Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.1999, Síða 10
I J
mwmm
’a&k
hefur verið söluhæsti
bíll á íslandi í 13 ár!
Það er ekki að
ástæðulausu því þessi
frábæri bíll er bæði
lipur og skemmtilegur
og mjög góður til
endursölu.
Markmið okkar er að tryggja
viðskiptavinum örugg og
áhyggjulaus bilaviðskipti.
Allir notaðir bilar hjá Toyota
fara i gegnum vandað
söluskoðunarferli og eru
flokkaðir og verðlagðir
samkvæmt því. Auk þess er
boðið upp á eftirfarandi
nýjungar: ókeypis skoóun,
14 daga skiptirétt og allt að
eins árs ábyrgó.
Corolla H/B XLi • Arg. 1996 •
1300 vél • 5 dyra • Rauður •
Ekinn 94 þús. • Verð 850.000 kr.
Corolla S/D GLi • Arg. 1993 •
1600 vél • 4 dyra • Rauður •
Ekinn 46 þús. • Verð 870.000 kr.
Corolla S/D XLi • Arg. 1995 •
1300 vél • 4 dyra • Blágrænn
Ekinn 41 þús. • Verð 920.000 kr.
Corolla W/G Terra • Arg. 1998 «
1600 vét • 5 dyra • Sitfurgr. •
Ekinn 14 þús. • Verð 1.350.000 kr.
<$£> TOYOTA
Betn notaðir bílar
. Sími 563 4400.
VERSLUNIN HÆTTIR!
OPIO
Sunnudag kl. 13 * 17
cmro 09-20
ALLl k
wa SELJ7J57'
MÁNUDAGUR 26. JÚLÍ 1999
Fréttir
Heilsustofnun NLFÍ:
íslenska olían skák-
aði þeirri þýsku
Sláttur hefst seint:
Mikið kal í
túnum á
Ströndum
- nota tímann til sjósókna
Sláttur hefst með seinna móti á
norðanverðum Ströndum á þessu
sumri. Að sögn Guðmundar bónda í
Munaðarnesi, þá voraði seint þar um
slóðir.
„Það er mikið kal í túnum og þau
hafa komið illa undan vetrinum.
Menn eru fyrst að hefja slátt þessa
dagana,“ sagði Guðmundur í Munað-
arnesi. Hann var þá sjálfur enn ekki
byrjaður að slá, en hefur þess í stað
notað tímann til sjóróðra.
Fimm til sex bændur hafa róið trill-
um sínum frá Norðurfírði í sumar og
lagt þar upp afla sem farið hefur á
markað. Guðmundur sagði að aflinn
hafi ekki verið neitt sérstakur, svona
600 til 800 kg á dag. Hann sagði fiskinn
þó góða búbót, þvi afraksturinn af
fjárbúskapnum væri orðinn æði rýr.
Guðmundur sagði að saltfiskverkun
þar norðurfrá væri nú nær alveg af-
lögð og allt færi nú á markað. -HKr.
Vestfirðir:
Rífandi
gangurí
Bónusi
Rífandi gangur hefur verið í nýju
Bónusverlsuninni á ísafirði sem opnuð
var i júní. Samkvæmt heimildum DV er
ekki óalgengt að flölskyldur frá Patreks-
flrði og öðrum stöðum á sunnanverðum
Vestflörðum fari í stór- innkaupaleið-
angra í Bónus á Ísafirði. Það komi að
sumu leyti í stað verslunarferða til
Reykjavíkur, enda mun styttra að fara.
„Það er jafnvel meiri aðsókn en búist
var við“, segir Unnar Kári Sigurðsson,
verslunarstjóri. Hann tekur undir það
að mikið af fólki komi af sunnanverðum
Vestflörðum og víðar til að versla í Bón-
us. Þá sé einnig mikið um ferðamenn á
svæðinu. Unnar segir Bónusverslunina
á ísaflrði liklega hafa yfir að ráða öðru
stærsta verlsunarplássi Bónus á íslandi,
um 700 fermetrum. Verslunin sé mjög
rúmgóð og við standsetningu á henni
hafl ekkert verið til sparað. Ýmsar nýj-
ungar eru í þessari Bónusverslun, eins
og sérstakur grænmetiskælir og tækni-
væddari afgreiðsluborð með færibandi
sem þekkist ekki í öðrum verslunum
Bónus. -HKr.
Erlingur Hannesson við nýju bfla-
söluna Bílavík í Reykjanesbæ.
DV-mynd Arnheiður
Suðurnesjamenn
vilja glæsibíla
DV, Suöurnesjum:
Ný bílasala, Bílavík, hefur verið
opnuð í Reykjanesbæ. Bætist hún því
við hinar fimm sem fyrir eru á svæð-
inu. Hluthafar eru fimm en starfsmað-
ur bilasölunnar og einn eigenda er Er-
lingur Hannesson.
Hann er ekki ókunnugur bílasölu
því hann starfaði áður hjá Brimborg í
Reykjavík og var á árum áður umboðs-
maður fyrir Brimborg og Honda-um-
boðið á Suðumesjum en Bílavík selur
nýja bíla frá þeim.
Erlingur sagði byijunina lofa góðu.
„Þetta hefur gengið vel. Við seldum tfl
dæmis átta nýja bíla í eitt fyrirtæki í
Reykjavík. Ég held að bílasölurnar séu
ekkert of margar héma því Suður-
nesjamenn hafa alltaf viljað vera á nýj-.
um og glæsilegum bílum.“ -AG
DV, Hveragerði:
Heilsuböð í Heilsustofnun NLFÍ
njóta mikilla vinsælda dvalargesta.
Út í heitt vatnið er sett slökunar- og
heilsuolía, sem hingað til hefur ver-
ið keypt frá Þýskalandi. Fyrir
skömmu var gerð tilraun með notk-
un olía frá fyrirtækinu „Purity
Herbs“ á Akureyri. í framhaldi af
umsögn dvalargesta og starfsfólks
stofnunarinnar um mun á gæðum
íslensku olíunnar og þeirrar þýsku
var síðan ákveðið að ganga til
samninga um kaup á þeirri ís-
lensku. Anna Pálsdóttir, upplýs-
ingafulltrúi Heilsustofnunar, sagð-
ist sjálf hafa reynt olíurnar og fund-
ið mikinn mun. Ilmurinn af þeim
væri mjúkur og slakandi, auk þess
sem olíumar skildu ekki eftir sig ol-
íurák í böðunum og mun auðveld-
ara væri að þrífa baðkörin.
Eigendur Purity Herbs eru þau
Ásta Sýrusdóttir og André Rais.
André kom hingað til lands fyrir
nokkmm ámm, þá sem fótbolta-
þjálfari á Fáskrúðsfirði. Þar kenndi
hann einnig við grunnskólann.
Hann sagði í samtali við DV, að
hann hefði alla tíð haft mikinn
áhuga á jurtum og vítamínum. Á
unga aldri hefði hann iðulega „lagt
eldhús móður sinnar í rúst“, þegar
hann var að búa til sín eigin
vítamín og jurtaseyði.
Þegar André kom hingað til lands
fannst honum mikið til koma um
Samningurinn undirritaður. Fremst: Arni Gunnarsson og Ásta Sýrusdóttir.
Þá Guðmundur Björnsson, Hulda Sigurlína Þórðardóttir og André Rais.
DV-mynd Eva
hreinleika landsins og hóf fljótlega
að safna fjallagrösum og gera til-
raunir með þau. Hann kenndi nem-
endum sínum meðal annars með-
ferð grasanna og annarra heilsu-
jurta. Ástu, konu sinni, kynntist
hann í gegnum fótboltann og árið
1994 stofnuðu þau síðan fyrirtækið
Purity Herbs á Akureyri, sem nú
blómstrar og eru vörur þess seldar
um allt land og útflutningur er
einnig að aukast.
Árni Gunnarsson, forstöðumaður
Heilsustofnunar, sagði að sífellt
væri verið að leita að hagkvæmari
og betri lausnum á heilsumeðferð
dvalargesta. Vitanlega væri æski-
legast að kaupa sem mest af inn-
lendri framleiðslu og væri hann
mjög ánægður með þessar breyting-
ar.
-eh
Tunberiand1^
riui dcítas