Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1999, Qupperneq 14
14
FÖSTUDAGUR 27. ÁGÚST 1999
BORGARSKIPULAG REYKJAVIKUR
BORGARTÚN 3 • 105 REYKJAVlK • SÍMI 563 2340 • MYNDSENDIR 562 3219
Auglýsing um breytingu á aðalskipulagi Reykjavíkur
1996 - 2016, deiliskipulag fyrir suðaustur hluta
Laugardals og lóðina að Laugavegi 180
í samræmi við 21. og 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, með
síðari breytingum, eru hér með auglýstar til kynningar deiliskipulagstillögur
fyrir greind svæði og tillaga að breytingu á aðalskipulagi Reykjavíkur 1996-
2016.
Laugardalur, aðalskipulag
Aðalskipulagstillagan lýtur að því að því að breyta svæði í suðaustur hluta
Laugardals, er afmarkast af Suðurlandsbraut í suðvestur og Engjavegi í
norðaustur og suðaustur, úr blöndu af almennu útivistarsvæði og
stofnanasvæði í athafnasvæði.
Laugardalur, deiliskipulag
Deiliskipulagstillagan lýtur að svæði í suðaustur hluta Laugardals, er
afmarkast af Suðulandsbraut í suðvestur, Engjavegi í norðaustur og
suðaustur. Tillagan gerir ráð fyrir að svæðið skiptist upp í tvær stórar lóðir
sem ætlaðar eru fyrir athafnastarfsemi s.s. þjónustu, skrifstofur, sýningarsali
og verslun, þó ekki matvörumarkað.
Gerðar eru ríkar kröfur um að mannvirki og lóðir séu aðlagaðar að
útivistarsvæðinu í Laugardal, m.a. með vönduðum lóðarfrágangi og áherslu
á gróðursælt umhverfi. Tillagan gerir ráð fyrir nýrri götu á milli
Suðurlandsbrautar og Engjavegar norðvestan við svæðið. Jafnframt er gert
ráð fyrir að ein megingönguleiðin um Laugardalsgarðinn framlengist til
suðausturs, um grænan geira á milli lóðanna, upp á núverandi gönguleið
meðfram Suðurlandsbrautinni.
Laugavegur 180, deiliskipulag
Deiliskipulagstillagan lýtur að lóðinni nr. 180 við Laugaveg. Tillagan gerir ráð
fyrir að þar verði áfram bensínstöð og verslun. Auk þess verði heimilt að
byggja á lóðinni sex hæða stakstæða skrifstofubyggingu með verslun á
fyrstu hæð og bílageymslukjallara neðanjarðar.
Tillögurnar liggja frammi í sal Borgarskipulags og byggingarfulltrúa í Borgartúni 3,
1. hæð, virka daga kl. 10.00 - 16.00 frá 27. ágúst til 24. september 1999.
Ábendingum og athugasemdum skal skila skriflega til Borgarskipulags Reykjavíkur
fyrir 8. október 1999.
Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja
tillögurnar.
19. ágúst 1999
Þorvaldur S. Þorvaldsson, skipulagsstjóri.
Fréttir
Árni Helgason, heiðursborgari Stykkishólms, var í heimsókn á Eskifirði á
dögunum.
DV-mynd Emil
Heiðursborgari
Stykkishólms í
heimsókn á
mm yx
Eskifirði
DV, Eskifirði:
Hinn landskunni bindindis-
maður og heiðursborgari Stykkis-
hólms Ámi Helgason er staddur á
Eskifirði þessa dagana og heilsar
upp á vini og kunningja sem
hann á fjölmarga, enda uppalinn
hér á Eskifírði. Árni er einstak-
lega hress og sprækur enda þótt
hann sé orðinn 85 ára. Hann
heimsótti okkur eldri borgara í
Hulduhlíð, en þar eru tvær ferm-
ingarsystur hans vistmenn,
nefnilega Ellen Klausen og Lauf-
ey Sigurðardóttir.
Árni leit enn fremur inn á
skrifstofu Hraðfrystihúss Eski-
fíarðar hf. og hitti þar m.a. Alla
ríka og Magnús Bjamason fram-
kvæmdastjóra. Ljósmyndari DV
smellti mynd af Áma þar sem
hann var að virða fyrir Sér gömlu
skrúfuna á Hólmaborg, sem kom-
ið hefur verið fyrir á lóðinni
handan við skrifstofuna. Eins og
myndin sýnir þá er þessi skrúfa
engin smásmíði en var hins veg-
ar alltof lítil fyrir Hólmaborg eft-
ir að skipiö fékk nýju 7.500 hest-
afla vélina til að getað sinnt
kolmunnaveiðunum. Nýja skrúf-
an sem sett var á skipið er 3,8
metrar í þvermál. Regína
Sementsverksmiöjan:
Viðgerð á skorsteini
DV, Akranesi:
Á vormánuðum fór fram við-
gerð á skorsteini Sementsverk-
smiðjunnar hf. á Akranesi. Skor-
steinninn, sem er 67 m hár og 3,4
m að ummáli, hefur það hlutverk
að leiða hreinsað afgas frá gjall-
brennsluofni verksmiðjunnar
upp í andrúmsloftið.
Skorsteinninn er rúmlega 40
ára gamalt mannvirki og var far-
inn að láta á sjá. Viðgerð á hon-
um fólst í að styrkja innviði hans,
gera við múrskemmdir á yfír-
borðinu og verja hann síðan með
sterkri málningu. Efstu 10 metrar
skorsteinsins voru styrktir með
stálgjörðum. Þá var settur upp
nýr eldingavari.
Breska verktakafyrirtækið Raf-
ferfry Chimneys Ltd, sem sérhæft
er í byggingu og viðhaldi skor-
steina, sá um framkvæmd verks-
ins. Framkvæmdin gekk að öllu
leyti vel og var kostnaður innan
þeirra marka sem ráðgert hafði
verið. -DVÓ