Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1999, Síða 24
*
*
Children of Heaven er
um fátækt en með
vönduðum vinnu-
brögðum leikstjórans
Majid Majidi, sem var
fimm mánuði að full-
gera handritið, tekst
honum að sýna fátæk
börn án þess að ræna
þau stoltinu.
Börn alheimsins (Bacheha-Ye
asaman) er írönsk verðlaunakvik-
mynd sem leikstýrt er af Majid
Majidi, sem einnig skrifaði hand-
ritið. Fjallar hún um böm í fá-
tækrahverfi í suðurhluta Teher-
ans. í byrjun kynnumst við Ali
sem á leið heim úr skólanum týnir
skóm af systur sinni sem hann var
að sækja til skósmiðs. Þar sem
hann telur að foreldrar systkin-
anna muni ekki hafa efni á nýjum
skóm biður hann systur sína Zahra
að þegja um atburðinn. Til að þau
geti blekkt foreldra sína þarf áætl-
un og hún felst í því að Zahra fer í
skóm bróður síns í skólann á
morgnana og síðan fær AIi þá til
afnota þegar líða fer á daginn. Þeg-
ar AIi er helgi eina að hjálpa föður
sínum við garðyrkjustörf sér Zhara
stúlku í skónum sem töpuðust.
Hún segir Ali hver stúkan er og
þau elta hana heim. Þegar þau upp-
götva að faðir stúlkunnar er blind-
ur og fjölskylda hennar er jafnvel
enn fátækari en þeirra fjölskylda
hætta þau við að fara fram á að fá
skóna aftur. Stuttu síðan sér Ali
auglýsingu um langhlaup fyrir
skóladrengi þar sem í þriðju verð-
laun em nýir skór. Þrátt fyrir að
hann geti varla talist í góðri æf-
ingu skráir hann sig í hlaupið og
stefnir á þriðja sætið og ekkert
annað.
Böm alheimsins er verðlaunuð
kvikmynd, til að mynda fékk hún
verðlaun á kvikmyndahátíðinni í
Montreal og Newport-kvikmynda-
hátíðinni, þá var hún tilnefnd til
óskarsverðlauna sem besta erlenda
kvikmyndin.
Um kvikmynd sína segir Majidi:
Hugmyndina fékk ég þegar vinur
minn sagði mér sanna sögu um
systkin sem bjuggu í nágrenni við
hann. Þau áttu saman eitt par af
skóm. Sagan um skóna lét mig ekki
í friði og ég ákvað að gera skóna að
þema í kvikmynd. Þegar ég hafði
lokið handritinu eftir fimm mán-
aða vinnu fann ég fyrir mikilli
væntumþykju gagnvart þessum
börnum þótt ég hefði aldrei séð
þau.“
Börn alheimsins varð mjög vin-
sæl í íran og hefði sjálfsagt orðið
mikið gróðcifyrirtæki ef öll skóla-
börn hefðu ekki fengið frítt á hana.
Málið var að Majidi átti í hinum •
mestu erfiðleikum með að fjár- *
magna myndina, sérstaklega þar
sem engir þekktir leikarar voru í
henni. Það endaði með því að stofn-
un sem hefur það að markmiði að •
mennta böm og unglinga fjármagn-
aði myndina og á móti fengu skóla-
böm að fara á hana ókeypis á
skólatíma.
Bacheha
- Ye asaman - íran 1997
Lelkstjðrn og handrlt:
Majid Majidi.
Kvlkmyndataka: Parviz
Malek.
Tónlist: Keyvan Jahanshahi.
Kllpping: Hassan Hassandoost
Lelkarar: Amir Naji, Amir Far-
3 rokh Hashemian, Ba-
hare Sediqui og
Nafise
1. Jafar-Mohammadi.
Heimildarmynd í fullri lengd um konuna sem
setti heimsmet í hópreið vakti gríðarmikia at-
hygli á síðustu Sundance-kvikmyndahátíð.
Myndin heitir „Sex: The Annabel Chong Story".
Hvernig kona setur
heimsmet í hópreið?
Klámmyndaleikkonan Annabel
Chong setti heimsmet í hópreið 19.
janúar 1995. Þá var hún 22 ára og
lagði stund á kvennafræði. Fyrir
framan myndavélamar hugðist hún
afgreiða 300 karlmenn en einn fol-
anna gleymdi að klippa á sér negl-
urnar og blóðgaði leikkonuna sem
neyddist þá til að stoppa. En Anna-
bel hafði samt slegið heimsmetið,
251 karlmenn höfðu komið við hjá
henni.
Eftir þetta afrek varð Annabel
umtöluð og átti sínar 15 mínútur í
sviðsljósinu. Hún fór á milli viðtals-
þátta og leikstjóri heimildarmynd-
arinnar, Gough Lewis, kom auga á
hana þegar hún var gestur í þætti
Jerry Springer. Annabel vakti for-
vitni leikstjórans upprennandi
(þetta er hans fyrsta mynd) og hún
samþykkti að gera myndina. Næstu
tvö ár fylgdist kvikmyndaliðið með
Annabel og tók leikstjórinn og að-
stoðarfólk stóran þátt í lífi Annabel,
leikstjórinn var m.a. farinn að sofa
hjá viðfangsefni sínu fyrir rest.
Ekkert er dregið undan í myndinni
og ekkert er heilagt. Stundin þegar
Annabel segir móðir sinni frá at-
vinnu sinni og heimsmeti er t.d. vel
skráð og eins rifrildi leikstjórans og
leikkonunnar, en Gough var ekki
mjög hrifinn þegar Annabel ákvað
að fara aftur í klámið.
„Þegar mér var farið að þykja
Annabel segir sér líka þaö vel aö
vera meöhöndluö eins og kjötstykki.
vænt um hana sem manneskju vildi
ég náttúrlega ekki að hún færi að
umgangast lið eins og Ron Jeremy
aftur,“ segir hann.
Þetta er athyglisverð mynd og
þeir sem sjá hana munu hafa nóg að
tala um i næsta saumaklúbbi eða
kaffipásu.
t í takniörkuðu
ntöld plaW-
■ uorna ut a VH
,töldp'ata
Tvö1
EUir \»að - el'
Tónieikarnvr
V
f ó k u s
27. ágúst 1999
24