Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.1999, Side 9
MIÐVIKUDAGUR 21. JÚLÍ 1999
9
r
Arafat óánægður með
nýia áætlun Baraks
Yasser Aráfat, leiötogi Palestínu-
manna, sagði í gær áætlun ísraels
og Bandaríkjanna um nýtt friðar-
samkomulag innan 15 mánaða óvið-
unandi. Arafat krafðist í þess stað
að þegar yrði hrint í framkvæmd
því samkomulagi sem hefði verið
undirritað fyrir löngu, það er Wye-
samkomulaginu sem kveður á um
brottflutning ísraelshers og frelsun
fanga.
Ehud Barak, forsætisráðherra
ísraels, og Bill Clinton Bandarikja-
forseti náðu síðastliðinn mánudag
samkomulagi um að mynda sér-
staka nefnd sem aðstoða á ísrael við
að koma á skjótum friði við Palest-
ínumenn, Sýrlendinga og Líbani.
Barak, sem einnig býst við stuðn-
ingi Bandaríkjaþings, vill að Wye-
samkomulagið verði hluti af loka-
friðarsamningum við Palestínu-
menn.
Barak svaraði gagnrýni Arafats í
gær með því að útskýra að hann
væri reiðubúinn að uppfylla skil-
Bill Clinton og Ehud Barak í Washington.
Símamynd Reuter
Börn á Austur-Tímor njóta þess að baða sig í vatnslind í Bairopite-þorpi, norður af borginni Dili. Ástandið á Austur-
Tímor hefur verið með því friðsamlegasta að undanförnu. Símamynd Reuter
Karólína prinsessa
eignast dóttur
Karólína prinsessa af Mónakó
eignaöist dóttur í gærdag. Fæðingin
mun hafa gengið að óskum en Kar-
ólína, sem hefur að imdanfomu ver-
ið í sumarleyfi í Gruenau í Austur-
ríki, dvelur nú ásamt dótturinni á
sjúkrahúsi i bænum Voecklabruck.
Mikill viðbúnaður var í fyrrinótt
þegar Karólína var flutt á sjúkra-
húsið; sjö bílar og tiu lifverðir
fylgdu prinsessunni eftir auk Emsts
prins af Hannover.
Austurríska sjónvarpið greindi
frá því í gær að dóttirin hefði hlotið
nafnið Alexandra. „Karólínu
prinsessu og Alexöndru prinsessu
líður vel,“ var haft
eftir heimildarmanni
fjölskyldunnar. Spít-
alinn mun hafa
neitað að gefa frekari
upplýsingar; sagði
það eindregna ósk
fjölskyldunnar að fá
að vera í friði.
Karólína giftist
Ernst prinsi af
Hannover þann 23.
janúar síðastliðinn.
Þau höfðu þekkst um
langa tíð en hjóna-
bandið var það þriðja
Karólína prinsessa er orðin
fjögurra barna móðir.
hjá Karólínu og ann-
að hjá Emst.
Karólína prinsessa
hefur forðast kastljós
ijölmiðlanna allt frá
því annar eiginmað-
ur hennar, Stefano
Cashiraghi, lést svip-
lega í sjóslysi við
Frönsku rivíeruna
árið 1990.
Karólína eignaðist
þrjú börn með Cas-
hiraghi; synina
Andrea, og Pierre og
dótturina Charlotte.
yrði Wye-samkomulagsins um
brottflutning ísraelshers frá Vestur-
bakkanum áður en langt um líður
þrátt fyrir að lokatakmarkið sé að
ná friðarsamkomulagi á 15 mánuð-
um.
Palestínumenn grunar að með
nýrri stefnu sinni í friðarmálum
hafi ísraelar í hyggju að gera
Bandaríkjamenn að bandamanni
sínum í stað sáttasemjara. „Við
sættum okkur ekki við þetta. Við
misstum nógan tíma í stjómartíð
Netanyahus. Það er ekki rökrétt að
missa enn meiri tíma þegar ný
stjóm er tekin við,“ sagði Arafat í
gær er hann kom af fundi Hosnis
Mubaraks Egyptalandsforseta í gær.
„Ég er sammála honum. Þetta á
ekki að taka langan tíma,“ sagði
Barak í gærkvöld.
Palestínskir samningamenn
kváðust hafa átt von á að Barak
myndi i Washington lýsa yfir vilja
sínum til að hrinda Wye-samkomu-
laginu i framkvæmd.
Misstu þrjú
börní
sumarfríinu
DV, Ósló:
Sumarfríinu lauk eftir fárra
kílómetra akstur með bílveltu og
dauða þriggja bama. Foreldramir
og fjórða barnið lifðu af. Slysið
varð skammt sunnan Alta í Finn-
mörku í N-Noregi og er hið alvar-
legasta af mörgum slysum sem
orðið hafa í Noregi í júlí.
Norðmenn era almennt í fríi og
sjaldan hefur sumarskemmtun
fólks kostað svo mörg mannslíf.
Ellefu hafa drukknað í ám og
vötnum, annaðhvort við veiðar
eða sundferðir. Uppi era kröfur
um að innleiða skyldunám í
sundi í von um að það verði fólki
til bjargar.
Nær daglega fréttist af dauða-
slysum á vegunum, yfirleitt vegna
of hraðs aksturs og einn hefur lát-
ist eftir að hafa hlaupið fyrir
björg í fallhlíf. -GK
Mikið magn PCB
í blóði græn-
lenskra karla
Ný rannsókn hefur leitt í ljós
að PCB-eitrið í blóði karla í aust-
urhluta Grænlands er svo mikið
að það er meðal þess mesta i
heiminum. Magnið er þó ekki
talið ógna heilsu mannanna. PCB
berst með lofti og vatni til austur-
hluta Grænlands þar sem það
safnast fyrir í fltuveljum dýra
sem íbúamir lifa á, til dæmis
sela.
„Rannsóknin sýnir að dreifmg
eiturefna frá hinum vestræna
heimi hefur áhrif á frambyggja
norðurheimsskautsvæðinu á
óviðunandi hátt,“ segir Jens C.
Hansen, yfirmaður þeirrar deild-
ar Árósaháskóla í Danmörku sem
framkvæmdi rannsóknina.
PCB er meðal annars talið geta
valdið krabbameini og dregið úr
frjósomi.
Fátækum börn-
um fjölgar á
Bretlandi
Fjórar milljónir barna á Bret-
landi búa við aðstæður sem eru
undir fátæktarmörkum. Fjöldi fá-
tækra bama hefur þrefaldast á
tuttugu árum. Þetta kemur fram í
nýrri rannsókn hagfræðihóps.
Meginástæðan að mati hópsins er
fjölgun heimila þar sem engin fyr-
irvinna er. Heimili telst fátækt ef
innkoman er innan við helming-
ur meðaltekna á Bretlandi. Þá
segir að böm sem alast upp við fá-
tækt séu líklegri til að vera fátæk
allt sitt líf.
Bresk stjórnvöld hétu því í síð-
ustu viku að leysa eina milljón
bama úr viðjum fátæktar á árinu.
Erfingjar æfir
yfir vasaklútum
og inniskóm
Börn Henri d’Orleans, sem
gerði tilkall til konungdæmis í
Frakklandi, eru afar ósátt við arf-
inn sem faðir þeirra lét þeim eft-
ir. Henri d'Orleans lést nýlega en
þegar níu börn hans hugðust
skipta arfinum kom í ljós að faðir
þeirra hafði einungis látið eftir
sig vasaklúta og inniskó. Erfingj-
amir létu þegar i stað rannsaka
málið en ekki hefur fundist tang-
ur né tetur af fjölmörgum dýr-
gripum fjölskyldunnar. Þá vora
bankareikningar d'Orleans tómir.
Árið 1997 vora eignir d'Orleans
metnar á tvo milljarða króna.
Hvað varð um auðæfin er því ráð-
gáta en bömin hafa ekki gefið
upp von um að eitthvað muni
finnast.
D'Orleans var afkomandi Lúð-
víks Filips, síðasta konungs
Frakka sem tekinn var af lifi 1848,
í beinan karllegg.
úrval af fatnaði fyrir
aUð aldurshópa
pqxaTeni 8
OpMfc mán-fim 10 -18
Ri 10-19
Lau 10-18
Su 12-17
Vélamenn/bílstjórar
ístak óskar eftir að ráða
vélamenn/bílstjóra til
starfa strax.
ISTAK
Upplýsingar veittar í símum 862 0303 og 896 0087.