Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1999, Síða 7
jlLS&jf^UR 27. ÁGÚST 1999
enning
Spámaðurinn Zaraþústra mun hafa sagt
að máttur Guðs væri spírallaga. Hvort mátt-
ur Guðs sé á bak við verkið Spíral eftir Hauk
Tómasson, sem Caput-hópurinn flutti í Saln-
um síðastliðið miðvikudagskvöld, verður þó
hver og einn að gera upp við sig. En af
hverju ekki? Þetta er svo sérkennileg tónlist
að hún gæti allt eins verið eftir einhverja
geimveru í beinu sambandi við almættið.
Allt þetta venjulega í tónlist sem vísar til til-
finninga, er víðs fjarri í tónlist Hauks. Hauk-
ur talar annáð tungumál sem virðist vera
handan við mannlega viðmiðun en þó maður
skilji ekki hvað hann segir, hefur hver tónn
í verkum hans meiningu og samræmist
heildinni fullkomlega.
í efnisskránni sagði að nafnið Spírall vis-
aði „til hljómagangs sem liggur til grundvall-
ar verkinu og gengur i hringi en fjarlægist
smám saman upphaf sitt.“ Sama hljómahug-
myndin heldur verkinu saman og á yfirborð-
inu er stöðugt útflúr sem virðist í fyrstu vera
merkingarlaust. Þegar á líður fer maður þó
að skynja einhverja tæra fegurð sem stig-
magnast og er þrungin meiningu. Hljóm-
sveitarútsetningin er gerð af kunnáttu, því
öll hljóðfærin fá að njóta sín og margt afar
fallegt sem ber fyrir eyru, sérstaklega sam-
spil sembalsins, slagverksins og flautanna.
Þráhyggja á háu stigi
Þrjú önnur verk eftir Hauk voru á dagskrá
þetta kvöld. Á eftir Spíral flutti Caput-hópur-
inn Árhring en þar koma sömu hljómamir
fyrir aftur og aftur. Þrátt fyrir það eru þeir
aldrei alveg eins, þó þessi hringhugmynd
gefi tónlistinni stöðugleika sem er þægileg
fyrir áheyrandann. Árhringur er áhrifaríkt
og glæsilegt tónverk, þar sem úrvinnsla ein-
faldra hugmynda er bæði frumleg og spenn-
andi. Maður veit aldrei hvað kemur næst, og
það sem kemur er yfirleitt alltaf óvænt en
einhvem veginn rökrétt. Hljómamir eru
annarsheimslegir en fallegir, og hljómsveit-
arútsetningin er seiðmögnuð. Sérstaklega
eru raddir píanósins og slagverksins vel
skrifaðar og er heildarútkoman upphafin
fegurð sem unaður er á að hlýða.
Næst á efnisskránni var konsert fyrir fiðlu
og kammersveit og var Sigrún Eðvaldsdóttir
í einleikshlutverkinu. Konsertinn er í fjór-
um þáttum og sá fyrsti byrjar skuggalega
með djúpum hljómum kammersveitarinnar.
Tónlist
Jónas Sen
konsertar er annar kaflinn léttur og fjörleg-
ur, nokkurs konar „perpetuum mobile" sem
minnir örlítið á tónlist Philips Glass en
þriðji þátturinn samanstendur aðallega af
hljóðlátum og passívum strengjahljómum
sem eru samt magn-
þrungnir í einfaldleika
sínum. Fjórði kaflinn er
kraftmikill þar sem
sömu hljómarnir eru
barðir aftur og aftur,
óróleg einleiksröddin er
alltaf eins og útkoman
eins og þráhyggja á háu
stigi.
Æðisgengilegur
hápunktur
Konsertinn er að
mörgu leyti gott verk,
þó maður hafi á tilfinn-
ingunni að Haukur hafi
of mikið reynt að laga
tónlistina að hefð-
bundnu konsertformi, í
stað þess að laga formið
að tónlistinni og inn-
blæstrinum. Þetta var
sérstaklega áberandi í
síðasta kaflanum, sem
virkaði stundum nokk-
uð formúlukenndur.
Samt lék Sigrún Eð-
valdsdóttir konsertinn
af miklum krafti og inn-
lifun, stundum allt að
því rómantískt; hugsan-
lega hefði afslappaðri
nálgun við tónlistina
skapað meiri áhrif hér
og þar.
Síðsta verkið á dag-
skránni var Stemma, prýðileg tónsmíð sem
byggist á stuttu íslensku þjóðlagi. Verkið er
lengi vel órólegt og kaotiskt og stigmagnast
upp í æðisgenginn hápunkt en því næst tek-
ur við rólegri hluti sem er harmónískari og
allt að því danskenndur. Stemma er áheyri-
leg, rökrétt tónlist, hugvitsamlega skrifuð og
úrvinnslan aldrei ódýr þó efniviðurinn sé ís-
lenskt þjóðlag.
Caput-hópurinn lék einstaklega vel öll
verkin. Það var Guðmundur Óli Gunnarsson
sem stjórnaði hópnum og gerði það af öryggi
og sannfæringu, með markvissri túlkun og
góðu jafnvægi á milli allra radda hljómsveit-
arinnar.
Haukur Tómasson.
Björt fiðluröddin er þó í fullkominni mót-
sögn og er útkoman eins og leikur ljóss og
skugga. Eins og margir fjögurra kafla
Spírallaga máttur Guðs
Hoppandi hrynur
Á slóðum ættfeðranna
Píanistinn Monty Alexander
er fæddur á Jamaíku 6. júní
1944. Hann kom fyrst til Banda-
ríkjanna 1963 og fór fljótlega að
spila með stóru nöfnunum,
Dizzy Gillespie, Clark Terry,
Herb Ellis, Ray Brown, Miles
Davis og Sonny Rollins,
svo einhverjir séu nefndir.
Hann gerði mikið að því
að spila undir hjá söngvur-
um þegar hann var húspí-
anisti á „Jilly’s", sem var í
eigu vinar Frank Sinatra,
Rizzo, og hann lék undir á
Grammyverðlaunaplötu
Natalie Cole, „Unfor-
gettable", en faðir hennar,
Nat Cole, var einn af stóru
áhrifavöldunum í spila-
mennsku Montys.
Hann hefur nú sent frá
sér plötuna „Stir It Up“
sem hefur eingöngu að geyma
lög eftir hinn þekkta landa
Geislaplötur
Ársæll Másson
hans og reggae-frumkvöðul,
Bob Marley. Með honum leik-
ur amerískt djasstríó og regga-
ehljómsveit frá Jamaica, „The
Gumtion Band“, en hana skipa
Dwight Dawes á hljómborð,
Robert Angus á gítar, Trevor
McKenzie á bassa, Rolando
Wilson á trommur og Desmond
Jones á slagverk. Meðlimir
djasstríósins eru Derek
DiCenzo á gitar, Hassan J.J.
Wiggins á bassa og Troy Davis
á trommur.
Djassmettað reggae
Þetta er reyndar ekki í fyrsta
skipti sem Monty fer á heima-
slóðir eftir meðspilurum og hef-
ur gefið út töluvert af djassmús-
ík sem lituð er áhrifum frá
Jamaíku. En tónlist þessarar
nýju plötu er fyrst og fremst
reggaetónlist Bob Marleys, ekki
sungin heldur djassmettuð í
staðinn. Þetta heppnast með af-
brigðum vel og veldur þar sjálf-
sagt miklu um hvað pianistinn
er vel heima í tónlist landa
sinna. Það er létt yfir tónlistinni
og þessi hoppandi hrynur sem
einkennir reggae er allsráðandi.
Lög Marleys eru einföld og gríp-
andi og detta ekkert niður við
að missa textann (þótt hann hafi
reyndar oft sérstakan boðskap
sem vissulega hverfur). Þetta er
tónlist sem flestir geta fundið
eitthvað við sitt hæfi í, jafnt
djassgeggjarinn sem reggaeá-
hangandinn, og örugglega marg-
ir fleiri.
Monty Alexander-Stir it up,
The Music of Bob Marley,
Telarc,
Umboð á íslandi : 12 tónar
Tim O’Brien syngur, leikur á
gitar, mandólín, fiðlu, búzúkí og
fleiri hljóðfæri. Hann hefur
samið fjölda laga og sum þeirra
hafa verið flutt af þekktum
bandarískum bluegrass- og
countryt-ónlistarmönnum. Sem
Bandaríkjamaður af írskum
uppruna hefur hann farið í
könnunarleiðangra á slóðir ætt-
feðranna í bæði persónulegum
skilningi og músíkölskum.
Á plötu hans, The Crossing,
gefur að heyra frumsamin lög
Tims ásamt gömlum lögum sem
halda á lofti sambandinu við
gamla landið eða fjalla á ein-
hvern hátt um írska vesturfara.
Á disknum kemur fram fjöldi
hljóðfæraleikara frá írlandi og
Bandaríkjunum, hver öðrum
betri. Söngrödd foringjans minn-
ir stundum allnokkuð á rödd
Magnúsar Þórs Sigmundssonar
og hefðbundnar raddsetningar
úr þessum geira tónlistar minna
þann sem ekki hefur hlustað
mikið á slika músík á hljóm-
sveitir úr fortíðinni á borð við
The Band og Sea Train.
Síðasti geisladiskur O’Briens,
Red on Blonde, frá 1996, var til-
nefndur til Grammy-verðlauna
sem kemur ekki á óvart ef hann
er eitthvað líkur þessum að gæð-
um. The Crossing geymir ein-
staklega vandaða og ljúfa músik,
þjóðlög og lög í þjóðlagastíl eins
og þau geta best orðið.
Annars konar þjóð-
lagastíll
Þeim sem kjósa annars konar
þjóðlagastíl má benda á athyglis-
verða plötu með söngkonunni og
gítarleikaranum Irene Farrera
frá Venesúela. Hún hefur undan-
farin ár búið og starfað í Banda-
ríkjunum og flutt tónlist sína um
allar trissur þar. Hún er þátttak-
andi í svonefndri nueva canción-
hreyflngu í tónlist heimalands-
ins og er Soy de Ti þriðja plata
hennar. Rödd Irene er djúp og
minnir að sumu leiti á hana
Evoru frá Grænhöfðaeyjum og
líka hina brasilísku Maria Bet-
hanie en nær varla snilld þeirrar
síðarnefndu í túlkun þótt ekki sé
undan neinu að kvarta í því efni.
Geislaplötur
Ingvi Þór Kormáksson
Gítarslátturinn er ekki ólíkur og
hjá Gypsy Kings nema gítararnir
eru færri. Ýmsir aðstoða við
hljóðfæraleik, slagverk, dragspil,
stáltrommur o. fl. og eru þeir af
ýmsu þjóðemi líka.
Tim O'Brien - The Crossing
Alula Records 1999
Irene Farrera - Soy Deti
Indigena Records 1999
Upphaf Eiríksfagnaðar
Það er ávailt á við meiri háttar’ menningar-
veislu i Hafnarfirði þegar Eiríkur Smith (á
mynd) efnir til einkasýninga í þessari heima-
byggð sinni sem hann gerir
á um það bil þriggja ára
fresti. Þá safnast þorri bæj-
arbúa saman til að hylla
listamanninn, hátíðarræður
em fluttar og tónlist framin
{ um víðan völl og linnir ekki
! látum fyrr en langt er liðið
j á sýningartimann. Á þessi
Eiríksfagnaður sér enga
| hliðstæðu í öðra bæjarfelagi á landinu. Nú fer
I einmitt í hönd stór einkasýning Eiríks í Hafhar-
borg, þangað sem hann gaf hundruð verka sinna
fyrir nokkrum árum. Sýnir hann fyrsta sinni
mikla fleka sem vöktu athygli á norrænu sam-
| sýningunni Natura í Charlottenborg í fyrra en
| þar að auki nýjar náttúrustemmur, bæði olíu- og
vatnslitamyndir. í tilefhi af sýningunni gefur
listamaðurinn út veglegt kver á íslensku og
ensku þar sem er fjöldi litmynda, grein um trú-
arlegt inntak verka hans hin síðari ár eftir Að-
alstein Ingólfsson og ítarlegar upplýsingar um
feril hans frá upphafi.
Sýning Eiríks Smith verður opnuð á morgun,
kl. 16, og stendur tU 27. september.
Að fleyta (k)erlingum
Galleri Konstepidemin (eða „listafarsóttin")
heitir sýningarsalur í Gautaborg sem vakið hef-
ur athygli þar um slóðir fyrir djarfar og óvenju-
legar sýningar, meðal annars á ungum íslensk-
um myndlistarmönnum. Á
morgun verður opnuð þar
sýning á verkum tveggja
listamanna, Johns Shankie
i frá Skotlandi, fyrrum nem-
anda í þeim fræga Glasgow
School of Art, og Bryndísar
Snæbjömsdóttur (á mynd)
sem sýnt hefur verk sín
nokkrum sinnum hér heima. Sýningin, sem
j nefhist Skimming (s)tones eða Aófleyta (k)erling-
um, er styrkt af The British CouncU sem þykir
1 allnokkur álitsauki. Hægt er að hafe samband
við þetta gaUerí á netfanginu
konstep@tripnet.se.
Breytingar við aldahvörf
Haustið er tími námskeiðahalds af ýmsum
toga, eins og fram kom í aukablaði DV í vikunni.
Þar láðist að minnast á mikið úrval námskeiða
sem FræðsludeUd Listaháskóla íslands stendur
fyrir. Eitt af því áhugaverð-
ara nefnist Breytingar vió
aldahvörf og er að mestu
hugarfóstur Einars Gari-
balda Eiríkssonar myndlist-
armanns (á mynd). Einar er
sérstakur áhugamaður um
ítalska rithöfundinn Italo
| Calvino. sem lést fyrir
nokkrum árum, en Calvino
| velti mfeið fyrir sér hlutverki myndlistarinnar á
j nýrri öld. Koma nýir listmiðlar tU spgunnar,
j hættir listamaðurinn að skipta máli, ei) listasag-
an komin að endimörkum? Út frá þessum spurn-
ingum Calvinos og öðrum hugmyndum hans
hefur Einar sett saman námskeið þar sem sam-
an fara fræðUeg umfjöUun og verkleg kennsla.
Meðal annars er áhersla lögð á að skoða og
greina eigin verk og annarra hstamanna í Ijósi
j þessara hugmynda. Námskeiö Einars hefst þann
12. október og stendur til 30. október. Kennslan
fer fram í húsnæði Listaháskóla íslands, Skip-
í holti 1.
Einar Már fyrsti
póstmódemistinn
í bráðskemmtUegu afmælisriti sem gefið er út
i tU heiðurs Dagnýju Kristjánsdóttur bókmennta-
r fræðingi í tiiefni af fimm-
í tugsafmæli hennar kennir
margra grasa. í grein eftir
fyrrum bókmenntagagnrýn-
;j anda DV, Jón Yngva Jó-
!j hannsson, er þvi tU dæmis
haldið fram fullum fetum að
Einar Már Guðmundsson (á
mynd) sé „fyrsti póst-
módemistinn í íslenskri
ljóðagerð" og tU marks um það sé fyrsta Ijóðið í
; fyrstu ljóðabók hans, Sendisveinninn er ein-
mana, en það heitir flashbakk um framtíðina.
Ljóðið hljóðar svona; shantih shantih shantih /
shake it up shake it up t.s. eliot/david bowie.
Umsjón
Aðalsteinn Ingólfsson