Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.1999, Blaðsíða 18
18
MÁNUDAGUR 26. JÚLÍ 1999
Fréttir
DV
Strandasýsla:
Sagnir sögu-
þjóðarinnar
greyptar í tré
Dy Hólmavík:
Þeirri merku nýjung hefur verið
hrint í framkvæmd að við athyglis-
verða staði á Ströndum má i fram-
tíðinni gestum og gangandi vera
ljóst hvaða atburðir úr fylgsnum
fortíðar eru við hann tengdir. Gerist
það með þeim hætti að skráðar eru
fornar sagnir á mikla rekadrumba
sem settir verða niður viö athyglis-
verða staði og náttúruundur allt frá
innri hluta Hrútafjarðar og norður í
Ámeshrepp.
Afhjúpun fyrsta sagnarekans -
eins og framtak þetta nefnist - var
einn atburða á afar fjölbreyttri
bryggjuhátíð á Drangsnesi. Þessir
tveir viðburðir tengjast óneitanlega
þar sem höfundur beggja er sami
maðurinn, Jón Jónsson, þjóð- og
sagnfræðingur frá Steinadal, sem
fyrir nokkrum árum setti fram alló-
venjulegar og nýstárlegar hugmynd-
ir sem ferðaþjónustu tengjast 1 riti
sem heitir Ferðaþjónusta og þjóð-
menning og nokkuð hefur verið
unnið eftir á Ströndum undanfarin
Fyrsti staðurinn sem valinn var
til að vitna um menningararf þessa
svæðis er Kerlingin - steindrangur
mikill sem hefur greinilegt andlits-
lag mannveru og stendur rétt innan
við kauptúnið Drangsnes. Saga
hennar er á tveimur tungumálum
auk íslensku og því einnig og ekki
síður ætluð erlendum gestum okkar
sem þar geta séð vísi að sagnaheimi
söguþjóðarinnar í norðri.
í sumar er fyrirhugað að 10 slíkar
þjóðsagnamerkingar líti dagsins ljós
og þær verði orðnar 25 í lok næsta
árs ef allar vonir um fjármögnun og
fleira rætast. Margt góðra manna
auk Jóns Jónssonar hafa komið að
framkvæmd þessari. Má þar nefna
myndlistarkonuna og bóndann Dag-
rúnu Magnúsdóttur á Laugalandi,
sem myndskreytti sögurnar, Magn-
ús Rafnsson, þúsundþjalasmið í
Bakka, sem sér um smíðarnar, og
Sigurð Atlason, sem verkefnisstjóm
hafði á hendi. Síðast en ekki síst er
þess svo vert að geta að Umhverfis-
sjóður verslunarinnar kom því til
leiðar að hugmynd þessi yrði að
veruleika með því að styrkja
framkvæmdina myndarlega með 400
þúsund krónum.
-GF
Fjölmenni við Kerlinguna, steindrang rétt innan við Drangsnes. DV-myndir
Guðfinnur
ár.
BIFRI EIÐASTILLINGAR
li co LAI|
Beltagröfur
/r.raeiw
Suðurlandsbraut 16,
sfmi 588 9747.
Borgartúni 36.
sími 568 8220.
Skemmtiatriði á bryggjuhátíðinni voru vel sótt.
Ólafsfjarðarbær
opnar heimasíðu
Helgi Jónsson, DV, Ólafsfirði:
Ólafsfjarðarbær eignaðist form-
lega sina eigin heimasíðu þann 19.
júní (www. olafsfjordur.is). Vinna
við síðuna hófst seint á siðasta ári
en það voru þeir Þorsteinn Ásgeirs-
son og Stefán Hallgrímsson sem
hönnuðu hana og unnu frá grunni.
Á heimasíðunni er að finna
margskonar upplýsingar um Ólafs-
fjörö og bæjarbúa. Henni er skipt í
fhnm þætti: 1) Ólafsfjörð, þar sem
saga bæjarins er rakin, sagt frá
staðháttum, jarðsögunni, samgöng-
um, þjóðsögum og fjallað um sér-
stöðu Ólafsfjarðarvatns. 2) Stjóm-
sýsla, bæjarstjóm, stofnanir bæjar-
ins og fundargerðir. 3) Ferðaþjón-
usta, almenn þjónusta í bænum, af-
þreying, áhugaverðir staðir, göngu-
leiðir og norrænt samstarf. 4) At-
vinnulífið, þar sem sagt er frá fyrir-
tækjum í bænum. 5) Félagasamtök,
listi yfir öll félög og samtök og
stjórnir þeirra. Fjöldi Ijósmynda
skreytir síðuna, bæði gamlar mynd-
ir sem nýjar. Heimasíðuna er hægt
að skoða á þrenns konar hátt, Java-
síðu, Html-síðu og Flash3-síðu og
velja tölvueigendur þá síðuna sem
hentar þeim best. Gert er ráð fyrir
að þýða heimasíðuna yfir á ensku
og dönsku. -HJ
Hann Þórður Guðmundsson í Burstarbrekku í Ólafsfirði á fallega skútu og
sigiir oft á Ólafsfjarðarvatni. Burstarbrekka alveg við vatnið. Hinum megin
vatnsins má sjá laxeldisstöðina til hægri, golfskálann f brekkunni og Os-
brekkufjall. DV-mynd Helgi, Ólafsfirði
r - »».■-
• ■ *j íA'
Bjálkahúsin við Olafsfjarðarvatn.
DV-mynd Helgi
ÓlafsQörður:
Bjálkahús reist við vatnið
DV Ólafsfirði:
Nú er búið að reisa sex bjálkahús
af átta við Ólafsfjarðarvatn. Þau
voru tekin í notkun 18. júlí. Enn
eiga eftir að koma tvö bjálkahús -
stærri en þau sem komin eru. Það
er Hótel Ólafsfiarðar sem reisir
þessi hús, enda er tilgangurinn að
auka gistirýmið. Það eru bara ellefu
herbergi á hótelinu og því hefur
verið erfitt að taka á móti stærri
hópum. Með þessum húsum eykst
gistirýmið mjög mikið.
Fyrstu fiögur húsin taka 16
manns. Svo eru tvö stærri, eins kon-
ar fjölskylduhús með svefnherbergi
fyrir hjón á neðri hæði en svefnlofti
á þeirri efri. Tvö stærri húsin, sem
eftir er að reisa, eru með herbergi,
snyrtingu, eldhúsi og stofu og
tveimur herbergjum uppi.
Fyrstu gestimir komu í húsin
sunnudaginn 18. júli sl. og í vikunni
á eftir var stór hópur franskra
ferðamanna þar. Byrjunin lofar
góðu en formleg markaðssetning
hefur ekki farið fram. Það reynir í
raun ekki á það fyrr en á næsta ári.
Reist hefur verið bryggja og hægt
verður að leiga róðrarbáta og fyrir-
hugað að fólk geti rennt fyrir silung
og lax í Ólafsfiarðarvatni.
„Það hefur verið ágætur straum-
ur af ferðafólki síðan Lágheiðin
opnaðist," segir Ásgeir Ásgeirsson,
einn eigenda hótelsins. „Nú erum
við tilbúin til að taka á móti enn
fleira fólki og ég vona bara að sem
flestir komi til Ólafsfiarðar. Ég vona
að þessi skemmtilegu bjálkahús
verði líka til að auka enn ferða-
mannastrauminn til okkar.“
-HJ