Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1999, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1999, Page 12
•I/tMIíA! ,‘.,!| (, | n er bandarísk kvikmynd sem vakið hefur mikla athygli þar sem hún er sýnd, en um er um að ræða vísindatrylli sem er frumlegur og spennandi. Aðapersónan er Max- imillian Coen, sem er mjög gáfaður maður, stærfræðisnillingur sem veit ekkert skemmtilegar en að ráða stærðfræðiformúlur, en hann gengur ekki heill til skógar, er veikur á sinni og sú veiki ágerist. 71 - Bandaríkin 1998 Lelkstjóri: Darren Aronofsky. Handrit: Darren Aronofsky og Sean Gullette. Kvlkmyndataka: Matthew Libatique. Kllpplng: Oren Sarch. Tónlist: Clint Mansell. Leikarar: Sean Gul- lette, Mark Margolis, Ben Shenkman og Pamela Hart. Geðveikin hefur tekið völdin. Hann hefur í langan tíma verið að vinna að formúlu sem myndi gjör- breyta hlutabréfamarkaðnum. Max finnur að ef hann á að takast að finna lausnina áður en geðveikin nær tökum á honum verður hann að vinna hratt. í örvæntingarfullri leit sinni í torræðnum tölum tekst honum óvænt að komast að leynd- armáli sem allir eru tilbúnir að drepa til að komast yfir. Hin rauðhærða Lola leggur mikið á sig til að bjarga kærastanum. 7t er vísindatryllir um stærðfræðisnilling sem hefur gert snilldarupp- götvun sem gæti haft afdrifarík áhrif á hluta- bréfamarkaðinn: ít var fyrst frumsýnd á Sun- dance-kvikmyndahátíðinni og fékk leikstjóri myndarinnar Darren Ar- onofsky leikstjórnarverðlaun en jt er fyrsta kvikmyndin sem hann leikstýrir. Aronofsky er tuttugu og átta ára gamall með próf frá Harvard og American Film Institu- te. Hann verður einn af gestum á Kvikmyndahátíðinni. Sean Gullette, sem leikur Max- imillian, er skólafélagi Aronofsky og lék í skólamyndum hans. Hann hefur á undanfornum misserum verið að leika í ýmsum kvikmynd- um á óháða markaðnum og Gul- lette skrifaði handritið að n ásamt Aronofsky. Leikstjórinn Darren Aronofsky, einn af gestum á Kvikmyndahátíö við kvik- myndatökuvélina ásamt Sean Gullette. Lola rennt var vinsælasta kvikmyndin í Þýskalandi á síðasta ári, enda mögnuð spennumynd sem keyrð er á miklum hraða. Hlauptu Lola hláuptu Ekki hefur mikið farið fyrir þýskum kvikmyndum á alþjóðleg- um kvikmyndamarkaði á undan- fomum árum en á síðustu misser- um hefur þýsk kvikmyndagerð verið að rétta úr kútnum eftir lægð og er Hlauptu, Lola, hlauptu ein þeirra kvikmynda sem hafa náð góðri aðsókn utan heimalandsins. í myndinni byrjum við að fylgj- ast með smákrimmanum Manni, sem vinnur fyrir mafluna. Þótt hann haldi öðru fram þá er Manni aðeins ómerkileg senditík en hann hefur metnað og er ákveðinn í að vinna sig í virðingarstöðu innan mafíunnar. Unnusta hans er hin pönkaða Lola sem er mun meiri harðjaxl en kærastinn, eins og kemur í ljós þegar Manni í stresskasti hendir frá sér tösku með 100 þúsund mörkum í neðan- jarðarlest þegar hann sér tvo lög- reglumenn nálgast. Manni er sem sagt kominn í djúpan skít og í öng- um sínum biður hann Lolu að bjarga sér. Lola hefur aðeins tutt- ugu mínútur til að bjarga kærast- anum því að þeim tíma loknum verður Manni að standa skil á fjár- hæðinni. Lola þarf því að stiga bensínið í botn og fer hún um alla Berlín í björgunaaðgerðum sínum. Leikstjóri myndarinnar Tom Tykwer er í dag einhver eftirsótt- asti leikstjóri Þjóðverja. Áður en hann gat snúið sér alfarið að kvik- myndagerð rak hann kvikmynd- hús í Berlín og skrifaði handrit í hjáverkiun. Hann leikstýrði sinni fyrstu kvikmynd 1993. Lola rennt er fjórða kvikmyndin sem hann gerir. Lola rennt hefur unnið til fjölda verðlauna í Þýskalandi og var til- nefnd til evrópsku kvikmyndaverð- launanna í fyrra sem besta kvik- mynd og þá þóttu áhorfendum á ■H Lola rennt - Þýskaland 1998 Lelkstjórn og handrlt: Tom Tykwer. Kvlkmyndataka: Frank Gribe. Kllpplng: Matthilde Bonnefoy. Tónllst: Reinholt Heil og Johnny Klimek. Lelkarar. Franka Potente, Moritz Bleibtreu, Herbert Knaup og Nina Petri. i Sundance-kvikmyndhátíðinni í ár | hún það góð að þeir völdu hana bestu kvikmyndina. litli launin í Cannes fyrir þá mynd. Aðrar kvikmyndir hans eru Noorderlingen sem vann þrenn Felixverðlaun 1992 og De Jurk sem vann til verðlauna í Feneyjum. í fyrra var Tony litli tilnefnd til tvennra verðlauna á Evrópsku kvikmyndahátíðinni. Kleine Teun er svört kómedía um bónda og konurnar tvær í lífi hans, og svo Tony litla sem stendur utan við og virðir fyrir sér per- sónurnar umhverfis. Tony litli virðir fyrir sér dúfurnar. Tony Tony litli er svört kómedia um bóndann Brand sem orðinn er ást- fanginn af Lenu, ungum kennara sem hann er í einkatímum hjá. Eig- inkonu Brands, Keet, grunar hið sanna í málinu og er því á varð- bergi fylgist með öllum hreyfmg- um eiginmanns síns. Eftir því sem tíminn líður og ekkert gerist ákveður Keet að taka til sinna ráða og hefur uppi djöfullegt áform sem meðal annars felst í því koma Lenu í faðm eiginmanns síns. Margt fer þó öðruvísi en ráðgert er. Alex van Warmerdam, sem bæði er leikstjóri og einn aðalleikara myndarinnar, fæddist í Haarlem í Hollandi og nam grafíska hönnun og myndlist. Að námi loknu stofn- aði hann ásamt fleirum leikhópinn Hauser Orkater. í byrjun áttunda áratugarins hóf hann að búa til stuttmyndir og gerði Abel 1986, sína fyrstu kvikmynd í fullri lengd, og fékk hann gagnrýnendaverð- Kleine Teun - Holland 1998 Leikstjom, handrlt og ton- list: Alex van Warmerdam. Kvikmyndataka: Marc Felberlaam. Klipping: Stef- an Kamp. f ó k u s 27. ágúst 1999

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.