Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.1999, Blaðsíða 5
FÖSTUDAGUR 13. ÁGÚST 1999
5
DV
Fréttir
Við blöndum rétta litinn á pallinn þinn
1.785 kr.
35% afsláttur
Óhugguleg uppákoma við Bergstaðastræti:
Fann sprautunál-
ar á bak við hús
„Auðvitað bregður manni við að
sjá svona, þetta er rétt fyrir utan
svefnherbergisgluggann hjá mér,“
segir Gunnar Halldórsson, íbúi á
Bergstaðastræti lla. Tvær spraut-
ur og skeið, áhöld til flkniefna-
neyslu, var það fyrsta sem blasti
við honum þegar hann fór út með
ruslið í fyrradag. Virtist sem leifar
flkniefna væru í skeiðinni. Gunnar
hringdi á lögreglu sem kom og fjar-
lægði sprauturnar. Atvik sem
þessi eru alls ekki óalgeng, að
hennar sögn.
„Það er fullt af fjölskyldufólki
sem býr hér nálægt og böm um allt
hverfið. Kannski verður það ein-
hver krakkinn sem finnur næstu
sprautu. Við bræðurnir erum tveir í
íbúðinni og við vöktuðum staðinn
aftur í fyrrinótt. Um nóttina kom
einhver og við heyrðum umgang en
þegar við rukum út var enginn þar.
Það hefur heyrst til okkar þegar við
fórum út. Þarna var líka samloku-
bréf og eitthvað fleira af matarum-
búðum,“ segir Gunnar.
Hann vildi vara fólk við að skot
sem þessi gætu verið ákjósanleg fyr-
ir þá sem eru í eiturlyfjum og
sprauta sig.
„Það hefur enginn gaman af því
að vita að fyrir utan svefnherbergis-
gluggann sé einhver að sprauta
sig,“ segir Gunnar.
-EIS
Gatnamálastjóri um akrein slökkvistöövar:
Hlutur sem þarf að skoða
Nauðsynlegt er að
bera á nýja palla og
tréverk fyrir veturinn
Aðra palla þarf að
bera á árlega.
Viðarvörn í rétta litnum
HÚSASMIÐJAN
Sími 525 3000 • www.husa.is
Sigurður Skarphéðinsson gatna-
málastjóri vill að það verði athug-
að hvort til greina komi að
slökkviliðið í Reykjavík fái séra-
krein út á Bústaðaveginn. Hrólfur
Jónsson, slökkviliðsstjóri í
Reykjavík, viðraði þá skoðun í DV
í gær að slökkviliðið fengi slíka
akrein þar sem umferðarteppa
gæti skapast við Flugvallarveg
yrði fyrirhuguð bygging reist í
næsta nágrenni við stöðina.
„Ég tel að það sé rétt að skoða
þetta en ég vil ekkert um það segja
hvort þetta sé raunhæft," segir Sig-
urður.
Sigurður Skarphéðinsson gatnamálastjóri vill að það verði athugað hvort til
greina komi að slökkviliðið í Reykjavík fái sérakrein út á Bústaðaveginn.
Hann telur að málið verði athug-
að ef ósk kemur fram um það frá
slökkviliðinu.
„Væntanlega mun skipulags- og
umferðarnefnd fjalla um ósk
slökkviliðsstjóra ef hún kemur
formlega fram. í dag er myndavél
inni í slökkvistöðinni sem sýnir
stöðu umferðarljósanna en mér
skilst að Hrólfur hafi af því áhyggj-
ur að umferðin aukist ef nýtt hús
rís við hliðina. Við skoðum málið ef
ósk um það kemur fram,“ sagði Sig-
urður. -hb
Gunnar Halldórsson bendir á sprauturnar og skeiðina sem hann fann hjá
ruslageymslunni heima hjá sér. Virðist sem leifar fíkniefna séu i skeiðinni.
Vísitala neysluverös:
Veruleg hækkun í júlí
Vísitala ne-ysluverðs miðað við
verðlag í ágústbyrjun 1999 var 190,2
stig og hækkaði um 0,4% frá fyrra
mánuði. Þetta kom fram í frétt Hag-
stofunnar í gær. Vísitala neyslu-
verðs án húsnæðis var 191,6 stig og
hækkaði um 0,3%. Verðlækkun á
fótum og skóm, um 8,5%, sem aðal-
lega stafar af sumarútsölum, leiddi
til 0,49% lækkunar á vísitölu
neysluverðs. Verðhækkun á mat-
vörum um 3,3% hafði í for með sér
0,48% hækkun vísitölu neysluverðs.
Af einstökum matvöruliðum hækk-
aði grænmetisverð um 18,2% sem
olli 0,22% hækkun visitölu og verð-
hækkun á ávöxtum um 11% leiddi
til 0,10% vísitöluhækkunar. Verð á
bensíni og olíu hækkaði um 3,4%
sem olli 0,14% hækkun neysluverðs-
vísitölunnar. Húsaleiga hækkaði
um 2,7% sem hafði í fór með sér
0,07% hækkun á vísitölu neyslu-
verðs.
Síðastliðna tólf mánuði hefur
vísitala neysluverðs hækkað um
4,2% og vísitala neysluverðs án hús-
næðis um 3,2%. Undanfama þrjá
mánuði hefur vísitala neysluverðs
hækkað um 1,5% sem jafngildir
6,3% verðbólgu á ári. -bmg
Þannig skiptast
útgjöld heimilanna
Matur og drykkjarvörur 17,0%
Áfengi og tóbak 3,2%
Föt og skór 5,2%
Hiti og rafmagn 3,3%
Húsgögn, heimilisbúnaður o.fl. 5,3%
Heilsugæsla 3,0%
Ferðir og flutningar 18,1%
Póstur og sími 1,6%
Tómstundir og menning 13,1%
Menntun 1,0%
Hótel og veitingastaðir 5,2%
Ýmsar vörur og þjónusta 9,3%
Húsnæði 14,7%
Samtals 100%
Heimild: Hagstofan