Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.1999, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.1999, Blaðsíða 32
k Tvölaldur ■L ■ /1. vinningur aðyinria' FRETTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notaö í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 MIÐVIKUDAGUR 14. JÚLÍ1999 Landsmót skáta ‘99: Klifrið vin- sælia en kyn- lífsfræðslan DV, Úlfljótsvatni: Undirbúningur Landsmóts skáta að Úlfljótsvatni sem sett var í gær hefur staðið í langan tíma. Á mót- inu sjálfu vinna um 250 manns. Laga þurfti allt svæðið á Úlfljóts- vatni, búa til stíga og þökuleggja, og færa til hinar og þessar hæðir. Þá þurfti að semja dagskrána en það var gert í samvinnu við skáta úti um allt land. Haldin var eins konar kosning rétt eftir áramót þar sem krakkarnir völdu það sem þá lang- aði helst til að gera á mótinu. Stöðv- ar eins og „Verðandi skattgreið- andi“ og „Kynlífsfræðsla“ nutu ekki wnikilla vinsælda heldur var það klifur, sig, þrautabraut, kanó og fleiri útivistarstöðvar sem krakk- amir völdu. Nánar á bls. 2. -hvs Mikið er um að vera á Ulfljótsvatni þessa dagana þar sem Landsmót skáta er haldið. Þúsundir skáta frá fjölmörgum löndum eru samankomnir en alls er gert ráð fyrir að 5000 manns komi við á svæðinu mótsdagana. Hér eru glaðbeittar skátastúlkur frá Skotlandi. DV-mynd Teitur. Ragnheiður Ólafsdóttir: Undirróður „Þetta hafði ég óttast í langan tíma. Það hefur verið unnið með undirróð- ursstarfsemi og þessi sala var löngu ákveðin af Olíufélaginu og Lands- bankanum," segir Ragnheiður Ólafs- dóttir, „Nú vantar bara að ríkis- stjórnin stofni uppkaupasjóð sem Davíð lagði til fyr- ir mörgum árum,“ segir Ragnheiður Ólafsdóttir, íbúi á Þingeyrí, um sölu Sléttanessins sem samþykkt var í gærkvöld. Ragnheiður, sem auk þess að vera formaður íbúasamtakanna Átaks er eiginkona skipstjórans á Sléttanesinu, segir stjómvöld öll bera ábyrgð á því ástandi sem nú blasir við Þingeyring- um.. „Bæjarstjórnin, ríkisstjórnin, 4gngmenn Vestflrðinga, biskup ís- lands og forseti íslands bera sameigin- lega ábyrgð á þeim hamfórum sem dynja á Þingeyringum. Nú er endan- lega búið að rústa allt. Það hefur allt komið fram sem ég hef varað við síð- an i vetur,“ segir Ragnheiður. -rt Kolmunninn finnst varla Mjög lítil kolmunnaveiði hefur ver- iö undanfarna daga, eftir fremur líf- lega byrjun fyrir rúmlega 10 dögum. Þá urðu menn varir við mjög góðar „lóðningar“ en síðan virðist fiskurinn hafa dreift sér og lítið veiðst. „Það hef- r ekkert verið að sjá síðustu dag- na,“ sagði Birkir Hreinsson, stýri- maður á Þorsteini EA. -gk Ragnheiður Ólafs- dóttir. Stjórn Básafells fundaði 1 Reykjavík í gærkvöld um eignasölu: Sala Sléttaness- ins var samþykkt Halldór Halldórsson ásamt öðrum stjórnarmanni koma á stjórnarfund Básafells í gærkvöld þar sem sala Sléttaness- ins var samþykkt. DV-mynd S Stjórnarfundur Bása- fells fór fram í gærkvöldi og var tekin ákvörðun þar um að selja frystitogarann Sléttanes til Ingimundar hf. og Látra hf. Fundurinn var haldinn í húsi Olíufé- lagsins á Suðurlandsbraut klukkan níu i gærkvöldi og stóð í tvo tíma. Allir voru mættir nema stjóm- arformaðurinn Ragnar Bogason sem er í Bret- landi og var því á fundin- um í gegnum sima. Stóð fundurinn yfir í tvo tíma og var rætt um málefhi fyrirtækisins fram og til baka. Ekki urðu nein átök á fundinum en tveir sátu engu að síður hjá, þeir Halldór Halldórsson ^ og Hinrik Matthíasson. Var málið rætt mikið og velt upp hinum ýmsum hliðum í því. Farið var yfir hvern- ig reksturinn breytist með þessari sölu en meiri áhersla verður lögð á landvinnslu. Skuldir munu lækka um einn og hálfan milljarð með sölunni en fyrir hana skuldaði Básafell um fimm milljarða. Var bankinn farinn að krefjast breyt- inga á rekstri fyrirtækisins og var krafa hans að skuldir yrðu lækkað- ar. Hefur Básafell orðið við þeirri kröfu. Nú eiga fyrirtækin sem keyptu skipið eftir að staðfesta söluna en það verður gert fyrir 22. júlí og skipið sjálft verður af- hent þann 15. október. „Það er alltaf erfitt að taka á svona málum en það er samt erfiðara að gera ekki neitt,“ segir Hallór Halldórsson, bæj- arstjóri ísafjarðarbæjar. „ Fyrirtækið hefur verið rekið með tapi mörg und- anfarin ár og ljóst að eitt- hvað yrði að gera. Ég held að íbúar ísafjarðar- bæjar átti sig á því. Ég legg mikla áherslu á að sjómennimir fái vinnu á öðrum skipum í eigu fyr- irtækisins. Ég greiddi ekki atkvæði með þessu heldur sat hjá og kannski erfitt að útskýra það. Þetta er sérstaklega slæmt fyrir íbúa Þingeyr- ar en ég held samt að með þessum breytingum batni rekstrar- staða fyrirtækisins. Skuldir hafa lækkað og ég á von á að tapi verði snúið í hagnað. -EIS Kennarar funda: Enginn upp- gjafartónn Kennarar komu saman í gærkvöld til að ræða um launamál og uppsagn- ir. Að sögn Eiríks Brynjólfssonar, kjarahópi kenn- ara, voru um 60 kennarar, sem all- ir höfðu sagt upp, komnir saman í kennarahúsinu til að ræða stöðu mála. „Það var gríðarleg stemn- ing og ekki upp- gjafartónn i ein- um einasta manni. Þarna kannaðist enginn við að menn ætl- uðu að draga til baka uppsagnir sínar eins og Helgi Hjörvar gaf til kynna í DV í gær,“ sagði Eirík- Helgi Hjörvar. ur. Vegna um- mæla Helga í DV í gær sagði Eiríkur: „Að kennarar ættu að vinna fyrir kaupi sínu, eins og Helgi sagði, var einmitt það sem við ætluðum að gera. Við höfum vinnuskyldu í fjóra daga í ágúst og ætluðum að vinna þá þó ekki væri nema til þess að setja nýja kenn- ara inn í starf okkar ef einhverjir fást. Ég sé ekki hver á annar að gera það. Þeir geta hins vegar afþakkað það vinnuframlag en þeir firra sig ekki launagreiðslum," sagði Eiríkur. Lög- maður Kennarasambandsins skoðar nú hvort grundvöllur sé að reka mál- ið fyrir almennum dómstólum í stað félagsdóms. -hb Veðriö á morgun: Víða rigning Á morgun er gert ráð fyrir rign- ingu eða súld víða á landinu en að mestu verður þurrt sunnan til. Hiti verður á bilinu 6 til 15 stig, mildast syðst á landinu. Vindátt verður norðlæg, 8-13 m/s en held- ur hægari vindur austanlands. Veðrið í dag er á bls. 37. Tölur við vindfjaðrir sýna metra á sekúndu. Pantið í tíma da^ar í Þjóðhátíð FLUGFÉLAG ÍSLANDS 570 3030

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.