Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.1999, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 14. JÚLÍ 1999
13
Fréttir
Bæjarstjórn Bolungarvlkur:
Vill ódýrari
snjóflóðavarnir
DV, Bolungarvík:
Bæjarstjórn
Bolungarvlkur
samþykkti á fundi
sínum á fimmtu-
dag tillögu varð-
andi snjóflóða-
vamir fyrir ofan
byggðina. Tillagan
gerir ráð fyrir
talsvert veiga-
minni varnar-
mannvirkjum en
lagt hefur verið til að gera samkvæmt
ýtrustu áætlunum.
Að sögn Ólafs Kristjánssonar bæj-
arstjóra vilja menn láta skoða lausn
sem felur í sér að grafa rás fyrir ofan
hluta byggðarinnar ásamt gerð leiði-
garða. Ekki er gert ráð fyrir uppkaup-
um húsa á hættusvæðinu.
Ólafur Kristjáns-
son bæjarstjóri.
Samkvæmt fram-
komnum ' hugmyndum
sérfræðinga er áætlað að
djúp rás sem grafm yrði
ofan við byggðina til að
verja hana alla myndi
kosta um einn milljarð
króna. Tillaga bæjar-
stjórnar felur hins vegar
í sér að skoðað verði að
gera veigaminm mann-
virki sem yrðu helmingi
ódýrari, eða upp á 500
milljónir króna.
Samþykkt var sam-
hljóða á fundinum að Frá Bolungan/ík þar sem hugað er að snjóflóðavörnum.
ganga þegar til samn-
inga við skýrsluhöfunda um saman-
burð varnarkosta samkvæmt hug-
myndum bæjarstjórnar. Þá var þess
óskað að stjórn Ofanflóðasjóðs veiti
nú þegar heimild til undirbúnings
mats á umhverfisáhrifum.'s.s. vegna
jarðvegsrannsókna og annarra nauð-
synlegra rannsókna, til að flýta fyrir
væntanlegum framkvæmdum.
-HKr.
Einstök veðurblíða
á Ströndum
Algengt er það ekki að bændum á
Ströndum gefist 10 dagar í röð til hey-
skapar og ekki falli önnur úrkoma til
jarðar en dögg næturinnar eins og
gerðist síðustu daga júnímánaðar og
fyrstu viku júlí. Síðasta miðvikudag
lauk einum mesta þurr -og hlýviðr-
iskafla sem komið hefur lengi um
þetta leyti árs hér um slóðir. Nokkrir
bændur í Saurbæjarhreppi hófu hey-
skap um 20. júní en veðrátta var þá
ekki eins hagstæð og síðar varð.
„Það var engin rosaspretta en ekki
var hægt að láta svona veðurblíðu
fram hjá sér fara án þess að nýta
Heyskapur á fullu á Efri-Múia og
fjær á myndinni má greina prests-
setrið. DV-mynd Guðfinnur
hana til heyskapar," var svar eins
kúabóndans sem inntur var eftir því
hvemig sprettan hefði verið. Þeir
hugsa sér margir í einhverjum mæli
að nýta sér seinni slátt og hafa bætt
áburði á tún sín í þeim tilgangi. Sauð-
íjárbændur með tún ófriðuð fyrir vor-
beit gátu þó í minni mæli nýtt sér
veðurblíðuna til heyskapar og enginn
norðan heiða svo vitað sé. Einhverjir
þeirra óska að með hlýindum rigni
næsta hálfa mánuðinn. -GF
fKBMlJRar
Sími: 587 9699
i
s
!
I
i
:
:
:
:
I
Ölíuofnarnir
komnir
Pantanir óskast
staðfestar
Eigum/útvegum einnig
kveiki / ýmsar
gerdir olíuofna
Panasonic rafhlöður
Rafborg ehf.
Rauðarastig 1 Sími 562 2130
4.-10. sæti: Eitt myndband
Guffi og félagar - bílskúrsbandið.
sæti: Tvö myndbönd:
og félagar - bílskúrsbandið og Guffagrín.
Hannes H. Þórólfsson nr. 15366
Haukur Axel nr. 280789
Ásdís Hilmarsdóttir nr. 10440
Þorleifur B. Ragnarsson
Ragnheiður E. Kristinsdóttir
Rúnar I. Guðjónsson
ValdísValgeirsdóttir
Alma Ö. Arnadóttir
Ármey Valdimarsdóttir
Anna I. Ingimarsdóttir
Krakkaklúbbur DV og Sam-myndbönd óska
vinningshöfum til hamingju og þakka öllum sem
tóku þátt kærlega fyrir þátttökuna.
Vinningarnir verða sendir í pósti næstu daga.
nr. 10881
nr. 12787
nr. 11969
nr. 12412
nr. 15313
nr. 6160
nr. 11691
www.visir.is
FVRSTUR MEÐ FRÉTTIRNAR
Bjarni Kristjánsson, framkvæmdastjóri Áburðarverksmiðjunnar, og Magnús
B. Jónsson rektor undirrita samninginn. DV-mynd Daníel
Áburðarverksmiðjan:
Styrkir kennslustarf
landbúnaðarháskólans
DV, Vesturlandi:
Skrifað var undir samstarfsamn-
ing 4. júlí á milli Áburðarverksmiðj-
unnar hf. í Gufunesi og Landbúnað-
arháskólans á Hvanneyri. Samning-
urinn felur það í sér að Áburðar-
verksmiðjan tekur þátt í kennslu-
starfi, styrkir kennslustarf bæði í
búnaðamámi og háskólanámi og
styrkir einnig rannsóknarstarfsemi
sem tengist plöntunæringu og áburð-
arfræði.
Það sem er nýmæli og merkilegast
í þessum samningi er að verksmiðj-
an ætlar að styrkja nemendur til
framhaldsnáms í masters- og dokt-
orsnámi frá skólanum þannig að þeir
komi aftur til starfa að loknu námi í
íslenskum landbúnaði. Ef nemandi
hverfur til verka erlendis endur-
greiðir hann þetta sem lán.
„Þetta nýmæli tel ég mikilvægt þó
að við munum reyna að efla menntun
eins og mögulegt er þá er það nauðsyn-
legt að við fáum fólk til að fara í fram-
haldsnám. Stuðningurinr er mjög mik-
ilsverður til þess að efla þann mögu-
leika,“ sagði Magnús B. Jónsson, rekt-
or á Hvanneyri.
„Við teljum nauðsynlegt að efla
menntun í áburðar- og jarðvegsfræð-
um hér á landi og þá er mjög mikil-
vægt að hafa samstarf við æðstu
menntastofnun landsins á þessu sviði.
Það er ekki hægt að meta svona samn-
ing beint til fjár en við munum kosta
töluverðu til þess að þetta skili ár-
angri,“ sagði Bjarni Kristjánsson fram-
kvæmdastjóri. -DVÓ