Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1999, Qupperneq 3

Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1999, Qupperneq 3
m g ö m æ 1 i HSkro-tóbaks- stöng er þarfa- þing fyrir reyk- ingamenn til að hafa með sér á sjöbíó og þær sýningar þar sem er ekkert hlé. Það er búið að dekra við reykingamennina með því að venja þá á að hafa alltaf sígóbreik í hléi þannig að tóbaksstöngin er góð til að hlaupa í nikótínskarðið. Ekki fá ykkur í nefið, það er bara sull og vitleysa. Ekki fara með það lengra i|gp|gif en taktu með þér mynd- k , f | bandsupptökuvél í bió. W'[ mjmBm Stilltu henni upp á þrífót á S \ góðum stað, helst ekki fyr- m \ ir aftan neina hausa sem / \ skyggja á tjaldið. Síðan 1 \ stiilirðu hana á 24 ramma á sekúndu og ýtir á REC. Passaðu þig á því að hafa hlaðið batteri og tóma spólu. Þá geturðu fjölfaldað myndina og selt öllum vinum þínum. Poppaðu heima hjá þér og komdu með af- raksturinn í bíó. Það er bæöi miklu ódýrara og þú þarft ekki að bíða sveitt/ur í biðröð. Síðan má alltaf vera með alls kyns tilbrigði, eins og osta-, kara- mellu- og smjörpopp. Prófaðu líka til- raunir með ber, banana, sveppi eða hvað sem þér dettur í hug. Sveppatíminn fer í hönd: Hinir sniðugu viliimenn í No Smoking Band eru mættir og munu rokka úr þér slenið í Laugardalshöll á laugardagskvöld. Ljúflingarnir í Sigur Rós sjá hins vegar um rólegheitin. Klikku bland I Höllin Þeir eru tíu í No Smoking Band og sá sem leiðir bandið heitir Dr. Nelle Karajlic. Hann syngur. Hann semur líka lögin og samdi sándtrakkið í Svörtum ketti, hvítum ketti, nýju myndinni hans Emir Kusturica, sem spilar á gítar í bandinu. Það er búið að vera til í tuttugu ár og hefur komið út sex plötum á tímabilinu. Tónlistin er snarfjörug og hægt að lýsa sem serbnesku þjóðlagarokki, þó sú lýs- ing segi svo sem hvorki mikið né allt. Sjálflr segjast þeir leika „unza unza“, eins og hægt er að lesa um í einkaviðtali við Nelle á síðu 9. Hljómsveitin Sigur Rós þarfnast hins vegar ekki kynningar. Nýja platan þeirra, „Ágætis byrjun", seld- ist öllum að óvörum upp á nokkrum dögum og næsta upplag líka. Platan hreinlega selst eins og heitasta hugsanlega lumma og var í síðustu viku enn í efsta sæti. Sigur Rós hef- ur verið að spila á landsbyggðinni við góðar undirtektir og eru tónleik- amir í höllinni síðasta stoppið á jrinn ■ þeim rúnti. En það er ekki nóg með að frami bandsins á íslandi sé mikill. Nú er í undirbúningi stórsókn Sigur Rósar inn á erlenda markaði og munu ýmsir áhrifamenn í bransanum mæta í Höllina til að sjá bandið. Þeir ættu ekki að verða fyrir von- brigðum frekar en aðrir. Tónleikarnir hefjast kl. 21 og standa til eitt eftir miðnætti. Aldurs- takmarkið er 20 ár, enda boðið upp á léttvín. Ef einhvern tímann hefur verið kátt í Höllinni þá er það nú. svo eru mannskæðir djöflar innan um A haustin er jafn öruggt og að gæs- irnar taka oddaflugið suður að lúpu- leg ungmenni fara að paufast um á umferðareyjum og hringtorgum í sveppaleit. Það er gamalkunn eðlis- hvöt, sóknin í vímu, sem rekur þau til þessara verka. Aðrir þjóðfélagshópar leggjast einnig í sveppatínslu en það eru aðrar tegundir sem sóst er eftir. „Kóngasveppurinn er bestur, ég væri tilbúinn að borga fyrir hann margfalt verð á við venjulega matar- sveppi," segir Ágúst Ámason, skóg- arvörður í Skorradalnum. Ferðafélag íslands stendur á sunnudaginn fyrir sveppa- og berjatínsluferð í Skorradal- inn og Ágúst verður leiðsögumaður. Hann er gamall í hettunni, hefúr ver- ið skógarvörður þarna frá árinu 1959. „Þetta er skemmtilegt starf og mjög fjölbreytt. Það er búið að vera ákaf- lega gaman að sjá hvernig skógurinn hefur þróast. Þetta voru örMir stilk- ar þegar ég var að byrja, faeinir sentí- metrar að lengd. Núna eru þetta margra metra tré. Þetta er í dag nytja- skógur, við vinnum hér bæði timbur og jólatré. Svona skógur skapar einnig fleiri nytjar en viðinn, hér er fagurt útivistarsvæði og sveppir, reyndar bæði góðir og slæmir, vaxa við rætur trjánna." Góðir og slœmir, er ekki flókiö mál aó lœra aö þekkja sveppi sem ekki eru eitraöir? „Nei, það er ekki svo flókið, en aft- ur á móti er það mjög þýðingarmikið. Suma sveppi má borða oft en aðra borðar maður aðeins einu sinni, þeir eru lífshættulegir. Það fer þó eftir lík- amshreysti fólks og magninu sem inn- byrt er hvort fólk lætur lífið eða verö- ur fárveikt. Sumar tegundir virka þannig á likamann að menn kenna sér einskins meins í fyrstu, en svo fara líffærin að skemmast og ekkert hægt að gera.“ Hvaöa sveppi og ber mega feröalang- arnir búast viö aö taka meö sér heim? „Hér vex furulubbi, kúalubbi og eitthvað af lerkisveppi. Kóngasvepp- urinn er líka hér, oft í miklum mæli, en vegna þess hversu þurrt hefur ver- ið i sumar gæti þurft að leita vel. Af berjum eru það helst krækiber, bláber og aðalbláber, en svo má líka komast yfir villt jarðarber og hrútaber í ein- hverjum mæli. Og allan þennan góða mat má sækja í frábært umhverfi, það er aldrei slæmt veður inni í skógin- um, kannski rigning en aldrei hvasst.“ Muntu ekki sjá eftir kóngasveppa- uppskerunni ofan í þessa túrista? „Ónei, sveppimir finnast ekki allir, það verður nóg eftir handa okkur hér. Stærsti kóngasveppurinn sem fundist hefúr hér var geysistór, 1850 grömm og allur ætur.“ Þar hafiði það, það er hægt að ná sér í fyrirtaksfæðu í þessari skemmti- legu Ferðafélagsferð. Passiði ykku- bara á að gæða ykkur ekki á bei serkjasveppinum ef þið viljið ekl koma albrjáluð og tilfinningalaus bæinn. Gull: Hon dansade en sommar Sænsk frá 1951. Lelkstjóri: Ame Mattsson. „Situr enn í mér“. Silfur: Fantasia (frá Walt Disney) Bandarisk frá 1940. Lelkstjórar: Samuel Armstrong og James Algar. „Fallegt listaverk". Brons: Stúlkan við fljótið (meí Sophiu Loren) ítölsk frá 1955. LelkstJórl: Mario Soldatl. »Mjög eftirminnileg rnynd". Vertu sniðugri en allir hinir og farðu í sjöbió. í sjöbíó færðu frið frá öllu leiðinlega fólkinu sem hlær hrossa- hlátri þegar það heldur aö það eigi að hlæja, það fer í níu- og ellefubíó. Þú færð líka frið frá þeim sem gleyma .óvart" að slökkva á fjarskiptatækjun- um sínum. Krakkarnir fara bara í fimm og þrjúbíó og eru heima að borða. Þar að auki er það algengt að það sé ekkert hlé á sjöbió, sem er frábært. Sýn<t kl. 19.00 g f n i Torfi og Magga: Hafa séð Aldrei án dóttur minnar 4 Nýtt líf: 6 Han Gnarr, Huld og Helga Poppins Dr. Nelle í No Smoking q Band: O Dýrkeyptur brandari um Tító Opnunarmynd Kvikmyndahá- tíðar: q Svartur köttur, hvít- ur köttur Darren 11 Aronofsky: Vasareiknir óþarfur Þessi fékk leik- stjóraverðlaunin á Cannes: Hamingju- leit í út- hverfunum Stanley nr\ 04 Kubrick: Umdeildur snillingur Annabel Chong: Svaf hjá 251 á 10 tímum 24 Lifid eftir vinnu »jálfvirkinn Big Daddy Iverjir voru hv< 25-30 f ókus fylgir DV á föstudögum Forsíðumyndlna tók Hilmar Þór af Möggu og Torfa Frans í bíó.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.