Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.1999, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.1999, Blaðsíða 25
T>'V FÖSTUDAGUR 13. ÁGÚST 1999 29 Hellisbúinn Eftir sumarfrí eru nú hafnar sýningar aftur á hinu vinsæla leikriti Hellisbú- inn en verkið hef- ur verið sýnt við mikla aðsókn frá því í fyrrasumar í íslensku óper- unni, nánast alltaf fyrir fullu húsi. Aðeins einn leikari er í sýn- ingunni, Bjarni Haukur Þórsson. Hugmyndina að verkinu, sem fjallar á skemmti- legan hátt um samskipti kynj- anna, má rekja til leikritsins Defending the Caveman eftir Rob Becker en það hefur ver- ið á fjölunum vestur í Bandaríkj- unum i sex ár. Hallgrímur Helga- son rithöfundur skrifaði Hellisbú- ann og byggir hann verkið á hug- mynd Beckers. Sigurður Sigur- jónsson er leikstjóri. Bjarni Haukur Þórsson leikur hellisbúann. Leikhús Hellisbúinn er verk sem karlar og konur eiga að sjá saman. Verk- ið á að geta gefið lexiu um hitt kynið og gæti ef til vill hjálpað fólki að skilja ýmislegt í fari makans sem hingað til hefur ver- ið torskilið. Næsta sýning á Hell- isbúanum er í kvöld. Árni Johnsen stjórnar brekkusöng í Hveragerði. Blómstrandi dagar Síðastliðin sex sumur hefur áhugamannahópur í Hveragerði staðið fyrir samkomum er kallast Blómstrandi dagar. Hátíðirnar eru tvisvar á sumri, í júní og ágúst. Seinni hátíðin verður nú um helg- ina. Á laugardaginn er hápunktur dagsins kvöldvaka í lystigarðinum við Varmá. Þar mun Ámi Johnsen stjórna brekkusöng við varðeld eins og honum einum er lagið. Kvöldið endar með glæsilegri flugeldasýn- Samkomur ingu. Á sunnudaginn mætir Sprell með barna- og unglingatæki og hestakerra verður á svæðinu. Grill- að verður báða dagana, Gæna smiðj- an býður upp á villijurtate, hvera- svæðið verður opið með leiðsögn og sýningu á íslenskum eðalsteinum, fegurstu garðarnir verða til sýnis og margt, margt fleira. Bikarmót í hestaíþróttum 'Á morgun og sunnudag verður Bikarmót Norðurlands í hestaíþrótt- um haldið á vellinum við Hrings- holt i Svarfaðardal. Þátttökurétt á mótinu hafa hestaíþróttamenn úr Þingeyjar-, Eyjafjarðar-, Skagafjarð- ar- og Húnavatnssýslum. Á mótinu verður keppt í öllum hefðbundnum greinum hestaíþrótta, auk 150 metra skeiðs. Landbúnaður í nútíð og framtíð í dag er haldin ráðstefna i Félags- heimilinu á Hvammstanga sem Húnaþing vestra og Búnaðarsam- band Vestur-Húnvetninga standa að. Gestir fundarins verða Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra, Ari Teitsson, formaður Bændasam- taka íslands, Stefán Gíslason, um- hverfisfulltrúi Sambands íslenskra sveitarfélaga, og Magnús Jónsson háskólarektor, auk fjölda annarra framsögumanna úr héraði. Skálholt og Hallgrímskirkja: Einn stærsti tónlistarviðburður sumarsins er flutningur á Messu í h-moll eftir Johann Sebastian Bach sem flutt verður á tvennum tónleik- um í kvöld og á sunnudaginn. Það eru Mótettukór og Kammersveit Hallgrímskirkju sem flytja, ein- söngvarar eru Þóra Einarsdóttir, sópran, Monica Groop, alt, Gunnar Guðbjörnsson, tenór, og Kristinn Sigmundsson, bassi. Stjórnandi er Hörður Áskelsson. í kvöld hljómar messan í Skálholtsdómkirkju kl. 20 og á sunnudag í Hallgrímskirkju, kl. 20.30. Flutningurinn í Hallgríms- kirkju er liður I dagskrá Kirkju- listahátiðar 1999. í þessum flutningi koma um 90 manns við sögu. Tónleikar Kórinn hefur fengið frábæra ein- söngvara í lið með sér. Þóra og Gunnar eru fremst i hópi ungra ís- lenskra einsöngvara. Þau hafa bæði sungið áður með Mótettukórnum og það er mikið gleðiefni að þau skuli geta sungið með kórnum á þessum tónleikum en annars starfa þau bæði mest við erlend óperuhús. Kristinn Sigmundsson er einn Einsöngvarar á æfingu í Hallgrímskirkju. þekktasti einsöngvari íslendinga í dag. Hann hefur unnið hvern lista- sigurinn á fætur öðrum og því er það mikið tilhlökkunarefni að heyra aftur í honum hér á íslandi. Monica Groop er ein af þekktustu einsöngvurum Finnlands. Hún er talin í hópi bestu mezzósópransöng- kvenna heimsins í dag og er eftir- sótt bæði sem óperu-, óratóríu- og ljóðasöngvari. Monica Groop hefur fengið mikið lof gagnrýnenda fyrir túlkun sína á barokktónlist en hún hefur þar komið fram með mörgum af þekktustu stjórnendum barokktónlistar. Messa í h-moll Veðrið í dag Rigning með köflum Kl. 6 í morgun var austlæg átt, 5-8 m/s, og rigning eða súld víða sunnanlands en annars skýjað og úrkomulítið. Hiti var 7 til 12 stig. Næsta sólarhringinn verður aust- læg átt, víða 5-8 m/s og rigning með köflum, en þurrt að kalla á Norður- og Austurlandi. Hiti 8 til 16 stig yfir daginn, hlýjast norðaustan til. Um 300 km suðvestur af Reykjanesi er 1002 mb lægð sem hreyfist austsuð- austur, en yfir Grænlandi er 1020 mb hæð. Á höfuðborgarsvæðinu verður austan 5-8 m/s og rigning öðru hverju. Hiti 9 til 13 stig. Sólarlag í Reykjavík: 21.52 Sólarupprás á morgun: 05.14 Síðdegisffóð í Reykjavík: 19.52 Árdegisflóð á morgun: 08.15 Veðrið kl. 6 í morgun: Akureyri skýjaö 9 Bergsstaöir rigning og súld 8 Bolungarvík skýjað 9 Egilsstaöir Kirkjubœjarkl. rigning 9 Keflavíkurflv. rign. á síö.kls. 11 Raufarhöfn þoka 9 Reykjavík alskýjaö 10 Stórhöfði súld 10 Bergen skýjaö 12 Helsinki léttskýjaö 13 Kaupmhöfn léttskýjaó 16 Ósló léttskýjaö 11 Stokkhólmur 14 Þórshöfn skýjaö 10 Þrándheimur léttskýjaö 6 Algarve heiöskírt 18 Amsterdam skýjaö 14 Barcelona skýjaó 20 Berlín skýjaö 12 Chicago skýjaö 24 Dublin skýjaó 16 Halifax súld 17 Frankfurt hálfskýjaö 10 Hamborg hálfskýjaö 14 Jan Mayen rigning 5 London rign. á síö.kls. 15 Lúxemborg skýjaó 11 Mallorca skýjaö 23 Montreal léttskýjaö 19 Narssarssuaq heióskírt 9 New York hálfskýjaö 24 Orlando þokumóöa 24 París skýjaö 12 Róm léttskýjaó 23 Vín skýjaö 15 Washington þokumóöa 24 Winnipeg heiöskírt 7 Víkurvegur lokaður við Vesturlandsveg Vegir um hálendið eru flestir orðnir færir, í flest- um tilfellum er þó átt við að þeir séu aðeins jeppa- færir. Víkurvegi í Grafarvogi hefúr verið lokað við Vesturlandsveg og verður hann lokaður til 22. ágúst. Færð á vegum Við það lokast akstursleiðir í og úr Grafarvogi um Víkurveg. Vegfarendum er bent á að aka um Höfðabakka og Gullinbrú á meðan. Bjarki Þór Myndarlegi drengurinn á myndinni, sem fengið hefur nafnið Bjarki Þór, fæddist á fæðingardeild Landspítalans 30. janúar síðastliðinn kl. 11.48. Barn dagsins Hann flýtti sér pínulítið i heiminn og var ekki nema 9 merkur við fæö- ingu og 47 sentímetrar. Foreldrar Bjarka Þórs eru Ámý Sigurðardóttir og Valdimar Þór Hall- dórsson og er hann þeirra fyrsta bam. Scott Wolf og Jay Mohr leika fé- lagana Adam og Zack. Farðu Háskólabíó sýnir um þessar mundir Farðu (Go) sem gerð er af Doug Liman sem vakti mikla at- hygli fyrir fyrstu kvikmynd sína, Swingers. í Go segir frá nokkmm ungmennum og reynslu þeirra af miður heppilegum aðstæðum. Það sem skilur myndina nokkuð frá öðrum er að hún er með fjóra út- gangspunkta frá sama staðnum þannig að áhorfendur sjá sama at- burðinn frá ólíkum sjónarhorn- um. í aðalhlutverkum eru ungir leikarar y/////// sem hafa vakið at- /////, Kvikmyndir hygli að undanförnu í nýjum kvikmyndum. Þessir leik- arar eru Kate Holmes, Scott Wolf, Sarah Polley og Jay Mohr og leika þau ungmenni sem em á villigöt- um í undirheimum Los Angeles. Myndin gerist á 24 tímum. Þess má geta að Go var sýnd á Sund- ance-kvikmyndahátíðinni við mikla hrifningu hátíðargesta. Nýjar myndir í kvikmyndahúsum: Bíóhöllin: Ressurection Saga-Bíó:Tarzan and the Lost City Bióborgin: The Other Sister Háskólabíó: Notting Hill Háskólabíó: Fucking Ámál Kringlubíó: Wild Wild West Laugarásbíó: Austin Powers Regnboginn: Virus Stjörnubíó: Universal Soldiers I Krossgátan 1 2 3 4 5 6 7 8 B 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 Lárétt: 1 gagn, 7 fornsaga, 8 saur, 10 sló, 11 komast, 13 ókeypis, 16 vam- ingur, 18 gufu, 19 þjóta, 21 eykta- mark, 23 slíta, 24 snemma. Lóðrétt: 1 heilög, 2 siða, 3 smuga, 4 flani, 5 kyn, 6 flökt, 12 tré, 14 bjálki, 15 veiðarfæri, 16 hugfólginn, 17 form, 20 frá, 22 oddi. Lausn á síðustu krossgátu: Lárétt: 1 lúfa, 5 hef, 8 áræða, 9 rá, 10 tilgang, 12 úða, 13 álfa, 15 næsti, 17 ró, 19 æsta, 21 nót, 22 stuna. r Lóðrétt: 1 látún, 2 úrið, 3 fælast, 4 aðgát, 5 hvað, 6 ern, 7 fága, 11 alinn, 14 fróa, 16 ess, 18 ótt, 20 au.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.