Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.1999, Síða 10
10
MÁNUDAGUR 9. ÁGÚST 1999
Fréttir
Refirnir léku vel fyrir
austurríska sjónvarpið
Þegar austurrískir sjónvarps-
menn voru á ferðinni um daginn og
gerðu þáttaröð um ísland vantaði þá
myndir af refum að leik í náttúr-
unni. Þrátt fyrir leit hafði ekki tek-
ist að finna þá. Ernst Kettler leysti
Fiðurfénaður dýragarðsins í Slakka
er hreinn af öllum bakteríum, tand-
urhreinn í sparifötunum.
málið og hringdi í gamlan sam-
starfsmann á sjónvarpinu, Helga
Sveinbjörnsson, sem rekur dýra-
garðinn í Slakka í Laugarási í Bisk-
upstungum. Hann á tvo yrðlinga
sem hann fékk í vor, ljónfjöruga
rebba.
„Ég ákvað að reyna að verða við
ósk þeirra og setti rafmagnsgirð-
ingu, net, umhverfis svasðið. Svo
var ég búinn að svelta þá í rúman
hálfan sólarhring. Við fórum með
rebbana upp í kletta fyrir ofan bæ-
inn, hentum mat upp í klettana og
slepptum öðrum yrðlingnum. Hann
var fljótur að renna á lyktina. Síðan
var hann að rölta þetta og stökkva
upp og niður kletta, sat efst á klett-
inum og sýndi afburða-skapgerðar-
leik, fannst okkur. Sjónvarpsmenn-
irnir voru alveg í skýjunum og
fengu fínar tökur, líka af þeim
seinni sem við slepptum eftir að
hafa náð hinum. En hvorugan ref-
anna missti ég.“
Dýragarðurinn starfar nú fimmta
árið í röð og er snyrtilegur og
skemmtilegur heim að sækja. -JBP
Ernst Kettler kvikmyndagerðarmaður ásamt austurrísku sjónvarpsmönnunum og öðrum yrðlingnum sem sýndi
sannan skapgerðarleik í sjónvarpsmynd.
Atriði úr leikritinu.
DV-mynd Pétur
Snæfellsnes:
Útileikhús um
kristnitöku
á íslandi
DV, Snæfellsbæ:
Leikritið Nýir tímar eftir Böðv-
ar Guðmundsson rithöfund var
sýnt 29. júlí i lítilli rétt við
Brunná, aðeins vestan við hinn
fræga stað á Snæfellsnesi, Fróðá.
Leikritið er samið að tilhlutan
Kristnitökunefndar Eyjarfjarðar-
prófastsdæmis í tilefni 1000 ára
kristnitökuhátíðar. Leikstjóri var
Hörður Sigurðsson.
Leiksviðið er hið besta - lltill
grasbali þar sem áin rennur í jaðr-
inum og klettaveggir í kring. Bún-
ingar leikaranna og leikmunir
fóru vel við umhverfið. Áhorfenda-
bekkir voru grasi vaxin hlíö með
smástöllum þar sem allir sátu í
stúku. Fór vel um þá og kjamyrt
mál leikaranna heyrðist vel.
Veðrið var mjög gott meðan á
leiksýningunni stóð. Leikritið
gallar um þann tíma er Þorvaldur
víðfórli var að boða kristna trú, í
kringum árið 1000. Tók það 80
mínútur í flutningi og var mjög
skemmtilegt á að horfa. Alls tóku
30 manns þátt í þessari uppfærslu.
Fjölmargir áhorfendur komu að
sjá hana og klöppuðu leikurum lof
í lófa að sýningu lokinni. Meðal
þeirra voru fjórir prestar. Séra
Gunnar Hauksson í Stykkishólmi,
séra Guðjón Skarphéðinsson á
Staðastað, séra Friðrik J. Hjartar í
Ólafsvík og séra Hannes Örn
Blandon, sem einnig tók þátt í sýn-
ingunni.
. -PSJ
UMFERÐAR
RÁÐlRHM
O-kJzoÍA.CiIuflCfX)
f Allir eiga
að nata bílbelti
Lil1l-ll llu í:llLLlll-líllll
UuJJUNotið ekki barnabílstól
í sæti ef uppblásanlegur
öryggispúði er framan við það.
Sextugt kvenfélag í Fljótum
Kvenfélagskonur sungu fyrir gesti sína.
félagskonur til veislu og skemmtun-
ar í félagsheimilinu Ketilási. Tals-
verður íjöldi þekktist boöið, bæði
heimafólk og sumardvalarfólk í
sveitinni. Þar komu einnig Qórir af
sex heiðursfélögum félagsins.
Tvær af þeim konum sem upphaf-
lega stofnuðu félagið eru enn á lífi
og komu þær til samkomunnar. Þar
DV-myndir Örn
er um að ræða frú Sigríði Jóhannes-
dóttur frá Brúnastöðum og frú Jó-
hönnu Antonsdóttur frá Skeiði.
Á samkomunni í Ketilási var flutt
ágrip af sögu kvenfélagsins, sungið
og farið í ýmsa leiki. Þá var að sjálf-
sögðu í boði höfðinglegar veitingar,
grillmatur ásamt tilheyrandi með-
læti, kaffi og tertu. -ÖÞ
DV, Fljótum:
Kvenfélagið Framtíðin í Fljótum
varð 60 ára 26. maí sl. Þann dag árið
1939 komu sex konur í Austur-Fljót-
um saman og stofnuðu félagið. Fljót-
lega fjölgaði í því og síðar gengu
konur úr Vestur-Fljótum einnig í
Framtíðina. Félagar eru nú um 20
talsins.
í tilefni tímamótanna buðu kven-
Þær stóðu að stofnun félagsins fyr-
ir 60 árum - Jóhanna Antonsdóttir
til vinstri og Sigríður Jóhannesdótt-
ir.