Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.1999, Síða 36
CLÖ tHmfo
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notað T DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
>*"• m 550 5555
FRJÁLST, ÓHÁÐ DAGBLAÐ
MIÐVIKUDAGUR 21. JÚLÍ1999
Njóta kyrrðar
og hvíldar á
ókunnum stað
Václav Havel, forseti Tékklands
^ig heimsfrægt leikritaskáld, og eig-
A inkona hans, Dagmar Havlóvá,
þiggja boð forseta íslands og eiga
sumarleyfisdvöl á íslandi og ætla að
„kynnast þannig friðsæld og fegurð
íslenskrar náttúru", eins og segir í
frétt frá forseta íslands. Tékknesku
forsetahjónin komu hingað til lands
í hádeginu í gær og að lokinni
hressingarstund á Bessastöðum
héldu þau til ókunns sumarhúss þar
sem þau dvelja næstu ellefu dagana.
Óskað hefur verið eftir því við fjöl-
miðla og aðra að trufla hjónin ekki.
Tékkneski forsetinn hefur undan-
farin misseri verið heilsutæpur og
er nú að endurhæfa sig. -JBP
Akureyri:
Dýr veiðiferð
Máli skipstjórans á norska loðnu-
veiðiskipinu Österbris var fram
^-—Jtaldið í Héraðsdómi Norðurlands
eystra í morgun. Bjöm Jósef Arn-
viðarson, sýslumaður á Akureyri,
sagðist í morgun vonast til að ljúka
málinu fyrir hádegi. Skipstjórinn er
ákærður fyrir að nota nót með of lít-
illi möskvastærð við loðnuveiðar í
íslenskri landhelgi en hann heldur
því fram að nótin sé ný og það eigi
eftir að teygjast á henni.
„Skipstjprinn getur átt von á sekt
frá 400 þúsund krónum upp í 4 millj-
ónir, eins og lög gera ráð fyrir, svo
og að afli og sá hluti veiðarfæranna
sem er ólöglegur verði gerður upp-
tækur,“ sagði Bjöm Jósef sýslumað-
ur í morgun. Nótin kostar tæpar 30
milljónir. -EIR
^ NM í bridge:
Island í efsta
og neðsta sæti
Norðurlandamót yngri spilara í
bridge stendur nú yfir i Reykjavík.
Keppt er í tveimur flokkum - 25 ára
og 20 ára og yngri. I eldri flokknum er
ísland efst eftir sigra á Danmörku,
23-7, og Noregi, 22-8, en minnsta tap
gegn Svíum, 14-16. ísland hefur 57
stig. Finnland 52, Svíþjóð 44, Noregur
43 og Danmörk 38.
í yngri flokknum hefur ísland tapað
öllum þremur fyrstu leikjunum. Þar
eru Svíar eftir með 54,5 stig en ísland
< MBaeðst með 18 stig. Fyrirliði án spila-
mennsku og þjálfari i báðum flokkum
íslands er ísak Öm Sigurðsson. -hsím
Forseti Islands, Olafur Ragnar Grímsson, tók á móti Václav Havel, forseta Tékklands, og Dagmar Havlóvá, eiginkonu
hans, í gærdag. DV-mynd þök
Kópavogur:
Hátt í 200 öku-
menn teknir fyrir
of hraðan akstur
Ríkislögreglustjóri var með
myndavélarbíla í Kópavogi bæði í
gær og fyrradag til þess að mæla
hraða bifreiða. Hátt í tvö hundruö
bílar vora teknir með þessum hætti
en samhliða þessu var lögreglan í
Kópavogi að mæla hraða bíla og tók
talsvert marga. Lögreglan í Kópa-
vogi stoppar yfirleitt um tvo til tíu
ökumenn á hverjum degi fyrir of
hraðan akstur. Þetta átak skilar sér
að mati lögreglunnar i Kópavogi og
reiknar hún með að menn hugsi sig
tvisvar um áður en þeir fara að gefa
i næst.
Harður árekstur varð í Kópavogi
í gær þegar tveir bílar skullu saman
á gatnamótum Nýbýlavegar og Tún-
brekku. Voru báðir bílamir að fara
yfir á grænu ljósi en annar beygði
og fór i veg fyrir hinn. Einn var
fluttur á slysadeild vegna eymsla í
baki en meiðslin eru ekki talin al-
varleg.
Ekki er enn búið að finna rauða
Dogde pallbifreið sem stolið var
fimmtudaginn 24. júní þrátt fyrir
mikla leit. Var bílnum stolið frá
Smiðjuvegi en þetta er rauður Dod-
ge Dakota pallbíll með Camper felli-
hýsi á pallinum. Skráningarnúmer
bilsins er TT-053 og vill lögreglan í
Kópavogi biðja alla sem upplýsingar
geta gefið um málið að hafa sam-
band við lögregluna. -EIS
Til rifrildis kom á Leifsgötunni áöur en húsráðandinn lá þar í blóði sínu:
Þórhallur viðurkennir
átök við Agnar heitinn
Þórhallur Ölver Gunnlaugsson hef-
ur viðurkennt hjá lögreglu að hafa
farið heim til Agnars W. Agnarssonar
laust eftir miðnætti aðfaranótt siðasta
miðvikudags, lent þar í rifrildi við
hann og síðan í átökum sem enduðu
með því að húsráðandinn lá eftir í
blóði sinu. Hér hafi þó ekki verið um
viljaverk að ræða. Þörhallur segir að
þegar áfengisvíman rann af honum og
hann gerði sér grein fyrir hvað hafði
gerst um nóttina hefði hann ákveðið í
mikilli angist að flýja land til Dan-
merkur seint á miðvikudagskvöldið.
Lögreglu hefur ekki tekist að leita í
farangri Þórhalls enn þá þar sem
Kaupmannahafnarlögreglunni láðist
að senda tvær töskur hans með hon-
um út á Kastrup-flugvöll í fyrrakvöld
þar sem hinn íslenski sakbomingur
Þórhallur Ölver Gunnlaugsson í fylgd
lögreglumanna. Hann hefur vlðurkennt
átök við hinn látna en segir að um óvilja-
verk hafi verið að ræða. DV-mynd S
var afhentur lögreglumönnum héðan
að heiman.
Hvað varðar rifrildið við Agnar
heitinn snerist það um gömul deilu-
mál, samkvæmt upplýsingum DV.
Þeir Þórhallur höfðu þekkst lengi.
Þórhallur viðurkennir á hinn bóginn
ekki að hafa beitt hnífnum sem orsak-
aði stungusár sem leiddu til dauða.
Umræddur hnífur er talinn hafa til-
heyrt eldhúsáhöldum í íbúð hins
látna.
Þegar lögreglan í Kaupmannahöfn
handtók Þórhall um klukkan sjö á
sunnudagsmorgunn hafði hann í raun
lítið annað gert en að ráfa peningalít-
ill um miðborgina og þá sérstaklega í
nágrenni við og á aðallestarstöðinni.
Hann hafði þá þegar fregnað um frá-
sagnir um sjálfan sig í íslenskum
blöðum sem eftirlýstan manndráps-
mann.
Þórhaliur hefur átt við geðræn
vandamál að stríða síðustu misseri og
af þeim sökum m.a. tekið lyf.
Hann hafði verið í óreglu þegar
hinn örlagaríki atburður átti sér stað
á Leifsgötu.
5 mánaða gæsluvarðhaldsúrskurð-
ur Þórhallar - til 21. desember - hefur
verið kærður til Hæstaréttar. Litlar
líkur eru á að honum verði hnekkt.
Hins vegar er möguleiki á að hann
verði styttur þar sem rannsókn lög-
reglu hefur miðað vel og málið er að
heita má í grófum dráttum upplýst þó
aðeins vika sé liðin má ætla að rann-
sókn ljúki innan fárra vikna. Siðan
mun ríkissaksóknari ákæra og dóms-
meðferð í héraði ætti jafnvel að geta
hafist í síðari hluta ágúst eða byrjun
september. Þetta er þó allt undir þvi
komið hve langan tíma geðrannsókn
tekur sem Þórhallur mun undirgang-
ast. -Ótt
Veðrið á morgun:
Hlýjast
sunnan-
lands
Á morgun má gera ráð fyrir
hægviðri og víðast verður léttskýj-
að, en suðaustan 5-8 m/s og skýj-
að suðvestanlands og fer að rigna
seinna um daginn. Hiti verður á
bilinu 6 til 16 stig, hlýjast í upp-
sveitum sunnanlands.
Veðriö í dag er á bls. 53.
Pantið í tíma
9
da^ar í Þjóðhátíð
FLUGFÉLAG ÍSLANDS
570 3030