Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.1999, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.1999, Blaðsíða 26
34 MIÐVIKUDAGUR 14. JÚLÍ 1999 Afmæli Benedikt Gunnarsson Benedikt Gabríel Valgarður Gunnarsson, listmálari og dósent í myndlist við KHÍ, Kastalagerði 13, Kópavogi, er sjötugur í dag. Starfsferill Benedikt fæddist að Suðureyri við Súgandafjörð og ólst þar upp til sjö ára aldurs, á Akranesi til tólf ára aldurs og síðan í Reykjavík. Hann lauk gagnfræðaprófl frá Núpsskóla við Dýrafjörð 1945, stundaði nám við Handíða- og myndlistarskóla íslands 1945-48, við Listaháskólann í Kaupmanna- höfn (Det kongelige akademi for de skonne kunster) og við teikniskóla P. Rostrup Boyesens, listmálara á Statens museum for kunst í Kaup- mannahöfn 1948-50, var við nám og listsköpun í París 1950-53, m.a. við Académie de la Grande Chaumiére, og í Madrid 1953-54, og stundaði myndfræðilegar rann- sóknir við Louvre-listasafnið i Par- ís og Prado-listasafnið í Madrid. Formleg námslok hans enduðu með stórri einkamálverkasýningu í La galerie Saint-Placide í París 1953. Þá lauk hann myndlistar- kennaraprófi frá Myndlista- og handíðaskóla íslands 1964. Benedikt var kennari við Mynd- listarskóla Vestmannaeyja 1958-59, við Gagnfræðaskólann við Lindar- götu í Reykjavík 1960-62, við Myndlista- og handíðaskóla íslands 1959-68 og við KÍ 1965 og síðan KHÍ. Hann var lektor við KHÍ frá 1977 og er dósent þar frá 1998. Benedikt hefur haldið tuttugu og fjórar einkasýningar hérlendis og eina í París. Hann hefur tekið þátt í tuttugu og þremur samsýningum víða um heim og fjölda samsýninga á íslandi. Málverk eftir Bene- dikt eru m.a. í eigu Listasafns íslands, Lista- safns ASÍ, og margra bæjarlistasafna og stofn- ana hérlendis og erlend- is, s.s. Stokkhólmsborg og Ben Gurion Uni- versity of The Negev í ísrael auk þess sem fjöl- mörg einkasöfn, hérlend- is og erlendis, eiga verk eftir Benedikt. Hann hefur gert stórar veggmyndir og steinda glugga í nokkrar opinberar bygg- ingar hérlendis, s.s. í Grunnskól- ann á Hofsósi og Vík í Mýrdal, í Héraðsskólann að Skógum, Kefla- víkurkirkju, Hábæjarkirkju í Þykkvabæ, Fáskrúðarbakkakirkju, Suðureyrarkirkju og í Háteigs- kirkju í Reykjavík, og í Byko í Kópavogi. Benedikt sat í stjórn FÍM og í stjórn Norræna listbandalagsins 1958-60, og í sýningarnefnd FÍM 1965-72. Hann var prófdómari við MHÍ 1975-77. Benedikt hefur þegið Lista- mannalaun frá 1955 og fékk list- rannsóknar- og ferðastyrki Menntamálaráðs vegna ferða til Mexíkó 1965 og til Frakklands og Þýskalands 1986. Hann vann sam- keppni um myndverk í Sparisjóð Keflavíkur 1975 og um altarismynd úr mósaík í Háteigskirkju 1986 og hefur dvalið við listsköpun og rannsóknir í Kjarvals- stofu í París og norræna listamannabústaðnum i Róm. Fjölskylda Benedikt kvæntist 16.8. 1959 Ásdísi Óskarsdótt- ur, f. 8.6. 1933, hjúkrun- arfræðingi. Hún er dótt- ir Óskars Jónssonar, f. 1899, d. 1969, skrifstofu- og alþm. og k.h., Katrin- ar Ingibergsdóttur, f. 1908, húsmóður. Benedikt og Ásdís eiga tvö börn. Þau eru Val- gerður Benediktsdóttir, f. 29.1. 1965, bókmenntafræðingur, gift Grími Björnssyni, jarðeðlisfræð- ingi hjá Orkustofnun, og eru börn þeirra Gunnar, f. 12.11.1993, og Sól- ey, f. 18.3. 1996; Gunnar Óskar Benediktsson, f. 18.5. 1968, d. 27.9. 1984. Systkini Benedikts eru Halldór, f. 1.3. 1921, d. 23.1. 1997, húsvörður i Reykjavík; Jóhanna, f. 11.8. 1922, húsmóðir í Kópavogi; Elí, f. 26.11. 1923, d. 27.8. 1997, málarameistari og listmálari í Reykjavík; Steinþór Marinó, f. 18.7. 1925, málarameist- ari og listmálari í Reykjavík; Vet- urliði, f. 15.10. 1926, listmálari í Reykjavík; Guðbjartur, f. 11.2. 1928, kennari og myndhönnuður í Reykjavík; Gunnar Kristinn, f. 14.6. 1933, bankastarfsmaður, fyrrv. forseti Skáksambands ís- lands, fyrrv. íslands- og Reykjavík- urmeistari í skák og landsliðsmað- ur i knattspymu. Hálfsystkini Benedikts, sam- mæðra: Anna Sólveig Veturliða- dóttir, f. 1911, d. 1980, húsmóðir á ísafirði og í Reykjavík; Helga Vet- urliðadóttir, f. 1912, d. 1915; Jón Veturliðason, f. 1914, d. 1999, mat- reiðslumeistari í Reykjavík; Helga Jóhannesdóttir, f. 1915, d. 1941, húsmóðir í Reykjavík. Foreldrar Benedikts voru Gunn- ar Halldórsson verkamaður, f. 10.10.1898, d. 11.4.1964, og k.h., Sig- rún Benediktsdóttir, f. 28.10. 1891, d. 4.2. 1982. Ætt Hálfbróðir Gunnars, samfeðra, var Páll, skólastjóri Stýrimanna- skólans í Reykjavík, faðir Níelsar Dungal læknaprófessors. Gunnar var sonur Halldórs, útvegsb. að Seljalandi í Skutulsflrði Halldórs- sonar, b. að Meira-Hrauni í Skála- vík Guðmundssonar, húsmanns að Seljalandi Jónssonar. Móðir Gunnars var Guðrún Jón- asdóttir. Sigrún var dóttir Benedikts Gabríels, sjómanns í Bolungarvík Jónssonar, Jónssonar, húsmanns að Ósi Sumarliðasonar. Systir Jóns yngra var Margrét, langamma Valdimars mennta- skólakennara Örnólfssonar. Móðir Benedikts var Sigríður Friðriks- dóttir, b. á Látrum, Halldórssonar, Eiríkssonar, Pálssonar. Móðir Sigrúnar var Valgerður Þórarinsdóttir, b. á Látrum í Mjóa- Firði Þórarinssonar, b. á Látrum Sigurðssonar, b. á Látrum Narfa- sonar. Benedikt verður á Þingvöllum. Benedikt G. V. Gunnarsson. Gerður Gerður Sólveig Sigurðardóttir kennari, Fagrahvammi 7, Hafnar- firði, er fimmtug í dag. Starfsferill Gerður fæddist í Reykjavík og ólst þar upp. Hún lauk gagnfræða- prófi frá Hagaskóla 1966, kennara- prófl frá handavinnudeild KÍ 1971 og hefur sótt ýmis kennaranám- skeið. Gerður er kennari við Víðistaða- skóla í Hafnarflrði frá 1980. Gerður sat í Barnaverndarnefnd Sólveig Siguiðardóttir Hafnarfjarðar í átta ár og var vara- formaður nefndarinnar í fjögur ár, er varaformaður sóknamefndar Hafnarfjarðarkirkju og varaforseti Inner-Wheel í Hafnarfirði. Fjölskylda Gerður giftist 29.7. 1972 Eyjólfi Þór Sæmundssyni, f. 28.9. 1950, for- stjóra Vinnueftirlits ríkisins. Hann er sonur Sæmundar Harðar Björns- sonar, f. 31.10. 1926, fyrrv. flugum- sjónarmanns, og Hrefnu Eyjólfsdótt- ur, f. 16.11.1928, bankastarfsmanns. Börn Gerðar og Eyjólfs Þórs eru Helga Eyjólfs- dóttir, f. 18.8.1973, lækna- nemi, búsett í foreldra- húsum; Baldur Þór Eyj- ólfsson, f. 31.5. 1978, verkamaður, í foreldra- húsum. Systir Gerðar er Hjör- dís Sigurðardóttir, f. 24.1. 1942, tryggingarsali I Reykjavík, gift Hans Þór Jenssyni veggfóðrara- meistara og eiga þau þrjá Gerður Sólveig Sigurðardóttir. syni. Foreldrar Gerðar: Sigurð- ur Axel Skarphéðinsson, f. 19.8. 1906, d. 7.4. 1996, vélgæslumaður í Reykja- vík, og Helga Jónsdóttir, f. 1.11. 1920, húsmóðir. Gerður ætlar að taka á móti ættingjum, vinum og kunningjum í safnað- arheimili Hafnarfjarðar- kirkju í dag milli kl. 17.00 og 20.00. Skemmtilegar gjafir til að lífga upp á garðinn: kýr bambi birnir mörgæs engill o.fl. Dalbrekku 22, Kóp. S. 544 5770 Þórunn Helga Guðmundsdóttir Þórunn Helga Guð- mundardóttir, stjómarfor- maður Heilbrigðisstofnun- ar Patreksfjarðar, Móa- túni 13, Tálknafirði, er fer- tug í dag. Starfsferill Þórunn fæddist á ísa- firði en ólst upp á Melgraseyri við ísafjarö- ardjúp. Hún var í Héraðs- skólanum í Reykjanesi, tók landspróf frá Héraðs- skólanum í Reykholti 1975, stundaði nám við MÍ og jafnframt því nám í píanóleik við Tónlistarskóla ísafjarðar, lauk námi í tækniteiknun frá Iðnskólanum á ísafirði, hóf nám við Samvinnuskól- ann á Bifröst 1983 og lauk þaðan prófum 1985. Þórunn starfaði á bæjarskrifstofu Bolungarvíkur til 1980, og á skrif- stofu Orkubús Vestfjarða 1980-83. Hún var framkvæmdastjóri Sam- bands ungra framsóknarmanna, fjármálastjóri hjá Nesport og fram- kvæmdastjóri fulltrúa- ráðs framsóknarfélag- anna í Reykjavík til 1993. Þá flutti hún til Tálknafjarðar. Hún tók við stjórnarformennsku Heilbrigðisstofnunar Patreksijarðar 1997. Þórunn var í fjórða sæti á framboðslista Fram- sóknarflokksins á Vest- fjöröum fyrir alþingis- kosningamar 1987, sat í stjórn SUF og var vara- formaður samtakanna, sat í miðstjórn Fram- sóknarflokksins, sat í vinabæjar- nefnd Kópavogsbæjar og sat þar í hreppsnefnd Tálknafjarðar um skeið. Hún sigraði í Ljóma Int. Rally 1987. Fjölskylda Þórunn giftist 11.5. 1995 Kolbeini Péturssyni, f. 6.6. 1963, fram- kvæmdastjóra. Hann er sonur Pét- urs Þorsteinssonar, framkvæmda- stjóra á Tálknafirði, og Þórömu Ólafsdóttur skrifstofumanns. Börn Þórunnar og Kolbeins em Fannar Karvel, f. 22.12. 1980, nemi en unnusta hans er Guðrún Ólöf Þórsdóttir nemi; Natan, f. 24.6.1993; Salka, f. 5.5. 1995; Arnfinnur, f. 13.7. 1996. Systkini Þórannar eru Snævar Guðmundsson, f. 3.7. 1956, húsa- smiður og bóndi á Melgraseyri; Magnea f. 2.4. 1963, landfræðingur. Foreldrar Þórunnar era Guð- mundur Magnússon, f. 27.10. 1927, fyrrv. bóndi á Melgraseyri, og Krist- in Þórðardóttir, f. 12.10. 1928, hús- freyja. Ætt Guðmundur er sonur Magnúsar Jenssonar, Benjamínssonar, og Jensínu Arnflnnsdóttir, Guðnason- ar, frá Brekku í Langadal ísafjarð- ardjúpi. Kristín er dóttir Þórðar Halldórs- sonar á Laugalandi við Djúp Jóns- sonar, Rauðamýri, og Helgu Maríu Jónsdóttur, Egilssonar, á Snæfjalla- strönd. Til hamingju með afmælið 14. júlí 95 ára Arnheiður Böðvarsdóttir, Kleppsvegi 64, Reykjavík. 85 ára Einar Jónsson, Hrafnistu, Reykjavík. 80 ára Einar Guðjónsson, dvalarheimilinu Nausti, Þórshöfn. Guðmunda Halldórsdóttir, Vitastíg 2, Hafnarflrði. Halldór Bjamason, Hornbrekku, Ólafsflrði. Tryggvi Friðlaugsson, Þingási 25, Reykjavík. 75 ára Jón Gunnar Sigurðsson, • Bauganesi 8, Reykjavík. Súsanna Kristjánsdóttir, Stigahlíð 37, Reykjavík. 70 ára Ólafur Þorsteinsson, fyrrv. fram- kvæmdastjóri Valar, Geitlandi 9, Reykjavík. Eiginkona hans er Esther Bjartmarsdóttir. Hann er að heiman. Karl Þorbergsson, Bjarmalandi 14, Sandgerði. Margrét Jörundsdóttir, Hólastekk 5, Reykjavík. 60 ára Birgir Guðnason, Hringbraut 46, Keflavík. Ingibjörg Jóhannesdóttir, Úthlíð 35, Hafnarflrði. Karl Kristjánsson, Miðtúni 40, Reykjavík. Kristín Arnalds, Vesturbergi 69, Reykjavík. Rúnar Guðmannsson, Grænuhlíð 17, Reykjavík. 50 ára Erlendur Guðmundsson, Arnarhóli, Vestur-Landeyjum. Hrönn Óskarsdóttir, Miðgarði 6, Keflavík. Kristín Pálsdóttir, Hlíðarhjalla 33, Kópavogi. Margrét Bjarnadóttir, Stekkholti 21, Selfossi. Rúnar Sigurðsson, Hraunbæ 170, Reykjavik. Sigurður P. Rögnvaldsson, Austurgötu 16, Hofsósi. 40 ára Bryndís Alda Jónsdóttir, Presthólum, Öxarfjarðarhreppi. Bryndís R. Tómasdóttir, Leifsgötu 14, Reykjavík. Elisabet Gísladóttir, Vallarhúsum 8, Reykjavík. Guðbjörg Edda Karlsdóttir, Torfufelli 35, Reykjavík. Guðmundur Ólafsson, Jörfabakka 2, Reykjavík. Gunnar Björn Gunnarsson, Hrísmóum 13, Garðabæ. Gunnar Guðlaugsson, Álakvísl 25, Reykjavik. Haraldur Sigurðsson, Dúfnahólum 2, Reykjavík. Hildur Salvör Backman, Blikahöfða 10, Mosfellsbæ. Kristinn Jónsson, Engjaseli 80, Reykjavík. Kristín Gunnarsdóttir, Hjaltabakka 10, Reykjavík. Páll Ingólfsson, Fornuvör 9, Grindavík. Ragnar Grönvold, Kársnesbraut 83, Kópavogi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.