Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.1999, Blaðsíða 35

Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.1999, Blaðsíða 35
I>V LAUGARDAGUR 14. ÁGÚST 1999 43 mik Hér sjást vinirnir Helgi Steinar Þorsteinsson, ingiberg Þorsteinsson og Ari Már Gunnarsson með forsíður tveggja töiubtaða tónlistarblaðsins Sánd en annað tölublað kemur út um helgina. Blaðið er sérlega efnismikið og vandað og áhugavert fyrir alla þá sem áhuga hafa á tónlist, kvikmyndum og öðru efni, tengdu skemmtanabransanum. Ungir drengir gefa út tónlistarblað í 5000 eintökum: Von á Sánd Um helgina kemur annað tölu- blað tímaritsins Sánd út en þeir sem standa að blaðinu eru allh' nemendur í Hólabrekkuskóla, í 7. til 10. bekk. Það eru bræðurnir Helgi Steinar og Ingiberg Þor- steinssynir og Ari Már Gunnars- son. Þeir skipta blaðinu með sér þannig að Helgi er Ijósmyndari, Ingiberg fer með hlutverk ritstjóra en Ari Már er tæknimaður. „Við fjöllum um alla tónlist, kvikmynd- ir, snjó- og hjólabretti og fleira. Við tókum viðtöl við alla helstu tónlistarmenn landsins og það hafa allir verið mjög jákvæðir fyr- ir því sem við erum að gera,“ seg- ir Ingiberg. Okeypis blað Sánd kemur út í um 5000 eintök- um og er dreift víða um land í tón- listarverslanir, fataverslanir og snjóbrettaverslanir. Blaðið er ókeypis en drengirnir fjármagna blaðið með auglýsingum og öflun auglýsinga segja þeir að hafi gengið vonum framar. Sánd kemur í fram- haldi af Prodigy-blaði þeirra félaga en þeir byrjuðu að vinna að því 1997. Þeir voru á þeim tíma miklir aðdáendur bresku hljómsveitarinn- ar Prodigy. „Við fundum blað úti í búð um Prodigy og ætluðum að þýða efni upp úr því en þá kviknaði sú hugmynd að það væri kannski skemmtilegra að gera heilt blað í staðinn fyrir að þýða eina grein.“ Tímaritið Sánd er sem sagt fram- hald Prodigy-blaðsins en nýjasta tölublaðið er sérstaklega efnismikið og skartar hljómsveitinni Ensími á forsíðu. Blaðið er ekki hugsað fyrir neinn sérstakan aldurshóp og er því ekki sérstakt unglingablað þrátt fyr- ir ungan aldur þeirra sem að því standa. En hverjar skyldu uppá- haldshljómsveitir þeirra vera sem lifa og hrærast í tónlistarbransan- um? Þeir Helgi Steinar og Ari Már eru samtaka í því þegar þeir segjast hafa gaman af flestum íslenskum hljómsveitum en: „Við getum ekki dæmt á milli hljómsveita þegar við erum að gera tónlistarblað." -þor 7AVVV/AV\V/i\VV/A\T/A\V/A\\f Norræna Afríkustofnunin auglýsir hér með FERÐASTYRKI til rannsókna í Afríku. ,Síðasti umsóknardagur er 16. september 1999. NÁMSSTYRKIR til náms við bókasafn stofnunarinnar tímabilið janúar-júní 2000. Síðasti umsóknardagur er 1. nóvember 1999. Sækja skal um á sérstökum eyðublöðum sem hægt er að fá gegnum Netið: http://wwww.nai.uu.se, eða hjá Nordiska Afrikainstitutet P.O. Box 1703, SE-751 47 Uppsala, Sverige Sími 00 46 18 56 22 00 Tölvupóstur: nai@nai.uu.se VERZLUNARSKÓLIÍSLANDS auglýsir eftir kennara í fulla stöðu í hagfræöi og viðskiptagreinum fyrir næsta skólaár, eða frá l. nóvember nk. Hér er um að ræða spennandi tækifæri fyrir liugmyndaríkan einstakling með góða viðskiptamenntun. Tómas Bergsson, síma 557-9872, veitir nánari uppiýsingar um starfið. Umsóknir sendist til skólastjóra, Þorvarðar Elíassonar, síma 568-8400, tölvupóstfang: thorvard@verslo.is. VERZLUNARSKÚLIÍSLANDS með öllu, ek. 15 þús. km, dekurbíll, sem nýr. Upplýsingar í síma 566 7363 og á kvöldin í síma 566 7196. Húsbréf Útdráttur húsbréfa Nú hefur farið fram útdráttur húsbréfa 1 eftirtöldum ftokkum: 1. flokki 1991 - 31. útdráttur 3. flokki 1991 - 28. útdráttur 1. flokki 1992 - 27. útdráttur 2. flokki 1992 - 26. útdráttur 1. flokki 1993 - 22. útdráttur 3. flokki 1993 - 20. útdráttur 1. flokki 1994 - 19. útdráttur 1. flokki 1995 - 16. útdráttur 1. flokki 1996 - 13. útdráttur 2. flokki 1996 - 13. útdráttur 3. flokki 1996 - 13. útdráttur Koma þessi bréf tii inniausnar 15. október 1999. Öll númerin verða birt í Lögbirtingablaóinu. Auk þess eru númer úr fjórum fýrsttöldu flokkunum hér að ofan birti Morgunblaðinu sunnudaginn 15. ágúst. Upplýsingar um útdregin húsbréf liggja frammi hjá íbúðalánasjóði, í bönkum, sparisjóðum og verðbréfafýrirtækjum. íbúðalánasjóður j Suðurlandsbraut 24 | 108 Reykjavík | Sími 569 6900 [ Fax 569 6800
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.