Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.1999, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.1999, Page 6
6 MIÐVIKUDAGUR 21. JÚLÍ 1999 Viðskipti Þetta helst: Lítil viðskipti á VÞÍ 273 m.kr. ... Mest með húsbréf 181 m.kr. ... Hlutabréf 92 m.kr. ... Mest með bréf Skeljungs 19 m.kr. ... Samherji 15 m.kr. ... Úrvalsvísitala óbreytt 1.200,8 stig ... Opin kerfi hækkuðu mest eða um 2,1% ... Jarðboranir og ÍS lækkuðu um 2,8% ... Dow og S&P á niðurleið ... Nákvæmari þjóðarframleiðslutölur væntanlegar: Betri hagtölur auka upplýsingagjöf Nú er verið að vinna að því hjá þjóðhagsstofnun að útbúa ársfjórð- ungslegar tölur yfír lands- og þjóðar- framleiðslu. Ásgeir Daníelsson, hag- fræðingur hjá Þjóðhagsstofnun, hefur umsjón með verkefninu og segir að verið sé að koma vinnslunni í ákveð- ið kerfi sem eigi að vinna áfram. „Núna erum við að koma með tölur fyrir árið 1997 og vonandi verða þess- ar tölur tilbúnar fljótlega. Síðan vinn- um við árið 1998 og ætlum okkur að ná nútímanum ef svo má segja. í öll- um nágrannalöndum okkar eru tölur um landsframleiðslu birtar innan við 100 dögum eftir að ársfjórðungi lýkur og við stefnum að því en hvenær það verður get ég ekki sagt núna. í Ameríku og víðar er verið að tala um að birta þessar töl- ur mánaðarlega en ég er efíns í að það segi neitt meira. Við fáum aldrei tölur yfir það sem gerist í rauntíma," segir Ásgeir. Veruleg framför Tómas Ottó Hans- son, forstöðumaður rannsókna hjá F&M, segir að hér verði um Tómas ott° Hansson. verulega framfór að ræða þegar betri hagtölur verði fáan- legar. „í fyrsta lagi er þetta birt svona hjá flestum öðrum þjóðum sem við ber- um okkur saman við. Birting þessara gagna auðveldar all- an alþjóðlegan sam- anburð. Þetta eykur verulega á upplýs- ingagjöf og segir til um hvemig hagkerf- ið er að þróast inn- an hvers árs. Einnig hefur þetta góð áhrif á hlutabréfa- markaðinn. Náin fylgni er á milli af- komu fyrirtækja og þjóðarbúsins og því ætti hlutabréfamarkaðurinn að verða skilvirkari með betri upplýsing- um. Ýmsar aðrar hagstærðir hafa verið til innan ársins eins og inn- og út- flutningur, laun og fleira. Því hefur skortur á gögnum um landsfram- leiðslu gert allar hagrannsóknir erfið- ari því aðeins er til ein tala yfir lands- framleiðslu en mun tíðari gögn fyrir heildina. Hér er um veruleg framfór að ræða og vonandi verður þess ekki langt að bíða að þetta verði tilbúið," segir Tómas. Vörugjöld hafa lækkað Innheimtar tekjur ríkissjóðs af al- mennu vörugjaldi voru svipaðar árið 1998 og þær voru árið 1996 eða rúmlega þrír milljarðar króna. Þetta þýðir að vörugjöldin hafa lækkað þegar tekið er tillit til auk- innar innlendrar eftirspurnar og verðlagsþróunar. í hlutfalli af neyslu og fjárfestingu í hagkerfinu hefur gjaldið lækkað um fimmtung, úr 0,62% í 0,5%. Þetta kemur fram í máli Ingólfs Benders, hagfræðings Samtaka iðnaðarins, í fréttabréfi samtakanna. Astæðan fyrir lækkuninni er at- hugasemd Eftirlits- stofnunar EFTA frá árinu 1996 um greiðslufrest og gjald- stofn vörugjalda. Það er ánægjulegt að rík- issjóður hafi með þessum hætti dregið úr skattlagningunni. Ingólfur segir að álagning vörugjalda sýni að við lýði er Ingólfur Bender. umfangsmikið tvöfalt kerfi neysluskatta hér á landi sem hvergi tíðkast í viðlíka mæli og hér á landi meðal þeirra þjóða sem við helst berum okkur saman við. Þetta kerfi er þjóðfé- laginu kostnaðarsamt þótt það skili núorðið aðeins 1,4% af heildartekjum ríkissjóðs. Ingólfur vill að kerfið verði afnumið þannig að í framtíð- inni verði aðeins eitt kerfi ncysluskatta hérlendis. -bmg Fiskaflinn í júní minnkar Atvinnuleysi minnkar enn Fiskaflinn síðastliðinn júnímán- uð var 69,3 þúsund tonn samanborið við 98 þúsund tonn í júní í fyrra. Ástæðan fyrir minni aíla er fyrst og fremst mun minni loðnuveiði í ár en í fyrra. Botnfiskaflinn í júní var 46,5 þúsund tonn en var 50,4 þúsund tonn í júní í fyrra. Þorsk- og ýsuafli dregst saman miðað við júní í fyrra. Einnig er skel- og krabbaafli mun minni í fyrra sem stafar af minni rækjuafla. Heildaráflinn á fyrri helmingi þessa árs var 971 þúsund tonn en var 823 þúsund tonn á sama tímabili 1998. Botnfiskafli var 298 þúsund tonn á fyrri hluta yfirstandandi árs, samanborið við 274 þúsund tonn árið áður. Þetta kemur fram í frétt frá Hagstofunni. -bmg Atvinnuleysi í júní mældist að- eins 1,8% á landinu í heild. Á sama tíma í fyrra var atvinnleysi 2,6% og 3,7% árið 1997. Ljóst má vera að at- vinnuástand hefur batnað verulega og nú er atvinnuleysi hér á landi með því allra minnsta sem þekkist í heiminum. Hins vegar er enn tölu- verður munur á atvinnuleysi meðal karla og kvenna. Meðal karla mælist atvinnuleysið 1,1% en 2,8% hjá konum. Samkvæmt upplýsingum frá Vinnumálastofnun voru skráðir at- vinnuleysisdagar 57 þúsund á land- inu öllu í júní. Það jafngildir að 2645 hafi verið á atvinnuleysisskrá. Fram kemur að atvinnuástandið hefur batnað víðast hvar á landinu. Mest minnkaði atvinnuleysi á Norð- urlandi vestra, Austurlandi og á Suðumesjum. Hins vegar var at- vinnuleysi í síðasta mánuði hlut- fallslega mest á höfuðborgarsvæö- inu en minnst á Vestfjöröum og Vesturlandi. Vinnumálastofnun býst við því að atvinnuleysi í júlí geti orðið á bilinu 1,6% til 1,9%. -bmg Milliuppgjör Hraöfrystihússins hf.: Hagnaöur 30,5 milljónir Hagnaður Hraðfrystihússins hf. eftir skatta var 30,5 milljónir fyrstu fimm mánuði ársins. í gær birti fé- lagið uppgjör í tengslum við vænt- anlega sameiningu við Gunnvöru hf. Velta Hraðfrystihússins á tima- bilinu var 762 milljónir króna. Samkvæmt milliuppgjörinu voru rekstrartekjur tímabilsins 762 millj- ónir en rekstrargjöld voru 637 millj- ónir. Hagnaður fyrir afskriftir var því 125,1 milljón. Samkvæmt efna- hagsreikningi voru fastafjármunir 2,1 milljarður, veltuijármunir 721 milljón og eignir samtals 2,8 millj- arðar. Eigið fé var 597,4 milljónir, skuldir og skuldbindingar 2,3 millj- arðar, skuldir og eigið fé 2,9 millj- arðar. -bmg Hörður framkvæmdastjóri Hörður Helgason hefur verið ráð- inn íramkvæmdastjóri Korts hf. Hörður er viðskiptafræðingur og hef- ur verið framkvæmdastjóri markaðs- sviðs OLÍS og síðar aðstoðarforstjóri fyrirtækisins. Hörður er fyrrum framkvæmdastjóri hjá Baugi en hef- ur undanfarið stjómað markaðsmál- um hjá Borgarplasti hf. Hækkanir í Asíu Verulegar hækkanir urðu í gær á verðbréfamörkuðum i Asíu. Hang Seng-vísitalan í Hong Kong hækkaði um yfir tvö prósent tveimur mínút- um eftir að opnað var. Ástæður hækkananna em taidar vera ný- kynntar aðgerðir stjómvalda Taívan til að spoma við frekari lækkun verðbréfa. Lækkun undanfarið er rakin tO mikillar spennu milli Taív- an og Kína. Taívanska vísitalan, TAIEX, hækkaði um 5,7% í gær. Frí- dagur var í gær í Japan og því engin .viðskipti þar. Dollari fellur og evra styrkist Dollari féll verulega í gær og í fyrradag gagnvart helstu gjaldmiðl- um heimsins. Krossgengi evra og dollars náði næstum 1,04 en var fyrir skömmu farið að nálgast 1. Eftir að já- kvæðar hag- tölur birtust frá Þýska- landi í gær tók evran verulegan kipp upp á við. Bæði er aukin bjartsýni meðal stjómenda i Þýskalandi, auk þess sem pöntunum á iðnaðarvöram hefur fjölgað í Þýskalandi. Wall Street lækkaði Lækkanir urðu í gær á verðbréf- um á Wall Street. Ástæðan er talin vera sú að fjárfestar séu að bíða eftir ræðu Alans Greenspan um stöðu efnahagslífsins. Það gerist á morgun en þá er svokallaður Humprey- Hawkins-vitnisburður. Einokun á ís Bresk samkeppnisyfirvöld era nú að kanna grundvöll þess að ákæra Unilever, stærsta ísframleiðanda í heimi, fyrir brot á samkeppnislög- um. Markaðsaðgerðir Unilever hafa oft orðið tilefni rannsóknar hjá sam- keppnisyfirvöldum í mörgum Evr- ópulöndum. Samkeppnisyfirvöld vilja að dreifmgarkerfinu verði skipt upp í einingar til að auðvelda keppninautum aðgang að markaðn- um. Minni vaxtamunur Vaxtamunur milli 10 ára ríkis- skulda í Bandaríkjunum og Evrópu hefúr minnkað undanfarið. Þetta kom fram í Morgunkomi FBA í gær. Munurinn hefur minnkað í 0,95% þar sem fjárfestum líst hlutfallslega betur en áður á að eiga bandarísk bréf fremur en evrópsk. Vextir í Bandaríkjunum era nú 5,67% en 4,72% í Evrópu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.