Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1999, Page 6
6
FÖSTUDAGUR 27. ÁGÚST 1999
Viðskipti
Þetta helst: ... Viðskipti á VÞÍ 2.413 m.kr. ... Mest með húsbréf 1.255 m.kr. ... Hlutabréf 250
m.kr. ... Mest með íslandsbanka 56 m.kr ... Úrvalsvísitala hækkaði um 0,093%, er nú 1.273,5 ... Ný-
herji hækkar um 4% ... Flugleiðir lækka um 2,5% eftir milliuppgjör ... SR-mjöl lækkar um 4 % ...
Afkoma ríkissjóðs:
Skuldir minnka um
17 milNarða
Aö mati íjármálaráðuneytisins end-
urspeglar afkoma ríkissjóðs það hag-
stæða efhahagsástand sem ríkt hefur
hér á landi undanfarin ár. Hagvöxtur
hér er meiri en gengur og gerist, at-
vinnuleysi er lítið og fer minnkandi og
kaupmáttur eykst. Ríkissjóður greiddi
niður skuldir að verðmæti 17 milljarð-
ar á síðasta ári, samanborið við 3 millj-
arða árið 1997. Sem hlutfall af lands-
framleiðslu lækkuðu skuldir ríkissjóðs
úr 45,6% í 40,6%. Erlendar skuldir rík-
issjóðs eru nú 117 miiijarðar eða 20%
af landsframleiðslu. Árið 1997 var
þessi tala 23,9%. Það er því ljóst að um
verulegan umsnúning er að ræða hvað
skuldastöðu ríkissjóðs snertir. Þvi ber
hins vegar ekki að gleyma að á árun-
um 1983 og fram til ársins 1994 jukust
skuldir mjög hratt. Minnkun skulda
Tap SR-
mjöls 60
milljónir
Tap SR-mjöls hf. af reglulegri
starfsemi fyrstu sex mánuði árs-
ins nam 43 milljónum króna en
hagnaður á sama tíma í fyrra
nam 155 milljónum króna. Tap
fyrir fjármagnsgjöld og í]ár-
magnstekjur nam 37 milljónum
króna en á sama tímabili í fyrra
var hagnaöur 240 milljónir
króna. Að teknu tilliti til niður-
færslu eignar í hlutdeildarfélög-
um, þar sem gjaldfærður er hluti
mismunar á upphaflegu kaup-
verði annars vegar og hlutdeild-
ar í eigin fé við kaup hins vegar,
er tap félagsins 60 milljónir
króna. Veltufé frá rekstri var 140
milljónir króna en á sama tíma-
bili I fyrra 390 milljónir króna.
Samdráttur 1 veltu nemur 309
milljónum króna eða 12% og eig-
infjárhlutfall félagsins er 47%.
Hráefnisaukning
Unnið hráefni fyrstu 6 mánuði
ársins var um 240 þúsund tonn.
Á sama tíma í fyrra var þetta
magn um 170 þúsund tonn.
Aukning nemur 70 þúsund tonn-
um milli ára en í fyrra var veru-
legur samdráttur frá árinu áður.
Verð afurða félagsins hefur
lækkað mikið á þessu ári. Þessi
lækkun kom ekki á óvart en var
fyrr á ferðinni en búist hafði
verið við.
Öll fyrirtæki sem byggja af-
komu sína á loðnu, mjöli og síld
hafa mátt þola mikla verðlækk-
un á afurðum sínum. Athygli
vekur 'hversu misjaMega fyrir-
tækjum gengur að fóta sig í þess-
ari lækkun og einna áhugaverð-
ust er afkoma Síldarvinnslunnar
auk þess sem afkoma Tanga var
ágæt. -bmg
Skipamiðlunin
Bátar & Kvóti
I LSími: 568 3330
Tekjur og gjöld ríkissjóðs sem Tekiuraiisjj
hlutfall af landsframleiðslu Gjöld alls O
Heimild: Fjármálaráöuneytiö
, 32,4%
1996
1997
1998
f»zn
1994
1995
28,9%
24,8%
nú skiptir miklu máli fyrir framtíðina
og jafnar skattbyrði komandi kyn-
slóða.
Gjöld og tekjur vaxa
Þrátt fyrir að staða rikissjóðs sé góð
núna vekur athygli hvemig tekjur og
gjöld þróast. Reyndar gerir nýtt kerfi
samanburð milli ára erfiðan. Það sem
er hins vegar ljóst er hvemig tekjur og
gjöld innan einstakra ára hafa þróast.
Lítill munur var á tekjum og gjöldum
ríkissjóðs árið 1997 en í fyrra var mun-
urinn verulegur þar sem gjöld umfram
tekjur sem hlutfall af landsframleiðslu
vom 1,5%. Útgjöld og tekjur ríkisins
vaxa jafnt og þétt að raungildi þrátt
fyrir að sem hlutfall af landsfram-
leiðslu hafi gjöldin farið minnkandi.
-bmg
Heildarhagnaður Tanga 83,3 milljónir króna
- en tap af reglulegri starfsemi nam 16,5 milljónum króna
Afkoma Tanga hf. á Vopnafirði
var mun lakari á fyrstu sex mánuð-
um ársins 1999 samanborið við
fyrstu 6 mánuði ársins 1998. Hagn-
aður af rekstri félagsins fyrstu sex
mánuði yfirstandandi árs nam 83,3
milljónum króna en 16,5 milljóna
króna tap varð af reglulegri starf-
semi félagsins á tímabilinu. Hagn-
aður af reglulegri starfsemi félags-
ins á fyrstu 6 mánuðum ársins 1998
nam 86,5 milljónum króna þannig
að um verulegan viðsnúning til
hins verra er að ræða.
Þessi mikla breyting milli ára
skýrist fyrst og fremst af tvennu.
Annars vegar kemur til mikil verð-
lækkun á mjöli og lýsi og hins veg-
ar sú staðreynd að lítið sem ekkert
hefur verið fryst af loðnu hjá félag-
inu það sem af er þessu ári en félag-
iö hefur á undanfómum árum fiár-
fest verulega í búnaði til loðnu- og
síldarfrystingar. Afkoman er betri
en margir sérfræðingar á fiármála-
mörkuðum gerðu ráð fyrir. Til
dæmis segir Kaupþing að áhættu-
sæknir fiárfestar ættu að fylgjast
vel með gengi hlutabréfa Tanga.
Verri skilyrði í loðnu- og
síldarvinnslu
Versnandi afkoma Tanga hf.
stafar aö verulegu leyti af þeim
miklu breytingum sem orðið hafa á
Friörik Már Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Tanga.
rekstrarforsendum í veiðum og
vinnslu á uppsjávarfiski. Lækkun
afurðaverðs í mjöl- og lýsisvinnslu
dregur úr veltu og framlegð bæði í
vinnslu- og útgerðarþáttum rekstr-
arins. Þá hafði það mikil áhrif á
rekstur félagsins að markaðir fyrir
frysta loðnu í Rússlandi voru í upp-
námi fram eftir árinu en um þessar
mundir virðist þó vera að rofa til í
þeim málum.
Ekki samkvæmt áætlun
„Það gefur augaleið að ég er ekki
ánægður með þessa niðurstöðu sem
er nokkru lakari en áætlanir fyrir-
tækisins gerðu ráð fyrir. Hvaö
framhaldið varðar er alveg ljóst að
félagið á mikið undir því að úr ræt-
ist í markaðsmálum fyrir frystar af-
urðir og jafnframt hvað varðar mjöl
og lýsi. Mjölverð er nú farið að þok-
ast upp á við og aukinnar bjartsýni
virðist farið að gæta varðandi sölu
á frystri loðnu í haust. Endurskoð-
un rekstraráætlunar félagsins er
ekki lokið en þó liggur fyrir að end-
anleg afkoma ársins er aö verulegu
leyti háð því hver þróunin verður í
veiðum og vinnslu á uppsjávarfiski
á síðari hluta ársins. Það eru vissu-
lega jákvæðar fréttir að frá áramót-
um og til dagsins í dag höfum við
tekið á móti 64 þúsund tonnum af
uppsjávarfiski í bræðslu. Þetta er
met því áður höfðum við mest tekið
á móti 62 þúsund tonnum á heilu
ári, sem var árið 1997,“ segir Frið-
rik Már Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Tanga hf.
-bmg
Hagnaður Síldarvinnslunnar 83,4 milljónir
- forstjórinn sáttur í ljósi aðstæöna
Síldarvinnslan hf. var rekin
með 83,4 milljóna króna hagnaöi
fyrstu sex mánuði ársins 1999 sam-
anborið við 208,7 milljónir árið á
undan. Hagnaður af reglulegri
starfsemi fyrir skatta var 99 millj-
ónir. Veltufé frá rekstri nam 220,7
milljónum samanborið við 350,1
milljón árið áður.
Rekstrartekjur félagsins drógust
saman um 25% milli ára og námu 1,65
milljörðum samanborið við 2,2 millj-
arða árið áður. Rekstrargjöld drógust
saman um 24% milli ára og námu 1,37
milljörðum. Minnkun rekstrartekna
má fyrst og fremst rekja til mikillar
lækkunar á afúrðaverði fyrir mjöl og
lýsi. Efnahagur félagsins er traustur
og voru heildareignir í júnUok 6,76
milljarðar. Eiginfiárhlutfall í júnUok
er 39,2% og veltufiárhlutfaU er 1,48.
Afkoman betri en áætlun
Reksturinn er nokkru betri en áætl-
anir gerðu ráð fyrir og má fyrst og
fremst rekja það tU þess að veiðar á
loðnu og súd gengu betur á tímabUinu
en ráð var gert fyrir. Einnig var hátt
verö á bolfiskafúrðum. Áætlanir gerðu
ráð fyrir tapi upp á 16,5 miUj. kr. á
tímabUinu. Afkoman seinni hluta árs-
ins ræðst mjög af veiðum á loðnu og
sUd á haustmánuðum svo og af verð-
þróun á mjöl- og lýsisafúrðum. Gert er
ráð fýrir að afkoman verði í jámum
seinni hluta ársins gangi aUar veiðiá-
ætlanir eftir.
Tiltölulega sáttir
„Við erum tUtölulega sáttir við
þessa niðurstöðu miðað við aðstæður
og ástand á mörkuðum. AUtaf má þó
gera betur og okkar vinna á næstu
mánuðum liggur í því að fara betur í
saumana á öUum rekstrarþáttum með
það að markmiði að gera betur. Hvem-
ig okkur tekst tU verður tíminn að
leiða í ljós en við erum bjartsýn á
framtið félagsins og teljum möguleik-
ana mUda,“ segir Björgólfur Jóhanns-
son, forstjóri SUdarvinnslunnar hf.
-bmg
Góð afkoma Þorbjörns hf.
Sjávarútvegsfyrirtækið Þor-
björn hf. skilaði 187,6 mfiljóna
hagnaði fyrstu 6 mánuði ársins
1999 en það eru 16,3% af tekjum.
Hagnaður af reglulegri starf-
semi, fyrir skatta, varð 193,6
milljónir. Rekstrartekjur hafa
lækkað um 19% og rekstrar-
kostnaður hefur lækkað um
30,4% frá sama tímabUi sl. ár.
Rekstrarhorfur eru almennt
góðar i næstu framtíð.
Umfram áætlanir
Hagnaður Hans Petersen hf.
eftir skatta nam 14,9 miUjónum
króna á fyrstu sex mánuðum
ársins. Áætlanir gerðu hins veg-
ar ráð fyrir aðeins 2 mUljóna
hagnaði. Þess ber að geta að af-
koma fyrirtækisins er háð árs-
tíðasveiflum og er að jafnaði
mun betri á seinni helmingi árs.
Mikill hagnaður Pharmaco
Hagnaður Pharmaco á fyrstu
sex mánuðum ársins var 201
mUljón króna samanborið við 53
mifijóna hagnað í fyrra. Hins
vegar dregst hagnaður af reglu-
legri starfsemi saman á mUli
ára, var 64 miUjónir í fyrra en er
nú 48 miUjónir. Gengi bréfa
Pharmaco lækkuðu í kjölfar
uppgjörsins.
Sölutekjur ríkissjóðs
Á síðasta
ári voru
aðrar tekj-
ur ríkis-
sjóðs 4
mUljarðar.
Það eru
aðrar tekj-
ur en skatt-
tekjur og
aðrir fastir
liðir. Þar
vega
þyngst tekjur ríkissjóðs af eign-
um sem námu 2,5 miUjörðum
króna. Óvíst er með sölutekjur
af eignum á þessu ári, meðal
annars vegna óvissu um sölu á
hlut ríkisins í FBA.
Verðbréfun hf. stofnað
Eignarhaldsfélagið Bruna-
bótafélag íslands, Samvinnulíf-
eyrissjóðurinn og Landsbanki
íslands hf. hafa stofnað félagið
Verðbréfun hf. TUgangur félags-
ins eru kaup og eignarhald
safna fasteignaveðlána af Lands-
banka íslands hf. og að standa
að eigin fiármögnun með útgáfu
markaðshæfra skuldabréfa og
víkjandi lána tU fagfiárfesta.
Lögheimili félagsins er í Austur-
stræti 11, Reykjavík. Fram-
kvæmdastjóri félagsins er Jón
Sigurjónsson viðskiptafræðing-
ur.
Ljósavík og FH stefna að
sameiningu
Bæjarráð Húsavíkur hefur
samþykkt að selja Ljósavík hf.,
Þorlákshöfn, 20% hlut í Fisk-
iðjusamlagi Húsavíkur hf. Verö-
ur stefnt að því að koma strax á
nánu samstarfi þessara tveggja
aðUa með það fyrir augum að
fyrirtækin verði sameinuð 1.
september nk. Fyrir söluna átti
Húsavíkurbær 46,4% hlut í Fisk-
iðjusamlaginu.
Minnkandi hagvöxtur
Á öðrum ársfiórðungi þessa
árs var hagvöxtur í Bandaríkj-
unum 1,8% samkvæmt nýjum
tölum sem birtar voru í gær. Bú-
ist hafði verið viö að vöxturinn
yrði 2,3% á tímabUinu. Þrátt
fyrir minni vöxt en búist hafði
verið við er áfram gert ráð fyrir
að mikiU hagvöxtur verði á ár-
inu, eða um 4,3%. Efnahagur
Bandaríkjanna stendur því enn
traustum fótum.
-bmg