Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.1999, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.1999, Blaðsíða 19
MÁNUDAGUR 30. ÁGÚST 1999 31 4 DV Sviðsljós Þokkadísin reyndist vera hörkutól: Rene gefur bófa einn á lúðurinn Það eru töggur í stelpunni. Rene Russo veit sko nákvæmlega hvernig bregðast á við uppáþrengjandi karl- peningi, ekki bara á hvíta tjaldinu, heldur einnig í hinum blákalda veruleika. Eitt er víst að hin fagra Rene get- ur kinnroðalaust kallað sig hasar- hetju eftir ævintýri sem hún lenti í á myrkri götu á eyju í Karíbahaf- inu. Þar skaut hún fimm skúrkum svo mikinn skelk í bringu að þeir höfðu sig á brott hið snarasta. Leikkonan segir frá hremmingun- mn í viðtali viö bandaríska blaðið Chicago Sun. Hún segist hafa orðið verulega hrædd þegar fimm ókunn- ugir menn hafi allt í einu birst þar sem hún var úti að ganga með vin- konu sinni. Hene Russo er hér með Pierce Srosnan fyrir frumsýningu á nýj- jstu myndinni þeirra. „Vilja þeir töskuna mína eða vilja þeir fá okkur? hugsaði ég. Eftir nokkra stund ákvað ég að malda í móinn. Ég starði í augu þeirra og sagðist eiga dóttur og mann heima. Síðan sagði ég að þeir gætu ekki hindrað för mína heim á hótelið," segir leikkonan í viðtalinu. En eins og nærri má geta létu bófamir ekki segjast við svona for- tölur. „Einn þeirra greip í handlegginn á mér og sneri hann aftur fyrir bak. Þá var mér nóg boðið. Ég sló hann beint á lúðurinn og öskraði eins hátt og ég lifandi gat. Þá áttuðu skítseiðin sig á því að þeir höfðu farið kvennaviilt og létu sig hverfa hið snarasta," segir Rene Russo og er réttilega ánægö með sig. Brasilísk fyrirsæta kynnir glæsilegan náttkjól á undirfatasýningu í Sao Paulo. Náttkjóllinn tilheyrir vor- og sumartísk- unni 1999-2000. Þetta var í sjöunda sinn sem undirfatasýningln var haldin í Sao Paulo. Jennifer og Puffy hika enn Kynbomban Jennifer Lopez og rapparinn Sean „Puffy“ Combs þráast enn við að viðurkenna að þau séu kærustupar. Kunnugir segja þó að sennilega muni varn- ir þeirra bresta innan skamms. Slúðurblöð um víða veröld hafa fylgst grannt með öllum ferðmn þeirra að undanfornu og eitt þeirra segir viðtal sem Puffy tók sjálfur við Jennifer í sitt eigið tímarit sé til marks um að þau séu saman. í viðtalinu segist Jennifer eiga kærasta. Kate Moss sögð vera á leið upp að altarinu Ofurfyrirsætan Kate Kate var áður með leik- Moss er á leið í hjónaband 9Ej0|§MH9^^9 aranum Johnny Depp og ef marka má frásögn tíma- var samband þeirra ritsins People. Tímaritið JM stormasamt. Þau voru fuliyrðir að Kate ætli að H vH ýmist að skilja eða taka ganga að eiga gitaristann Bfip 9| saman á ný. Kate var síð- Antony Langdon. ■ - ar orðuð við Talsmaður Kate stað- J hjartaknúsarann Leon- festir að hún og Antony * '9 ardo DiCaprio, tónlistar- séu í ástarsambandi. Öll- 9 manninn Evan Dando og um fréttum um trúlofun 9 Billy Zane, óþokkann í er vísaö á bug. 99|9^__________J Titanic. SKtíaáK. ÆWv WTfHWu-. LLMOXB:; sem þú heidur ekki vatni yfir. BÓNUSVIDEO Loígan t pínu hvorfi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.