Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.1999, Síða 16
16
MIÐVIKUDAGUR 21. JÚLÍ 1999
Fréttir
►
:
i
»
i
!
í
l
t
'!
I
I
I
Steinþór Gestsson, fyrrv. alþingismaður, býður frændlið velkomið.
Ættingjar samamkomnir að Hæli.
Ættarmót á Hæli
- 82 ára óperusöngvari sló í gegn
Niðjar Steinunnar Vigfúsdóttur
Thorarensen og Einars Gestssonar
frá Hæli i Gnúpverjahreppi hittust
á Hæli í Gnúpverjahreppi á dögun-
um. Eftirvænting lá í loftinu og auð-
fundið að kærkomið var að hittast á
ný. Dagurinn hlaut blessun veð-
urguðanna og lék við á fjórða
hundrað gesta. Á Hæli er þríbýli og
sitja frændur jörðina með reisn.
Margir söfnuðust saman á hlað-
inu á Hæli og gengu í Grófargil,
skógarlund skammt frá bænum.
Bauð Steinþór Gestsson, fyrrv. al-
þingismaður og bóndi, frændliðið
velkomið að Hæli, sagði frá ættinni
og kennileitum við bæinn.
Kvöldstund í Árnesi
Um kvöldið var skemmtun í fé-
lagsheimili Gnúpverja í Árnesi og
þétt setinn bekkurinn í stórum og
glæsilegum sal. Dagskráin þar ein-
kenndist af söng og tónlist þvi mik-
ið er um hæfileikafólk á því sviði í
ættinni. í tilefni ættarmótsins hafði
verið stofnaður ættarkór og söng 30
manna kór með glæsibrag við mik-
inn fögnuð. Einar Sturluson óperu-
söngvari söng einsöng glæsilega og
sannaði 82ja ára gamall að ætt-
mennin endast vel.
Hápunktur dagskrárinnar var
þegar lesið var úr bréfum systkin-
anna fimm frá Hæli og foreldranna
sem þau skiptust á 1886 til 1916. Var
þetta leiklestur undir stjórn Páls
Lýðssonar sagnfræðings og bónda í
Litlu-Sandvik. í bréfunum er að
finna mikinn fróðleik frá þessum
tima auk þess sem þau eru hnytti-
lega skrifuð og vöktu kátínu. Flutti
Hjalti Gestsson yfirlit yfir sögu
Hælsættarinnar.
-hb
Hólmavík:
Aðstaða fyrir fatlaða
DV, Hólmavík:
Nýverið opnaði Svæðisskrifstofa
um málefni fatlaðra á Vestfjörðum
nýja skammtímavistun á Hólmavík.
Um er að ræða nýja þjónustu, sem
er í samræmi við stefnu svæðis-
skrifstofunnar um að veita fótluðu
fólki þjónustu sem næst sínum
heimkynnum. Allur undirbúningur
svo og skipulagning var sameigin-
legt verkefni Hólmavíkurhrepps,
Kaldrananeshrepps og Svæðisskrif-
stofunnar.
Hólmavíkurhreppur hefur yfirráð
húsnæðisins og er það hugsað til
frambúðar fyrir starfsemina. Það
þykir einkar hentugt vegna stað-
setningar, aðgengis og innra skipu-
lags og reyndist lítil þörf fyrir breyt-
ingar innanhúss.
í sumar verður um tveggja mán-
aða samfellda starfsemi að ræða en
verður aðra hvora viku í vetur. Þess
á milli mun heimilisfólk dvelja í
skjóli sinna nánustu. Næsta vor er
fyrirhugað að starfsemin breytist í
sambýli. Fimm starfsmenn skipta
með sér tæplega þremur stöðugild-
um. Þar af annast fjórir kvöld- og
næturvaktir, svo og alla umönnun
um helgar. Hlíf Hrólfsdóttir,
þroskaþjálfi á Hólmavík, veitir þess-
ari nýju starfsemi forstöðu.ar
Vistfólk og starfsmenn við opnun.
DV-mynd Guðfinnur
us
visar.is
pið
allt sem þú þarft að vita
- og miklu meira til
opinn borgarafundur á netinu
1111 im
imi "l'i