Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.1999, Side 20
MIÐVIKUDAGUR 21. JÚLÍ 1999
4
40
Sport
Hlaupagikkur
3*
!>
Björgvin Víkingsson er
einn efnilegasti hlaupari
okkar íslendinga þrátt fyr-
ir aö vera aðeins 16 ára
gamall. Hann sigraði í sex
greinum á meistaramót-
inu um helgina, 200, 400,
800 og 1500 metra hlaupi
svo og í 100 og 300 metra
grindahlaupi.
„Ég átti alveg von á ein-
hverju en ekki sigri í 1500
metrunum," sagði Björg-
vin hógvær en hann sér-
hæfir sig í styttri hlaup-
um._
„Ég er búinn að æfa í
sex og hálft ár og hef alltaf
verið í FH. Félgasskapur-
inn er frábær hér og svo
er bara yfir höfuð fjöl-
breytt og skemmtilegt að
vera í frjálsum og maður fær aldrei ieið á
þvi,“ sagði Björgvin sem lítur framtíðina
björtum augum. „Ætli maður stefni ekki á
heimsmeistaramótið. Það er draumurinn
að komast á stórmót," sagði Björgvin sem
var nýkominn heim af Ólympíudögum
Æskunnar sem haldnir voru i Esbjerg í
Danmörku fyrir stuttu. Björgvin stóð sig mjög vel og bætti sig í 400 m
hlaupi. „Ég hef gífurlegan áhuga og áhuginn gefur manni margt,“ sagði
þessi snjalli hlaupari að lokum.
Bjorgvin Vikingsson sigraði i sex grem-
Umsjón
íris B. Eysteinsdóttir
Ekkert verri
- fyrir norðan þrátt fyrir erfiðar aðstæður
v %
Sigurlaug Níelsdóttir, UMSE,
sigraði í þremur greinum í flokki
ungkvenna, 100 m hlaupi, 100 m
grindahlaupi og langstökki.
-* Ertu ánœgð meiI sigurinn?
„Grindin var svolítið frá mínu
besta, við vorum bara tvær að
hlaupa og hin varð að hætta. Það er
alltaf verra þegar maður hefur eng-
an til að keppa við, en þetta var
fint, ég er ánægð með þetta.“
Hvað ertu búin að œfa lengi?
„Síðan ég var fimm eða sex
ára, ég er tvítug núna.“
Hefurðu einhver önnur
áhugamál enfrjálsar iþróttir?
„Ja, ég er bara að vinna og
æfa, það kemst ekkert mikið
annað að, svo eru mót um helg-
ar.“
Hvernig hefur þér gengið á
keppnistímabilinu?
- » „Mér hefur gengið ágætlega i
sumar. Ég hef verið að bæta mig
í grindinni í sumar."
Hvað drifur þig áfram?
„Mig langar alltaf að athuga
hvar ég stend. Það eru ekki eins
góðar aðstæður á Akureyri og
hér og því er gaman að koma í
bæinn og sjá hvar maður stend-
ur miðað við aðra. Við erum
ekki alltaf verri þátt fyrir að-
stæðurnar."
Hvað langar þig að gera i
framtiðinni?
„Mig langar til að ferðast. Ég hef
farið tvisvar út í æfingabúðir og
tvisvar á Norðurlandamót og einu
sinni án tengsla við frjálsar. Ég
stefni nú á að læra eitthvað, ég veit
bara ekki alveg hvað það verður,“
sagði Sigurlaug brosandi.
Meistaramót unglinga í frjálsum um síðustu helgi:
Ná langt
Meistaramót íslands í
frjálsum íþróttum ung-
linga fór fram um síðustu
helgi í Kaplakrika. Á mót-
inu kepptu um 200 ung-
menni á aldrinum 15-22
ára og sett voru sex ís-
landsmet. Sigrún Fjeld-
sted, FH, setti tvö íslands-
met, annars vegar í kúlu-
varpi með 3 kg kúlu þegar
hún varpaði kúlunni
12,29 metra. Hins vegar í
sleggjukasti meyja þegar
hún kastaði 37,18 metra.
Hallbera Eiríksdóttir,
UMSB, setti íslandsmet í
kringlukasti þegar hún
kastaði 40,84 metra. Silja
Úlfarsdóttir, FH, setti ís-
landsmet í 300 m grinda-
hlaupi stúlkna er hún
hljóp á tímanum 44,09
sek. Vigfús Dan Sigurðs-
son, ÍR, setti íslandsmet í
sleggjukasti sveina þegar
hann kastaði 57,60 metra.
Þá setti stúlknasveit FH
íslandsmet i 4x400 m boð-
hlaupi þegar hún hljóp á
tímanum 4:04,75 mín-
útum. Sveitina skipuðu
Ylfa Jónsdóttir, Eva Rós
Stefánsdóttir, Hilda Guð-
ný Svavarsdóttir og Silja
Úlfarsdóttir.
FH í sérflokki
I heildarstigakeppninni
sigraði FH með yfirburð-
um er það hlaut 487 stig
og um leiö sæmdarheitið
íslandsmeistari félagsliða
í flokki 15-22 ára. í öðru
sæti hafnaði ÍR sem hlaut
327 stig og HSK varð i
þriðja sæti með 208 stig.
Margir að bæta sig
Mótið tókst í alla staði
mjög vel og voru keppend-
ur ánægðir með fram-
kvæmdina.
„Veðrið hefur alveg
bjargað okkur. I heild hef-
ur náðst góður árangur,
sérstaklega í stuttu grein-
unum. Það er skemmti-
legt þegar unglingarnir
eru að bæta sig og gera
góða ferð hingað í Hafnar-
fjörðinn," sagði Kristinn
Guðlaugsson mótsstjóri
en hann fylgist grannt
með uppbyggingu frjálsra
íþrótta á íslandi.
„Það eru nokkrir mjög
sterkir einstaklingar í
frjálsum. Breiddin er ekki
eins mikil og áður en það
eru betri toppar. Það eru
5-10 einstaklingar á mót-
inu sem eiga eftir að ná
langt held ég. íslendingar
hafa löngum verið bestir í
köstunum og svo styttri
hlaupunum, en keppnis-
tímabilið hér er stutt og
því erfitt að bæta sig,“
sagði Kristinn, en hann
hafði í mörgu að snúast á
mótinu. Aðstaðan í
Kaplakrika var um helg-
ina eins og best verður á
kosið ef frátalinn er svo-
lítifl vindur sem stundum
stríddi keppendum.
Þrjú gull
ívar Örn Indriðason,
Ármanni, sigraði í 100,
200 og 400 m hlaupi og
hafnaði í öðru sæti i
langstökki, þrátt fyrir
að hafa komið beint að
utan eftir að hafa
keppt á Ólympíu-
dögum æskunnar.
„Maður náði bara
sex tima svefni í nótt
og það situr smá í
manni. Ég ætlaði að
reyna að koma heim með þrjú gull
og komast á pall í langstökki,"
sagði ívar sem náði markmiðum
sínum.
„Mér finnst félagslega hliðin
skemmtileg og baráttan við að
bæta sig heldur manni gangandi,"
sagði ívar sem hefur stóra
drauma. „Það væri frábært að
komast á Ólympíuleikana í Aþenu
árið 2004 og það var voðalega
gaman að fá reynslu af
Ólympíudögum æskunnar," sagði
Ivar og bætti við að þjálfari hans,
Stefán Jóhannsson, heföi stutt
hann mikið. „Hann er snillingur,
ég gæti þetta ekki án hans,“ bætti
ívar við.
Bæting
Lofaði meti
Vigfús Dan Sig-
urðsson, ÍR, sigr-
aði í kúluvarpi og
setti íslandsmet
unglinga í
sleggjukasti á
meistaramóti ís-
lands í frjálsum
íþróttum um helg-
ina. „Ég á bara eft-
ir sleggjuna á
morgun og ætla að
setja íslandsmet
og geri það pott-
þétt,“ sagði Vigfús öruggur daginn áður en hann
setti íslandsmetið.
„Ég byrjaði að æfa 12 ára og hef alltaf verið í köst-
um. Ég æfi kúlu og sleggju og flkta aðeins við
kringlu. Ég æfi á hverjum degi, nema sunnudögum,
stundum tvisvar á dag, en þá kasta ég og lyfti. Það
er númer eitt i dag að kastarar lyfti, menn verða að
vera sterkir til að ná árangri. Ég ætla bara að reyna
að halda áfram á sömu braut, þótt óneitanlega væri
gaman að keppa á Ólympiuleikunum."
Kristín Þórhalls-
dóttir, UMSB, sigraði
í langstökki meyja
með því að stökkva
5,58 metra og bætti
þar með persónulegt
met og setti nýtt
Borgafjarðarmet.
„Ég var að reyna
að ná lágmörkum
fyrir Norðurlanda-
mót unglinga sem er
í Finnlandi í ágúst.
Ég ætla bara að
halda áfram að bæta
mig, ég æfði svo vel í
vetur,“ sagði Krist-
ín.
„Það kom nýr
völlur I Borgarnesi eftir
landsmótið og þar er nú
góö aðstaða," sagði Krist-
ín sem finnst félagsskap-
urinnn í Borganesi líka
góður.