Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.1999, Blaðsíða 27
27
U"V LAUGARDAGUR 14. ÁGÚST 1999
Húsbóndahollusta og vinnusemi Vladímírs Pútíns fleytti honum á toppinn:
Grái kardínálinn
- skrifborðsþrællinn sem varð forsætisráðherra
Skjótur og óvæntur frami Vla-
dímírs Pútíns, nánast óþekkts yfir-
manns úr rússnesku leyniþjónust-
unni, kom heiminum i opna skjöldu
síðasta mánudag. Þá skipaði Boris
Jeltsín, forseti
Rússlands, Pútín
sjötta forsætisráð-
herra Rússlands á
síðustu 18 mánuð-
um og tilkynnti
um leið að KGB-
maðurinn fyrrver-
andi væri sá sem
hann treysti best
til að verða eftir-
maður sinn á for-
setastóli.
Pútín tók af all-
an vafa um það að
hann ætlaði sér í framboð til forseta
og um nýja embættið sagði hann
einfaldlega, á sinn stuttorða og
þungbúna hátt:
„Mér var gert tilboð og ég þáði
það.“
Heimurinn klóraði sér í hausn-
um: Hver er þessi maður?
Pútín fæddist 7. október árið 1952
í Leníngrad, eða Sankti Pétursborg,
og er því 46 ára að aldri. Hann nam
lög í heimaborg sinni og útskrifað-
ist 1975 en hvarf þá til starfa í
leynilögreglunni KGB.
Frá 1975 til 1984 var hann óbreytt-
ur skrifborðsþræll í innanlands-
deild KGB en var svo sendur til
Dresden, þá í Austur-Þýskalandi,
sem njósnari. Þar starfaði hann
næstu sex árin, allt fram að falli
Berlinarmúrsins.
Skiptar skoðanir
Lítið er vitað um störf Pútíns fyr-
ir KGB en ljóst er að þar var hann
langt frá því að komast til æðstu
metorða og gegndi stöðu undirof-
ursta þegar hann hætti. Heimildir
innan KGB herma að hann hafi að-
eins verið einn af hundruðum
venjulegra útsendara og jafngilt
„núlli og nixi“ innan stofnunarinn-
ar.
Hins vegar bera gagnnjósnadeild-
ir vestrænna ríkja, sem fylgdust
með Pútín frá 1984, honum allt aðra
og betri sögu. Skýrslur þeirra segja
hann hæfileikaríkan á mörgum
sviðum, snjallan skipuleggjanda
með skarpan huga og gæddan frá-
bærum stjómunarhæfileikum.
Pútín hefur ávallt forðast að ræða
um þennan hluta starfsferils síns en
viðurkennir þó að hann tali þýsku
reiprennandi.
Grái kardínálinn
Árið 1990 lauk kalda stríðinu og
því varð Pútín að finna sér störf á
öðrum vettvangi. Hann hélt aftur til
Sankti 'Pétursborgar og hóf afskipti
af rússneskum stjórnmálum sama
ár sem aðstoðarmaður Anatólýs
Sobtsjín borgarstjóra.
Þar vann hann á bak við tjöldin í
skugga yfirmanns síns en stóð sig
svo vel að hann varð fljótlega
ómissandi í rekstri borgarinnar.
Fyrir samviskusemi, húsbóndaholl-
ustu og lítt áberandi störf sín fékk
hann viðurnefnið grái kardínálinn,
sem loðað hefur viö hann síðan, og
tók fyrsta skrefið á framabrautinn
er hann varð aðstoðarborgarstjóri
árið 1994.
Sífellt valdameiri
Tveimur árum siðar, árið 1996 eft-
ir kosningaósigur Sobchaks, flutti
Pútín sig til stóru strákanna i
Kreml og hóf að feta sig upp valda-
stigann þar. Talið er að flutningur
hans til Moskvu og stöðuhækkunin
hafi verið runninn undan lifjum
Anatoly Chubais, höfundar hinnar
umdeildu einkavæðingaráætlunar
Rússlands, sem einnig er frá Sankti-
Pétursborg.
Pútín gegndi hinum ýmsu emb-
ættum fyrir ríkisstjórnina, og varð
sífellt valdameiri.
Meðal annars var
honum falið að sjá
um samskipti
hinna 89 sam-
bandsríkja Rúss-
lands og fékk í því
embætti orð á sig
fyrir að vera harð-
ur sameiningar-
sinni, þ.e. þjóðern-
issinnaður að því
marki að hann
barðist gegn því að
völd leiðtoga ríkja
í sjálfstæðishugleiðingum væru
aukin.
í júlí á síðasta ári varð Pútín yfir-
maður ríkisöryggisþjónustunnar,
eins arftaka KGB, og í mars á þessu
ári einnig ritari hins ráðgefandi Ör-
yggisráðs en sú tilnefning var talin
staðfesta aðdáun Jeltsíns á hollustu
og þögulli hæfni Pútíns.
Afturhaldssinni atast í
umhverfissinnum
Frjálslyndir í leynilögreglunni
fógnuðu hinum gamla félaga þó
ekki nema meö hálfum huga þar
sem litið var á hann sem afturhalds-
sinna.
Störf hans hjá leynilögreglunni
voru upp og ofan og að margra mati
ollu þau vonbrigðum. Óneitanlega
mistókst Pútín að takast á við og
leysa mörg mikilvæg mál en kaus í
staðinn að eyða miklum tíma og
peningum í að atast í umhverfis-
verndarsinnum og þeim sem sö-
kuðu stjórnvöld um umhverfi-
sspjöll.
Pútín álitur meira að segja að er-
lendar leyniþjónustur séu á bak við
starf margra umhverfisvemdarsam-
taka og hefur notað þá skoðun sína
sem átyllu til að gera þeim lífið leitt.
Stóra hnossið
Pútín fór fyrir leyniþjónustunni
allt þangað til stóra hnossið féll hon-
um í skaut fyrir tæpri viku og sjá
má að frami þessa þögulla og þurra
manns hefur verið með ólíkindum
síðasta áratuginn, allt frá því að
vera undirtylla í borgarstjórn
heimaborgar sinnar til þess að
verða forsætisráðherra og hugsan-
lega einhvem tímann forseti, æðsti
maður ríkisins.
Ráðning Pútíns og brottrekstur
Stepasjíns er ekki talinn liður í
efnahagsaðgerðum eins og flestar
hrókeringar Jeltsíns á valdamönn-
um hafa verið hingað til heldur er
fyrst og fremst talið að Jeltsín sé að
tryggja sér hollan og hlýðinn eftir-
mann.
Einnig hefur vakið athygli að
Pútín er þriðji forsætisráðherrann í
röð sem kemur úr röðum leynilög-
reglunnar - hver sem ástæðan fyrir
því er.
Arftaki Jeltsíns?
Jeltsín hefur ekki áður talað svo
skýrt um hvern hann vilji helst fá
sem eftirmann sinn þó svo hann
hafi ýjað að hinum og þessum nöfn-
um í gegn um tíðina. En reynslan
hefur sýnt að Jeltsin er maður óþol-
inmóður og fallið getur komið jafn-
snögglega og framinn fyrir forsætis-
ráðherra hans.
Takist Pútín að halda stuðningi
hans mun það reynast honum gífur-
lega dýrmætt í forsetaslagnum þar
sem hann mun sennilega berjast
gegn Júrí Lúsjkov, borgarstjóra
Moskvu, og /eða Jevgeni Prímakov,
fyrrverandi forsætisráðherra.
Hin óvænta skipan Pútíns og
brottrekstur Stepasjíns olli tafar-
lausu gengisfalli rúblunnar og lækk-
un á rússneskum hlutabréfum þang-
að til áhættufjárfestingar hækkuöu
þau aftur. Síðan hefur efnahagsá-
standið verið nokkuð stöðugt en
mörg lönd hafa einmitt lýst þvi yfir
að stöðugleiki í Rússlandi sé fyrir
mestu og meðan svo sé séu út- og
innáskiptingar Jeltsíns rússneskt
innanríkismál.
Viðbrögð sumra Moskvubúa voru
öllu afdráttarlausari:
„Viö hverju býstu af veikum for-
seta og trúðaflokki hans,“ sagði
rússnesk kona aðspurð um álit sitt
á breytingunum.
EHent
fréttaljós
Finnur Þór Vilhjálmsson
Trúður eða töframaður? Hinn lúsiðni og þjóðholli Vladímír Pútín.
Handklæði
Ainerísk 645 kr.
gæðahandklæði
frá CANNON
aii( Iklaði 40x70 sm
895 kr.
I lauclkbiöi()7.\l.'50siii
Trygging hf.
óskar eftir tilboðum í neðanskráðar bifreiðar sem hafa
skemmst í umferðaróhöppum
Toyota Corolla 1999
ToyotaYaris 1999
Kia Grand Sportage 1999
Volkswagen Polo 1998
Toyota Corolla Wagon 1998
Mazda 323 1998
Land Rover Defender 1998
Nissan Terrano II 5SE 1998
Toyota Carina E 1997
Peugeot306 1997
Toyota Corolla XLi 1997
Volkswagen Golf 1996
Suzuki Baleno GL 1996
Nissan Primera Wagon 1995
Nissan Sunny Wagon 1994
Hyundai Pony 1994
Saab 9000 CS 1992
Nissan Primera SLX 1991
Suzuki GSX750F bifhjól 1990
Mitsubishi Lancer 1989
Chrysler LeBaron 1988
Daihatsu Charade 1988
Jeep Cherokee 1985
Mazda 626 1985
Bifreiðamar verða til sýnis mánudaginn 16. ágúst 1999
í Skipholti 35 (kjallara), frá kl. 9-15.
Tilboðum óskast skilað fyrir kl. 16 sama dag til
Tryggingar hf., Laugavegi 178, 105 Reykjavík,
sími 540 6000.
aukaafslótt af
Smáauglýsingar
smáauglýsingum DV
DV
550 5000