Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.1999, Síða 14
LAUGARDAGUR 14. ÁGÚST 1999 T>V
- % á mér draum
Kolbrún Bergþórsdóttir er í eðli sínu óraunsæ og heltekin draumórum:
Langar að verða ferða-
glaður milljónamæringur
Kolbrún Bergþórsdóttir blaðamaður, sem nýlega var kjörin verst klædda kona íslands, á sér marga drauma sem
flestir snúast um ferðalög til útlanda. Taj Mahal hofið á Indlandi er ofarlega á óskalistanum yfir þá staði sem hana
langar til þess að heimsækja.
„Ég var kennarablók til margra
ára á tilheyrandi lágu kaupi og er
enn að rífa mig upp úr fjárhagslegri
vesalmennsku og vona að það takist
innan ekki of margra ára. Ég held í
sannleika sagt að ég verði aldrei
fullkomlega hamingjusöm fyrr en
ég hef öðlast frjálsræði í þeim mál-
um því allir draumar mínir snúast
um ferðalög til útlanda,“ segir Kol-
brún Bergþórsdóttir, blaðamaður á
Degi, spurð um drauma sína.
„Mig langar mikið að fara aftur
til Feneyja, sem er fallegasta borg í
heimi, mig langar að sjá Taj Mahal
hofið á Indlandi og píramídana í
Egyptalandi, svo aðeins fá dæmi séu
tekin,“ segir Kolbrún og bætir því
við að hún sé orðin 42 ára gömul og
barnlaus og muni sennilega ekki
eignast barn úr þessu. Því hafi hún
fullt frelsi til þess að gera það sem
hana langar til í lífinu. En átti hún
sér engan bernskudraum?
„Ég átti mér svipaðan draum og
flestar litlar stúlkur, aö verða fræg
leikkona, sem er í sjálfu sér mjög
fyndið þar sem ég verð skelfingu
lostin ef ég stend uppi á palli og á að
gera eitthvað eða segja eitthvað fyr-
ir framan hóp af fólki. Mér er nokk
sama um kvikmyndavélar og hefði
þvi kannski getað orðið kvikmynda-
stjarna, en leikkonudraumurinn
sýnir hvað ég er í eðli mínu óraun-
sæ og heltekin draumórum sem
enginn grundvöllur er fyrir.“
Kolbrún skammast sín greinilega
fyrir að segja það, en hana hefur
líka alltaf dreymt um að verða millj-
ónamæringur.
„Já, ég el í brjósti mér þennan
fyrirlitlega draum, sem er þess vald-
andi að ég kaupi mér sýknt og heil-
agt miða í happdrættum og lotterí-
um. Þessi draumur tengist vita-
skuld stóra draumnum því til þess
að geta lagst í ferðalög af einhverju
viti verður maður að geta hætt að
vinna en hafa samt efni á að lifa vel.
Ég væri líka alveg til í að liggja
bara heima í bókum á milli ferða-
laga.“
Kolbrún hefur aldrei unnið í
happdrættum, þrátt fyrir alla spila-
mennskuna, en einu sinni verið
ansi nálægt því.
„Ég var alltaf með sömu tölurnar
og einn laugardaginn átti ég einung-
is eftir að fara út í sjoppu til þess að
láta renna miðanum í gegn. Þá
hringdi í mig ung og nýgift kona
sem var i þeirri erfiðu stöðu að vita
af manninum sínum úti í bæ að
halda fram hjá henni. Ég sýndi
sanna kratíska fómfýsi og fór og
huggaði hana en lét lottómiðann
lönd og leið. Það kvöld kom 400.000
króna vinningur á miðann.“
Kolbrún Bergþórsdóttir verður
því greinilega að stunda launaða
vinnu enn um sinn áður en hún
leggur heiminn að fótum sér. -þhs
%nm breytingar
Myndirnar tvær virðast við
fyrstu sýn eins en þegar betur er
að gáð kemur í ljós að á myndinni
til hægri hefur fimm atriðum ver-
ið breytt.
Finnir þú
þessi
fimm at-
riði
skaltu
merkja
við þau
með
krossi á
myndinni til hægri og senda okk-
ur hana ásamt nafni þínu og
heimilisfangi. Að tveimur vikum
liðnum birtum við nöfn sigur-
vegaranna.
i'-
1. verðlaun:
United sími með
símanúmerabirti frá
Sjónvarpsmiðstöðinni,
Siðumúla 2,
að verðmæti kr. 6.990.
2. verðlaun:
Tvær Úrvalsbækur að verðmæti
kr. 1570, Sekur eftir Scott Turow og
Kólibrísúpan eftir David Parry og
Patrick Withrow.
Vinningarnir veróa sendir heim.
Merkið umslagið með lausninni:
Finnur þú fimm
breytingar? 528
c/o DV, pósthólf 5380 125 Reykjavík
Rnnur þú fimm breytingar? 528
Svo eru það náttúrlega armarnir, úr 150 ára gamalli eik.
Nafn:____________________________________________________
Heimili:_________________________________________________
Vinningshafar fyrir getraun
númer 526 eru:
1. verðlaun:
Gunnar Gunnarsson,
Dúfnahólum 4.
111 Reykjavík.
2. verðlaun:
Sigurrós Karlsdóttir,
Berjarima 22.
112 Reykjavík.
BRETLAND
SKÁLDSÖGUR - KILJUR:
í. James Patterson: When the Wind
Blows.
2. Sebastian Faulks: Charlotte Grey.
3. Nlcholas Evans: The Loop.
4. Jane Green: Mr Maybe.
5. Barbara Taylor: A Sudden Change of
Heart.
6. Patricia Cornwell: Point of Origin.
7. Ben Elton: Blast from the Past.
8. Stepen King: Bag of Bones.
9. Rosie Thomas: Moon Island.
10. Maeve Blnchy: Tara Road.
RIT ALM. EÐLIS - KILJUR:
1. Amanda Foreman: Georgina,
Duchess of Devonshire.
2. Anthony Beevor: Stalingrad.
3. Chris Stewart: Driving over Lemons.
4. John Grey: Men Are from Mars,
Women Are from Venus.
5. Simon Wlnchester: The Surgeon of
Crowthorne
6. John O’Farrell: Things Can only Get
Better.
7. Frank McCourt: Angela’s Ashes.
8. Bill Bryson: Notes from a Small Is-
land.
9. Tony Hawks: Around Ireland with a
Fridge.
10. Andrea Ashworth: Once in a House
of fire.
INNBUNDNAR SKÁLDSÖGUR:
1. Thomas Harrls: Hannibal.
2. Terry Brooks: Star Wars Episode 1:
The Phantom Menace.
3..Kathy Relchs: Death Du Jour.
4. Jllly Cooper: Score!
5. Chris Ryan: Tenth Man Down.
6. Elizabeth George: In Pursuit of the
Proper Sinner.
INNBUNDIN RIT ALM. EÐLIS:
1. David West Reynolds: Star Wars
Episode 1: The Visual Dictionary.
2. David West Reynolds: Star Wars Ep-
isode 1: Incredible Cross- Sections.
3. Matt Groenlng: Bart Simpson's
Guide to Life.
4. Lenny McLean: The Guv’nor.
5. Star Wars Eplsode 1: Who s Who.
6. Terry Pratchett et al: The Science of
Discworld.
( Byggt á The Sunday Tlmes)
BANDARÍKIN
SKÁLDSÖGUR- KIUUR:
1. Anlta Shreve: The Pilot's Wife.
2. Arthur Golden: Memoirs of a Geisha.
3. Patricla Cornwell: Point of Origin.
4. Helen Fieldlng: Bridget Jones' Diary.
5. Clive Cussler og Paul Kemprecos:
Serpent: The MUMA Files.
6. Rebecca Wells: Divine Secrets of
the Ya-Ya Sisterhood.
7. Jane Feather: The Accidental Bride.
8. John Irvlng: A Widow for One Year.
9. Bernard Schllnk: The Reader.
10. Wally Lamb: I Know This Much Is
True.
RIT ALM. EÐLIS- KIUUR:
1. Frank McCourt: Angela's Ashes.
2. John Berendt: Midnight in the
Garden of Good and Evil.
3. Robert C. Atkins: Dr. Atkins' New
Diet.
4. Gary Klnder: The Seat of the Soul.
5. lyanla Vanzant: Don't Give it Away.
6. Jared Diamond: Guns, Germs and
Steel.
7. Adellme Yen Mah: Falling Leaves.
8. Richard Carlson: Don't Sweat the
Small Stuff.
9. Gary Kinder: Ship of Gold in the
Deep Blue Sea.
10. Blll Bryson: A Walk in the Woods.
INNBUNDNAR SKÁLDSÖGUR:
1. Thomas Harris: Hannibal.
2. Melinda Haynes: Mother of Pearl.
3. Danielle Steel: Granny Dan.
4. Janet Fltch: White Oleander.
5. W.E.B. Griffin: The Soldier Spies.
6. Lawrence Sanders: McNally s
Dilemma.
INNBUNDIN RIT ALM. EÐLIS:
1. Bob Woodward: Shadow: Five Pres-
idents and the Legacy of Watergate.
2. Mitch Albom: Tuesday with Morrie.
3. M.F. Roizen & E. A. Stevenson: Real
Age.
4. Sarah Ban Breathnach: Something
More.
5. Blll Phlllps: Body for Life.
6. Suzanne Somers: Suzanne
Somers'Get Skinny on Fabulous
Food.
( Byggt á The Washlngton Post)