Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1999, Qupperneq 20
*
Barry Lydon. Stanley Kubrick bak við myndavélin. Aðalleikarinn Ryan O’Neal
lengst til hægri.
Stanley Kubrick 1928-1999:
BÉi
Ljósmyndarinn Stanley Kubrick að
leikstýra Killer’s Kiss árið 1954.
y
frá Bro
Stanley Kubrick ásamt Tom Cruise og Nicole Kidman við tökur á Eyes Wide
Shut.
aftur á steinöld með röð hnitmið-
aðra mistaka í Dr. Strangelove.
Myndir hans vekja ávallt sterk við-
brögð, knýja á um afstöðu sem seg-
ir manni ýmislegt um eigin innviði
sem maður kærði sig jafnvel ekkert
um að vita. Þegar best lætur spegla
myndir hans skuggahliðar okkar,
lýsa upp þessa afkima í sálarkirn-
unni sem þola ekki ljós og tekst
þannig að gera okkur órótt. Þetta
er oft erfitt að meðtaka því hann
reynir aldrei að strá sætuefni yfir
með þvi að veita okkur einhvers
konar huggun eða von.
Kubrick var oft kallaður bölsýn-
ismaður og sakaður um að hafa
litla trú á mannskepnunni. Slíkt er
of þægileg einföldun. Hann er af-
sprengi guðlausra tíma sem í
ákveðnum skilningi einkennast af
kaldri tæknihyggju og ofurtrú á
vísindi; sem sagt; hann er sendi-
boði válegra tíðinda. Og slíkum
mönnum er oft erfitt að fyrirgefa. í
nýlegri grein sinni (“Snilld og rusl“
Fókus 21. maí ‘99) fer Egill Helga-
son háðulegum orðum um Kubrick
og kallar hann meðal annars
„æðstaprest sálarlausrar tækni-
dýrkunar“. Þessi ummæli tel ég
byggjast á misskilningi. í þeim felst
að Kubrick hafi stundað trúboð,
jafnvel verið móralisti. Slíkt er
fjarri öllu lagi. Hvergi í
myndum hans er að
finna upphafningu á
tækni, t.d. gengur lykil-
verk hans, 2001, út
á algert frelsi frá
öllu hlutbundnu.
Nálgun hans var
hins vegar afar
smámunasöm og
byggðist mjög á há-
tæknilegum úr-
lausnum, kröfur
hans um tæknilega
fullkomnun áttu
þátt í þróun betri
linsa og filma, auk
þess sem hann var
einna fyrstur að til-
keyra „steadicam"
myndavélaútbúnað-
inn á sínum tíma í
The Shining. Og
varðandi meinta
harðstjórn Kubricks; Egill vitnar í
þau ummæli Truffauts að engin
fylgni sé milii fyrirhafnar við gerð
kvikmynda og útkomu, á sama hátt
er engin fylgni milli framkomu og
útkomu. Egill ruglar hér saman
vinnsluaðferðum Kubricks við
þann heim sem hann birtir okkur á
tjaldinu og segir fyrir um
ómennsku og tilfinningalega upp-
gjöf. En þó hann geri myndir með
þessum viðfangsefnum er ekki þar
með sagt að hann berjist fyrir
framgangi þeirra. Ég ætla ekki að
ganga svo langt að kalla hann sér-
stakan húmanista en maður sem
fylgir sannfæringu sinni af slíkum
krafti verður ekki sakaður um sál-
arleysi.
Kannski er einmitt nær að líkja
Kubrick við véfrétt. Véfréttin hefur
sem slík ekki afstöðu heldur lætur
aðeins uppi það sem hún veit. Sið-
an er það viðtakandans að túlka
vitneskjuna og bregðast við. Maður
getur reynt að afneita henni en
hún sækir að þér aftur og aftur
eins og friðlaus vespa. Þegar hún
svo loksins nær að stinga þig er
það kannski ekkert sérstaklega
ánægjuleg reynsla en þú ættir alla
vega að vera glaðvakandi og með
augun hjá þér.
Stanley Kubrick var umdeildur
kvikmyndahöfundur, sumir töldu
hann tilgerðarlegan, smásmuguleg-
an og kaldlyndan meðan aðrir dá-
sömuðu hina sterku myndrænu
sýn hans, einbeitni og miskunnar-
lausa krufningu á vondri veröld.
Allt má þetta til sanns vegar færa.
Það er auðvelt að láta suma kaflana
í 2001 fara í taugamar á sér ef mað-
ur horfir á myndina óvímaður, líkt
og merkingarleysið æpi á mann.
Hins vegar birtast þar á köflum svo
íðilfögur myndskeið og annars
heims að maður ölvast og sér fram
á að þurfa að skilja bílinn eftir ein-
hvers staðar. Og viðbjóðurinn sem
hann heldur að okkur í A
Clockwork Orange er jafnand-
styggilegur og hann er einkenni-
lega aðlaðandi; í lokin stendur
maður sjálfan sig að því að sam-
fagna óþokkanum Alex þegar í ljós
kemur að kerfiskörlunum hefur
ekki tekist að murka úr honum
ónáttúruna. Svo veit maður vart
hvort skal hlæja eða gráta þegar
samsafn einstakra en samt alltof
kunnuglegra vitleysinga, allt frá af-
dönkuðum forsetum, veru-
leikafirrtum hershöfðingjum og
brjáluðum vísindamönnum niður í
þvermóðskufulla dáta og húrrandi
kúreka með kjarnorkusprengjur og
flugmannspróf, sprengir hnöttinn
li'KT
Kvikmyndir
Stanleys Kubricks
Fear and Desire (1953)
Killer’s Kiss (1955)
The Killing (1956)
Paths of Glory (1956)
Spartacus (1960)
Lollta (1962)
Dr. Strangelove (1964)
2001: A Space Odyssey (1968)
A Clockwork Orange (1971)
Barry Lyndon (1975)
The Shining (1980)
Full Metal Jacket (1987)
Eyes Wide Shut (1999)
Ásgrímur Sverrisson.
Kynlíf
og
hjónabands
Eyes Wide Shut, síðasta
kvikmynd Stanleys
Kubricks, er einhver um-
deildasta kvikmynd síð-
ustu missera en tökur á
henni stóðu yfir í.tvö ár.
Lokamynd Kvikmyndahátíðar 1
Reykjavík verður Eyes Wide Shut,
síðasta kvikmynd Stanleys
Kubricks. Aðeins verður um eina
sýningu að ræða en myndin fer síð-
an í almenna sýningu nokkrum
dögum eftir sýninguna á kvik-
myndahátíð. Eyes Wide Shut er
lauslega byggð á skáldsögu eftir
Eyes Wide Shut
- Bandaríkin 1999
Lelkstjórl: Stanley
Kubrick.
Handrlt: Stanley
Kubrick og Frederic Raph-
ael.
Klipping: Nigel Galt.
Tónllst: Jocelyn Pook.
Lelkarar: Tom
Cruise, Nicole Kidm-
Pollack
Arthur Schnitzler sem heitir
Traumnovella. í henni segir frá
lækni sem fær mikla og þráláta
löngun til kynlífs utan hjónabands
eftir að eiginkona hans segist hafa
löngun til kynlífs með manni sem
hún hafði hitt og segir i leiðinni
undrandi eiginmanninum að hann
hljóti að hafa sínar eigin kyn-
lífslanganir. í framhaldi fer læknir-
inn í ástarsamband við dóttur eins
sjúklings síns en fær lítið út úr því
sambandi. Kvöld eitt þegar hann er
staddur í næturklúbbi fréttir hann
af kynlífshópi og ákveður að ná
sambandi við einhvern úr hópnum
með þátttöku í huga. Þetta á þó
ekki eftir að reynast honum sú
orkulind sem hann þarfnast en
auðveldara er að ánetjast fíkninni
en að losna við hana og fljótt lend-
ir fjölskylda hans í hringiðu at-
burða.
Hjónin Tom Cruise og Nicole
Kidman, sem leika aðalhlutverkin,
þóttu hafa sýnt meistaranum mikla
þolinmæði þau tvö ár sem tökur
stóðu yfir, aðrir voru ekki jafn þol-
inmóðir. Harvey Keitel hætti eftir
nokkrar vikur og Jennifer Jason
Leigh gat ekki mætt þegar átti að
taka atriði upp aftur sem hún var í
og því var ráðin önnur leikkona í
hennar stað. í stað Keitels kom
leikstjórinn kunni Sidney Pollack
en hann og Kubrick hafa verið vin-
ir lengi. Bæði Cruise og Kidman
hafa fengið góða dóma fyrir leik
sinn sem og myndin í heild þótt
ekki séu allir sammála um snilld
Kubricks og það gæti farið svo að
Stanley Kubrick verði fyrsti leik-
stjórinn sem fær óskarsverðlaun
látinn. Þrátt fyrir að Kubrick hafi
gert meistaraverk sem enginn
gleymir þá auðnaðist honum aldrei
að hampa óskarsverðlaunastyttu
sem besti leikstjórinn.
.
Tom Cruise og Nicole Kidman,
20
f Ó k U S 27. ágúst 1999