Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1999, Qupperneq 23
í Une chance sur deux leiðir Patrice Leconte
saman tvo frægustu leikara Frakka á þessari
öld, Jean-Paul Belmondo og Alain Delon, í
sakamálamynd þar sem rússneska mafían kem-
ur við sögu.
Helmings-
líkur
í sakamála- og ævintýramynd-
inni Une change sur deux segir frá
hinni ungu og fógru Alice Tomaso
sem er i foðurleit en á dánarbeði
sínu hafði móðir hennar sagt að
tveir kæmu til greina og þetta eru
tveir harðjaxlar sem þeir Jean-Paul
Belmondo og Alain Delon leika.
Höfðu þeir báðir verið með móður
hennar um sama leyti og hún fædd-
ist. Alice boðar þá báða á sinn fund
og það er eins og við manninn
mælt, þeir þola ekki hvorn annan
og segjast aldrei hafa vitað af til-
vist hins. Ákveðið er að komast að
raun um hvor sé faðirinn með
blóðprufu en þegar fara skal til
sjúkrahúss verður Alica það á að
taka ranga tösku með sér og þar
með hefst atburðarrás sem á eftir
að koma þeim gömlu til að rifja
upp liðna tíð þegar þeir kunnu bet-
Jean-Paui Belmondo.
ur að fara með vopn en flestir aðr-
ir og ástæðan er að í töskunni sem
Alice hélt sína eru mikil verðmæti
sem rússneska maflan telur sig
eiga.
Jean-Paul Belmondo og Alains
Delon voru síðari hluta sjötta ára-
tugarins og fram á áttunda áratug-
inn konungar í ríki sínu, óumdeil-
anlega frægustu leikarar Frakka af
karlkynslóðinni. Afrekaskrá þeirra
er mikil og löng og þar koma við
sögu margir meistara kyikmynd-
anna. Einu sinni áður hafa þeir
leikið saman í kvikmynd, Borsol-
ino, sem gerð var 1969. Belmondo
lék í sinni fyrstu kvikmynd 1957 en
verður frægur þegar hann lék í
kvikmynd Jean-Luc Godard, A
bout de souflle (1959). Alain Delon
lék í sinni fyrstu kvikmynd 1958 og
eins og Belmondo sló hann í gegn
1959 í Plein Soleil, sem Rene Clem-
ent leikstýrði. Báðir hafa verið
frekar rólegir á tíunda ártugnum,
Delon leikið í sex kvikmyndum og
Belmondo aðeins í fjórum myndum
og er þá Une chance sur deux með-
talin.
Patrice Leconte leikstýrði sinni
fyrstu kvikmynd 1973, La famille
Heureuse. Sú kvikmynd sem hefur
borið hróður hans víða er Ridicule,
sem hann gerði 1995 og var sýnd
hér á landi. Um að vinna með
stjömum á borð við Belmondo og
Delon segir Laconte: „Þetta eru
kvikmyndaleikarar sem eru búnir
að reyna allt og hafa mikla reynslu
að baki. Það kom mér á óvart hvað
þeir voru viljugir í að hlusta á mig
og það orðspor sem fer af þeim að
þeir taki ekki leiðsögn, leiki eins
og þeir vilja sjálflr, er eitthvað sem
ég kynntist ekki. Þeir eru ólíkir
leikarar að því leytinu að
Belmondo er fljótur að koma sér
inn í persónuna sem hann leikur
og hefur litlar áhyggjur á meðan
Delon gefur sér góðan tíma, hann
fylgdist vel með tökum þegar hans
hluti var búinn og varð rólegri eft-
ir því sem leið á tökutímann."
Une chance
sur deux
- Frakkland 1998
Lelkstjóri: Patrice
Leconte.
Handrit: Patrick Dewolf
og Serges Frydman.
Klipplng: Joelle Hache.
Tónlist: Alexandre Desplat.
Leikarar: Jean-
I Paul Belmondo, Alain
Delon, Vanessa Para-
i dis og Eric Defosse.
Alain Delon.
Sölvasalur á veitingahúsinu Sól-
oni íslandusi verður heimili
áhugasamra gesta á kvikmyndahá-
tíð. Þar verður starfræktur Klúbb-
ur Kvikmyndahátíðar DV í Reykja-
vík. Þar mun liggja frammi dag-
skrá hátíðarinnar og víst er að fátt
verður um annað rætt en kvik-
myndir meðan á kvikmyndahátíð-
inni stendur og fjölbreytnin i
myndum á hátíðinni er slík að
ekki mun vanta umræðuefni og
eins og ávallt vill verða þegar
áhugamenn um kvikmyndir hitt-
ast þá sýnist sitt hverjum um gæði
einstakra kvikmynda.
* Biðin var svo
sannarlega þess virði.
Því leikurinn fær frábæra dóma!
Til þess að toppa allt saman fá fyrstu 500 sem kaupa
Tiberian Sun hjá BT kaupauka. Iskalda 0.51 kók til að kæla sig niður
og miða á Inspector Gadget sem frumsýnd verður í Sambíóunum 10.
september. Er hægt að hafa það betra?
^ Pottþétt
lög frá áttunda áratugnum.
40 skotheld lög.
Star Wars
The Phantom Menace
Tvíhöfði
Kondí Fíling
The F.A. Premier
League Stars
Medievil
Tekken 3
Laugardag 10:00 ■ 16:00
Sunnudag 13:00 -17:00
(lokað BT Hafnarfirði sunnudag)
BT • Skeifunni 11 • 108 Rvk • Sími 550 4444
BT • Reykjavíkurvegi 64 • 220 Hafnarf. • Sími 550 4020
27. ágúst 1999 f Ó k U S