Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1999, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1999, Blaðsíða 18
18 MÁNUDAGUR 12. JÚLÍ 1999 5 JAPISS og auk þess: 9tl^r^ 14" sambyggt sjónvarp og vídeó, ferðageislaspilara fyrir öll börn og unglinga á heimilinu sem eru yngri en 18 ára. Dregið 20. ágúst Vikulega verður dreginn út áskrifandi sem fær kr. 30.000 í vöruúttekt að eigin vali í Útilífi. Heildarverðmæti vinninga er 700.000 kr. Heppinn áskrifandi fær SONY heimabíó frá Japis sem er: 29" 100 riða sjónvarp 6 hátalarar Fréttir Fingurgull úr fornri gröf DV, Egilsstöðum: „Þessi hringur er með svipuðu mynstri og Miðhúsasilfrið og er mjög rnerkur fundur. Kolefnisgrein- ing úr gröf þar sem hringurinn fannst gefur tímabilið 875-980. Mið- húsasilfrið er aldursgreint frá 900-1000. Bein úr annarri gröf sýna með aldursgreiningu tímann 1005-1250. Hér virðist því hafa verið grafsett á löngu tímabili fyrir og eft- ir kristnitöku,“ sagði Jóhanna Berg- mann, safnvörður við Minjasafnið á Egilsstöðum. Miðhúsasilfrið er þar til sýnis ásamt þessari nýju viðbót, fing- urgulli sem fannst við uppgröft á Þórarinsstöðum í Seyðisfirði. Stjómandi við uppgröftinn er Stein- unn Kristjánsdóttir fomleifafræð- ingur og hefur hún gefið út bækling um uppgröftinn, sem hófst raunar á síðasta ári. Steinunn dregur þær ályktanir m.a. af aldursgreiningum úr uppgreftinum að á Þórarinsstöð- um hafi verið kumlateigur fyrir kristnitöku, skammt ffá bæjarhús- um. Um 1000 hafi þessum heiðna graf- reit verið breytt í kristinn heima- grafreit, en þarna hafa fundist tveir steinkrossar. Síðan hafi verið reist kirkja á 11. öld. Það sanna fjórar hlaðnar stoðholur sem komu í ljós við uppgröftinn. Greftrun hafi síðan farið þama fram allt til þess að kirkjan var aflögð snemma á 13. öld. Grafir snúa cillar austur-vestur. Það getur vel staðist hvað heiðnar grafir snertir þar sem á þeim tíma réð landslagið mestu um hvemig grafir snera, en Seyðisfjöröur snýr austur-vestur. í elstu gröfunum fannst mikið af viðarkolum, en þau eru talin tilheyra greftxunarsiðum í heiðni. -SB Rannsóknastofnun fiskiönaðarins: Fær faggildingu í haust - sérfræöingur til veiðarfærarannsókna DV, Vestfjörðum: Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins er ein þeirra opinberu stofnana sem aðsetur hafa í nýju Þróunarsetri á ísa- firði. Starfsmenn hafa fram að opnun setursins verið 3 að tölu, en verða 5 í framtíðinni. „Helstu verkefnin hafa undanfarið verið þjónusta við fiskiðnaðinn á staðnum. Nú erum við hins vegar að færa okkur út á nýja braut, með ráðn- ingu sérfræðings í veiðarfærarann- sóknum,“ segir Kristinn Þór Kristins- son, forstöðumaður útibúsins á ísa- flrði. „Vaxtarbroddur stofnunarinnar hér er i rannsóknum til viðbótar á beinni þjónustu eins og verið hefur. í þessu húsi höfum við betri aðstöðu og vonumst til að hér getum við tekið að okkur fjölþættari verkefni í tengslum við aðra aðila. Nú í ágúst verður þessi stofa svo tekin út samkvæmt Evrópu- staðli EN 45001. Þá fær RF faggildingu sem á að tryggja viðskiptavinum sama öryggi við rannsóknavinnu og best gerist í Evrópu. Varðandi veiðarfærarannsóknimar Kristinn Þór Kristinsson, forstöðu- maður RF, og María Halldórsdóttir í nýju aðstöðunni í Þróunarsetrinu á ísafirði. DV-mynd Hörður hefur Hafrannsóknastofnun sinnt rannsóknum á veiðigetu. Við munum hins vegar skoða þau út frá því hvern- ig áhrif þau hafa á gæði fisksins sem í þau koma. Væntanlega munum við þá geta nýtt okkur samvinnu við Netagerð Vestfjarða, sem hefur stund- að sínar eigin rannsóknir á veiðarfær- um sem þar eru framleidd," sagði Kristinn Þór. -HKr. Kennarar Reykjanesbæ: Eingreiðsla upp á 300 þús. DV, Suðurnesjum: Meirihluti bæjarráðs Reykjanes- bæjar lagði fram tillögu á fundi ný- lega um tímabundið átak í ráðn- ingamálum kennara.Þar er meðal annars lagt til að heimilt verði að greiða réttindakennurum sem ráða sig i 100% starf við grunnskóla, leik- skóla og tónlistarskóla Reykjanes- bæjar og flytjast búferlum til bæjar- ins ílutningsstyrk, - eingreiðslu upp á krónur 300.000,- Skilyrði er sett fyrir því að kennarar geri samning til minnst tveggja skólaára . A.G.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.