Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1999, Side 9
20. ágúst 1999 f Ó k U S
ivííur köttur
Opnunarkvikmynd Kvikmynda-
hátíðar í Reykjavík er nýjasta
kvikmynd serbneska snillingsins
Emir Kusturica, Svartur köttur,
hvítur köttur. Mynd þessi hefur
farið sigurfor um heiminn og er
margverðlaunuð eins og raunar
allar myndir Kusturica, sem er sér-
stakur gestur kvikmyndahátíðar-
innar. Og má nefna að á Kvik-
myndahátíðinni í Feneyjum fékk
hún ein fern verðlaun, meðal ann-
ars fékk Kusturica silfurljónið sem
besti leikstjóri, þá var hún tilnefnd
sem besta kvikmynd til Evrópsku
kvikmyndaverðlaunanna.
í Svörtum ketti, hvítum ketti
segir frá Matko, sem er smá-
krimmi er býr við Danube-fljótið
með sautján ára syni sínum, Záre.
Þegar viðskiptasamningur fer í
vaskinn skuldar hann Dadan,
glæpamanni sem gengur aðeins
betur, peninga. Dadan á systur,
Afródítu, sem hann vill nauðsyn-
lega koma í hjónaband, svo þeir
gera samkomulag: Zare á að giftast
henni. En hvorugt þeirra hefur
áhuga á að hjónabandi sé komið í
kring. Zare er ástfangin af Idu og
Afrodíta bíður enn eftir drauma-
prinsinum.
Mörgum þykir nýjasta
kvikmynd Emir Kust-
urica, sem gerist meðal
sígauna, fyndnasta
kvikmynd hans. Sem
fyrr er utangarðsfólk
fyrirferðarmikið og per-
sónurnar eru margar
hverjar kostulegar.
Emir Kusturica gerði Und-
• erground árið 1995 og er hún næsta
mynd á undan Svörtum ketti, hvit-
• um ketti. í myndinni nær Kust-
urica að sýna kómísku hliðina á
• seinni heimsstyrjöldinni á eftir-
• minnilegan hátt án þess að dramað
8 tapist i kringum þá atburði sem
fjallað er um.
Sagan hefst í neðanjarðarvopna-
• verksmiðju í Belgrad, á tímum
• seinni heimsstyrjaldarinnar og
• þróast í súrrealískar kringumstæð-
ur. Svartamarkaðs vopnasala sem
smyglar vopnum til
& föðurlandsvina láist að segja
starfsmönnum verksmiðjunnar frá
• því að stríðinu sé lokið og þeir
halda áfram að framleiða vopnin
fyrir þurfandi striðsmenn. Fimm-
tíu árum síðar verða verkamenn-
irnir tortryggnir og brjótast út úr
neðanjarðarbyrginu, aðeins til að
átta sig á því að braskarinn hafði
rétt fyrir sér, stríðið stendur enn.
Meðal verðlauna sem Und-
erground hefur fallið í skaut er að
hún fékk Gullpálmann í Cannes
árið 1995, Cesar-verðlaunin í
Frakklandi sem besta erlenda
ma-dnumunm
Arizona Dream er að marga áliti illskiljanleg
fantasía þar sem fiskur kemur mikið við sögu.
Emir Kusturica hefur gert eina
kvikmynd í Bandaríkjunum,
Arizona Dream, og víst er að seint
munu þeir hjá Warner-bræðrum
bjóða honum að gera aðra kvik-
mynd því myndin fór fyrir ofan
garð og neðan hjá flestum vestan-
hafs og fékk hún aldrei almenni-
lega dreifingu. Tii eru tvær útgáfur
af myndinni og er önnur þeirra
tuttugum mínútum lengri, er það
útgáfa sem Kusturica setti sjálfúr
saman.
í byrjun myndarinnar sjáum við
Inúíta-veiðmann þeysast á sleðan-
um sínum eftir ísnum heim á leið
með nýveidda lúðu. Þessi fiskur
setur mark sitt á alla myndina,
hvort sem það er í raun og veru
eða bara ímyndun. Á sama tima
merkir Axel (Johnny Depp) fiska í
New York. Hann er sáttur við sitt,
en fylgir sendiboða sem fer með
hann til Arizona þar sem gamall
frændi han (Jerry Lewis) er að fara
að gifta sig. Það er frændanum
metnaðarmál að koma Axel inn í
fjölskyldufyrirtækið. í Arizona
hittir Axel tvær furðulegar konur,
uppspenntar, þurfandi og illa
haldnar af ósætti innan fjölskyld-
unnar. Axel á i ástarsambandi við
aðra konuna á meðan hin spilar á
harmóniku fyrir hóp af skjaldbök-
um.
Á kvikmyndahátíðinni í Berlín
1993 fékk Emir Kusturica Silfur-
bjöminn sem besti leikstjórinn.
Hópur fólks í Belgrad fel-
ur sig neðanjarðar í
seinni heimsstyrjöldinni
og heidur áfram að búa
neðanjarðar eftir að stríð-
ini lýkur enda hefur það
enga hugmynd um að
friður sé kominn.
myndin og gagnrýnendur í Boston
völdu hana einnig bestu erlendu
kvikmyndina.
Underground: Hljómsveit spilar í brúðkaupsveislu.
Arizona Dream. Johnny Depp í hlutverki Axels.
27. águst
5. september 1999
Arizona Dream
- Bandaríkin 1993
Leikstjóri:
Emir Kusturica.
Handrit: David Atkins.
Kvlkmyndataka:
Vilko Rlac.
Kllpping:
Andrija Zafranovich.
Tónlist: Goran Bregovic.
Lelkarar: Johnny Depp,
Jerry Lewis, Faye
Dunaway, Lili Taylor
og Paulina
Svartur köttur,
hvítur köttur
(Crna macka, bell macor)
- Júgóslavia 1998
Leikstjórl: Emir Kusturica.
Handrit: Emir Kusturica og
Gordon Mihic.
Kvlkmyndataka: Thierry
Arbogast.
Kllpping: Zvedolic Zajc.
Tónllst: Voja Aralika, Nele
Karjalic og Dejo Sparavalo.
Leikarar: Severdz-
an Bajram, Rorijan Ajd-1
ini, Salija Ibraimova og
Branka Katic.
Underground
- Júgóslavía 1995
1 ÍP!
Leikstjórl: Emir Kusturica.
Handrlt: Dusan Kovacevic.
Kvlkmyndataka; Vilko Filac.
Klipping: Branca Ceperac.
Tónllst: Goran Bregovic.
Lelkararar: Miki
SSBsak, Manojlovic, Lazar
Ristovski, Mirjana i
Jokovcic og Slavko
Stimac.
y?t'Á$£z. ziÉt&u ýi