Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.1999, Blaðsíða 52
60 l'Íidfa/
LAUGARDAGUR 14. ÁGÚST 1999 UV
Helga Vilborg, ein söngelsku systranna á Kristnihátíð:
Margir lifa í
ótta og myrkri
„Við í Kangakvartettinum eigum
allar persónulega trú á Jesú Krist
og við viljum boða trú í gegnum
sönginn. Tónlistin er alheimstungu-
mál og við teljum að þetta sé góð
leið til þess að ná til jafnt ungra sem
aldinna," segir Helga Vilborg Sigur-
jónsdóttir, en hún er ásamt þremur
öðrum að fara að syngja á Kristni-
tökuhátíð í Laugardalshöllinni á
morgun. Þær syngja íjölbreytt lög,
bæði tónlist frá Afríku og hefðbund-
ið gospel.
Kanga er orð úr svahílí og er nafn
á litskrúðugum klæðum sem konur
nota sem pils eða sjöl. Jafnframt
nota þær kanga til þess að bera
börnin sín á bakinu og svo vefja
þær því um höfuðið til þess að hafa
undirstöðu fyrir vatnskrukkur og
fleira sem þær þurfa að bera á höfð-
inu.
Gleðin skín úr
andlitunum
„Við erum tvennar systur sem
höfum sungið saman í eitt og hálft
ár. Heiðrún og Ólöf eru aldar upp í
Keníu þar sem foreldrar þeirra voru
kristniboðar í tólf og hálft ár. Fjöl-
skyldan hefur líka starfað mikið hér
á íslandi síðustu árin. Markmiðið
hjá kvartettinum er að boða trúna á
Jesú Krist og vekja athygli á
kristniboðsstarfinu. Við syngjum
söngva frá Afríku, Keníu og Eþíóp-
íu.“
Hvaða erindi á það við íslend-
inga?
„Við viljum að íslendingar geri
sér grein fyrir því að það er fólk úti
í heimi sem ekki þekkir fagnaðarer-
indið um Jesú Krist, en það fagnað-
arerindi er það mikilvægasta í okk-
ar lífi og margra annarra. Ég veit að
það eru margir sem eru mjög nei-
kvæðir gagnvart kristniboðsstarf-
inu og standa í þeirri meiningu að
kristniboðar séu að troða sinni trú
upp á fólk. Sú er ekki raunin.
Kristniboðar boða trúna bæði í orði
og verki, þeir byggja upp skóla og
sjúkraskýli og hafa unnið mikið
starf. Margir Afríkubúar lifa líka í
miklum ótta og myrkri, en þegar
þeir hafa tekið á móti Kristi sem
frelsara verður mikil breyting í lífi
þeirra og gleðin skín út úr andlit-
unum. Það er varla hægt að lýsa því
fyrir þeim sem ekki hefur séð það
með eigin augum.“
Börnum hent fyrir
krókódila
Trúarbrögð margra Eþíópíubúa
byggjast, að sögn Helgu, mikið á trú
á anda forfeðranna og þekkingu á
djöflinum og lifir fólkið í stöðugum
ótta. „í dal einum í Suður-Eþíópíu
sér fólkið sífellt merki þess hvemig
illu andamir ætla að hegða sér. Ef
móðir er með barn á brjósti og verð-
ur á meðan ófrísk að öðru bami, þá
þarf að henda báðum börnunum
fram af bjargi og fyrir krókódílana
þar sem þau telja að bölvun hljótist
af þessu fyrir allan þjóðflokkinn -
uppskerubrestur eða hræðilegir
Vinsamlega
athugið að
síðasti skiladagup
auglýsinga ep
löstudagupinn
20. ágúst.
Umsjón efnis helur Hörður Kristjénsson, sími 550 5812.
Umsjón auglýsinga: Selma Rut, súni 550 5720, eða
Dagný Jóhannesdóttir, sími 550 5729.
tgrnnjM.T B
TgfF i
HÍf-Tjp 1
gSSS jSg 17.
SHii m jngan, froð ^ækt/viðtc leikur 1 o.fM
Helga Vilborg Sigurjónsdóttir segir að kristniboð sé bráðnauðsynlegt í þeim
löndum þar sem það er stundað því þar lifi fólk í stöðugum ótta við illa anda.
í Eþíópíu sé nýfæddum börnum til dæmis fleygt fyrir krókódíla ef móðirin
verður ófrísk með barn á brjósti. DV-mynd þök
Hér eru hinar söngelsku systur, sem í sameiningu mynda Kangakvartettinn,
að skemmta. Heiðrún og Ólöf Inger Kjartansdætur og Agla Marta og Helga
Vilborg Sigurjónsdætur. Þær koma fram í afrískum klæðum sem þær kenna
sig við.
sjúkdómar. Eins þegar barn fær
tennur fyrst í efri góm, þá er það til
marks um bölvun. Konum i Eþíópíu
þykir alveg jafn vænt um börnin sín
og íslenskum foreldrum og hafa
margar þeirra komið með börn til
íslensku kristniboðanna og beðið þá
að bjarga þeim. Kristið fólk hefúr
tekið bömin að sér í þorpi aðeins
lengra frá.“
Helga Vilborg segir að allt sé auð-
vitað misjafnt eftir þjóðflokkum, en
myrkrið og óttinn sé rikjandi. Kjör
kvenna séu sérstaklega bágborin,
þar sem þær eru eign eiginmanns
síns og hafa lítil sem engin réttindi.
Berjum engan í hausinn
meo Biblíunni
En meðtekur fólk erindið?
„Já, vegna þess að þar er von og
frelsi sem það þekkti ekki áður og
fólk sér að þarna er eitthvað sem er
öðruvísi. Kristniboðarnir byrja held-
ur ekki á því að berja fólk í hausinn
með Biblíunni, heldur verða þeir
fyrst og fremst vinir þess. Öll kristni-
boðsfræðsla miðar líka að því að gera
kristniboðana óþarfa.
Fjölskylda Helgu Vilborgar hefur
starfað fyrir Kristniboðssambandið í
margar kynslóðir. Hvað ætlar hún að
gera?
„Sjálf fór ég líka út til Eþíópíu í eitt
ár eftir að ég lauk stúdentsprófi og
starfaði þar í kristniboðsskóla. En
þeir sem fara út sem kristniboðar
fara ekki af ævintýraþrá eða í gróða-
von, heldur vegna þess að þeir fá köll-
un frá guði. Ég er ekki viss um að ég
hafi enn fengið köllun til þess að
leggja kristniboð fyrir mig, þó að ég
útiloki það ekki,“ segir Helga Vil-
borg.