Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.1999, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.1999, Blaðsíða 9
MIÐVIKUDAGUR 14. JÚLÍ 1999 9 Suzuki Baleno GL, árg. '96, ek. 60 þús. km, beinsk., 4 d. Verð 890 þús. Suzuki Baleno GLX 4x4, árg. '96, ek. 76 þús. km, beinsk., 4 d. Verð 990 þús. Suzuki Swift GLX, árg. '98, ek. aðeins 1 þús. km, beinsk., 5 d. Verð 1.040 þús. Suzuki Swift GLX, árg. '97, ek. 56 þús. km., beinsk., 5 d. Verð 760 þús. km. Chevrolet S-10, árg. '89, ek. 75 þús. km, ssk. V. 590 þús. Daihatsu Feroca DX, árg. '91, ek. 92 þús. km„ beins., 3 d. Verð 580 þús. Daihatsu Sirion árg. '98, ek. 24 þús. km„ beinsk., 5 d. Verð 950 þús. Ford Escort CLX, árg. 97, ek. 31 þús. km, beinsk., 5 d. Verð 1.050 þús. Ford Escort CLX, árg. '96, ek. 43 þús. km, beinsk., 3 d. Verð 890 þús. Ford Mondeo, árg. '98, ek. 18 þús. km, beinsk. Verð 1.750 þús. Honda Accord EX, árg. '88, ek. 153 þús. km, ssk„ 4 d. Verð 370 þús. Hyundai Elantra, árg. '94, ek. 99 þús. km, ssk„ 4 d. Verð 690 þús. Lada Sport, árg. '96, ek. 26 þús. km, beinsk., 3 d. Verð 480 þús. MMC Lancer, árg. '91, ek. 105 þús. km, ssk„ 4 d. Verð 580 þús. MMC Lancer, árg. '88, ek. 150 þús. km, ssk„ 4 d. Verð 250 þús. MMC Space Wagon, árg. '93, ek. 89 þús. km. Verð 1.050 þús. Nissan Sunny ST, árg. '93, ek. 90 þús. km, beinsk., 5 d. Verð 790 þús. Reanult Megané, árg. '97, ek. 36 þús. km, beinsk., 5 d. Verð 1.050 þús. Subaru Legacy WG, árg. '92, ek. 124 þús. km, beinsk. Verð 940 þús. Subaru Justy GL, árg. '91, ek. 65 þús. km, ssk„ 5 d. Verð 390 þús. Toyota Corolla WG, árg. '97, ek. 53 þús. km, beinsk., 5 d. Verð 1.190 þús. Toyota Corolla XL, árg. '94, ek. 83 þús. km, 5 d. Verð 750 þús. Toyota Rav4 3D, árg. '98, ek. 6 þús. km, beinsk., 3 d. Verð 1.880 þús. Toyota Touring, árg. '94, ek. 72 þús. km, beinsk., 5 d. Verð 1.050 þús. Toyota Toyuring XL, árg. '93, ek. 79 þús. km, beinsk., 5 d. Verð 890 þús. Volvo 460 GL, árg. '95, ek. 71 þús. km, ssk„ 4 d. Verð 1.080 þús. Utlönd Dalen jarðvinnusög Getur sagað niður á 1 metra dýpi, 35 til 40 sm , breiðan skurð. , Ástand vélar gott. Á sama stað Bo Bcat 120 mínigrafa, 1,4 tonn, árg. '89, í mjög góðu standi. Upplýsingar í símum 421 2564 / 892 0364. Horfði upp á móður sína og systkini myrt Ellefu ára gamall piltur horfði upp á þegar móðir hans, fjögur systkini og frænka voru myrt á hrottalegan hátt. Atburðurinn átti sér stað í Atlanta í Bandaríkjun- um og var morðinginn fyrrum kærasti móðurinnar. Pilturinn ungi, Santonio Lucas, sagði að maðurinn hefði rekið fjöl- skylduna inn í svefnherberbergi árla á mánudagsmorgun. Síðan hefði hann dregið upp byssu og hefðu móðir hans, systkini og frænka lagt á flótta. Hann sagði manninn hafa náð taki á sér og dregið sig á milli herbergja þar sem hann skaut hina fjölskyldu- meðlimina. Þá hefði hann sloppið og falið sig í skáp en maðurinn hefði fundið sig og gert tilraun til að skjóta sig. Drengurinn hlaut skotsár í öxl en slapp með því að látast vera dauður. Hann faldi sig á ný i skápnum og skömmu seinna heyrði hann skothvell. Morðing- inn hafði svipt sig lífi. Drengurinn hafðist við í skápnum í átta klukkustundir áður en hann þorði að gera nágrönnum viðvart. Clinton spenntur að hitta Barak Bill Clinton, forseti Bandaríkj- anna, sagðist í gær vera yfír sig spenntur að hitta Ehud Barak, for- sætisráðherra Israels. Fundur þeirra er ráðgerður á morgun og mun fara fram í Washington. Clinton forseti sagðist vongóður um fundurinn yrði árangursríkur og þeir gætu lagt línur fyrir friöar- ferlið í Miðausturlöndum. Þá hefur verið tilkynnt að Barak muni hitta Tony Blair forsætisráð- herra Bretlands á miðvikudag í næstu viku. Kínverjar og Taí- vanar deila hart Samband Kína og Taívan er í hnút eftir að Lee Teng-Hui, forseti Taívans, lét hafa eftir sér að ráða- menn í báðum löndum ættu að falla frá þeirri hugmynd að tala um „eitt Kína“. Að sögn kínversku fréttastofunnar Xinhua eru um- mælin til þess fallin að kalla ólukku yfir Taívana. Lee Teng-Hui lýsti þeirri skoðun sinni á mánudag að Kínverjar ættu að hætta að líta á Taivan sem hérað í Kína. Um tvö aðskilin ríki væri að ræða. Þessu mótmæltu Kínverjar en stjórnmálamenn í Taívan hafa farið þess á leit að fá að setjast að samningaborði með Kínverjum og leysa málið með friðsamlegum hætti ef kostur er. Trúir ekki á bylt- ingu í Serbíu SUZUKI BÍLAR HR Skeifunni 17 • Sími 568 5100 www.suzukibilar.is Ungverskur maður kveikir sér í vindlingi þar sem hann stendur fyrir framan heimili sitt, sem er gjöreyðilagt eftir mikil flóð í þorpinu Heveskvezekeny í Ungverjalandi. Að minnsta kosti 21 hefur látist í flóðum í Rúmeníu og Ungverjalandi undanfarna daga. Símamynd Reuter Martti Ahtisaari, forseti Finnlands. Sfmamynd Reuter Bush selur bara hvítum Martti Ahtisaari, forseti Finn- lands, kveðst í viðtali við blaðið Intemational Herald Tribune ekki trúa því að byltingar sé að vænta í nánustu framtíð gegn Slobodan Milosevic Júgóslavíuforseta. Ahtis- saari varar við of mikilli óþolin- mæði og því að menn einblíni of mikið á Milosevic. Þá geti farið þannig að næsti maður í röðinni, sem sé jafn spilltur, taki við þannig að engar samfélagsbreytingar verði. Mótmælin gegn Milosevic héldu áfram í Serbíu í gær. Stjómmála- maðurinn Vuk Draskovic hvetur nú herinn og lögregluna til að taka þátt í andófmu. Draskovic ætlar að efna til eigin götumótmæla um næstkom- andi helgi til að krefjast pólítískra og efnahagslegra breytinga. Skipulögð hefur verið mótmæla- ganga frá um 20 borgum í Serbíu í lok mánaðarins. Er fyrirhugað að ganga til Belgrad og krefjast afsagn- ar Milosevics. George W. Bush ríkisstjóri í Texas á nú hendur sínar að verja vegna meints kynþáttahaturs. Þegar Bush seldi húsið sitt árið 1995 stóð í sölu- samningnum að aðeins hvítir mættu búa í húsinu. Bush stefnir nú að því að verða frambjóðándi repúblikana í forseta- kosningunum á næsta ári. Starfs- menn á kosningaskrifstofu hans hafa vísað á bug öllum ásökunum á hendur Bush um kynþáttahatur. „Klásúlan í samningnum hefur loðað við fasteignina síðan 1939. Þetta er gamaldags stöðluð klásúla sem er algeng í Texas. Það er hins vegar enginn lagalegur grundvöllur fyrir henni nú,“ benti talsmaður kosningaskrifstofunnar á. Talsmað- urinn gat þess einnig að George Bush ætti vini sem ættu hús er samskonar samningar hefðu verið gerðir um. Þessir vinir ríkisstjórans væru þeldökkir. Bush á nú hendur sínar að verja vegna klásúlu í samningi um hús hans. Símamynd Reuter fffl BORGARSKIPULAG REYKJAVÍKUR I ■ I BORGARTÚN 3 • 105 REYKJAVlK • SlMI 563 2340 • MYNDSENDIR 562 3219 Auglýsing um deiliskipulag í Reykjavík. í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 er hér með auglýst til kynningar deiliskipulag eftirtalinna staða í Reykjavík: Bólstaðarhlíð Tillaga um endurskoðað umferðarskipulag við Bólstaðarhlíð. Háagerði 1-79 og Sogavegur 98-106 Tillaga um endurskoðun skipulagsskilmála fyrir Háagerði 1 -79 og Sogaveg 98-106. Stórhöfði 33 Tillaga um byggingu þriggja hæða húss að Stórhöfða 33. Tillögur eru til kynningar í sal Borgarskipulags og Byggingarfulltrúa í Borgartúni 3,1. hæð, virka daga kl. 10:00 til 16:00 frá 14. júlí til 11. ágúst 1999. Ábendingum og athugasemdum skal skila Skriflega til Borgarskipulags Reykjavíkur eigi síðar en 25. ágúst 1999. Þeir, sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillöguna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.