Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1999, Page 33
I>V MÁNUDAGUR 12. JÚLÍ 1999
■?—^7-7—
Valgerður Bergsdóttir sýnir í
Galleríi Sævars Karls.
Veflíkingar
Á laugardaginn opnaði Val-
gerður Bergsdóttir sýningu í
Galleríi Sævars Karls í Banka-
stræti. Valgerður er löngu vel
kunn af verkum sínum sem
myndlistarmaður. Hún hefur
haldið einkasýningar og tekið
þátt í mörgum samsýningum á
íslandi og erlendis, einnig hefur
hún hlotið margvíslegar viður-
kenningar fyrir verk sín og
störf að málefnum listamanna.
Verk hennar má finna á helstu
söfnum.
Sýningar
Valgerður var skólastjóri
Myndlistaskólans í Reykjavík
árin 1994 til 1997 en hefur síðan
kennt við skólann og einnig við
Myndlista- og handiðaskóla ís-
lands. Valgerður sýndi í List-
munahúsinu 1993. Á sýningunni
núna, sem er framhald sýningar
hennar í Listmunahúsinu, fæst
hún við veflíkingu. Ofmn er
langur refill sem skipt er i
styttri borða eða bönd eins og
þegar um spjaldvefnað er að
ræða. Sýning Valgerðar Bergs-
dóttur stendur allan júlímánuð.
Henni lýkur 31. júlí.
Bjami Tryggva á Gauknum
Gaukur á Stöng er sem fyrr vettvangur lifandi
tónlistar alla daga vikunnar og er víst að allir
geta gengið að fjölbreyttri popptónlist þar enda
hafa eigendur staðarins verið duglegir að kynna
okkur það besta í ýmsum tónlistarstefnum.
Gaukur á Stöng var opnaður í nóvember 1983 og
var staðurinn fyrsta bjórkráin á íslandi. Það
voru flmm ungir námsmenn er höfðu kynnst
bjórdrykkju og að einhverju leyti bjórmenningu
á námsárum sínum í Þýskalandi sem stofnuðu
staðinn. Er heim var komið var frekar fátækleg
flóran í veitingahúsamenningu landans og að
auki óleyfilegt að selja áfengan mjöð að hætti
víkinga til forna. Gaukur á Stöng varð sem sé til
upp úr vangaveltum fimmmenninganna og
vandamálið með mjöðinn leyst þannig að bland-
að var sterkum guðaveigum út i pilsner sam-
kvæmt ákveðnum formúlum (sem enn þann dag
í dag er haldið leyndum) . Það var eins og við
manninn mælt: staðurinn varð strax vinsælasti
skemmtistaðurinn í Reykjavík og fimmtán árum
Skemmtanir
síðar er Gaukurinn enn vettvangur margra sem
leggja leið sína í miðbæinn.
í kvöld skemmtir á Gauknum sá kunni trú-
bador, Bjarni Tryggva. Hann skemmtir gestum
eins og honum er einum lagið á sinn fyndna,
dónalega hátt. Bjarni Tryggva hefur lengi verið
í eldlínunni og ferðast vítt og breitt með gítarinn
í farangrinum. Annað kvöld er svo komið að
hljómsveitinni Url að spila frumscimið kæfu-
rokk í tilefni byrjun hundadaga. Á miðvikudags-
kvöld verður síðan SkítamóraU með órafmagn-
aða tónleika.
Bjarni Tryggva skemmtir gestum á Gauki á Stöng í kvöld.
Suðvestanátt, 8-13 m/s og skúrir
vestan til en léttskýjað austan til og
hiti 8-17 stig, hlýjast á Austurlandi.
Sólarlag í Reykjavík: 23.41
Sólarupprás á morgun: 3.25
Siðdegisflóð í Reykjavík: 15.06
Árdegisflóð á morgun: 3.34
Veðrið í dag
Veðrið kl. 12 í gær:
Akureyri alskýjaö 16
Bergsstaöir rigning 12
Bolungarvík rigning og súld 9
Egilsstaöir 13
Kirkjubœjarkl. rigning 10
Keflavíkurflv. rigning 10
Raufarhöfn alskýjaó 10
Reykjavík rigning 10
Stórhöföi súld 10
Bergen skýjaó 14
Helsinki léttskýjaö 23
Kaupmhöfn léttskýjaö 18
Ósló skýjaö 16
Stokkhólmur 22
Þórshöfn skýjaó 10
Þrándheimur alskýjaö 15
Algarve léttskýjaö 18
Amsterdam hálfskýjaö 20
Berlín léttskýjaö 19
Chicago heióskírt 14
Dublin alskýjaó 14
Halifax þoka 13
Frankfurt léttskýjaö 21
Hamborg léttskýjað 18
Jan Mayen skýjaö 6
London léttskýjaö 16
Lúxemborg hálfskýjaö 19
Mallorca léttskýjaö 21
Montreal skýjaö 15
Narssarssuaq léttskýjaö 7
New York hálfskýjaö 19
Orlando heiöskírt 26
París léttskýjaö 20
Róm hálfskýjaó 21
Vín rigning 18
Norræna húsið:
Kynning á Bologna
í kvöld kl. 20 er komið að Bologna
í kynningu á menningarborgum
Evrópu árið 2000 í sumardagskrá
Norræna hússins. Yfirskrift
Bologna á menningarárinu er
Menning og samgöngur. Daniele
Gasparinetti segir í máli og mynd-
um frá menningarmiðstöðinni
„Link“ og starfinu þar, fram-
kvæmdastefnu, viðfangsefnum, sem
nú eru uppi, og tilraunum.
Bologna með yfir 400.000 íbúa er
talin sérstakur miðpunktur í
ítölsku menningarlífi. Menningar-
miðstöðin Link er menningar- og
rannsóknarstaður fyrir ungt lista-
Samkomur
fólk i Bologna, klúbbahús, funda-
staður og félagsmiðstöð. Viðfangs-
efnin eru af öllu tagi: raflýstar inn-
setningar, framúrstefnukvikmynd-
ir, hiphop menning, leikhús og bók-
menntir.
Link verður ofarlega á blaði á ári
menningarborgarinnar því að eitt
aðalverkefni í Bologna verður að
örva og styðja unga listamenn og
hópa sem vinna á sviði samskipta
og tækni. Daniele Gasparinetti hef-
ur unnið hjá Link frá árinu 1994 að
skipulagningu sjónmiðlunar og mál-
og myndmiðlun.
Aögangur ókeypis.
Sóley Sara
Myndarlega telpan á
myndinni, sem heitir Sól-
ey Sara, fæddist á fæðing-
ardeild Landspítalans 19.
Barn dagsins
september síðastliðinn.
Við fæðingu var hún 3635
grömm aö þyngd og 50
sentímetra löng. Foreldr-
ar hennar eru Hlln Páls-
dóttír og Michael B. Dav-
id og er Sóley Sara fyrsta
barn þeirra.
45
Jeff
Bridges
leikur
háskóla-
prófess-
or sem
grunar
ná-
granna
sína um
græsku.
r
Arlingtongata
Háskólabíó hefur sýnt spennu-
myndina Arlington Road um skeið
en til gamans má geta að myndin
fór fyrst i almennar sýningar í
Bandaríkjunum um helgina. Jeff
Bridges leikur Michael Faraday
söguprófessor. Hann býr einn
ásamt tiu ára gömlum syni sínum,
Grant, í úthverfi höfuðborgarinnar
Washington. Tvö ár eru liðin frá
því eiginkona Faraday var drepin
en hún vann fyrir FBI og leitar
þessi atburður mikið á prófessor-
inn. Af tilviljun vingast hann við
nágranna sína sem nýfluttir eru í
hverfið, Oliver og Chery Lang
(Tim Robbins og Joan Cusack).
Faraday tekur þessum vinskap
með opnum huga
enda búinn að ein- /////////
Kvikmyndir
ir'Æm
—
lgan ipptw"*
angra sig í langan
tíma. Það renna þó
fljótt á hann tvær grímur þegar
hann kemst aö því að ekki er allt
satt sem þau segja um líf sitt. Óró-
leiki Fardays verður að sterkum
grun um að Lang-hjónin séu alls
ekki það sem þau líta út fyrir að
vera, þau hafi eitthvað á prjónun-
um sem ekki þoli dagsins ljós.
Nýjar myndir i kvilunyndahúsuin:
Bíóhöllin: The Mummy
Saga-Bíó: Entrapment
Bíóborgin: Matrix
Háskólabíó: Perdita Durango
Háskólabíó: Hásléttan
Kringlubíó: 10 Things I Hate
about Her
Laugarásbíó: Austin Powers
Regnboginn: Never Been Kissed
Stjörnubíó: Go
t:
Krossgátan
1 2 3 4 5 6
7 8 9
10 11
12 13 14
15 16 17 18
19 20 21 22
23
Lárrétt: 1 svimar, 7 rækta, 8 erlend-
is, 10 óvirða, 11 gata, 12 ávaxta-
mauk, 14 átt, 15 samtals, 17 ótta, 19
barði, 21 súld, 23 virki.
Lóðrétt: 1 sæti, 2 fjöldi, 3 karl-
mannsnafn, 4 féll, 5 svefn, 6 skjálfti,
9 áhald, 13 tóma, 15 ílát, 16 sorg, 18
skoði, 20 mynni, 22 sting.
Lausn á síðustu krossgátu:
Lárrétt: 1 topp, 5 ský, 8 örlátur, 9
skóla, 10 ró, 12 kambur, 14 una, 16
ókum, 18 reglu, 20 na, 21 æska, 22 ris.
Lóðrétt: 1 töskur, 2 orka, 3 plóma, 4
pál, 5 staukur, 6 kurr, 7 ýr, 11 ólma,
13 bóla, 15 nes, 17 uni, 19 gk.
Gengið
Almennt gengi Ll 09. 07. 1999 kl. 9.15
Eininq Kaup Sala Tollflenqi
Dollar 75,190 75,570 74,320
Pund 116,790 117,390 117,600
Kan. dollar 51,100 51,410 50,740
Dönsk kr. 10,2960 10,3520 10,3860
Norsk kr 9,4460 9,4980 9,4890
Sænsk kr. 8,7870 8,8350 8,8190
Fi. mark 12,8802 12,9576 12,9856
Fra. franki 11,6749 11,7451 11,7704
Belg. franki 1,8984 1,9098 1,9139
Sviss. franki 47,6700 47,9300 48,2800
Holl. gyllini 34,7516 34,9604 35,0359
Þýskt mark 39,1560 39,3913 39,4763
ít. líra 0,039550 0,03979 0,039870
Aust. sch. 5,5655 5,5989 5,6110
Port. escudo 0,3820 0,3843 0,3851
Spá. peseti 0,4603 0,4630 0,4640
Jap. yen 0,613500 0,61720 0,613200
írskt pund 97,239 97,824 98,035
SDR 99,640000 100,24000 99,470000
ECU 76,5800 77,0400 77,2100
Simsvari vegna gengisskráningar 5623270