Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1999, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1999, Blaðsíða 6
6 FÖSTUDAGUR 27. ÁGÚST 1999 Viðskipti Þetta helst: ... Viðskipti á VÞÍ 2.413 m.kr. ... Mest með húsbréf 1.255 m.kr. ... Hlutabréf 250 m.kr. ... Mest með íslandsbanka 56 m.kr ... Úrvalsvísitala hækkaði um 0,093%, er nú 1.273,5 ... Ný- herji hækkar um 4% ... Flugleiðir lækka um 2,5% eftir milliuppgjör ... SR-mjöl lækkar um 4 % ... Afkoma ríkissjóðs: Skuldir minnka um 17 milNarða Aö mati íjármálaráðuneytisins end- urspeglar afkoma ríkissjóðs það hag- stæða efhahagsástand sem ríkt hefur hér á landi undanfarin ár. Hagvöxtur hér er meiri en gengur og gerist, at- vinnuleysi er lítið og fer minnkandi og kaupmáttur eykst. Ríkissjóður greiddi niður skuldir að verðmæti 17 milljarð- ar á síðasta ári, samanborið við 3 millj- arða árið 1997. Sem hlutfall af lands- framleiðslu lækkuðu skuldir ríkissjóðs úr 45,6% í 40,6%. Erlendar skuldir rík- issjóðs eru nú 117 miiijarðar eða 20% af landsframleiðslu. Árið 1997 var þessi tala 23,9%. Það er því ljóst að um verulegan umsnúning er að ræða hvað skuldastöðu ríkissjóðs snertir. Þvi ber hins vegar ekki að gleyma að á árun- um 1983 og fram til ársins 1994 jukust skuldir mjög hratt. Minnkun skulda Tap SR- mjöls 60 milljónir Tap SR-mjöls hf. af reglulegri starfsemi fyrstu sex mánuði árs- ins nam 43 milljónum króna en hagnaður á sama tíma í fyrra nam 155 milljónum króna. Tap fyrir fjármagnsgjöld og í]ár- magnstekjur nam 37 milljónum króna en á sama tímabili í fyrra var hagnaöur 240 milljónir króna. Að teknu tilliti til niður- færslu eignar í hlutdeildarfélög- um, þar sem gjaldfærður er hluti mismunar á upphaflegu kaup- verði annars vegar og hlutdeild- ar í eigin fé við kaup hins vegar, er tap félagsins 60 milljónir króna. Veltufé frá rekstri var 140 milljónir króna en á sama tíma- bili I fyrra 390 milljónir króna. Samdráttur 1 veltu nemur 309 milljónum króna eða 12% og eig- infjárhlutfall félagsins er 47%. Hráefnisaukning Unnið hráefni fyrstu 6 mánuði ársins var um 240 þúsund tonn. Á sama tíma í fyrra var þetta magn um 170 þúsund tonn. Aukning nemur 70 þúsund tonn- um milli ára en í fyrra var veru- legur samdráttur frá árinu áður. Verð afurða félagsins hefur lækkað mikið á þessu ári. Þessi lækkun kom ekki á óvart en var fyrr á ferðinni en búist hafði verið við. Öll fyrirtæki sem byggja af- komu sína á loðnu, mjöli og síld hafa mátt þola mikla verðlækk- un á afurðum sínum. Athygli vekur 'hversu misjaMega fyrir- tækjum gengur að fóta sig í þess- ari lækkun og einna áhugaverð- ust er afkoma Síldarvinnslunnar auk þess sem afkoma Tanga var ágæt. -bmg Skipamiðlunin Bátar & Kvóti I LSími: 568 3330 Tekjur og gjöld ríkissjóðs sem Tekiuraiisjj hlutfall af landsframleiðslu Gjöld alls O Heimild: Fjármálaráöuneytiö , 32,4% 1996 1997 1998 f»zn 1994 1995 28,9% 24,8% nú skiptir miklu máli fyrir framtíðina og jafnar skattbyrði komandi kyn- slóða. Gjöld og tekjur vaxa Þrátt fyrir að staða rikissjóðs sé góð núna vekur athygli hvemig tekjur og gjöld þróast. Reyndar gerir nýtt kerfi samanburð milli ára erfiðan. Það sem er hins vegar ljóst er hvemig tekjur og gjöld innan einstakra ára hafa þróast. Lítill munur var á tekjum og gjöldum ríkissjóðs árið 1997 en í fyrra var mun- urinn verulegur þar sem gjöld umfram tekjur sem hlutfall af landsframleiðslu vom 1,5%. Útgjöld og tekjur ríkisins vaxa jafnt og þétt að raungildi þrátt fyrir að sem hlutfall af landsfram- leiðslu hafi gjöldin farið minnkandi. -bmg Heildarhagnaður Tanga 83,3 milljónir króna - en tap af reglulegri starfsemi nam 16,5 milljónum króna Afkoma Tanga hf. á Vopnafirði var mun lakari á fyrstu sex mánuð- um ársins 1999 samanborið við fyrstu 6 mánuði ársins 1998. Hagn- aður af rekstri félagsins fyrstu sex mánuði yfirstandandi árs nam 83,3 milljónum króna en 16,5 milljóna króna tap varð af reglulegri starf- semi félagsins á tímabilinu. Hagn- aður af reglulegri starfsemi félags- ins á fyrstu 6 mánuðum ársins 1998 nam 86,5 milljónum króna þannig að um verulegan viðsnúning til hins verra er að ræða. Þessi mikla breyting milli ára skýrist fyrst og fremst af tvennu. Annars vegar kemur til mikil verð- lækkun á mjöli og lýsi og hins veg- ar sú staðreynd að lítið sem ekkert hefur verið fryst af loðnu hjá félag- inu það sem af er þessu ári en félag- iö hefur á undanfómum árum fiár- fest verulega í búnaði til loðnu- og síldarfrystingar. Afkoman er betri en margir sérfræðingar á fiármála- mörkuðum gerðu ráð fyrir. Til dæmis segir Kaupþing að áhættu- sæknir fiárfestar ættu að fylgjast vel með gengi hlutabréfa Tanga. Verri skilyrði í loðnu- og síldarvinnslu Versnandi afkoma Tanga hf. stafar aö verulegu leyti af þeim miklu breytingum sem orðið hafa á Friörik Már Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri Tanga. rekstrarforsendum í veiðum og vinnslu á uppsjávarfiski. Lækkun afurðaverðs í mjöl- og lýsisvinnslu dregur úr veltu og framlegð bæði í vinnslu- og útgerðarþáttum rekstr- arins. Þá hafði það mikil áhrif á rekstur félagsins að markaðir fyrir frysta loðnu í Rússlandi voru í upp- námi fram eftir árinu en um þessar mundir virðist þó vera að rofa til í þeim málum. Ekki samkvæmt áætlun „Það gefur augaleið að ég er ekki ánægður með þessa niðurstöðu sem er nokkru lakari en áætlanir fyrir- tækisins gerðu ráð fyrir. Hvaö framhaldið varðar er alveg ljóst að félagið á mikið undir því að úr ræt- ist í markaðsmálum fyrir frystar af- urðir og jafnframt hvað varðar mjöl og lýsi. Mjölverð er nú farið að þok- ast upp á við og aukinnar bjartsýni virðist farið að gæta varðandi sölu á frystri loðnu í haust. Endurskoð- un rekstraráætlunar félagsins er ekki lokið en þó liggur fyrir að end- anleg afkoma ársins er aö verulegu leyti háð því hver þróunin verður í veiðum og vinnslu á uppsjávarfiski á síðari hluta ársins. Það eru vissu- lega jákvæðar fréttir að frá áramót- um og til dagsins í dag höfum við tekið á móti 64 þúsund tonnum af uppsjávarfiski í bræðslu. Þetta er met því áður höfðum við mest tekið á móti 62 þúsund tonnum á heilu ári, sem var árið 1997,“ segir Frið- rik Már Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri Tanga hf. -bmg Hagnaður Síldarvinnslunnar 83,4 milljónir - forstjórinn sáttur í ljósi aðstæöna Síldarvinnslan hf. var rekin með 83,4 milljóna króna hagnaöi fyrstu sex mánuði ársins 1999 sam- anborið við 208,7 milljónir árið á undan. Hagnaður af reglulegri starfsemi fyrir skatta var 99 millj- ónir. Veltufé frá rekstri nam 220,7 milljónum samanborið við 350,1 milljón árið áður. Rekstrartekjur félagsins drógust saman um 25% milli ára og námu 1,65 milljörðum samanborið við 2,2 millj- arða árið áður. Rekstrargjöld drógust saman um 24% milli ára og námu 1,37 milljörðum. Minnkun rekstrartekna má fyrst og fremst rekja til mikillar lækkunar á afúrðaverði fyrir mjöl og lýsi. Efnahagur félagsins er traustur og voru heildareignir í júnUok 6,76 milljarðar. Eiginfiárhlutfall í júnUok er 39,2% og veltufiárhlutfaU er 1,48. Afkoman betri en áætlun Reksturinn er nokkru betri en áætl- anir gerðu ráð fyrir og má fyrst og fremst rekja það tU þess að veiðar á loðnu og súd gengu betur á tímabUinu en ráð var gert fyrir. Einnig var hátt verö á bolfiskafúrðum. Áætlanir gerðu ráð fyrir tapi upp á 16,5 miUj. kr. á tímabUinu. Afkoman seinni hluta árs- ins ræðst mjög af veiðum á loðnu og sUd á haustmánuðum svo og af verð- þróun á mjöl- og lýsisafúrðum. Gert er ráð fýrir að afkoman verði í jámum seinni hluta ársins gangi aUar veiðiá- ætlanir eftir. Tiltölulega sáttir „Við erum tUtölulega sáttir við þessa niðurstöðu miðað við aðstæður og ástand á mörkuðum. AUtaf má þó gera betur og okkar vinna á næstu mánuðum liggur í því að fara betur í saumana á öUum rekstrarþáttum með það að markmiði að gera betur. Hvem- ig okkur tekst tU verður tíminn að leiða í ljós en við erum bjartsýn á framtið félagsins og teljum möguleik- ana mUda,“ segir Björgólfur Jóhanns- son, forstjóri SUdarvinnslunnar hf. -bmg Góð afkoma Þorbjörns hf. Sjávarútvegsfyrirtækið Þor- björn hf. skilaði 187,6 mfiljóna hagnaði fyrstu 6 mánuði ársins 1999 en það eru 16,3% af tekjum. Hagnaður af reglulegri starf- semi, fyrir skatta, varð 193,6 milljónir. Rekstrartekjur hafa lækkað um 19% og rekstrar- kostnaður hefur lækkað um 30,4% frá sama tímabUi sl. ár. Rekstrarhorfur eru almennt góðar i næstu framtíð. Umfram áætlanir Hagnaður Hans Petersen hf. eftir skatta nam 14,9 miUjónum króna á fyrstu sex mánuðum ársins. Áætlanir gerðu hins veg- ar ráð fyrir aðeins 2 mUljóna hagnaði. Þess ber að geta að af- koma fyrirtækisins er háð árs- tíðasveiflum og er að jafnaði mun betri á seinni helmingi árs. Mikill hagnaður Pharmaco Hagnaður Pharmaco á fyrstu sex mánuðum ársins var 201 mUljón króna samanborið við 53 mifijóna hagnað í fyrra. Hins vegar dregst hagnaður af reglu- legri starfsemi saman á mUli ára, var 64 miUjónir í fyrra en er nú 48 miUjónir. Gengi bréfa Pharmaco lækkuðu í kjölfar uppgjörsins. Sölutekjur ríkissjóðs Á síðasta ári voru aðrar tekj- ur ríkis- sjóðs 4 mUljarðar. Það eru aðrar tekj- ur en skatt- tekjur og aðrir fastir liðir. Þar vega þyngst tekjur ríkissjóðs af eign- um sem námu 2,5 miUjörðum króna. Óvíst er með sölutekjur af eignum á þessu ári, meðal annars vegna óvissu um sölu á hlut ríkisins í FBA. Verðbréfun hf. stofnað Eignarhaldsfélagið Bruna- bótafélag íslands, Samvinnulíf- eyrissjóðurinn og Landsbanki íslands hf. hafa stofnað félagið Verðbréfun hf. TUgangur félags- ins eru kaup og eignarhald safna fasteignaveðlána af Lands- banka íslands hf. og að standa að eigin fiármögnun með útgáfu markaðshæfra skuldabréfa og víkjandi lána tU fagfiárfesta. Lögheimili félagsins er í Austur- stræti 11, Reykjavík. Fram- kvæmdastjóri félagsins er Jón Sigurjónsson viðskiptafræðing- ur. Ljósavík og FH stefna að sameiningu Bæjarráð Húsavíkur hefur samþykkt að selja Ljósavík hf., Þorlákshöfn, 20% hlut í Fisk- iðjusamlagi Húsavíkur hf. Verö- ur stefnt að því að koma strax á nánu samstarfi þessara tveggja aðUa með það fyrir augum að fyrirtækin verði sameinuð 1. september nk. Fyrir söluna átti Húsavíkurbær 46,4% hlut í Fisk- iðjusamlaginu. Minnkandi hagvöxtur Á öðrum ársfiórðungi þessa árs var hagvöxtur í Bandaríkj- unum 1,8% samkvæmt nýjum tölum sem birtar voru í gær. Bú- ist hafði verið viö að vöxturinn yrði 2,3% á tímabUinu. Þrátt fyrir minni vöxt en búist hafði verið við er áfram gert ráð fyrir að mikiU hagvöxtur verði á ár- inu, eða um 4,3%. Efnahagur Bandaríkjanna stendur því enn traustum fótum. -bmg

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.