Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1999, Page 13
‘
The Big Swap segir frá stórum vinahópi sem
ákveður að fara út á ystu nöf með vinskapinn,
hafa makaskipti.
The Big Swap hefur verið líkt
við Sex, Lies and Videotape og er
kraftmikil og djörf mynd krydduð
spennu og húmor með mörgum að-
alpersónum þar sem þemað er hið
klassíska; ást og ástríður. Myndin
segir frá nokkrum rétt rúmlega
þrítugum pörum. Þetta er kunn-
ingjahópur sem hefur haldið hóp-
inn í blíðu og stríðu. Hópurinn
hittist oft og skemmtir sér saman.
Þegar þeim finnst lifið vera orðið
of einhæft ákveða þau að efna til
leiks þar sem pör verða aðskilin og
þá er aldrei að vita hvað gerist.
Það sem byrjar sem grófur brand-
ari fær á sig alvarlegri blæ þegar
ýmislegt fer að koma upp á yfir-
borðið sem ekki þolir dagsins ljós
enda má segja að farið sé út á ystu
nöf hvað varðar vinskap.
Um mynd sína segir Niall John-
son, sem bæði er leikstjóri og
handritshöfundur. „Ég hef lengi
verið hrifinn af hugmyndinni um
vinahóp sem heldur að hann sé i
leik en þegar leikurinn tekur öll
völd af þeim verður hann að
hættulegri ferð og að leik loknum
er ekkert eins og það var.“
Makaskiptin rædd meðal vinahópsins.
Thé Big Swap
- England 1998
Lelkstjóm og handrit:
Niall Johnson.
Kvikmyndataka: Gordon
Hickie.
Klipping: David Thrasher.
Tónlist: Jason Flinter og
Craig Johnson.
Mark Adams, Sorcha
Brooks, Mark Caven, Ali-
son Egan, Richard
Winslow strákurinn
Þetta er ekki fyrsta
kvikmyndin eftir
þekktu leikriti Terence
Rattigans, áður var
gerð kvikmynd 1950.
Ekki hefur mikið farið fyrir nýj-
ustu kvikmynd leikskáldsins og
kvikmyndaleikstjórans Davids
Mamets, The Winslow Boy. Hún
hefur samt verið að fá frábæra
dóma og ágæta aðsókn. Mamets
leikstýrir og skrifar handritið eftir
þekktu leikriti Terence Rattigans.
Leikritið var fyrst sett á svið 1946
og var gerð kvikmynd eftir leikrit-
inu fjórum árum síðar. Þegar leik-
The Winslow
Boy
- Bandaríkin 1999
Leikstjóri: David Mamet.
Handrit: David Mamet eft-
ir leikriti Terence Rattigan.
Kvikmyndataka: Benoit
Delhomme.
Klipplng: Barabara Tulli-
ver.
Tónlist: Alaric Jans.
Leikarar: Nigel
Hawthorne, Jeremy
Northam, Rebecca
Pidgeon, Guy Edwards og
ritið var fyrst frumsýnt í Banda-
ríkjunum var það kosið besta er-
lenda leikritið það árið. Leikritið
hefur lifað góðu lífi frá því það var
frumsýnt fyrir 42 árum og er eitt af
þessum vinsælu klassísku stykkj-
um sem alltaf er hægt að treysta á.
The Winslow Boy gerist árið 1912
og eru aðalsöguhetjur myndarinn-
ar meðlimir Winslow-fjölskyldunn-
ar sem þurfa að berjast fyrir rétti
sínum og gegn ágangi fjölmiðla
þegar yngsti sonurinn er rekinn úr
skóla þar sem grunur leikur á að
hann hafi stolið peningum.
David Mamet er bandarískur en
hann hefur valið breska leikara í
aðalhlutverkin í The Winslow Boy
fyrir utan eiginkonu sína, Rebeccu
Pidgeon, sem leikur yfirleitt í öll-
um hans myndum og er skemmst
að minnast leiks hennar i þeirri
ágætu kvikmynd The Spanish Pri-
soner sem var sýnd i Háskólabíói
síðastliðinn vetur.
Winslow Boy er sjötta kvik-
myndin sem David Mamet leikstýr-
ir, áður hefur hann gert House of
Ganes, Things Change, Homicide,
Oleanna (eina kvikmyndin sem
Slam. Guy Edward leikur titilhlutverkið. Með honum á myndinni er Nigel
Hawthorne.
Síðustu dagarnir
The Last Days er kvikmynd sem
tilnefnd var til óskarsverðlauna í
vor í flokki heimildamynda og þá
var hún sýnd á Kvikmyndahátíð-
inni í Berlín i vor og vakti athygli
þar. í myndinni, þar sem undir-
tónninn er helfor nasista gegn gyð-
ingum í seinni heimsstyrjöldinn,
fylgjumst við með fimm ungversk-
Gömul kona minnist helfararinnar.
um gyðingum sem lifðu helförina
segja frá reynslunni sem þau urðu
fyrir og á hvern hátt það hefur haft
áhrif á líf þeirra. Fangabúðimar
þar sem þau voru eru heimsóttar
og minningarnar streyma fram.
The Last Days þykir áhrifamikil
og þótt hún gefi engin svör hvers
vegna helforin var farin þá þykir
hún gefa góða innsýn inn í þann
hrikalega veruleika sem segja má
að mannkynið allt beri ábyrð á.
Leikstjóri myndarinnar er James
Moll, ungur kvikmyndagerðarmað-
ur sem unnið hefur við klippingar
og er hann hér að gera sína fyrstu
kvikmynd. Einn frarrileiðenda
myndarinnar er Steven Spielberg,
en eins og kunnugt er þá er honum
helforin hugleikin og er skemmst
að minnast óskarsverðlaunamynd-
arinnar Schindler’s List, sem hann
leikstýrði.
The Last Days er heirn-
ildakvikmynd sem
Steven Spielberg hefur
hjálpað til að gera að
veruleika og fjallar um
fimm Ungverja sem lifðu
af helförina gegn gyð-
ingum í seinni
heimsstyrjöldinni.
The Last Days -
Bandaríkin 1998
Leikstjóm og klipplng:
James Moll.
Kvikmyndataka:
Harris Done.
Tónlist: Hanz
Zimmer.
ÉSSmm
BÓNUSVIDEO
Leigan í þínu hverfi
27. ágúst 1999 f ÓkUS
13