Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.1999, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.1999, Blaðsíða 8
8 FÖSTUDAGUR 13. ÁGÚST 1999 Útlönd Stuttar fréttir i>v Barnadauði eykst í írak Bandaríkjamenn kenna Sadd- am Hussein íraksforseta um hið háa hlutfall barnadauða í írak, sem lýst er í nýútkominni skýrslu bamaverndarstofnunar SÞ, UN- ICEF. í skýrslunni kom fram að barna- dauði hefur rúmlega tvöfaldast á stjórnsvæðum Saddams i suður- og miðhluta íraks frá þvi efna- hagsþvingamir SÞ hófust fyrir níu árum. En í norðurhlutanum, sem Kúrdar ráða, þar sem SÞ stjómar dreifíngu matar og lyfja, hefur bamadauði minnkað síðan skipti á mat og oliu, skv. ákveðinni áætl- un, hófust árið 1996. Bandaríkin segja stjómvöld í írak hafa hindraö dreifingu lífs- nauðsynja sem þeim stóð til boða samkvæmt áætluninni og hamstur þeirra sé ástæðan fyrir vandanum. „Við getum ekki leyst vandamál sem sprottið er upp í einræðinu i Bagdad," sagði James Rubin, biaðafulltrúi bandaríska utan- ríkisráöuneytisins. U.S. INTERIMATIONflL Bráðvantar fólk 1000-2000 $, hlutastarf 2500-5000 $, fullt starf Þjálfun og frítt flug til Los Angeles. Viðtalspantanir í síma 698 4200 og 898 9995. Netfang: iris@mmedia.is Uppboð Uppboð mun byrja á skrifstofu embættisins að Strandgötu 52, Eskifirði, sem hér segir á eftir- ________farandi eign:____ Strandgata 23, Eskifirði, þingl. eig. Jórunn Valgeirsdóttir, gerðarbeiðend- ur Almenna málflutningsstofan sf. og fslandsbanki hf., höfuðst. 500, mánu- daginn 16. ágúst 1999, kl. 10.30. SÝSLUMAÐURINN Á ESKIFIRÐI Skotmaöurinn viöurkennir hatursmorö á bréfberanum: Var með 3 staði gyðinga í sigtinu Nýnasistinn Buford Furrow, sem hefur verið ákærður fyrir að særa fimm manns í félagsmiðstöð gyð- inga í Los Angeles og myrða bréf- bera með köldu blóði, hafði kannað aðstæður á þremur samkomustöð- um gyöinga áður en hann lét til skarar skríða í félagsmiðstöðinni en fundist öryggisgæsla þar of ströng. Frá þessu er greint i bandaríska dagblaðinu Los Angeles Times í morgun. Furrow fann félagsmiðstöðina eft- ir að hann fór út af hraðbrautinni til að kaupa bensín. Að sögn blaðs- ins hafði hann ekki í hyggju að ráð- ast á böm. „Bömin voru fyrir,“ á Furrow að hafa sagt við yfirheyrslur hjá lög- reglunni. Hann hefur verið úrskurð- aður í gæsluvarðhald og hafnaði dómari beiðni um lausn gegn trygg- ingu. Að sögn saksóknara viðurkenndi Buford Furrow varð að hætta við árásir á þrjá staði gyðinga vegna strangs öryggiseftirlits. Furrow við yfirheyrslur að hafa myrt bréfberann, sem var af filippseysku bergi brotinn, af því að hann hafi verið ágætt skotmark. Bréfberinn var skotinn til bana um það bil klukkustund eftir árásina á félagsmiðstöðina. Furrow mun hafa skotið bréfber- ann tíu sinnum af því að hann hélt að hann væri frá Rómönsku Amer- íku eða Asíu. í réttinum í gær glotti Furrow til blaðamanna sem vora þar og sagði við lögmann sinn svo hátt að allir heyrðu: „Þeir eru allir hrifnir af mér.“ Bill Clinton Bandaríkjaforseti sagði í gær að greinilegt væri að kynþáttahatur hefði verið kveikjan að skotárásinni í félagsmiðstöðinni. Forsetinn hvatti landa sina til að lýsa yfir stuðningi sínum við lög um hert eftirlit með byssum og til að berjast gegn hatursglæpum. Uppákomulistamaðurinn Jim Rose greip til nýstárlegra aðferða til að mótmæla ákvörðunum forráðamanna hliðar- hátíðarinnar í Edinborg um að takmarka frelsi götulistamanna: Hann skar út orðið „No“ í epli með aðstoð keðjusag- ar. Og eins og sjá má var eplið uppi í munninum á aðstoðarmanni hans. Götulistamenn verða nú að skrá sig ef þeir ætla að sýna listir sínar gestum og gangandi f Edinborg þar sem mikil listaveisla stendur yfir. Ekki sérréttindi eftir aðskilnað Færeyingar geta ekki gert sér vonir um að njóta áfram þeirra sérréttinda sem þeir hafa haft í Danmörku þeg- ar Færeyjar hafa hlotið full- veldi. Þetta segir Poul Nyrup Rasmussen, for- sætisráðherra Danmerkur, í viötali við færeyska blaðið Sosial- urin í dag. Danski forsætisráðherrann, sem var í heimsókn í Færeyjum á dögunum, segir í viðtalinu að eft- ir aö eyjamar fái fullveldi verði Færeyingar eins og hverjir aðrir útlendingar í Danmörku. Hann segist ekki vera að flytja neinn hræðsluáróður, heldur líti hann á það sem skyldu sína að segja Fær- eyingum eins og er. Fullveldishugmyndirnar njóta æ meiri stuðnings Færeyinga. Skemmdirnar gífuriegar Skemmdimar af völdum ský- strokksins sem fór yfir miðborg Salt Lake City í Utah í fyrradag olli skemmdum sem metnar eru á rúma tíu milljarða íslenskra króna. Jeltsín sigurviss Borís Jeltsín Rússlandsfor- seti sagði í morgun að hann væri viss um að Dúman, neðri deild rúss- neska þingsins, myndi leggja blessun sína yfir Vladímír Pútín í embætti forsætisráðherra. Dúm- an greiðir atkvæði um nýjustu til- nefningu Jeltsíns á mánudag. Könnun í iowa Einn mikilvægasti undanfari forsetakosninganna í Bandarikj- unum verður í Iowa á laugardag þegar fram fer óformleg könnun um hug manna til forsetafram- bjóðenda flokkanna. Sprakk hjá löggunni Að minnsta kosti átta manns fórust þegar sprenging varð i Maníllaskrifstofum fllippseysku rannsóknarlögreglunnar í morg- un. Skrifstofumar gjöreyðilögð- ust. Þing með alræðisvald Þingið i Venesúela veitti sjálfu sér nánast alræðisvald í gær til að geta ráðskast með allar stofnanir landsins. Eldsprengjur í Höfn Tveimur eldsprengjum, sk. mólótovkokkteilum, var varpað í Kaúpmannahöfn í nótt, annarri að lögreglustöð. Engan sakaði. Barak afstýrir deiium Forsætisráð- herra ísraels, Ehud Barak, af- stýrði í morgun mögulegri kreppu hinni mánaðargömlu ríkisstjórn sinni með því að fresta flutningi á 300 tonna túrbínu í eitt orkuver ísraels. Flutningurinn átti að fara fram á helgidegi gyðinga og höfðu strangtrúaðir gyðingar í Shas- flokknum, sem aðild á að ríkis- stjóminni, hótað að hætta sam- starfinu ef af flutningunum yrði. Viagra deyðir Svía Tveir sænskir karlmenn, 66 og 80 ára, létust eftir að þeir neyttu Viagra getuleysislyfsins. Báðir áttu við hjartavandamál að stríða en dauðsföllin eru nú rannsökuð. Kamfýló í Danmörku Kamfýlóbakter-gerillinn er víð- ar vandamál en á íslandi. Hann er orðinn algengásta orsök matar- eitranar í Danmörku (leysti af salmonelluna) og reikna dön'sk yf- irvöld með að 40 þúsund Danir sýkist í ár. Chelsea Chelsea Clinton, dóttir Bills Banda- ríkjaforseta, sást nýverið skemmta sér á marokkóskum veitingastað og næturklúbbi í London ásamt tveimur karl- kyns vinum sínum. Starfsfólk staðarins gaf herrni hvítan kjól frá Marokkó að skilnaði. 12 ára drengur stunginn 12 ára enskur drengur liggm- á gjörgæslu eftir hnífstungur geð- sjúks manns er gekk berserks- gang á Mið-Englandi á miðviku- dag. Drengurinn var að reyna að vemda litla bróður sinn. Faðir þeirra særðist einnig alvarlega í árásinni auk þess sem ellilífeyris- þegi var myrtur. i London

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.