
hittast í Grikklandi næst árið 2001.
-KA
DV, Tálknafirði:
Um síðustu helgi hittust 22 skóla-
systur af þeim 25 sem voru náms-
meyjar á Húsmæðraskólanum að
Laugalandi í Eyjafirði veturinn
1955-1956. Hópurinn dvaldist hér á
Tálknafirði um helgina og naut
gestrisni þeirra tveggja skólasystra
Hvanneyri:
Nautgripa-
rækt vinsæl
DV, Vesturlandi:
Að sögn Helga Björns Ólafssonar,
endurmenntunarstjóra Bændaskól-
ans á Hvanneyri, hefur aðsókn að
námskeiðum skólans það sem af er
þessu ári verið mun meiri en undan-
farin ár.
„Þegar hafa um 600 manns sótt
námskeiðin okkar frá áramótum og ef
fer fram sem horfir gæti ijöldinn í ár
orðið um 1000. Undanfarin ár hefur
flöldinn verið um 800,“ sagði Helgi.
Ný námskeið á sviði nautgripa-
ræktar hafa notið mestra vinsælda,
bæði fjósbyggingarnámskeið og nám-
skeið í nautakjötsframleiðslu. Þá
sagði Helgi að námskeið í mati á slát-
urlömbum hefðu verið mjög vel sótt.
DVÓ/GE
Formaður ÍA ráðinn í Jónshús
DV, Akranesi:
Jón Runólfsson, formaður
íþróttabandalags Akraness, hefur
verið ráðinn umsjónarmaður Jóns-
húss í Kaupmannahöfn til næstu
þriggja ára. Umsækjendur um starf-
ið voru óvenjumargir, eða 73.
Jón tekur við starfmu 1. septem-
ber nk. Jón bjó í Kaupmannahöfn
um fimm ára skeið með fjölskyldu
sinni á árunum upp úr 1970 og aftur
um eins árs skeið árið 1986. Jón er
kvæntur Ingu Harðardóttur iþrótta-
kennara og eiga þau þrjú uppkomin
börn. DVÓ
Sólgleraugu á
húsið - bílinn
Ekki bara glæsileikinn, einnig
velliðan, en aðalatriðið er öryggið!
Lituð filma innan á gler tekur ca 2/3 af hita
og 1 /3 af glaeru, upplitun.
Við óhapp situr glerið í filmunni og því er
minni hætta á ao fólk skerist.
Ásetning meðhita - fagmenn
&/Ó/M
Dalbrekku 22, Kóp. S. 544 5770
Litlir bílar - Stórir bílar - Ódyrir bílar - Dýrir bílar
Verö frá 40.000.- til 4.000.000.- • Lánamöguleigar til allt aö 5 ára • Tökum notaöa
Opið virka daga kl. 9 - 18 og laugardaga kl. 12 - 17
BÍLAHÚSIÐ
(í húsi Ingvars Helgasonar og Bílheima) Sævarhöfða 2-112 Reykjavík
Símar: 525 8096 - 525 8020 • Símbréf 587 7605