Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.1999, Síða 22
MIÐVIKUDAGUR 21. JÚLÍ 1999
Fréttir
DV
Frá afmælishátíð slökkviliðsstjórans. A myndinni er Kristján lengst til hægri ásamt móður sinni, Guðbjörgu Krist-
jónsdóttur. Vinstra megin eru feðgarnir Pétur Kristjónsson - bróðir Guðbjargar - og Helgi Pétursson en hann var
veislustjóri. DV-mynd PE
- segir Jón Ingi Jónsson á Tálknafiröi
DV, Vestfjörðum:
„Það er annað hvort að stækka
'áð sig eða hætta þessu. Það er orð-
íð svo mikið af alls kyns kröfum.
Við tókum á móti 600 tonnum af
flski á síðasta ári og við erum að
vonast til að fá um 800 tonn til okk-
ar í ár,“ segir Jón Ingi Jónsson,
annar eigenda Útnausts hf. á
Tálknafirði.
Útnaust hf. hefur sérhæft sig í
vinnslu saltfisks og hefur fyrirtæk-
ið vaxið ört á þeim fimm árum sem
það hefur starfað. Það var stofnað af
tveimur ungum trilluútgerðar-
mönnum sem töldu sig geta gert
meiri verðmæti úr afla sínum með
því að vinna hann sjálfir í stað þess
að selja öðrum fiskverkendum. Nú
starfa á milli 25-30 manns hjá fyrir-
tækinu og er uppistaðan heimafólk.
^Útnaust er með 8 báta i viðskiptum.
Þar á meðal eru bátar úr öðrum
landsfjórðungum sem koma til
Tálknafjarðar og nýta sér hina góðu
aðstöðu sem smábátum er sköpuð
þar. Vegna vaxandi umsvifa hefur
fyrirtækið þurft að bæta við húsa-
kost sinn. Nú nýverið var tekið í
notkun stærra og glæsilegra hús-
næði með fullkomnari vinnslusal en
áður var auk þess sem byggð hefur
verið rúmgóð beitningaraðstaða
með balafrysti.
_ „Það er bjart fram undan í salt-
Haraldur Gísli nr. 4281
Bergmann S. Guðjóns. nr. 6232
Ásdís Hilmarsdóttir nr. 10440
Rósa Guðmundsdóttir nr. 4024
Sveinbjörg E. Ólafsdóttir nr. 11412
Sunna Sigurðardóttir nr. 15007
Jóhanna Ey. nr. 4269
Sigríður E. Ásgrímsdóttir nr. 6506
Anton 1. Rúnarsson nr. 12482
Finnur Jónsson nr. 5476
Krakkaklúbbur DV óskar vinningshöfum til hamingju
og þakkar öllum þátttökuna. Vinningarnir verða sendir
í pósti næstu daga.
fisknum - góð verð á afurðunum og
það selst allt um leið. Kvótaleysið
hefur bagað okkur dálítið og við
höfum verið að leigja til okkar tölu-
vert af þorskkvóta í sumar. Svo á að
fara að setja ýsu og steinbít undir
kvóta á smábáta þrátt fyrir að ekki
hafi tekist að veiða þann afla sem
Hafró ráðlagði í þessum tegundum
og maður kvíðir fyrir hvernig út-
hlutunin verður."
Jón Ingi segir að Tálknfirðingar
hafi ekki orðið fyrir stóráfollum í
atvinnulífinu og það hafi ekki verið
neitt atvinnuleysi í þorpinu en orð-
ið erfiðara að bjarga sér með því að
fara út í trilluútgerð en áður var.
„Það getur enginn byrjað útgerð í
dag upp á að þurfa að kaupa til sín
veiðiheimildir og þá er sama hvort
um er að ræða stóran eða lítinn bát.
Þegar við byrjuðum smábátaútgerð-
ina var bara að fá sér bát og byrja
enda frjáls sókn á þeim árum. Það
háir okkur að það vantar jafnara
hráefni í vinnsluna en saltfiskurinn
hefur þann kost að sveiflunar verða
minni en í frystingunni," segir Jón
Ingi. -GS
Afmælishátíð í fjóra daga
Jón Ingi Jónsson, fiskverkandi og annar eigandi Útnausts hf. á Tálknafirði.
DV-mynd Guðm. Sig.
Hér áður fyrr héldu menn
margra daga veislur þegar tíma-
móta var minnst. Þennan hátt
hafði Kristján Einarsson, fréttarit-
ari DV, slökkviliðsstjóri Bruna-
vama Árnessýslu og forseti bæjar-
stjórnar Árborgar, á þegar hann
verð fimmtugur 15. júlf sl. Á sjálf-
an afmælisdaginn tóku hann og
kona hans, Brynhildur Geirsdóttir,
á móti gestum á heimili þeirra og
var opið hús. Þá komu slökkviliðs-
menn eldsnemma með sírenuvæli
og sprautuðu á hús hans til að
koma honum á fætur.
Á annað hundrað manns höfðu
litið inn þegar dagur rann. Síðan
efndi kappinn til útihátíðar fyrir
stórfiölskylduna og nánustu vini
að Þjórsárveri í Villingaholts-
hreppi 17. júlí. Þar skemmtu sér
120 manns í stóru samkomutjaldi
og stóð hátíðin langt fram á sunnu-
dag í blíðskaparveðri.
Margar ræður voru fluttar og
ýmsar aðrar uppákomur. Var haft
á orði að staðarvalið væri við hæfi
fyrir hátíð sem Kristján efndi tO,
bara nafnið Villingaholt minnti
óneitanlega á ýmis uppátæki sem
hann hefur staðið fyrir sl. fimmtíu
ár. -HS
. Bjart fram undan
í saltfiskinum
f I »
Sælureitur
í sveitinni
Kertasala til Grænlands
DV, Hvammstanga:
Hólmfríður Dóra Sigurðardóttir á
Hvammstanga hefur verið bundin í
báða skó í bílskúmum sínum í sum-
ar. Kvartar því ekki undan veðrinu
eins og við hin og að auki hefur hún
haft með sér fiórar ungar stúlkur f
hlutastarfi og eina sem er allan dag-
inn hjá henni. Það er svo mikil
vinna í framleiðslu á kertum hjá
Hólmfríði Dóru.
í vor fór hún á handverkssýningu
í Perlunni með handmáluðu kertin
sín og í framhaldi af þeirri ferð fórú
hjólin heldur betur að snúast. Það
er Anori Art á Grænlandi sem pant-
aði 7000 kerti frá Dóm og þau þurfa
að vera tilbúin til útflutnings nú um
miðjan ágúst. Það gengur nokkuð
vel að framleiða þau.
ðll eru kertin handunnin og er það
ekki lítil vinna að skera bylgjupapp-
ann í hæfilega stærð. Eiginmaður
Dóm sér um þá vinnu. Síðan er kert-
unum pakkað í pappann, þau merkt
og í flutningi er hverju kertapari
pakkað i silkipappír. Öllu er raðað í
kassa og bóluplast sett á milli laga. Þá
eru þau tilbúin til útflutnings. -gjóh
Raufarhöfn:
Tveir sækja um
starf sveitarstjóra
DV, Akureyri:
Tveir umsækjendur em um starf
sveitarstjóra á Raufarhöfn en starfið er
laust eftir að Gunnlaugur A. Júlíusson
sagði því starfi lausu fyrir skömmu.
Umsækjendumir tveir em Guðmund-
ur Vilhjálmsson, vélfræðingur í Þórs-
hafnarhreppi, og Reynir Þorsteinsson
sem er starfandi sveitarsijóri á Raufar-
höfn eftir að Gunnlaugur lét af þvi
starfi. Reynir var einnig staðgengill
Gimnlaugs sveitarstjóra þegar hann fór
í ársleyfi og starfaði í Rússlandi og er
talið fúllvíst að hann muni hljóta ráðn-
ingu í sveitarstjórastarfið. -gk