Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1999, Side 14

Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1999, Side 14
14 FÖSTUDAGUR 27. ÁGÚST 1999 BORGARSKIPULAG REYKJAVIKUR BORGARTÚN 3 • 105 REYKJAVlK • SÍMI 563 2340 • MYNDSENDIR 562 3219 Auglýsing um breytingu á aðalskipulagi Reykjavíkur 1996 - 2016, deiliskipulag fyrir suðaustur hluta Laugardals og lóðina að Laugavegi 180 í samræmi við 21. og 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari breytingum, eru hér með auglýstar til kynningar deiliskipulagstillögur fyrir greind svæði og tillaga að breytingu á aðalskipulagi Reykjavíkur 1996- 2016. Laugardalur, aðalskipulag Aðalskipulagstillagan lýtur að því að því að breyta svæði í suðaustur hluta Laugardals, er afmarkast af Suðurlandsbraut í suðvestur og Engjavegi í norðaustur og suðaustur, úr blöndu af almennu útivistarsvæði og stofnanasvæði í athafnasvæði. Laugardalur, deiliskipulag Deiliskipulagstillagan lýtur að svæði í suðaustur hluta Laugardals, er afmarkast af Suðulandsbraut í suðvestur, Engjavegi í norðaustur og suðaustur. Tillagan gerir ráð fyrir að svæðið skiptist upp í tvær stórar lóðir sem ætlaðar eru fyrir athafnastarfsemi s.s. þjónustu, skrifstofur, sýningarsali og verslun, þó ekki matvörumarkað. Gerðar eru ríkar kröfur um að mannvirki og lóðir séu aðlagaðar að útivistarsvæðinu í Laugardal, m.a. með vönduðum lóðarfrágangi og áherslu á gróðursælt umhverfi. Tillagan gerir ráð fyrir nýrri götu á milli Suðurlandsbrautar og Engjavegar norðvestan við svæðið. Jafnframt er gert ráð fyrir að ein megingönguleiðin um Laugardalsgarðinn framlengist til suðausturs, um grænan geira á milli lóðanna, upp á núverandi gönguleið meðfram Suðurlandsbrautinni. Laugavegur 180, deiliskipulag Deiliskipulagstillagan lýtur að lóðinni nr. 180 við Laugaveg. Tillagan gerir ráð fyrir að þar verði áfram bensínstöð og verslun. Auk þess verði heimilt að byggja á lóðinni sex hæða stakstæða skrifstofubyggingu með verslun á fyrstu hæð og bílageymslukjallara neðanjarðar. Tillögurnar liggja frammi í sal Borgarskipulags og byggingarfulltrúa í Borgartúni 3, 1. hæð, virka daga kl. 10.00 - 16.00 frá 27. ágúst til 24. september 1999. Ábendingum og athugasemdum skal skila skriflega til Borgarskipulags Reykjavíkur fyrir 8. október 1999. Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillögurnar. 19. ágúst 1999 Þorvaldur S. Þorvaldsson, skipulagsstjóri. Fréttir Árni Helgason, heiðursborgari Stykkishólms, var í heimsókn á Eskifirði á dögunum. DV-mynd Emil Heiðursborgari Stykkishólms í heimsókn á mm yx Eskifirði DV, Eskifirði: Hinn landskunni bindindis- maður og heiðursborgari Stykkis- hólms Ámi Helgason er staddur á Eskifirði þessa dagana og heilsar upp á vini og kunningja sem hann á fjölmarga, enda uppalinn hér á Eskifírði. Árni er einstak- lega hress og sprækur enda þótt hann sé orðinn 85 ára. Hann heimsótti okkur eldri borgara í Hulduhlíð, en þar eru tvær ferm- ingarsystur hans vistmenn, nefnilega Ellen Klausen og Lauf- ey Sigurðardóttir. Árni leit enn fremur inn á skrifstofu Hraðfrystihúss Eski- fíarðar hf. og hitti þar m.a. Alla ríka og Magnús Bjamason fram- kvæmdastjóra. Ljósmyndari DV smellti mynd af Áma þar sem hann var að virða fyrir Sér gömlu skrúfuna á Hólmaborg, sem kom- ið hefur verið fyrir á lóðinni handan við skrifstofuna. Eins og myndin sýnir þá er þessi skrúfa engin smásmíði en var hins veg- ar alltof lítil fyrir Hólmaborg eft- ir að skipiö fékk nýju 7.500 hest- afla vélina til að getað sinnt kolmunnaveiðunum. Nýja skrúf- an sem sett var á skipið er 3,8 metrar í þvermál. Regína Sementsverksmiöjan: Viðgerð á skorsteini DV, Akranesi: Á vormánuðum fór fram við- gerð á skorsteini Sementsverk- smiðjunnar hf. á Akranesi. Skor- steinninn, sem er 67 m hár og 3,4 m að ummáli, hefur það hlutverk að leiða hreinsað afgas frá gjall- brennsluofni verksmiðjunnar upp í andrúmsloftið. Skorsteinninn er rúmlega 40 ára gamalt mannvirki og var far- inn að láta á sjá. Viðgerð á hon- um fólst í að styrkja innviði hans, gera við múrskemmdir á yfír- borðinu og verja hann síðan með sterkri málningu. Efstu 10 metrar skorsteinsins voru styrktir með stálgjörðum. Þá var settur upp nýr eldingavari. Breska verktakafyrirtækið Raf- ferfry Chimneys Ltd, sem sérhæft er í byggingu og viðhaldi skor- steina, sá um framkvæmd verks- ins. Framkvæmdin gekk að öllu leyti vel og var kostnaður innan þeirra marka sem ráðgert hafði verið. -DVÓ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.